Vísir


Vísir - 04.01.1977, Qupperneq 10

Vísir - 04.01.1977, Qupperneq 10
10 VÍSIR Ctgefandi:Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri:Davf&Guðmundsson Ritstjórar: t>orsteinn Pálsson dbm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Um- sjón með heigarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn:Edda Andrésdóttir, Einar Guðfinnsson, Elias Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, Guðjón Arngrímsson, Kjartan L. Pálsson, óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guövinsson. iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Akur- eyrarritstjórn: Anders Hansen. Ctlitsteiknun: Jón óskar Hafsteinsson og Magnús ólafsson. Ljós- myndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurðsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar :ilverfisgata 44. Slmar 11660,86611 Afgreiðsla : Hverfisgata 44. Simi 86611 Ritstjón:Sfðumúla 14.Simi 86611, 7linur Akureyri. Simi 96-19806 Askriftargjaid kr. 1100 á mánuði innanlands. Verð I lausasölu kr. 60 eintakið. Prentun: Blaðaprent hf. Verðbólga og upplausn Áður fyrr var hafísinn talinn landsins forni f jandi. Hann hefur oftsinnis i gegnum tíðina valdið hallæri í búskap þjóðarinnar. En hlutirnir eru afstæðir bæði í tíma ogrúmi. í áramótaboðskap sínum til þjóðarinn- ar sagði forsætisráðherra/ að nú væri það verðbólgan, sem kalla mætti landsins forna f janda. Og staðreynd er, að forsætisráðherra hafði talsvert til síns máls þegar hann komst þannig að orði. Hafísnum var ekki unnt að bægja frá landi. Þar ráða náttúrulögmál, sem við höfum ekki vald yfir. En verðbólgan er á hinn bóginn heimatilbúin að miklu leyti. Forsætisráðherra sagði því með réttu, að fyrir löngu væri kominn tími til að reka verðbólguvágestinn á dyr. Tími væri kominn til að sýna, að alvara fylgdi orðum. Segja má, að þjóðin sé orðin vön þessum boðskap.. Hann var jafnvel fluttur á þeim tíma, er verðbólgan var að visu mikil, en þó ekki nema brot af því, sem hún hefur verið undanfarin ár. Sífelldar áminningar um hert viðnám gegn þessum landsins forna f janda hljóma kunnuglega. Það sem á skortir er samstaða um raunhæfar aðgerðir. Og biðin eftir þeim er vissu- lega oröin löng. Staðreynd er, að borgararnir eru orðnir þreyttir á innantómum orðum, hvort sem verðbólgan er nefnd ó- freskja eða landsins forni fjandi. Nú ætlast þeir til þess, að stjórnmálamenn og forvígismenn hagsmuna- samtaka leggi þrætubókina á hilluna og taki sameig- inlega á vandamálinu með gagnkvæmri pólitískri á- byrgð. Verðbólgunefndin ætti að vera vettvangur til þess að hefja slíkt samstarf. Nýsköpun efnahagslífsins er einnig forsenda fyrir siðferðilegum umbótum í þjóðfélaginu. Enginn fer í grafgötur um, að verðbólgan hefur stuðlað að al- mennri upplausn á flestum sviðum þjóðlífsins. For- sætisráðherra gerði þessa skuggalegu hlið verðbólgu- þjóðfélagsins að umræðuefni í áramótaboðskap sín- um og vék m.a. að tvenns konar tískutrú í því sam- bandi. Hann hélt því réttilega f ram, að sá skortur á siðgæð- isvitund að líta svo á að mannlegur þroski felistí þvf að láta allt eftir sér, væri undirrót margra afbrotamála og afsökun til þess að gefa sig á vald hömlulausri neyslu vímugjafa og fíkniefna. Forsætisráðherra sagði einnig og það með réttu, að uppiausnina mætti rekja til þeirrar tískustefnu, sem kennir að menn fái engu áorkað nema með ofbeldishótunum eða hreinni valdbeitingu. Forsætisráðherra átaldi einnig tal um lausung æskunnar og spurði, hvort uppeldið mætti ekki betur fara á heimilum og í skólum. i spurningu sem þessari felst vissulega umhugsunarverð gagnrýni. En inn i þetta dæmi hefði einnig mátt taka nauðsyn á auknu siðferðilegu aðhaldi i f jármálalífi og opinberri stjórn- sýslu. Sannleikurinn er sá, að þrátt fyrir miklar umræður um siðferðilega upplausn í þjóðfélaginu, hefur þess ekki orðið vart, að á framferði manna í fé- og stjórn- sýslu hafi verið brugðið siðferðilegum mælikvarða. I þeim efnum hafa lengi gilt flokkspólitískar mælistik- ur og þær virðast vera við lýði enn. Á þessu sviði örlar ekki enn á umbótastarfi. Enn sem fyrr leggja stjórnmálaflokkarnir allir kapp á að staðsetja helstu fésýslumenn sína og odd- vita í húsbyggingarsjóðum og flokkshlutafélögum i bankaráð og borgarráð. öllum er þó Ijóst, að umfangsmikil fjáröflun og nauðsynleg til starfsemi flokkanna er ósamrýmanleg fyrirgreiðslustarfsemi i opinberum stofnunum. Því er brýnt að taka þennan þátt inn í reikningsdæmið, ef menn hafa hug á ný- sköpunarstarfi í þjóðfélaginu. Þriöjudagur 4. janúar 1977 vísm Liðið ár er „nýtt ■! ártal handa ís- lenskri skólaœsku að leggja á minnið" — sagði dr. Kristján Eldjárn, forseti íslands, í nýársboðskap sinum til þjóðarinnar „Arið 1976 var sigurár, nýtt ártal handa islenskri skólaæsku að leggja á minnið, eins og árið sem verslunaránauö var létt af þjóðinni eða þegar landið fékk heimastjórn eða þegar íslend- ingar urðu fullvalda þjóð. Það mun verða kallað árið, sem vér fengum óskoruð yfirráð yfir fiskimiöunum á landgrunninu”, sagði dr. Kristján Eldjárn, for- seti islands, i nýársboðskap sín- unt til þjóðarinnar, sem hann flutti i rikisútvarpið á nýársdag. Forsetinn fjallaði sérstaklega um hlut landhelgisgæslunnar og sagði m.a.: „Þeir islenskir varðskips- menn, sem horfðu á bresku siglutoppana hverfa við hafs- brún hinn fyrsta desember siðastliðinn urðu vitni að miklu sögulegu sjónarspili. Engir voru betur að þvi komnir en þeir, þvi þætti landhelgisgæslunnar i þessu islenska þrjátiu ára striði eða vel það verður með hófsam- legum orðum svo lýst, að hann hafi verið með sæmd og prýði. Einu sinni var orðið sægarpur meira notað i máli voru en verið hefur um sinn. Nú er tími til að bera sér þetta gamla orð i munn, þegar islenskum land- helgisgæslumönnum eru færðar skyldugar þakkir, án þess þó að þvi sé gleymt, að fleira þarf en góða sjómenn til að vinna is- lenskt þorskastrið. Fleiri en þeir hafa þurft að sigla krappan sjó og stýra milli skers og báru i baráttu islendinga fyrir þeim sigri, sem vér hrósum, enda skal nú öllum þakkað, sem traustir stóðu hver á sinum rétta stað, bæði á sjó og landi”. Mikilvægt hlutverk fiskifræðinga- Siðan fjallaði forsetinn um nýtingu miðanna, og sagði þá m.a.: „Nú er ekki stríð fyrir hönd- um, heldur fyrirhyggjusöm ráðsmennska, ráðdeildarsöm nýting bjargræðislindanna i hinni nýju fiskveiöilögsögu. Engum hefur dulist hve heilla- drjúgan þátt éslenskir visinda- menr, á sviði fiskifræði og haf- fræði hafa átt i öllum mál- flutningi vorum á undanförnum árum. Það er starfi þeirra að þakka hversu ört skilningur manna á háska rányrkjunnar hefur vaxið á allra siðustu tið, svo og hvað gera þarf til að bægja voðanum frá. Héðan i frá verður að lita á islenska fisk- veiðilögsögu sem einn stóran akur.” Og siðar: „Oft er þess getið með nokkru stolti, að frumkvæði islendinga virðist hafa flýtt fyrir þeirri þróun, sem nú er fram komin i hafréttarmálum. Ekkert mælir þvi igegn.aðá sama hátt getum vér undir leiðsögn islenskra fiskifræðinga orðið öðrum til fyrirmyndar um fiskvernd, forustumenn um að vernda og - avaxta eitt af matforðabúrum veraldar”. Menningarmálin. Siðar i ræðu sinni fjallaði dr. Kristján Eldjárn um Skuggi alvarlegra afbrota og vafasamra viðskipta féll á liðið ár — sagði Geir Hallgrimsson, forsœtisráðherra, í ávarpi sínu til þjóðarinnar á gamlárskvöld „Óneitanlega hefur fallið skuggi á liðið ár af ýmiss konar alvarlegum afbrotum og vafa- sömum viðskiptum, sem hafa veriö og eru f umfangsmikilli rannsókn”, sagði Geir Hall- grfmsson, forsætisráðherra i áramótaávarpi sfnu til þjóðar- innar f rikisútvarpinu á gamlárskvöld. í ávarpi sinu fjallaði forsætis- ráðherra m.a. um þann skort á siðgæöisvitund, sem væri undir- rót þessara mála, og sem hann taldi, að ætti aö nokkru upptök sin i þeirri tiskutrú ,,að mann- legur þroski felist i þvi að láta allt eftir sér, veita öllum tilfinn- ingum og hvötum útrás, án til- lits til þess hverjar þær eru og hvort þær horfa til góðs eða ills.... Sú upplausn, sem vart hefur orðið f bióðfélaeinu, stafar einn- ig af annarri tiskustefnu, sem kennir, að menn fái engu áorkað nema með aögangshörku, of- beldishótun eða hreinni vald- beitingu.” Fullorðna fólkinu að kenna? Siðan sagði forsætisráðherra m.a.: „Æskufólki og lausung þess er ööru fremur kennt um það sem miður fer. En er það rétt? Er ekki nær aö kenna fulloröna fólkinu um það, sem aflaga hef- ur farið? Er ekki ástæða til að lita i eigin barm og kanna, hvaða uppeldi unglingar fá i for- eldrahúsum og i skólum? Höf- um við, fullorðna fólkið/verið æskunni nauðsynleg fyrirmynd með þvi að leitast við að lifa I samræmi vð grundvallaratriöi kristins siögæðis? Höfum við beitt okkur sem skyldi og kennt æskunni þann sjálfsaga, sem ábyrgö er samfara, þeirri ábyrgð að vera maður? Þessum spurningum er nauð- synlegt aö við svörum hvert og eitt i verki, áður en óáran er komin I siöu þjóðarinnar og háttu. Aðsjálfsögðu verðum við að tryggja réttaröryggi allra landsmanna og greiða fyrir rannsókn mála, uppljóstrun af- brota og fullnustu dóma. En mestu máli skiptir að stemma á

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.