Vísir - 04.01.1977, Síða 11

Vísir - 04.01.1977, Síða 11
Þriðjudagur 4. janúar 1977 11 menningarmálin, visindi, listir og bókmenntir og varðveislu og ávöxtun menningararfsins, og sagði, að i þessum efnum hefði verið haldið sæmilega i horfinu. „Ahugi á myndlist og tónlist virðist greinilega vera vaxandi hér á landi og þessar listir eru orðnar miklu snarari þáttur i þjóðlifinu en var fyrir skemmstu. Og áhugi á bók- menntum eða a.m.k. bókum er samur við sig vor á meðal. Sagt er að út hafi komið um 300 bækur fyrir siðastliðin jól. Það segir að visu ekki aðra sögu en þá, að bókafýsn islendinga er með eindæmum. Én sem betur fer eru hér með þessari kynslóð mörg skáld og margir rit- höfundar, sem með reisn halda á loft hinu forna merki. Einn af gleðiviðburðum liðins árs var það, að islenskur rithöfundur og islenskt tónskáld voru heiðraðir með listaverðlaunum Norður- landaráðs. Sú gleði vor stafaði ekki af þvi, að vér þyrftum að láta útlendinga segja oss frá ágæti þessara listamanna. Oss var kunnugt um það áður — eða var það ekki? Hún stafaði af þvi, að vér erum stolt af hverjum sigri islenskra afreks- manna og viljum að heimurinn taki eftir honum. A sama hátt fylgdist þjóðin af óskiptum áhuga og aðdáun með sigur- förum islenskra skákmeistara á árinu sem leið og einnig þvi, að islenskur jarðvisindamaður t4k við afreksmerki, sem aðeins er veitt örsjaldan og þá fyrir frábæra verðleika.” Þjóðfélagslegt réttlæti í lok ávarps sins sagði for- setinn m.a.: „Það er viðurkennt markmið vor allra, að hér skuli rikja þjóðfélagslegt réttlæti. Það er tiltölulegur jöfnuður manna i milli, að einskis hlutur sé fyrir borð borinn, að allir eigi rétt til sæmandi hiutar af sameigin- legum aflaforða þjóðarinnar, hvort heldur hann er i fullu fjöri eða hann bagar elli, sjúkleiki eða örkuml. 1 þessu efni hljótum vér að sækja fram til félags- legrar samhjálpar eins og best er hjá grannþjóðum vorum og gæta þess, að öldurót verðbólgulifsins beri oss ekki af leið. Ef til vill er þetta brýnast af öllu, þegar vér nú litum fram á leið i þeirri von að félagsleg menning megi vaxa og vel hafast á komandi tið.” —ESJ. að ósi og leggja meiri áherslu á mannrækt á heimilum og i skól- um og i kirkjum landsins”. Prófsteinn I ávarpi sinu fjallaöi forsætis- ráðherra einnig um landhelgis- málið og efnahagsmálin. Hann lagði áherslu á, að það væri „skylda okkur að rækta svo miðin, að hámarksnýting fisk- stofna komi sveltandi heimi i góðar þarfir, engu siður en okk- ur sjálfum. Sérhagsmunir, sundurlyndi og skammgóður vermir má ekki spilla skynsam- legum ráðagerðum um fisk- vernd og fiskveiðar, sem eru á okkar valdi”. Hann fjallaði einnig um þá prófsteina, sem islendingar stæðu frammi fyrir: „Ljóster,aðþað er prófsteinn sjálfstæðrar þjóðar að standa i skilum og vera óháð lánar- drottnum sinum. Annar prófsteinn biður þjóðarinnar. Verðbólgan er slikur vágestur að allra áliti, að fyrir löngu er timi til kominn að sýna að alvara fylgir orðum og reka hann á dyr með samstööu og sjálfsaga landsmanna á nýju ári. Þriðji prófsteinninn er að skipta þjóðartekjunum með réttsýni og samkomulagi milli landsins barna, þannig að meiru sé ekki skipt en aflað er og þeim sé fyrst og fremst sinnt, sem minnst hafa fyrir sig að leggja.” — ESJ. handvade SOUVENIRS m o jm l{ 3 -m ' * ( '***! ' ) * ,i, wA i !JHfl HAFNARSTRÆTI Á AKUR- EYRI VERÐI GÖNGUGATA • Hafnarstrœti er miðdepill alls athafnalífs í bœnum • Flestir bœjarbúar leggja þangað leið sína oft í viku • Auðvelt yrði að finna bílaumferð annan farveg • Listaverkasýningar og útihljómleika œtti að skipuleggja á göngugötunni á sumrin • Veðurfar ú Akureyri er með þeim hœtti að ,þar er oft gott að dvelja utan dyra, öfugt við það sem verið hefur í Reykjavik undanfarið í mörgum bæjarfélögum viða um heim hefur það tíðkast að gera hluta aðalverslunarhverf- anna svo úr garði, að þar er að- eins gangandi vegfarendum heimiluð umferð. Verða hér ekki talin upp nein dæmi um það, en þó má minna á Strikið i Kaupmannahöfn, og nú siðast Austurstræti i Reykjavik. En báðar þessar götur, hvor i sinni borg, setja óneitanlega sérstæð- an svip á bæjarlifið. Varla mun nokkur sá finnast er breytavildi um og heimila þar bilaumferð að nýju. A Akureyri er ekki að finna neina slika göngugötu, en þar eru þó allar aðstæður fyrir slika verslunargötu fyrir hendi. Er hér að sjálfsögðu átt við Hafn- arstræti, milli Brekkugötu eða Ráðhússtorgs, og Kaupvangs- strætis. Hafnarstræti á Akur- eyri er óumdeilanlega mesta verslunargatan þar i bæ, og þar eru samankomnar flestar versl- anir bæjarins. Mig rekur sérstaklega minni til þess, er ég kom i fyrsta sinn til Akureyrar fyrir tæpum sex árum, hve einstakur miðbærinn á Akureyri er i sinni röð. Þar er jafnan mjög margt um mann- inn, og þegar óvenju margt fólk er þar á ferli, er götunni alveg lokað fyrir bilaumferð. I miðbæinn á Akureyri koma flestir bæjarbúar einhvern tima i hverri viku og stór hluti þeirra daglega. Er fólk þar að sjálf- sögðu i hinum ýmsu erinda- gjörðum, en þeir eru lika fjöl- margir sem þangað leggja að- eins leið sina til þess að „sýna sig og sjá aðra”, eins og oft er sagt. Miðbærinn á Akureyri, og þá einkum Hafnarstræti, er með öðrum orðin eins konar sam- komustaður bæjarbúa, auk þess að vera miðdepill athafnalifs bæjarins. I miðbæ Akureyrar, Hafnar- stræti og næsta nágrenni, er sem fyrr segir að finna aðal- verslunarhverfi bæjarins. Auk verslana eru þar kaffihús og matsölustaðir, bankar og aðrar þjónustustofnanir, allir skemmtistaðir bæjarins og enn- fremur bæði kvikmyndahúsin i bænum. Þarna er þvi hið raun- verulega hjarta Akureyrar að finna. Þarna er þvi mjög ákjósan- legt tækifæri til að útiloka „blikkbeljurnar” af litlum bletti, þar sem maðurinn sjálfur gæti athafnað sig að vild sinni. Auðvelt ætti að vera að finna bilaumferðinni annan farveg, og nærliggjandi götur ættu án stórfelldra breytinga að geta tekið við þeirri umferð sem nú fer um Hafnarstræti. 1 Hafnar- stræti eru aðeins um 30 bila- stæði, þannig að einnig ætti að vera unnt að koma kyrrstæðum bilum fyrir annars staðar, til dæmis við gömlu ferðaskrifstof- una, eða á nýju uppfyllingunni neðan Dynheima. Heppilegast yrði væntanlega að göngugatan næði allt frá gatnamótunum við Kaupangs- stræti, og að Brekkugötu, þó þannig að unnt verði að aka á fram frá Strandgötu og upp Brekkugötu. Ef til vill yrði einnig nauðsynlegt að heimila strætisvögnum að aka um Ráð- hústorg eins og nú er. Anders Hansen skrifar Ef af þvi yrði, að Hafnarstræti yrði gerð að göngugötu, þyrfti að sjálfsögðu að gera ýmislegt til að gera hana meira aðlað- andi en nú er, t.d. með þvi að setja þar upp listaverk, bekki fyrir vegfarendur og fleira i þeim dúr. Þar sem hitaveita á Akureyri er nú i þann mund að verða að veruleika, yrði einnig unnt að hita götuna upp, þannig að ekki festi þar snjó yfir vetr- armánuðina. Enniremur ber að hafa veður- far á Akureyri i huga, þegar ræddar eru hugmyndir um að gera Hafnarstræti að göngu- götu. En það er kunnara en frá þurfi að segja, að veðurfar á Akureyri yfir sumarmánuðina ermeð þeim hætti, að vel hentar til dvalar utandyra, öfugt við það sem verið hefur i Reykjavik undanfarin ár. Þar er sólrikt og þurrt og oft svo miklar stillur að varla blaktir hár á höfði svo dögum skiptir. Þvi er jafnvel unnt að hugsa sér að komið yrði upp útimatsölustöðum á göngu- götunni, þar sem fólk gæti notið veitinga i góðu veðri. Útihljómieika og listaverka- sýningar ætti einnig að skipu- leggja, og vafalaust dytti mönn- um fleira i hug ef þessar hug- myndir yrðu ræddar i alvöru. Akureyringar eru stoltir af miðdepli bæjar sins, og þeir mega vissulega vera það. Þeir hefðu þó enn meiri ástæðu til að vera það ef Hafnarstræti yrði breytt i göngugötu. Hér er kom- ið verðugt verkefni fyrir bæjar- fulltrúa og aðra þá er málefni Akureyrarbæjar varða til að glima við. — AH

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.