Vísir - 07.01.1977, Síða 1
Siddegisbiad fyrir
fiéiskyiduna
alla f rJaS
Gœsiufangarnir í Guðmundar- og Geirfinnsmólinu:
Grunaðir um að vera valdir
að þriðja mannshvarfínu
Visir hefur spurt, aö viö rann-
sókn á málum þeirra aðila, sem
setið hafa i gæsluvaröhaldi
vegna Guðmundar og Geir-
finnsmálsins, hafi komiö fram
alvarlegar grunsemdir um, aö
þeir séu viðriðnir a.m.k. eitt
manndráp til viðbótar og mun
það hafa verið útlendingur er
þar átti i hlut.
Þetta manndráp mun hafa átt
sér stað áður en Geiríinnur
Einarsson hvarf.
Grunsemdir rannsóknar-
manna um þetta atriði munu
hafa vaknað við athugun á
framburði gæsluvarðhaldsfang-
anna, einkum að þvi er varðar
flutning á likum. Þótti margt
benda til að um flutning á fleiri
likum en tveimur hafi verið að
ræða, og bentu þvi sterkar likur
til að íangarnir hefðu átt hlut að
fleiri afbrotum af þessu tagi.
Samkvæmt upplýsingum
þeim, sem Visir hefur aflað sér
munu gæsluvarðhaldsfangarnir
hafa falið lik útlendingsins með
svipuðum hætti og siðar varð
um jarðneskar leifar þeirra
Guðmundar Einarssonar og
Geirfinns Einarssonar.
Frekari könnun þessa máls
mun hafa legið niðri að mestu
undanfarið, enda einbeitir sam-
starfshópur rannsóknarlögregl-
unnar og Sakadóms Reykjavik-
ur sér að þvi þessa dagana að
ljúka frágangi gagna i Geir-
finnsmálinu.
Þýski sakamálasérfræðingur-
inn Karl Schuts er nú kominn
aftur til landsins eftir jólaleyfi,
en i viðtali Visis við hann fyrir
skömmu kom fram að hann
dveldist hér tiltölulega stuttan
tima nú i upphafi ársins. Schuts
sagði Visi að öll meginatriði
Geirfinnsmálsins lægju nú ljós
fyrir og unnið væri að ýmsum
tæknilegum rannsóknum og
sannprófunum.
Þegar þvi væri lokið yrði boð-
að til blaðamannafundar og
efnisatriði málsins kynnt.-ESJ.
Hvenœr verður ein
þjóð fullnuma
í utanríkismólum
Þetta er heitið ó fyrstu föstudagsgrein Indriða G. Þorsteinssonar
rithöfundar um þjóðmál i Visi, en hún birtist í dag undir yfirskriftinni:
„Neðanmáls". Slikar greinar munu birtast vikulega hér i Visi
Sjábls. 10-11
Snjókoman undanfarna daga hefur vissulega reynst velkomin tilbreyting fyrir börnin, sem njdta
þess aöleika sér f snjónum, fara I snjókast og búa til snjókarla og kerlingar. En þaö verður litil þörf
fyrir hlýja vettlinga i dag og á morgun á höfuöborgarsvæðinu þvf spáð er áframhaldandi hláku. Hins
vegar kann að kólna á ný eftir morgundaginn, hugsanlega með einhverjum éljum. Ljósmynd Loftur.
Ríkissaksóknari
krefst framhalds-
rannsóknar í óvís-
anamólinu - *i* w*. 3
„GAPI NÚ HVER
SEM BETUR GETUR"
— mœlir Svarthöfði á annarri síðunni í dag
Hin íslenska þögn
Haraldur Blöndal skrifar um erfiðleika að fá
mikilvœg skjöl frá fyrri árum til athugunar
hér á landi í grein, sem hann nefnir:
Hvers vegna þarf að skrifa sögu íslands
erlendis?. — sjá bls. 9
. ——^