Vísir - 07.01.1977, Síða 3

Vísir - 07.01.1977, Síða 3
3 vísm ' Föstudagur 7. janúar 1977 Ríkissaksóknari krefst framhaldsrannsóknar í óvisanamólinu: Sérstaklega verði rannsakaður hlutur bankastarfsmanna að vexti og viðgangi tékkakeðjuútgófu eða sðlu" Rikissaksóknari, Þórður Björnsson, hefur nú svarað bréfi Hrafns Bragasonar, um- boðsdómara i ávisanamálinu svonefnda, sem sent var 27. desember siðastliðinn varðandi það, hvort rannsókn skuli haldið áfram og hvaða stefnu skuli taka um framhaldandi rann- sókn. 1 bréfi rikissaksóknara segir, að af ákæruvaldsins hálfu sé þess krafist að Hrafn haldi á- fram rannsókn málsins og tekin verði ákveðin stefna, sem nánar er lýst i fjórum köflum. Fara þeir hér á eftir. 1. Gerð verði aðgengileg skrá yfir alla þá tékka, sem eigi var til raunveruleginnistæða fyrirá gjalddaga þeirra eða þegar þeir voru sýndir til greiðslu. Tékkar þessir verði flokkaðir eftir út- gefendum, tékkareikningum og aldri. Útgefendur og viðtakendur tékka þessara verði yfirheyrðir um tilefni og önnur atvik að út- gáfu þeirra, þar á meðal hvort útgefandi hafði einhvern fyrir- vara á um gjaldfang þeirra og greiðslu. Samprófun fari fram ef misræmi verður á milli fram- burða. Þá komi fram hverjir af tékk- um þessum hafa siðan verið greiddir og hvenær innistæða reyndist vera til fyrir þeim og þeirvoru innleystir. Ennfremur komi fram upplýsingar um greiðslur af hálfu tékkaskuld- ara umfram tékkafjárhæð. 2. Rannsakað verði sérstaklega i hve rikum mæli útgefendur tékka hafa notað þá til að stofna til og halda við tékkakeðju eða keðjusölu á tékkum, sbr. það, sem segir um það efni i bréfi Seðlabanka Islands frá 9. ágúst s.l. 3. Rannsakað verði frekar og eins itarlega og kostur er hverja yfirdráttarheimild hver tékka- útgefandi kann að hafa haft þegar hann gaf út hvern ein- stakan tékka, sem ekki var til raunveruleg innistæða fyrir, sbr. 1. lið. Fram komi fjárhæð, timalengd og form yfirdráttar- heimildar svo og settar trygg- ingar. Ef vafi kann að leika á um yfirdráttarheimild verði tékka- útgefandi og sá bankayfir- maður, sem hann kveður að veitt hafi honum yfirdráttar- heimildina eða hann hafi talað við um hana, yfirheyrðir og fari samprófun fram ef misræmi verður á milli framburða. 4. Rannskað verði hvort og í hve rikum mæli einstakir starfs- menna banka hafa innleyst eða greitt út fjárhæðir einstakra tékka, sem ræðir um í 1. lið, án þess að grennslast fyrir um það hjá viðkomandi banka, hvort innistæða var fyrir hendi eða ekki. Sérstaklega verði rann- sakað hvort og að hve miklu leyti bankastarfsmenn hafa átt hlut að vexti og viðgangi tékka- keðjuútgáfu eða sölu. Vakin er athygli á þvi, sem segiri bréfum Seðlabankans frá 9.ágúst og 3. september s.l. um þetta efni. Þess er vænst að rannsókn málsins verði hagaö þannig að sem gleggst skil verði á miili einstakra sakaraðila og sakar- efnis á hendur þeim svo að auð- veldara verði að skilja málið i sjálfstæða hluta ef til ákæru kemur. Fyrrgreindar fjórar skjala- möppur fylgja hjálagt. Þórður Björnsson „Ekkert af mínu venslafólki yfirheyrt eftir sakbendinguna" segir Haukur Guðmundsson ,,Ég hef ekkert um það heyrt að yfirheyrslur hafi farið fram, að minnsta kosti var ekkert af minu venslafólki yfirheyrt eftir að sakbendingu lauk”, sagði Haukur Guðmundsson rann- sóknarlögreglumaður i morgun. 1 frétt eins blaðanna i gær kom fram að nauðsynlegt hefði þótt að yfirheyra einhverjar af stúlkunum 17. Haukur tók þaö fram að sam- kvæmt þeim athugunum sem hann hefði látið gera varðandi lögmæti þessarar aðgeröar, benti allt til þess að þetta væri ólögmætt, þó enn liggi ekki fyrir niðurstöður. Þess má geta að meðal kvennanna 17 voru tvær toll- freyjur af Keflavikurflugvelli. —EA Slótruðu 30 þúsundfœrri kindum en haustið 1975 Endanlegar töiur um kinda- kjötsframleiðsiuna ifyrra sýna, að framleiðslan minnkaði um 4.6% á árinu. Slátrað var rúmlega 30 þús- und kindum færra en haustið 1975, og fallþungi var einnig nokkru minni að meðaltali. Framleiðslan varð rúmlega 14 þúsund lestir. * Hér sést einingahúsið, sem reist var á tveimur dögum á Siglufirði. Fyrir framan húsið standa f.h. Matthias Sveinsson, framkvæmdastjóri Húseininga h.f„ ómar Hauksson, sem keypti húsið, ásamt ungum syni slnum, og Þórarinn Vilbergsson, stjórnarformaður fyrirtækisins. REISTU 150 FERMETRA HÚS AF GRUNNI Á TVEIM DÖGUM Fyrir nokkrum dögum siðan var reist af grunni 150 fermetra ibúðarhús á Siglufirði. Hús þetta er timburhús byggt með einingum, sem framleiddar eru hjá Ilúseiningum h.f. á Siglu- firði. Þessi stutti byggingatimi' byggðist á forframleiðslu á stöðluðum einingum i verk- smiðju Húseininga, en áður hafði veriö gengið frá grunni fyrir húsið. Hús þetta teiknaöi Viðar Ól- sen, tæknifræöingur, en það voru starfsmenn Byggingafé- lagsins Berg h.f. á Siglufirði, sem reistu húsið. —ESJ Auglýsing Flugleiða bar sannarlega góðan árangur, þótt skilyrði væru sett og kröfur gerðar. Yfir 500 sóttu um flugfreyju- og þjóna- störf hjó Flugleiðum Flugleiðum bárusb. rúmlega fimmhundruð umsóknir þegar auglýst var eftir flugfreyjum og flugþjónum á DC-8 þotur Loft- leiða, um áramótin. Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði VIsi að aldrei hefðu áður borist jafn margar umsóknir. Fjölmargir karlmenn virðast hafa áhuga á flugþjónsstarfinu, þvi það bárust ekki siður um- sóknir frá þeim. Flugleiðir ættu að geta fleytt rjómann ofan af, þvi af þessum rúmlega fimmhundruð verða ekki ráðnir nema rúmlega fjörutiu. Námskeið fyrir hina útvöldu hefst svo i byrjun febrúar. Raunar verða námskeiðin tvö, þvi ekki þykir gott að hafa nema svosem tuttugu á hverju þeirra. Loftleiðir hafa ekki haldið námskeið fyrir flugfreyj- ur/þjóna á sinar vélar i þrjú ár, en Flugfélagiö hélt eitt fyrir Boeing 727 þotur sinar i fyrra. Flugfreyjur þurfa, ekki siður en flugmenn, að hafa réttindi á hverja flugvélartegund fyrir sig. Það eru þær sem hafa stjórn með höndum i farþegarýminu, ef eitthvað ber útaf, og verða þvi að þekkja allt eins og stofu- gólfið heima hjá sér. Þótt sé nú búið að sameina Flugfélagið og Loftleiðir, verð- ur þvi að þjálfa áhafnirnar sitt i hvoru lagi. Miklar kröfur Flugleiðir gera kröfur til og setja skilyrði þeim sem vilja fljúga með þeim. 1 auglýsing- unni sagði að umsækjendur skyldu vera á aldrinum 20-26 ára. Þeir skyldu hafa góöa al- menna menntun, gott vald á ensku og öðru erlerídu tungu- máli, helst þýsku, frönsku eða norðurlandamáli. —ÓT

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.