Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 5

Vísir - 07.01.1977, Blaðsíða 5
Bretar tóku œríega tíl hendí og fœkkuðu verkföllum Bretar hafa löngum haft orð á sér fyrir verkfallshörku og jafn- an meðal efstu á blaði yfir. tapaða vinnudaga. Þeir eru nú á góðri leið með að glata þessum orðsti— svo mikil eftir- sjá, sem þeim kann nú að vera að þvi. Samkvæmt tölum, sem alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) hefur látið frá sér fara eftir skýrslum breska atvinnu- málaráðuneytisins, fækkaði verkföllum um 57% árið 1975. Var það þvi eitt friðsamasta ár, sem komið hefur á breska vinnumarkaðnum frá þvi 1969. Orsaka þessara sinnaskipta rekja menn til samkomulags, sem rikisstjórnin (verka- mannaflokksins) gerði við verkalýðssamtökin á miðju ári 1975 um hófsemi i launakröfum I viðleitni til þess að sporna gegn verðbólgunni. Samkvæmt skýrslu breta sjálfra eru þeir i tólfta sæti á lista þeirra, sem tapað hafa -flestum vinnudögum i kjara- deilum. Spá þeir þvi, að árið 1976 muni koma jafnvel enn betur út, þegar skýrslur liggja fyrir um þaö. Samkvæmt tölum frá ILO glötuðu hverjir 1.000 vinnandi menn i Bretlandi 540 vinnudög- um á árinu 1975. Arið á undan (1974) glötuðust 1.270 vinnudag- ar á hverja 1.000 verkfæra menn. Þær tölur, sem nú liggja fyrir um árið 1976, sýna að á fyrstu ellefu mánuðunum fóru 3.106.000 vinnudagar til spillis i 1.868 verkföllum. A sama tima yfir árið góða, 1975 höfðu 5,877,000 vinnudagar farið til spillis i 2.217 verkföllum. — Þarf þá ekki að fara i neinar grafgötur um, hvort bretar séu ekki batnandi menn á þessu sviði. Diesen heimsmeist■ arí unglinga í skák frá Sovetrikjunum varð 21 árs á siðasta ári. Flestir höfðu fyrir mótið spáð Evgeny Vladimirov frá Sovét- rikjunum sigri, og leiddi hann raunar mótið framan af, en 1 siöustu umferðinni tefldi hann við mexikanann, Marcel Sisniega, sem varðist vel með svörtu mönnunum, en varð þó að lúta i lægra haldi. „Þetta var svo sannarlega erfitt mót, en mest fannst mér taka á taugarnar biðin, eftir að ég hafði unnið Sisniega, og beið eftir úrslitum I skák Ftacnics,” sagöi Diesen. Lubomir Ftacnic frá Tékkósló- vakiu hafnaöi i öðru sæti með 9 1/2 vinning, en hann gerði jafn- tefli i siðustu umferðinni við Nir Grinberg frá tsrael, og varö um leið Evrópumeistari unglinga I skák. Okkar maður i mótinu, Margeir Pétursson, tefldi i siðustu umferö við Campora frá Argentinu og tapaði. Endaði Margeir þar meö f 18.-24. sæti af alls 54 keppendum, með samtals 7 vinninga. I þriðja sæti hafnaöi Grinberg með 9 vinninga. A úrslitaskák hans i siðustu umferð við tékkann valt um leið Evrópumeistaratitill- Mark Diesen, 19 ára ungmenni frá Potomac i Maryland i Bandarikj- unum, hreppti heims- meistaratitil unglinga i skák i Groningen i Hol- landi með tiu vinninga eftir 13 umferðir. inn, þvi að samkvæmt mótsreglu- gerðinni átti hann að falla i skaut þeim keppandanum frá Evrópu, sem flesta fengi vinningana. Titillinn var á lausu eftir að sið- asti titilhafi, Alexander Kotsyev Margeir Pétursson hafnaði í 18-24 sœti með sjö vinninga af þrettán mögulegum endaði i f jórða sæti eftir jafntefli i þrem siðustu skákunum. Yngsti keppandinn var fjórtán ára stúlka frá Japan, Mikka Nakano að nafni. Hún fékk að kenna á reynslumuninum og hreppti aðeins tvö jafntefli. Endaði hún þvi i 54. sæti meö einn vinning samtals. Lónlaus- ir smygl- arar Hópur marijúána- smyglara fór svo klaufalega að ráði sinu, að þeir gátu ekki orða bundist, þegar lögregl- an handsamaði þá, en • sögðu: ,,Við hljótum að vera lélegustu smygl- arar, sem þið hafið komist i kynni við.” Eftir fimm misheppnaðar smygltilraunir á fikniefnum i gegnum Spán áttu þeir með sér leynifund til þess að leggja á ráðin um enn eina tilraun. En félagsandinn innbyrðis var þá orðinn orðinn slikur, að það kom til ryskinga og bófarnir köstuðu grænmeti og rjóma hver i annan. Kveðja varð lögregluna til að stilla til friðar, og allt komst upp. Þarna var um að ræða sjö menn og eina konu (öll á aldr- inum 27 til 45 ára). Viðurkenndu þau við yfirheyrslur, að hafa unnið aðólöglegum innflutningi á kannabisefnum til Spánar. Fyrsta tilraunin var fjöl- skyldubragðið gamla notað. Konan, sem er þriggja barna móðir og einn karlmaðurinn þóttust fara i sumarleyfisferö til Marokko og tóku á leigu hjól- hýsi. 1 hjólhýsinu átti nefnilega að vera holrúm, tilvalinn felu- staður fyrir fikniefnin. Siðar uppgötvuðu þau, aö þau höfðu tekið á leigu skakka tegund, svo að enginn var felustaðurinn. Við það missti maðurinn kjarkinn, yfirgaf „fjölskylduna” i Mar- okko, og tók sér flugvél heim til Englands. önnur tilraunin fór út um þúfur, þegar „innkaupastjór- inn” var tekinn fastur á Lundúnaflugvelli á leið út með meira fjármagn i fórum sinum, en bretum leyfist að hafa á brott með sér úr landinu. Ekki lét þó hópurinn hug- fallast, heldur gerði þriðju til- raunina. Svo illa tókst þá til, að fikniefnin voru ekki nógu vel falin, oe snænskir tollþjónar fundu þau i farangri „burðar- karlsins”, semvar dæmdur i tólf ára fangelsi. Ennþá dreymdi þau drauma um stóra smyglið, og annar „innkaupastjóri” var sendur af örkinni. En hann stakk þá af með peningana. I tilraun númer fimm vildu þau ekki eiga neitt á hættu og tveir úr hópnum fór sjálfir til Marókko. En þeir lentu strax i neti lögr.eglunnar i Marókko með marijúana að verðmæti um 15,000 sterlingspund i föggum sinum. Þvi var þó „bjargaö i horn” með þvi að móta yfir- valdinu, en lengra komust tvi- menningarnir þó ekki en að landamærum Spánar, þar sem hald var lagt á „innflutning- inn”. Þeir voru samt látnir lausir gegn tryggingu. Góð ráð voru nú orðin rándýr og boðað var til skyndifundar i fjölskyldunni, þar sem allt lenti svo upp i loft, og lögreglan komst i spiliö. 200 ára orrusta Tólf hundruð breskum her- mönnum og sjálfstæöisherjum lenti saman undir fallbyssugný og skothveilum framhlaðninga hjá Prineeton i New Jersey 4. janúar, en öfugt viö atburðina á þessum slóöum 1777 var allt f gamni, meöan þá var barist upp á lif og dauöa. Þarna var sett á sviö hin sögufræga orusta i til- efni 200 ára afmælisins.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.