Vísir - 07.01.1977, Side 8
Húseiningar á Siglufirði hafa þegar framleitt 40 timburhús
Föstudagur 7. janúar 1977 VISER
100 FERMETRA FULLFRAGENGIÐ
EINBÝLISHÚS Á 8 MILLJÓNIR
— þar af fara um 800 þúsund í sðluskatt til ríkisins
Fyrirtækiö Húseiningar á
Siglufiröi, sem framleiöir staöl-
aöar einingar i timburhús, hefur
nú fyrirliggjandi pantanir og
geröa samninga um 20-30 hús,
en fyrirtækiö hefur fram til
þessa lokið viö smiöi 40 húsa
sem reist hafa verið viösvegar
um landiö.
Framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins, Matthias Sveinsson, hélt
fund meö blaðamönnum i gær,
og rakti þar sögu og starfsemi
fyrirtækisins. Þar kom fram, aö
fyrirtækið var stofnað árið 1973,
og var tilgangurinn sá, að reyna
að lækka byggingakostnað hús-
næðis, einkum þó ibúðahúsnæð-
is. Þetta var fyrst og fremst
gert með þeim hætti að stytta
byggingatimann, en ekki með
spörun efnis.
Fyrirtækið hefur komið upp
verksmiðju með fullkomnum
vélum, þar sem nú eru fjölda-
framleiddar einingar í ýmsar
tegundir húsa, og hófst fram-
leiðsla fyrir alvöru vorið 1975.
Byggingatiminn
aðeins 3-4 mánuðir.
Matthias sagði, að áætlaður
byggingatimi einingahúss frá
Húseiningum væri 3-4 mánuðir.
Þá væri talinn sá timi, sem liði
frá þvi að byrjað væri að eiga
við grunn og þar til húsið stæði
fullfrágengið. Lámarkstimi
fyrir byggingu svipaðs húss
Yfirleitt tekur aöeins 4-5 daga aö reisa sjálft einingahúsiö fokheit á grunni.
með venjulegum hætti væri 1-2
ár.
Það tekur yfirleitt ekki nema
4-5 daga að reisa sjálft húsið
fokhelt á grunni.
Yfirleitt þarf að panta eining-
ar i hús með 2-6 mánaða fyrir-
vara 'eftir aðstæðum.
100 fermetra hús full-
frágengið á 8 milljónir.
Matthias sagði, að ekki væri
nóg að fullyrða að tekist hefði
með þessari aðferð að lækka
byggingakostnað, heldur yrði
aðsanna það með dæmum. Slikt
væri auðvelt.
Ef miðað væri við fullfrá-
gengið einbýlishús frá Húsein-
ingum, þá væri byggingakostn-
aður á rúmmetra 22.580 krónur.
Þetta væri sama verð og hjá
svonefndu vísitöluhúsi, en það
hús væri miðað við 10 ibúða
stigahús i fjölbýlishúsi. 1 sliku
visitöluhúsi væri kostnaður á
rúmmetra 22.553 krónur
Þá sagði hann að 100 fermetra
hús frá Húseiningum kostaði nú
um 4.8 milljónir króna, og væri
þar- um að ræða 60% bygginga-
kostnaðarins. Slikt hús kostaði
þvi fullfrágengið um 8 milljónir
króna.
Annað hús, 122 fermetrar,
kostar frá Húseiningum um 5.8
milljónir, og fullfrágengið um
9.7 milljónir.
Greióist á 12
mánuðum.
Matthias sagði, að greiðslu-
skilmálar væru samningsatriði
hverju sinni.. Hins vegar væri
VÍSIR
VIÐ
FLYTJUM
að Síðumúla 8
N.k. mánudag 10. jan. flytja
auglýsingadeild og skrifstofur Vísis
með starfsemi sína í nýtt húsnœði
að Síðumúla 8 II. hœð.
—
Símanúmerin verða áfram
86611
11660 auglýsingadeiidin j
!______________________!
Fjöldi bílastœða
Ath. Afgreiðsla á blaðinu verður
áfram að Hverfisgötu 44# bakhúsi
vísm
VÍSIR
algengast, að ákveðin upphæð
væri greidd við staðfestingu á
pöntun, og afgangurinn síðan
með jöfnum afborgunum á 12
mánuðum. Þá væri hægt að
semja um, að fyrirtækið tæki
húsnæðismálastjórnarlánið.
Húsnæðismálastjórn lánar út
á þessi hús eins og önnur, og
sagði Matthias, að afstaða
hennar til þessara starfsemi
væri mjög jákvæð.
Tollur mun hærri
en af tilbúnum
húsum
Matthias upplýsti á fundinum,
að mikill munur væri á þeim
tolli, sem fyrirtækið þyrfti að
greiða af timbrinu i húsin og
tolli af innfluttum timburhús-
um.
Þannig væri tollur af innflutt-
um timburhúsum frá
EFTA-löndum nú 12%, en tollur
af innflutta timbrinu 25.5%.
Hráefni er yfirleitt keypt frá
Noregi, en smávegis frá Dan-
mörku.
Verða að greiða sölu-
skatt af húsunum
Matthias sagði, að mikil á-
nægja væri með þá staðreynd,
að greiöa þyrfti 20% söluskatt af
öllum húsum, sem fyrirtækið
framleiðir. Samtök framleið-
enda hefði fyrir nokkrum árum
óskað eftir þvi við iðnaðarráðu-
neytið, að þetta yrði fellt niður,
og ráðuneytið hefði tekið undir
þá beiðni við fjármálaráðuneyt-
ið, en þar hefði málið legið nú I
eitt og hálft ár án þess að fá af-
greiðslu.
skipta milljónum i reksturs-
kostnaði fyrirtækisins. Siðan
greiðum við aftur söluskatt af
þessum sömu liðum, þegar hús-
ið er endanlega selt frá okkur”,
sagði hann.
Fjölbreyttir möguleik-
ar
Það kom fram hjá Matthi-
asi, að ymsir væru haldnir þeim
misskilningi, að ekki væri kost-
ur á fjölbreytni i einingarhús-
um.
„Þvert á móti”, sagði hann,
„eru möguleikarnir nánast ó-
takmarkaðir hvað varðar stærð
og fyrirkqmulag jafnt utan húss
sem innan.
Fyrirtækið hefur nú látið gera
sérstaka möppu, sem i er les-
mál og teikningar til kynningar
og upplýsinga um þá mögu-
leika, sem fyrir hendi eru, og
verður hún send öllum þeim,
sem óska svo fólk geti kynnt sér
málin nánar”, sagði hann.
Mikil framleiðslugeta
Eins og áður segir er fyrir-
tækið staðsett á Siglufirði, en
hefur söluskrifstofu i Reykja-
vik. Verksmiðjuhúsnæðið er
mjög stórt, um 3500 fermetrar,
og þar starfa að jafnaði um 15
manns. Nýting er hins vegar
ekki eins góð og ákjósanlegt
væri, þar sem verksmiðjan gæti
hæglega framleitt 150-200 hús á
ári. Er stefnt að þvi að koma
framleiðslunni sem fyrst upp i
50-60 hús á ári.
Magnús Sveinsson, framkvæmdastjóri Húseininga h.f., á blaða-
mannafundinum i gær. Að baki hans eru ýmsar teikningar af
einingahúsum. Ljósmynd Loftur.
„Þetta virðist vera eitt af
þeimmálum, þarsem allir, sem
við er rætt,eru sammála um, að
eðlilegt sé að breyta þessu, en
ekkert gerist. Þetta skiptir hús-
kaupendur hundruðum þús-
unda. A þvi 100 fermetra húsi,
sem ég nefndi áðan að kostaði
frá verksmiðjunni 4.8 milljónir,
fara um 800 þúsund i söluskatt.
1 ýmsum tilfellum greiðum
við söluskatt tvivegis. Þannig
er, að í okkar verði er m.a. fast-
ur kostnaður fyrirtækisins. Þar
er innifalinn kostnaður við hluti
eins og sima, póst, rafmagn
o.s.frv., sem við höfum þegar
greitt söluskatt af. Þessir liðir
Viðhaldskostnaður
Blaðamaður Vísis spurði tals-
menn fyrirtækísins um við-
haldskostnað og endingartíma
þessara húsa.
Kom fram að viðhaldskostn-
aður einingarhúsanna væri sist
meiri en við önnur hús, og ætti
jafnvel að geta verið minni.
Sömuleiðis ætti endingartiminn
að vera langur, þótt um timbur-
hús væri að ræöa. Æskilegt
væri, að hús entust a.m.k. eina
mannsævi, og ættu bæði timbur-
hús og steinhús að öllu jöfnu að
gera það.
— ESJ