Vísir - 20.01.1977, Side 1
Sjálfstætt vandaö
og hressllegti
blaö
ggeeswsrtgftMilHB!
Hœttuástand á Kröflusvœðinu frá miðnœtti síðastliðnu:
„Enginn veit hvað gerist"
— sagði Eysteinn Tryggvason, jarðfrœðingur í samtali við Vísi í morgun
Tveir til þrír jarðskjálftar á mínútu í nótt. Þeir öflugustu fundust á Akureyri
„Viö erum nú frekar aö róast,
” sagöi Eysteinn Tryggvason
jarðfræðingur þegar Visir náði
tali af honum á jaröskjálfta-
vaktinni i Reynihlið i morgun.
Hann sagöi þó að ekki væri .
búiö aö aflýsa hættuástandi,
enda héldi óróinn áfram, þótt.
heldur hefði dregið úr honum og
jaröskjáltar væru enn tiöir.
Þaö var um miönætti i nótt
sem að þvi kom sem allir biðu
eftir. Þá hófst stöðugur órói á
Gæsadalsmæli og um leiö fór
noröurendi stöðvarhússins að
siga miðaö viö suöurendann.
Fljótlega kom óróinn fram á
öðrum mælum og eftir kl. 2 i
nótt og fram undir kl. 6 i morgun
mældust 2 til 3 jarðskjálftar á
minútu. A þessum tima mæld-
ust 30 skjálftar á klukkutima
sem voru 3 stig á Richter-
kvarða eöa meira.
Tveir skjálftanna voru svo
sterkir aö skjálftavaktin gat
ekki mælt þá riákvæmlega, en
þeir fundust á Akureyri og gætu
samkvæmt þvi veriö nálægt 5
stigum.
Um kl. 9 i morgun mældust
enn 2 skjálftar á minútu og
landsigið var áætlað um 30 cm
frá miðnætti.
„Þetta er mjög svipaö og var i
nóvember þegar landiö seig um
hálfan metra,” sagöi Eysteinn.
Þá sprakk jörð mikiö i Gjá-
stykki og gufa kom þar upp.
Menn eru nú aö leggja af staö
norður i Gjástykki til athugana,
en þaö þýddi ekki fyrr vegna
náttmyrkurs.
Þaö sem vekur okkur ofurlit-
inn óróa er að jaröskjálfta-
virknin er ekki eins núna og hún
var i nóvember að þvi leyti að
jarðskjálftar halda fram á
Kröflúsvæöinu, þótt sjálfsagt
séu þeir meiri i Gjástykki.
1 hræringunum 1. nóvember
hurfu jaröskjálftar hins vegar á
Kröflusvæöinu þegar land fór
að siga. Viö vitum ekki ennþá
hvaö þétta þýöir,” sagöi Ey-
steinn Tryggvason aö lokum.
Nú fá frímerkja-
safnarar sinn
þátt hér í Vísi
i dag hefur göngu slna þáttur um frlmerki og frlmerkjasöfnun f
umsjá þriggja kunnra framámanna I samtökum frlmerkjasafn-
ara og verður þátturinn hálfsmánaöarlega á fimmtudögum f
blaöinu. Þátturinn nefnist „Úr heimi frfmerkjanna” og er á
blaösföu 17.
Lögreglumoður fundinn sekur
um harkaleg viðbrögð:
Barði mann í höfuðið
með kylfu við blóðtöku
Lögregluþjóninum var vikiö úr starfi á meöan mái hans var
rannsakað. Hann var dæmdur i 45 daga varöhald i Sakadómi
Reykjavikur, en hefurnú veriö tekinn aftur f lögregluna aö fyrir-
mæium dómsmáiaráöuneytisins. Um þetta mál fjallar Svala
Thorlacius, héraösdómslögmaöur i þættinum „Málaiok" á bis
10.