Vísir


Vísir - 20.01.1977, Qupperneq 9

Vísir - 20.01.1977, Qupperneq 9
vism Fimmtudagur 20. janúar 1977. Fjölmennur fundur kvenna rœddi skattalagafrumvarpið: Engin kona var í nefndinni, sem fjallaði um frumvarpið A fjölmennum kynningar- fundi Bandalags kvenna i Reykjavik um frumvarp til laga um tekju- og eignaskatt, sem nú liggur fyrir Alþingi, vakti það athygli, aö engin kona átti sæti i nefnd þeirri, er fjallaði um frumvarpið , ,,þótt hæg hefðu veriö heimatökin, þar sem við eigum ágætar konur á Alþingi”, segir I frétt frá bandalaginu. Fundurinn var haldinn s.l. laugardag og stóð frá 9.30 til kl. 16. Gestir fundarins voru Sigur- björn Þorbjörnsson, rikisskatt- stjóri, Sigriður Thorlacius, for- maður Kvenfélagasambands Islands, Sólveig Olafsdóttir, for- maöur Kvenréttindafélags ts- lands, og Bergþóra Sigmunds- dóttir, framkvæmdastjóri Jafn- réttisráðs. Sérstök skattamálanefnd starfar innan bandalagsins, sem hefur innan sinna vébanda 30 félög með um 11 þúsund félagsmenn. —ESJ. Lystrœning- inn mœttur til leiks Lystræninginn, 4. tölublað 1976, er komið út, og hefur blaöiö breytt nokkuð um svip frá þvi sem áður var. Eins og áöur eru i blaðinu frumsamdar smásögur og ljóð ungra höfunda, — m.a. Birgis Svans, Eiriks Brynjólfs- sonar og Fáfnis Hrafnssonar. En auk þess er i blaðinu nýtt íslenskt leikrit, Verndarinn, fyrri hluti, eftir Guðmund Steinsson. Ætlunin er, að sögn aðstandenda Lystræn- ingjans, að birta nýtt Islenskt leikrit I hverju tölublaði, og verð- ur siöari hluti Verndarans i 5. tbl. Þá hyggst Lystræninginn birta greinar um leiklist, tónlist, myndlist og kvikmyndalist auk frumsamins skáldskapar. í þessu tbl. er þannig f jallað um öll leikrit sem frumsýnd hafa verið i Reykjavik og á landsbyggðinni þaö sem af eiþ.essu leikári. Lyst- ræninginn kemur út 4 sinnum á ári, en ritstjórar eru nú Fáfnir Hrafnsson, Vernharður Linnet og Þorsteinn Marelsson. Pamela (nær) ásamt Láru greiöaviðskiptavinum á hárgreiöslustofunni sem nýlega hefur verið opnuö. Ljósm. Lottur. Aðsókn á hórgreiðslu- stofur aukist gífurlega segir Pamela Thordarson ,,Aösókn á hárgreiðslustofur hefur aukist gífurlega. Fóik hugsar meira en áður um hár sitt og heilbrigði hársins virðist skipta miklu meira máli”, sagði Pamela Thordarson i viðtali viö Hlutu heiðursmerki Rauða krossins Forseti tslands hefur að til- lögu nefndar heiðursmerkis Rauða kross tslands sæmt þau Andreu Þórðardóttur og Gisla Helgason heiðursmerki RKl úr silfri. Rökstuðningur ákvörð- unarinnar var m.a. þessi: ,,Þau Andrea Þórðardóttir og Gisli Helgason hafa undanfarin ár unnið að útvarpsþáttum um mál fatlaðra og sjúkra. Hefur á mjög nærfærinn og athyglis- verðan hátt verið fjallað um fikni- og áfengissjúklinga, end- urhæfingu, fötlun og ýmsar aðr- ar hliðar þess máls. Útvarps- þættirnir hafa fengið mjög góð- an hljómgrunn hjá þjóðinni. Málefni fatlaöra, á ýmsum svið- um, vekja vaxandi athygli sam- félagsins. Menn hafa velt fyrir sérhverhafiumfram aöra orðið til að breyta almenningsálitinu. Að sjálfsögðu koma þar margir til. Ýmsir telja að þeim Andreu og Gisla hafi með sameiginlegu starfi sinu tekist að beina áhuga manna i einn farveg. Þau Andrea og Gisli eru smám saman að verða fagmenn sem vinna markvisst að málum þessum og láta ekki bugast, þótt sigur sé ekki skjótunninn. Ef ekki kæmi fleira en út- varpsþættir til væri sennilega ekki hægt aö bera fram tillögu um heiðursmerki. En bæði hafa þau unnið að skyldum málum hvort á sinu sviði. Andrea Þórðardóttir hefur um árabil verið forstöðukona sumar- svalarheimilis Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að Reykja- dal og unnið að fleiri velferðar- málum. GIsli Helgason var þegar á ungum aldri kunnur þegar hann ásamt Arnþóri bróður sinum sá um útvarpsþætti fyrir vest- mannaeyinga eftir gosið i Eyj- um. Þættir þessir voru athyglis- verðir og höfðu áhrif til góðs á velferð vestmannaeyinga á örðugleikatimum. Þegar fötlun þeirra bræðra er höfð i huga má starfið teljast frábært. En vera má að það sé einmitt fötlunin sem hafi gert hugsjónina skýr- ari. Þá hefur Gisli verið forystu- maöur i félagsskap blindra undanfarið. Hér er um starf að ræða, sern tveir einstaklingar hafa haft forystu um langt umfram það sem skyldan býður. Heiöur þeim veittur er ekki afrakstur starfs annarra eins og svo oft á sér stað”. VTsi, en hún hefur nú opnað hár- greiöslustofu við Laugateig 28. Pamela var áöur á hárgreiðslu- stofunni Kristu. Meðan hún var þar tók hún þátt i íslandskeppni i faginu og varð númer eitt. Þá var hún enn nemi. Pamela hefur tekiö þátt i þeim námskeiðum sem hér hafa verið haldin og hún hefur llka tekið þátt i námskeiðum er- lendis. „Jú, þessu starfi fylgir auð- vitað fyrirhöfn,” sagði hún. „Maður verður að fylgjast mjög vel með og það nægir ekki að fylgjast með i blöðum hérlendis heldur verður að fylgjast með öll- um nýjungum úti.” Með Pamelu á stofunni er önn- ur stúlka sem er orðin meistari i faginu. —EA SKULDIR HÆKKUÐU UM 14% Skuldir rikissjóðs og rfkis- stofnana við Seðlabankann hækkuðu um 14% á siðasta ári. Skuld rikissjóðs sjálfs við Seðlabankann jókst um 1487 milljónir króna á siðasta ári, og skuldir rikisstofnana nettó um 261 milljón, að þvi er segir ifréttfrá Seðlabankanum. Séð sem hlutfall af stöðunni i árs- byrjun varð skuldaaukningin 14%. —ESJ Nœringargildi í 100 grömmum Hitae»niní«ar 69 kolvctni 4 g fita 3 g prótín 6,5 g kalcium 128 mg fosfór 87 n»g járn 0,1 mg A-v ítuniín 130 alþjóðl. ein. aó sumri 70 - • um vetur B1 - 45 inmg B2 - 230 mmg C 1,5 mmg I) - 2 alþjóöl. ein aö sumri 1 - um vctur Vmir Sýrð mjólkurafurð, holl og góð GRIPTU TÆKIFÆff,/’ NÁMSKEIÐ: Eiðublaðatœkni: verður haldið 28.feb:4.mars^ Samtals 15 klst. LeiðB einandi Sverrir Júlíusson rekstrarhagfr. Fjallað verður um: efni letur j setning pappírsstaðlar (/' teikning gerð. Þátttökugjald kr. 12.500.- (20% afsl. til félagsmanna). Skráning i sima 82930 Stjórnunarfélag íslands w Utskurðartœkin og letur- grafararnir eru komnir tJtskurðartækið til útskurðar i tré, járn, gler, skinn, eir og margt annað Leturgrafarinn gerir yður fært að merkja nær hvað sem er. Pantanir óskast vinsamlegast sóttar Höfum einnig leikföng og allskonar föndurvörur. SENDUM í PÓSTKRÖFU S. Sigmannsson og Co Ingólfsstrœti 6, sími 24277 f p / / , ! A / “J r, IlUI M / i ri sýningarsalur Notaðir bílar í eigu umboðsins. Hagstœðir greiðsluskilmólar. Fíat 124special Fíat 125 special Fíat 125 P station km. 13 þús. Fíat600 Fíat600 Fíat127 Fíat 127 km. 33 þús. Fíat 127 km. 28 þús Fíat 127 km. 17 þús. Fíat 132special '71 '72 75 72 73 72 74 74 74 74 400 600 980 300 300 450 630 650 700 1.150 ✓ FIAT EINKAUMBOO A ÍSLANOI Davíd Sigurdsson hf. SÍOUMULA 35. SlMAH 35B4S — 38888

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.