Vísir - 20.01.1977, Qupperneq 17
3333533S
w
vism Fimmtudagur 20. janúar 1977.
17
Úr heimi frímerkjanna
Umsjón: Hálfdán Helgason
Lorens Rafn
Sigurður Pétursson
Fyrir nokkru var þess farið á leit við okkur að við tækjum að okkur að skrifa
um frimerki hér I blaðinu. Eftir nokkra ihugun þótti okkur rétt að reyna að
verða við þessari ósk, þótt hinir ágætustu frimerkjafræðingar hafi um all-
langt skeið ritað I önnur blöð um frimerki, og allur samanburður okkur hinn
óhagstæðasti.
En hvað um það, okkur er málið hugstætt og munum við reyna að leita
fanga sem viðast og skrifa jöfnum höndum um Islensk merki sem erlend,
gömul sem ný.
Það værihinsvegar aðbera Ibakkafullan lækinn að ætla að skrifa um söfn-
un frimerkja, þ.e.a.s. hverju á að safna, hvernig þaö skuli varðveitt og svo
frv. Um þaö hafa verið skrifaöar margar bækur og er engu þar viö aö bæta.
Við viljum hinsvegar benda á ágæta bók Guðmundar Árnasonar „Að safna
frimerkjum”, sem kom út fyrir mörgum árum og er enn fáanleg. Mun flest
eða allt sem þar stendur vera enn I fuilu gildi.
Komi hins vegar fram fyrirspurnir eða óskir um að ákveöin atriði verði
tekin til umræðu, munum við að sjálfsögðu reyna að verða við þeim óskum.
Viljum við reyndar hér I upphafi hvetja lesendur þessa þáttar, unga sem
gamia, aðsenda okkur iinu um hvaðeina sem kann að þykja áhugavert.
Félög frímerkiasafnara
Þótt segja megi að sjálf söfn-
unin, skoðun og greining merkj-
anna sé mikilvægasti þáttur fri-
merkjafræðinnar þá rekur
venjulega að þvl að flestir safn-
arar leita samskipta við þá, er
svipuð áhugamál hafa. Þannig
hafa myndast félög frimerkja-
safnara og ætti hverjum safn-
ara að vera ljóst gildi slikra fé-
laga.
Þar gefst mönnum kostur á að
auka þekkingu sina á öllu þvi er
viðkemur frimerkjum, auk þess
að þar myndast oft ákjósanleg
tækifæri til skipta og kaupa. Fé-
lög frimerkjasafnara hafa ver-
ið starfandi um viða veröld I
langan tima og hið elsta þeirra
og jafnframt eitt hið virtasta er
The Royal Philatelic Society i
London, sem stofnað var árið
1869.
Reykjavíkurfélag
Hér á landi eru félög fri-
merkjasafnara öll ung að ár-
um. Hið elsta þeirra er Félag
frimerkjasafnara i Reykjavik,
sem stofnað var árið 1957.
Fyrsti formaður þess var Guido
Bernhöft kaupmaður og voru
stofnendur 35 talsins. Allt frá
upphafi hefur starfsemi F.F.
staðið með miklum blóma.
Strax árið 1958 var ráöist i að
setja upp sýningu, sem hlaut
nafnið FRIMEX 58 og siðan
komu sýningarnar FRtMEX 64,
FILEX 67 og FRIM 69. Nú er i
undirbúningi sýning, sem haldin
verður I sumar, dagana 9.-12.
júni, en einmitt um þær mundir
eða þann 11. júni veröur félagið
20 ára. Sýningin verður i
Alftamýrarskólanum og hefur
hlotið nafnið FRIMEX 77.
Aðalstarf F.F. felst þó fyrst
og fremst i fundahaldi og eru
fundir haldnir mánaðarlega yfir
vetrarmánuðina.
Dagur f rímerkisins
Um margra ára skeið hefur
félagið gengist fyrir glugga-
skreytingum á Degi frimerkis-
ins sem er venjulega i byrjun
nóvember ár hvert. Sýna þá fé-
lagsmenn I ýmsum verslunar-
gluggum borgarinnar hluta af
söfnum sínum, öðrum til ábend-
ingar og fróðleiks um það
hversu oft þarf lítið til að ná
saman heillegu og skemmtilegu
safni.
Bæði i sambandi við Dag fri-
merkisins og önnur þau tilefni
er gefist hafa til sérstimpla svo
og við útgáfur nýrra frimerkja
hefur F.F. gefið út um all-langt
skeið sérprentuð umslög, sem
notið hafa mikilla vinsælda
meðal safnara.
Handbók
Árið 1965 gaf F.F. út Handbók
um islensk frimerki 1944-1964.
Var þar um að ræða fyrsta á-
fanga handbókar, sem með
timanum er ætlað að spanna út-
gáfu allra islenskra frimerkja
svo og bréfspjalda o.þ.h. Þessi
hluti handbókarinnar kom svo
aftur út 1973 aukinn og endur-
bættur, ásamt öðrum áfanga
handbókarinnar er tekur yfir
frimerki útgefin 1920-1944.
Uppboð
Sá þáttur i starfi F.F. sem
notiö hefur hvað mestra vin-
sælda meðal safnara eru fri-
merkjauppboðin, sem haldin
hafa verið að meðaltali tvisvar
á ári nú nokkur undanfarin ár.
Þar hafa oft komið fram hinir
eftirsóknarverðustu hlutir og
hefur margur safnarinn gert
þar góð kaup. Það hefur hins
vegarætíð verið mönnum mikill
þyrnir I augum aö hið opinbera
skuli ekki vilja fella niður sölu-
skatt af frlmerkjum, sem á
þennan hátt skipta um eigend-
ur.
Þýðir það I raun að oft er
margsinnis borgað af sama
merkinu. Er þess þvi fastlega
vænst af viökomandi aðilum að
þeir láti nú verða af þvi aö koma
til móts við safnara og felli nið-
ur söluskatt af frimerkjum.
1 samvinnu við Knattspyrnu-
félagið Val hefur F.F. haft á
hendi frimerkjakynningu meðal
unglinga og eru fundir aö jafn-'
aði tvisvar I mánuði
Aðsetur Félags frimerkja-
safnara er að Amtmannsstig 2
en þar hefur félagið opið her-
bergi á miðvikudögum kl. 17-19
og á laugardögum kl. 15-18.
Geta þeir er þess óska, komið
þangað og fengið allar upplýs-
ingar um starf fél. Umsjón-
armaður herbergisins hefur
um langt árabil veriö Sigurður
Agústsson en núverandi for-
maður félagsins er Sigurður R.
Pétursson.
Félög utan Reykjavíkur
Arið 1968 var stofnað Félag
frimerkjasafnara i Kópavogi.
Stofnendur voru 20 talsins og
var fyrsti formaður kjörinn
Gisli Þorkelsson efnaverkfræö-
ingur. Félagið heldur reglulega
fundi mánaðarlega yfir vetrar-
mánuðina. Arið 1971 hélt félagiö
sina fyrstu frimerkjasýningu
og reyndar þá einu fram til
þessa. Núverandi formaður
F.F.l.K. er Lorens Rafn og eru
skráöir félagar nú 30.
Félag frimerkjasafnara i
Hafnarfirði og Garðabæ var
stofnað árið 1975 og voru stofn-
' endur 18 talsins. Fyrsti formað-
ur var kjörinn Hartvig Ingólfs-
son, og stýrir hann félaginu enn.
Starfsemi félagsins er mjög
virk og eru fundir haldnir reglu-
lega yfir vetrarmánuðina ... Fé-
lagar eru nú orðnir 30 talsins.
A Selfossi var stofnað félag
frimerkjasafnara árið 1967.
Fyrsti formaöur félagsins var
Guðmundur G. Ólafsson. Æsku-
lýösstarf félagsins er mjög virkt
undir forystu Ernst Sigurðsson-
ar. Félagið hefur haldið 3 sýn-
ingar á Selfossi og einnig 4að-
stoðað æskulýðsfélögin á Eyr-
arbakka, Stokkseyri og Hellu
við uppsetningu frimerkjakynn-
inga I sýningarformi. Núver-
andi formaður er Sigurjón Erl-
ingsson og eru félagar nú alls 20.
A Akureyri var stofnað félag
frimerkjasafnara árið 1975.
Fyrsti formaður félagsins var
Ólafur Halldórsson en núver-
andi formaður er Sveinn Jóns-
son. Arið 1976 setti félagið upp
sina fyrstu sýningu.
A siðastliðnu ári var stofnað
félag frimerkjasafnara á Akra-
nesi, félag frimerkjasafnara á
Hvammstanga og Frímerkjafé-
lagið Askja á Húsavik og S-
Þing. meö 45 félagsmenn alls.
Einnig hafa verið starfandi
frimerkjafélög i Keflavik, Vest-
mannaeyjum, Neskaupstaðauk
klúbbs Skandinaviusafnara I
Reykjavik, en um starfsemi
þeirra er nu okkur ekki kunn-
ugt.
öll þessi félög sem hér hafa
verið talin, aö undanskildu Fé-
lagi frimerkjasafnara i Reykja-
vlk eru eða hafa verið aðilar að
Landssambandi frimerkjasafn-
ara.
Það var stofnað árið 1968 og
var fyrsti forseti þess kjörinn
Sigurður H. Þorsteinsson- en
hann hefur verið endurkjörinn æ
siðan.
Frimerkjasýningar á vegum
Landssambandsins hafa verið:
DIJEX 68, sem var þýsk-is-
lensk unglingasýning, FRÍM-
ERKI 74 og FRIMERKI 75.
Landssambandið hefur staðið
fyrir jólamerkjaútgáfu, um-
slagaútgáfu og ekki hvað sist
LIF — fréttum og dreifibréfum
til félagsmanna sinna.
L.l.F. er aðili að F.l.P. sem
eru alþjóðasamtök frimerkja-
safnara. Jafnframt hefur L.l.F.
fram til þessa verið umboðsaðili
hér á landi gagnvart alþjóöleg-
um sýningum erlendis.
Svo sem sjá má höfum við
takmarkaðar fréttir af sumum
félögunum og engar af öðrum.
Eru það eindregin tilmæli okkar
til forráöamanna þeirra félaga,
sem á annað borð eru starfandi
að þeir sendi okkur linu um
hvaðeina sem þeir vilja koma á
framfæri, hvort sem um er að
ræða fréttir af starfinu eöa til-
kynningar til félagsmanna
sinna.
Miövikudaginn 2. febrúar
gefur Póst- og simamála-
stjórnin út nýtt frlmerki að
verðgildi kr. 45. Er þar um
að ræða svokallaö noröur-
landafrimerki með mynd af
fimm vatnaliljum. Merkiö er
teiknað af Ingrid Jangaard
Ousland og prentað i Finn-
landi.
Sunnudaginn 23. janúar
næstkomandi verður I notk-
un á pósthúsinu i Vest-
mannaeyjum sérstakur
póststimpill en þá eru fjögur
ár slðan jarðeldarnir hófust
þar áriö 1973.
Fjölskyldur, Atthagafélög, Félagasamtök, Starfshópar
Hinn annálaði þorramatur frá okkur er nó, eins og undanfarin ár, til reiðu í
matvœlageymslum okkar. Byrjum í dag að afgreiða þorramat í þorrablót.
Þorramatarkassar afgreiddir alla daga vikunnar. Heitur veislumatur.
Kaldur veislumatur. Matsveinar frá okkur flytja yður matinn og framreiða hann.
71
MULAKAFFI,
Hallarmúla, sími 37737-36737
3^^
ISBEEEEEE