Vísir - 27.01.1977, Blaðsíða 3
vism Fimmtudagur 27. janúar 1977-
3
Elísabet Siemsen i garOinum fyrir utan hús foreldra sinna. Ljós-
myndir VIsis Jens
Rœða skattalaga-
frumvarpið í kvöld
Kvenréttindafélag islands
efnir tii fundar um skattalaga-
frumvarp rikisstjórnarinnar I
kvöld. Fundurinn veröur I
Kristalsal Hótel Loftleiöa og
hefst kl. 20.30.
Fundurinn veröur haldinn á 70
ára afmæli Kvenréttindafélags-
ins, og er ætlunin að f jalla ein-
göngu um þær greinar frum-
varpsins, sem snerta skattlagn-
ingu fólks meö tilliti til jafnrar
stööu kynjanna I samfélaginu.
Fundurinn er öllum opinn, en
eftirtöldum aöilum hefur sér-
staklega verið boöiö aö senda
fulltrúa á fundinn og skýra
sjónarmiö sin: fjármálaráöu-
neytiö, ASt, BHM, BSRB, Jafn-
réttisráö, Kvenfélagasamband
Islands, Stéttarfélag bænda og
Vinnuveitendasamband Is-
lands.
— ESJ.
Lausn handtöku-
mólsins enn
ekki í sjónmóli?
Rannsókn handtökumáisins
svonefnda hefur nú staöiö yfir
siöan 15. desember og ekki vitaö
hvenær henni lýkur. Eftir þvl
sem Visir kemst næst hefur ekki
veriö þingaö i málinu á aöra
viku, en lögreglurannsókn mun
halda áfram.
Það var Karl Guömundsson,
bifreiðastjóri Guöbjarts Þóröar
Pálssonar, sem kæröi til rikis-
saksóknara vegna handtöku á
sér i ferð þeirra Guöbjarts suð-
ur meö sjó mánudaginn 6.
desember. Taldi hann ólöglega
að henni staöiö.
Rikissaksóknari fól Stein-
grimi Gaut Kristjánssyni aö
annast rannsókn málsins.sem
beinist þá jafnframt aö hand-
töku Guöbjarts. Steingrimur
byrjaði rannsóknina þann 15.
desember og hefur hún staöið
linnulaust siöan og vakiö mikla
athygli.
Guöbjartur og Karl voru
handteknir er bjór og áfengi
fannst viö leit i bilnum. Þeir
hafa haldiö þvi fram, aö tvær
stúlkur hafi fengiö þá til aö aka
með sér suöur eftir og þær hafi
haft meöferöis tösku er innihélt
smyglið. Viö handtökuna hafi
þær hins vegar horfiö sporlaust,
en skiliö töskuna eftir. Leit aö
þessum huldumeyjum hefur
ekki boriö árangur svo vitaö sé.
Haukur Guðmundsson rann-
sóknarlögreglumaöur i Keflavik
stjórnaöi handtökunni og var
honum vikiö frá störfum fljót-
lega eftir aö rannsókn hófst og
sviptur helmingilauna sinna frá
áramótum.
Rétt fyrir jól var Steingrimur
Gautur umboðsdómari bjart-
sýnn á að rannsókn lyki milli
jóla og nýárs. Málið hefur þó
reynst erfiðara viöfangs og hef-
ur umboðsdómarinn ákveöiö aö
gefa engar upplýsingar um þaö
til fjölmiöla eins og sakir
standa.
— SG
Stórvirk vinnutæki voru notuö til að gera skjólgarð úr stórgrýti á Arnarstapa. Vfsismynd: Bæring
Cesilsson.
Þurfa ekki lengur
að setja bótana
— Hafnarframkvœmdir ó Arnarstapa eftir
tuttugu óra hlé
Hafnaraðstaöa á Arnarstapa
á Snæfelisnesi hefur breyst til
batnaðar eftir framkvæmdir
þar isumar fyrir um 30 milljón-
ir króna. Ekkert hefði verið
unnið til þess tima viö höfnina I
um tuttugu ár og þörfin þvi orð-
in mjög brýn.
„Heimamenn eru mjög
ánægöir meö þessar fram-
kvæmdir enda breyta þær
miklu,” sagöi Tryggvi Jónsson
á Arnarstapa i samtali viö Visi.
„Nýja höfnin veitir skjól og
viö þurfum ekki lengur aö setja
bátana, þó veöur versni,” sagöi
hann jafnframt.
,,Viö álitum aö gildi nýju
hafnarinnar eigi lika eftir að
sýna sig enn betur. Þó má búast
viö aö höfnin verði fullnýtt þeg-
ar fram i sækir”.
Töluvert færafiskiri er stund-
aö frá Arnarstapa á sumrin.
Bæöi eru þaö heimamenn og
einnig koma menn sunnan frá
Reykjavik til handfæraveiöa, aö
sögn Tryggva.
Undanfariö hefur aöstaða
veriö heldur slæm og i sunnan
átt hafa menn oröiö aö setja
bátana. Skjólgaröurinn, sem
gerður var úr grjóti, og er um 20
metrar aö lengd mun hins vegar
breyta öllu og á aö nægia sem
skjól fyrir bátana. — EKG
Sölustofnun lagmetis selur 10 milljón dósir af gaffalbitum til Sovétríkjanna:
Þýðir fulla nýtingu tveggja
verksmiðja nœstu 10 mónuði
„Þessar 10 milljón dósir af
niöurlögöum gaffalbitum verða
framleiddar á næstu 10 mánuð-
um”, sagði Eysteinn Helgason,
framkvæmdastjóri Sölustofnun-.
ar lagmetis, I viðtali við Visi.
Samningur var geröur um
sölu á þessu magni til Sovétrikj-
anna I siöustu viku, og er
heildarverðmæti samningsins
rúmar 800 milljónir islenskra
króna,semer tæplega tvöföldun
verömætis á lagmeti til Sovét-
rlkjanna frá árinu 1976. Hér er
um aö ræöa stærsta sölusamn-
ing, sem gerður hefur veriö um
lagmeti til bessa.
,,Þaö er hráefni frá siöustu
vertiö, sem notaö verður, og
mun hátt i 15% af saltsildar-
framleiöslu siðasta árs fara til
þessarar vinnslu”, sagöi Ey-
steinn. „Framleiöendurnir eru
K. Jónsson & Co á Akureyri og
Lagmetisiðjan Siglóslld á Siglu-
firöi, og veröur um fulla nýtingu
á afkastagetu þessara verk-
smiöja hvaö vinnslu gaffalbita
snertir aö ræöa þann tima, sem
framleiöslan tekur.
Vinnslan mun hefjast i byrjun
febrúar, og henni á aö vera aö
fullu lokið fyrir 1. desember.
Þessa 10 mánuöi veröur um
eölileg afköst aö ræöa hjá verk-
smiöjunum, nema yfir sumar-
mánuöina þrjá, þegar aukinn
kraftúr veröur settur I fram-
leiösluna”.
Þaö var Eysteinn Helgason
sem undirritaöi samninginn
fyrir hönd Sölustofnunar lag-
metis.
— ESJ.