Vísir - 27.01.1977, Blaðsíða 12

Vísir - 27.01.1977, Blaðsíða 12
Ung frönsk stúlka kom á óvart 16 ára stúlka, Perrine Pelen frá Frakklandi vann mjög óvæntan sigur i Heimsbikarkeppni kvenna á skiöum i gær, en þá var keppt i svigi i Crans-Montana i Sviss. Sú litla tók forustuna strax i fyrri umferðinni, en þá fékk hún tímann 43,42 sekúndur. Fabienne Serrat frá Frakklandi varð þá i öðru sæti á 43,51, en svigstjarnan i keppninni að undanförnu Lise- Marie Morerod frá Sviss jafnaði i 8. sæti með timann 44.61. En i siðari umferðinni sýndi bikarnum. Hennar besti árangur fram til þessa móts var 5. sætið sem hún náði i keppni i Austurriki á dögunum. En staða efstu kvenna i heims- bikarkeppninni er bessi: Lise-Marie Morerod.Sviss 193 Annemarie Moser Austurr. 174 BirgitteHabersatter.Austurr. 147 Hanni Venzel Licthenstein 131 Marie-Theresie Nadig Sviss 122 Bernedette Zurbriggen Sviss 78 Þessir þrfr eru meðalþeirra sem berjastum forystuna f heimsbikarkeppninni á skfðum, og allir áhuga- menn um þá fþrótt þekkja nöfn þeirra þótt þeir hafi ekki séð þá öðruvfsi en meö grfmur á fullri ferð fram til þcssa. Þeir eru, talið frá vinstri, Klaus Heidegger frá Austurrlki, Heine Hemmi Sviss og lengst til hægri er heimsbikarhafinn Ingemar Stenmark frá Svfþjóð. Morerod hvers hún er megnug og hún keyrði ofsalega. En þrátt fyrir aö hún næði langbesta brautartimanum sem náðist I gær, 42,08 sekúndur þá dugði þaö ekki nema i annað sætið i keppn- inni þvi timi hennar i fyrri umferð var mjög slakur. Pelen sýndi engin merki tauga- óstyrks þegar hún lagði af stað I siðari umferðina, og hún sigraði samtals i keppninni með þremur hundruöustu úr sekúndu á More- rod. Pelen fékk timann 1,26,66, en Morerod 1,26,69. Fabienne Serret frá Frakklandi varð þriðja, og frakkar áttu einn- ig Patriciu Emonet sem varð i sjötta sæti. Það má þvi segja að dagurinn i gær hafi verið dagur frönsku stúlknanna, en þær hafa ekki látiö mikið á sér bera I skiða- brautunum aö undanförnu. Perrine Pelen er eins og fyrr sagði aöeins 16 ára aö aldri, og keppir nú I fyrsta skipti i heims- Þrír nýir koma inn í landsliðið Þrjár breytingar verða geröar á landsliðinu i handknattleik frá siðasta leik er mætir tékkum I kvöld. Gunnar Einarsson, Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson verða ekki með, en I þeirra stað koma Kristján Sigmundsson, Viggó Sigurðsson og Bjarni Guð- mundsson. Liöið verður þvi skip- að eftirtöldum leikmönnum: Ólafur Benediktsson Kristján Sigmundsson Jón Karlsson Þorbjörn Guðmundsson Bjarni Guðmundsson Þórarinn Ragnarsson Geir Hallsteinsson Viðar Simonarson Ólafur Einarsson Björgvin Björgvinsson Ágúst Svavarsson Viggó Sigurðsson. NÚ FINNST OKKUR AÐ MÆLIRINN SÉ FULLUR — segja óánœgðar handknattleikskonur um störf landsliðsnefndar kvenna Mælirinn fullur. „Við undirritaðar handknatt- leikskonur óskum að lóta I ljós álit okkar á þeim vinnuaöfcröum, sem mótast hafa að undanförnu hvað varðar val stúlkna I lands- liöiö. Vinnuaöferðir þær, sem hér um ræðir, hafa valdið þvl hversu lélegt iandsliðið er oröið (að okk- ar mati) og óáhugavert. Eins og þeir vita, sem eitthvaö hafa fylgst með kvennahand- knattleik, hafa engar framfarir orðið undanfarin ár þrátt fyrir veruiega aukningu á verkcfnum. t landsliðiðsnefnd kvenna starfa nú þau Svana Jörgensdóttir, Pétur Bjarnason og Kristján örn Ingibergsson. Svana hefur starf- að i nefndinni f 3 ár og verið for- maður hennar siðastliðin2 ár. Viö spyrjum: Hvers vegna gefa menn kost á sér i nefnd, ef áhuginn er svo takmarkaður, aö þeir horfa ekki á kvennahandknattleiki yfir- leitt? Þarna er Svana Jörgens- dóttir undanskitin. Við kunnum vel að meta þau störf, sem Svana hefur unniö I þágu landsliðsins: til aðmynda samninga um lands- leiki og fjáröfiunarráöstafanir, sem hvorttveggja eru erfið og timafrek verk. Hún hefur sýnt starfinu mikinn áhuga og unnið samviskusamlega flest þau störf, sem koma landsliöi kvenna við. Það skal metiö sem vel er gert. En hvað snertir val landsliðs- nefndar I landslið, finnst okkur, að oft ráði persónulegt mat Svönu einvörðungu á eftirfarandi hátt: Það, hvort viökomandi hand- knattleíkskona hefurtilbrunns að bera hæfileika og getu, virðist uukaatriðiaö mestu. Valið miðast viö þær stúlkur, sem hljóðalaust láta sér lynda kenjar og órök- studdar kröfur þess, sem fyrir þeim er. Að segja hug sinn atlan eða hafa yfirieitt skoðun á nokkrum sköpuðum hlut varöandi iandsliðið, er álitið i meira lagi óæskilcgt. Meö þessu teijum viö, aö gert sé meira ógagn en gagn og að með þessu sé verið að eyði- ieggja eðlilegan félagsanda og samkeppni um að komast I lands- liðið. Takmark hverrar handknatt- leikskonu, við eðlilegar aðstæður, ætti að vera aö komast i landslið. En viröing fyrir landsliði hlýtur að þverra, þegar staðið er að vali þess eins og gert hefur verið aö undanförnu. Við leggjum þvi til, að landsliðsnefnd verði sett frá og ný kjörin. Okkur fannst mælirinn fullur nú I haust, þegar aldurstakmark var sett á landslið kvcnna, 18-23 ára. Er gcrt ráö fyrir að slikt „unglingalandsiið” taki þátt I 4 landa keppni hér á landi I febrú- ar. Þar sem vitað er, hve hand- knattleikurkvenna er lélegur hér, teljum við það naumast verjan- legt aö fara úti landskeppni meö liö skípað 23 ára stúikum og yngri. Margar okkar skástu handknattleikskonur eru orðnar 23 ára og því fyrirfram úr leik. Meö svona vinnubrögðum stuðlar landsliðsnefnd óneitanlega að þvi, að meginþorri handknatt- ieikskvenna hættir að stunda iþrótt sina. Jafnvel tvitugar stúlkur, sem óðfluga nálgast elli- mörkin, missa móðinn. Er ekki hætt við þvi að félagsóhugi dofni ef stúlkur i ýmsum félögum eiga ekki jafna möguieika á aö komast I iandsliöið? Blaöaummæli að undanförnu undirstrika, að aldrei hafi kvennahandknattleikur veriö eins lélegur og nú, og aö aðalvanda- málið sé hve stulkurnar hætti ungar handknattieik. Aö lokum leggjum við til, aö leikinn verði pressuleikur. í pressuliðið séu valdar þærstúlkur sem komast ekki I iandsliö vegna elli, einnig þær sem ekki komast I landsliðið annarra hluta vegna, en hafa fulian áhuga ó þvi og gctu. Og að iokum þær, sem gefa ekki kost á sér i landsliö, vegna þess hvernig er staðið að vali þess. óánægðar handknattieiksstúlkur. Aðalheiður Einarsdóttir Arm. Anna Dóra Arnad. Arm Anna Björnsd. Vlk Anna Lind Sigurðard. K.R. Arnþrúður Karlsd. Fram AuöurRafnsd. Arm Aifheiður Emilsd. Arm Alfhildur E. Hjörlelfsd. F.H. Asa Asgrlmsd. K.R. Astrós Guömundsd. Vfk Bergþóra Asmundsd. Fram Björg E. Guðmundsd. Val Björg Jónsd. Eirika Guðrún Asgrfmsd. Elín Hjörleifsd. ElinKristinsd. Erna Lúðviksd. Erla Sverrisd. Fjóla Þorleifsd. Guðrlður Guðjónsd. Guðrún Halldórsd. Guðrún llauksd. Guðrún Helgad. Guðrún Sigurþórsd. GuðrúnSverrisd. Guðrún B. Vilhjólmsd. Halldóra Magnúsd. Hansina Melsted Heba Hallsd. Helga Bachman Helga H. Magnúsd. Hjördis Rafnsd. Hjálmfriður Jóhannsd. Hjördis Sigurjónsd. Inga Birgisd. Ingunn Bernódusd. lris Þráinsd. Jenny Magnúsd. Jóhanna Halldórsd. Jónina Ólafsd. Kolbrún Jóhannsd. Kristjana Magnúsd. Kristin Lárusd. KristinOrrad. Magnea Magnúsd Oddný Sigsteinsd. Oddný Sígurðard. Sigriður Brynjúlfsd. SigriðurRafnsd. Sigurlaug S. Einarsd. Sigurrós B. Björnsd. Soffia Guðmundsd. Steinunn Helgad. Val. Vlk Fram Val Arm Arm Arm Fram Fram Vik Vik Arm Fram K.R. Val K.R. Vik Vfk. Fram Arm K.R. K.R. Val Vík Arm. Fram Fram K.R. Fram Val Val Fram Arm Fram Val Arm Arm Arm. Vlk K.R. Fram

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.