Vísir - 27.01.1977, Page 5
\
VISIB
Fimmtudagur 27. janúar 1977-
r\ r'
1 r\
T ° r\
0 f\
o n
'N_ ^r\ r\
_ n _
n r~ n
rvr^^r-V
0° o -l Ar\ ■
r£
n r^1 ^ ^-o1 r/Xo ■;
ÍV^ r\ ^ on
o rv> 'r^ <">
CN D^r\ o' Ov „
r> r^o- o O j' n
._ O 1
(S ^
"okVfSVi o
Ss0^01 ,C.A'X^v,n^'
• " *- TV\rö(X
„Þið eruð öll handtekin!"
Þær andófsgárur,
sem farið hafa um yfir-
borð Austur-Evrópu,
hafa komið Brezhnev
og félögum til að snúa
upp i vindinn, rifa segl-
in, skálka lúgur og
girða sig i brók niður,
eins og búist þeir við
ofviðri.
A-Þýska*
land
Lögreglumenn eru látnir slá
hring um skrifstofur V-Þýska-
lands i Austur-Berlin og austur-
þjóöverjum, sem leita þangaö
ráöa til þess aö flytjast vestur
yfir, er meinuö aöganga. Vin-
sælu þjóövisnaskáldi og kunn-
um kommúnista er visaö úr
landi öörum til viövörunar.
Tékkó-
slóvakía
I Tékkóslóvakiu eru áhuga-
menn um mannréttindi ofsóttir
og sérlega þeir 260 rithöfundar,
menntamenn og fyrri stjórn-
málaforkólfar, sem skrifuðu
undir „Mannréttindaskjal 77”.
Hert er fast aö hverjum hnút í
þvi ofsóknarneti, sem riðið er
um þá. Þeir eru kallaöir „út-
sendarar vestrænna njósna-
stofnana” og varaöir viö þvi, aö
sá sem „leggst á teinana til aö
stööva för sögulestarinnar veröi
aö búa sig undir, aö missa fæt-
uma”, og nokkrum er siöan
varpað i fangelsi.
Sovétríkin
í Sovétrikjunum fjölgar fyrir-
varalausum húsrannsóknum á
heimilum andófsmanna,
heimilissimar þeirra eru teknir
úrsambandi, þeir eru stöðvaðir
á fórnum vegi og dregnir i ill-
ræmdar dyblyssur öryggislög-
reglunnar til yfirheyrslu og
aðalforkólfar þeirra fá sérstak-
ar viðvaranir um ,,aö gá aö
sér”, ella.! Juri Orloff, einn
vina Andrei Sakharovs, friöar-
verðlaunahafa, og leiðtogi þess
hóps, sem tekið hefur að sér að-
hafa gát á og birta opinberlega
vanefndir Sovétstjórnarinnar á
mannréttindarákvæðum
Helsinkisáttmálans, er tekinn
fastur i fyrstu viku janúar.
Þrem vikum siöar er Sakharov,
sem andófsmenn i Sovétrikjun-
um skoöa leiötoga sinn, kvaddur
til saksóknara rikisins þar sem
honum er gefin ströng áminning
og föðurleg ráö um aö hafa sig
hægan, ef hann vilji ekki sæta
saksókn. — Menn kviða því, aö
þessi harka eigi eftir aö færast i
aukana ef yfirvöld noti sér
sprenginguna, sem varö í
neöanjarðarlestinni i Moskvu,
fyrir tilefni, sem unnt veröi aö
draga andófsmenn til ábyrgöar
fyrir. — Juri Orloff segir, aö
Rússland sé á leið aftur til stal-
inisma.
Þessar móðursýkiskenndu
aðfarir til þess aö sjóbúa
þjóðarskúturnar, þegar fyrsti
mannréttindaandvarinn leikur
um mannhafið þar eystra, eru i
fullu samræmivið hin venjulegu
viöbrögð valdhafa I Kreml, sem
kæfa vilja sérhvern andófsblæ,
áður en hann nær aö verða aö
antjalds, létu sér þetta stfma-
brak ekki koma á óvart. Þeim
þótti þau meira aö segja viöbúin
sem einskonar mótvægi við
þeirri óvenjulegu mannúö, sem
stjómir tveggja þessara rikja
sýndu af sér á dögunum og
heföu kannski getaö komiö
þeirri grillu inn hjá „óæskileg-
um öflum”, aö valdhafarnir
væru að linast á veröinum. Ann-
að var sú ákvörðun rússa aö
skipta á andófsmanninum,
Valdimir Bukofsky, fyrir
kommúnistaleiðtogann, Luis
Corvalan, frá Chile. Hitt fór
ekki eins hátt þegar
Tékkóslóvakia sleppti úr fang-
elsi siöustu fjórum stuönings-
var kæföur meö innrás Varsjár-
bandalagsins. — 1 rauninni má
heita svo, að þessar nýju of-
sóknir á andófsmönnum séu
óvenjulega mildar mótvægisaö-
gerðir miðaöar viö fordæmi
sögunnar.
Engar
grillur
Hvað sem fyrir valdhöfunum
fundinn i Belgrad., þar litiö skal
yfir, hversu vel skilmálar
helsinkisáttmálans hafa verið
haldnir), Þá mun þeim hafa
fundist: fuil þörf á aö brjóta á
bak aftur, hverjar vonir sem
andófsmenn hafa gert sér um
frekari tilslakanir.
Þeim mun hafa fundist and-
ófsmenn vera aö sækja i sig
veðrið, þegar þeir geröust svo
djarfir ,,aö ýja aö þvi aö Sovét-
rikin standi ekki viö geröa milli-
rikjasamninga”, eins og
leiöarahöfundi eins málgagns
flokksins blöskraði hvaö mest.
Ef stjórnarandstæöingum héld-
ist þetta uppi, kynnu fleiri aö
voga sér aö gagnrýna flokkinn
og kerfið, og aldrei aö vita hven-
ær stormurinn skylli á, kannski
svo magnaöur að feykti til
valdastoðunum.
Pólland
í Póllandi er andstaöan oröin
svo máttug, að þar treystast
valdhafar ekki til aö berja hana
niður með minniháttar ofsókn-
um, eins og fyrirvaralausum
húsrannsóknum, eða bráöa-
birgöahandtökum og yfirheyrsl-
um. Enda njóta þeir mennta-
menn, sem andófiö leiöa i Pól-
landi, stuðnings meðal iönaöar-
verkafólks og frá kaþólsku
kirkjunni, sem enn er mjög
áhrifarik meöal pólsku þjóö-
arinnar. Þaö sýndi sig best,
þegar verkalýöurinn reis upp til
verkfalla og mótmæla um leið
og hækka átti verðlag á mat-
vöru, og knúöi stjórnvöld til
aö slá á frest þeim ráðstöfunum.
Það sýnir sig i samtökum
þeirra, sem stofnuö voru til
stuðnings verkfallsmönnum,
sem gerðir voru aö sektarlömb-
um fyrir óeiröirnar. Allar þess-
ar flugur veröa ekki slegnar i
einu höggi i Póllandi, og þarf aö
beita meiri slægö og meiri
þolinmæöi.
Dugir
það?
Hvort þessar ofsóknir í A-
Þýskalandi, Tékkóslóvakiu og
Sovétrikjunum duga til þess aö
bæla andófsmenn niður, á svo
eftir aö koma i ljós. Þaö
væri helst aö þær hrifu I Tékkó-
slóvakiu þar sem menn eru
nýlega búnir að þola ofsókn-
ir vegna stuönings viö frjáls-
lyndisstefnu Dubceks, stöðu- og
atvinnumissi, fangelsanir og
aðrar ofsóknir, og þeim vorkunn
þótt þeir ef til vill treystist ekki
til á skömmum tima aö ganga i
gegnum það allt aftur á ný. —
Þaö veröur þó ekki séö neinn
bilbugur á tékkum enn sem
komiö er, þvi aö 30 nýir hafa
bætt undirskriftum sinum undir
„mannréttaskjal 77” eftir aö of-
sóknirnar hófust.
Á að kœfa
mannréttinda-
andvarann
i fœðingu?
svo miklu sem golu. mönnum Dubceks, sem haföir vakti með þessari náöarsam-
Menn sem fylgst hafa meö hafa veriö i haldi frá þvi að legu mildi sinni (kannski aö
sögu kommúnistarikjanna aust- „vorblærinn i Tékkóslóvakiu” fegra afrekaskrá sina fyrir júni-
Hvaö vakti fyrir þeim, þegar þeir slepptu Bukofsky?