Vísir - 07.03.1977, Page 5
e. ~~
)
40 hœða hús í rústum
Ferleg
eyðilegging
eftir
Enn leituðu björgunar-
sveitir í nótt, þriðju nóttina
í röð, í rústum eftir jarð-
skjálftann mikla í
Rúmeníu, en vonir manna
hafa nú dvínað um að
finna megi ennþá lifandi
fólk grafið undir braki.
Þúsunda er saknað.
Grafin hafa verið upp
um 600 lík og samkvæmt
síðustu tölum í gærkvöldi
höfðu rúmlega 3.000 manns
fundist slösuð.
Orvinda hermenn og borgarar,
sem vart hafa fest blund á brá,
leituðu aballega f rústum 40 hæö
ibúba blokka i Búkarest, en þær
hrundu niður eins og spilaborgir i
jarðskjálftanum á föstudags-
kvöld.
7,2 stig á Richter
Jarðskjálftinn, sem fannst alla
leið til Vinarborgar og Moskvu,
mældist snarpastur 7,2 stig á
Richterkvarða og varð valdur að
ferlegri eyðileggingu i sex sýslum
(af 40) i Rúmeniu.
Þótt unnið hafi verið látlaust
viö björgunar- og hreinsistarf i
höfuðborginni, Búkarest, nótt
sem nýtan dageru viða enn að sjá
allt að sjö hæða háar steinsteypu
og járnbitahrúgur, sem eitt sinn
hétu háhýsi.
Björgunarmenn notast við
hunda, sem reyna að þefa uppi
fólk i brakinu. Annað veifið gera
kranar og jarðýtur hlé til þess að
alger þögn riki, meðan björgun-
armenn reyna að hlusta, hvort
einhvers staðar heyrist stuna eöa
óp úr brakinu.
íbúar fjarlœgðir
Ffettamaður Reuters i Cari-
ova, sem er bær um 200 km vestur
af Búkarest segir i fréttaskeyti
þaðan, að um 1.500 hús, heimili
2.400 fjölskyldna, séu svo illa far-
in, að það liggi ekkert fyrir þeim
annað en að jarðýturnar jafni úr
hrúgunum. Við sumar götur er
annað hvert hús i slikum rústum.
íbúar hafa verið fjarlægðir úr
3.000 húsum, sem skemmdust svo
i jaröskjálftanum, að ekki þykir
óhætt að búa i þeim. Hermenn
standa vörö við sumar byggingar
til þess að hindra fólk i að fara inn
i gær til að bjarga eigum slnum,
Sr sem hætta er talin á þvi að
ir hrynji þá og þegar.
I tfenwood
TV*OBN ■
þURRK^R'
AU»ve«dUr_?^,,a'
eöa viökvæm efn
astti að fuUþurrka
á frá strax. ■
„Scinteia”, málgagn kommún-
istaflokksins, skrifaði aö jarð-
skjálftinn hefði valdið sprenging-
um og ikveikjum i efnaverk-
smiðjum i iðnaðarborginni
Ploiesti, sem er um 65 km noröur
af Búkarest.
1 Rúmeniu er eitt stærsta oliu-
vinnslusvæði Austur-Evrópu fyrir
utan Sovétrikin, en raflinur til
oliubrunnanna rofnuðu i jarö-
skjálftanum. Hinsvegar hafa
engar skemmdir orðið á vökva-
drifnum oliubrunnunum i Pitesti
um 100 km norðvestur af höfuð-
borginni. Blaðamönnum var leyft
að fara þangaö i skoðunarferö i
gær. Hinsvegar fengu þeir ekki að
fara til Ploiesti eða Vrancea, sem
er um 180 km norðaustur af Búka-
rest, en þar sögðu visindamenn
að jarðskjálftinn hefði átt upptök
sin.
Leita aðstoðar
Rúmenia hefur leitað eftir er-
lendri aðstoð við hjálparstarfið,
eftir þvi sem skrifstofa hamfara-
jarðskjálftann
i Rúmeníu
hjálpar Sameinuðu þjóðanna
skýrði frá i Genf i gær. Mest er
þörfin fyrir hjúkrunargögn,
sjúkrabila, þurrmjólk og vélar til
þess aö vinna við hrundar bygg-
ingar.
— Nokkur vestræn riki hafa
þegar lofaö aðstoð sinni.
Kosningar i Pakistan
Flestir ætla, að stjórn
Zulfikar Ali Bhuttos, for-
sætisráðherra Pakistan,
muni halda velli í kosning-
unum, sem fara fram í
dag. — Það eru fyrstu
kosningarnar undir
borgaralegri stjórn.
Bhutto gengur sjálfur mjög
öruggur til kosninganna og viss
um eiginn sigur, en ýmsir spá þvi,
að eitthvað mun saxast á meiri-
hluta hans. — Bhutto tók viö völd-
um af Yahya Khan hershöföingja
eftir striðiö viö Indland 1971, en
þá klofnaði Austur-Pakistan frá
og myndaði rikið Bangladesh.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
hafa niu tekið sig saman og
myndað kosningabandalag, sem
gerir kosningabaráttuna tvísýnni
en ella. Alþýðubandalag Pakistan
(PNA), eins og kosningabanda-
lagið er kallað, berst gegn verð-
hækkunum og spillingu i skrif-
stofubákni þess opinbera. Hefur
PNA veist að.ei.nsmannsstjórn
Bhutto”, eins og stjórnarand-
stæöingar kalla það, og hroka-
fengnu ráðriki flokks hans, PPP.
Asgar Khan, fyrrum flugmar-
skálkur er aðalleiðtogi stjórnar-
andstöðunnar, og hefur veist
harkalega að Bhutto.
Þrir stjórnmálamenn andstöð-
unnar hafa háö kosningabaráttu
sina úr fangaklefum, en þeim er
haldið i fangelsi i krafti neyðar-
ástandslaga og gefið aö sök aö
hafa flutt ræður i óþökk stjórnar
Rhuttos.
Kosningabaráttan hefur staðiö
tvo mánuði, og hafa bæði PPP og
PNA skorað á kjósendur aö stuðla
að þvi aö kosningarnar fari
friðsamlega fram. Margsinnis
hefur komiö til óeiröa i kosninga-
baráttunni, sem kostað hefur 25
manns lifiö. Herinn er viða hafður
til taks i dag, til þess aö gripa i
taumana, ef til uppþota kæmi.
AMIGO 105 -kr.ca. 880.000.
AMIGO 120 L - - - 950.000,-
AMIGO 120 LS-- - 1000.000.-
þúgerir hvergi betri kaup
Skoda Amigo er mjög falleg og stllhrein bifreió. Hún er
búin fjölda tæknilegra nýjunga og öryggió hefur veriö
aukió til muna. Komió og skoóiö þessa einstöku bifreió
JÖFUR
HF Tékkneska b'freióaumboóió á Isbndi
AUOMÉWCU 44-46 - KÖPAVOGl - StMl 42600