Vísir - 14.03.1977, Blaðsíða 6
visra
Spáin gildir fyrir þriöjudaginn ,
14. mars 1977
'7*
Hrúturinn
21. mars—20. apríl:
Þetta veröur ánægjulegur dag-
ur. Endurnýjaöu gömul kynni.
Stutt ferðalag getur orðið til mik-
illar ánægju og fróðleiks.
Nautið
21. apríl—21. mai:
Heimsæktu eða hringdu i vini
sem þií hefur ekki sinnt sem
skyldi að undanförnu. Geröu ekki
of miklar kröfur til annarra.
föí
Tviburarnir
22. mai—21. júni:
Láttu ekki fljótfærnina ráöa
gerðum þinum og láttu ekki
flækja þig i deilu. Þér hættir til að
vera of skapbráður. Notaðu
krafta þina til góðs.
Krabbinn
21. júni—23. júlí:
Dagurinn er tilvalinn til að
heimsækja vini og vandamenn.
Þú ferð á stefnumót i kvöla.
Haföu gát á þvi, sem fram fer i
kringum þig.
Nt
Ljónið
24. júlí—23. ágúst:
Láttu ekki tilfinningarnar
hlaupa meö þig i gönur. Forðastu
að vera of eftirlátur, þú gætir séö
eftir þvi seinna. Þú verður fyrir
óvæntu happi á næstunni.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.:
Fréttir sem þér berast i dag
geta reynst ruglandi. Hugleiddu
ákvarðanir varðandi framtiðina
en ákveddu ekki neitt. Þetta getur
reynst varasamur dagur.
Vogin
24. sept.—23. okt.:
Þú verðurliklegastbundinn við
vinnu yfir alla helgina. Frestaðu
ekki neinu, það gæti liöið á löngu
þar til timi gefst til aö bæta ráð
sitt.
Drekinn
21. okt.—22. nóv.:
Þú lendir i vandræðum og ert
ekki nógu vel viðbúinn þvi. Þú
færö mikilvægar fréttir bráðlega.
Gættu þin á mannamótum.
Hogmaðu rinn
23. nóv.—21. des.:
Það bendir allt til þess að þú
verðir fyrir f járhagslegum ávinn-
ingi i dag, en þú veröurað lita vel
i kringum þig til aö koma auga á
það.
Steingeitin
22. des.—20. jan.:
011 umgengni við fólk reynist
auðveld i dag. Þetta er góður dag-
ur til að sinna andlegum hugðar-
efnum. Hringdu i gamlan vin.
Æ
Vatnsberinn
21. jan.—10. fehr.:
Þér tekst að gera mikið úr litlu.
Þaö er eins og allt vaxi i höndun-
um á þér. Gleddu venslafólk með
gjöfum.
Fiskarnir
20. febr.—20. mars:
Gerðu ekki neinar fljótfærnis-
legar athugasemdir i dag, þær
gætu valdiö deilum. Feröalög eru
óheppileg. Taktu ekki mark á
slúðursögum.
Copr 195» Edgi' RiceBurroughj, Inc -TmReg US Pal Ofl
Dislr. h- United Fbatuiv Syndicate. hc.
Woceel
nhj.Svakaleg skutla maður.