Vísir - 14.03.1977, Blaðsíða 11

Vísir - 14.03.1977, Blaðsíða 11
1) VISIR Mánudagur 14. mars 1977 Jón Hákon°Magnússon ^ skrifar J ....... s* Fær engan aölögunar- tíma Callaghan, sem var utanríkis- ráöherra, eins og fyrr segir, hefur mikinn áhuga á utanrikis- málum og hefur hann þvi gert sér grein fyrir nauösyn þess aö velja hæfan mann i embættið aö Crosland látnum. Þrátt fyrir tiltölulega litla reynslu Owens á sviði alþjóða- mála, er eitt vist að hann fær nánast engan aðlögunartima i embættinu. Hann þarf t.d. aö vera gestgjafi og i forsæti þriggja mikilvægra ráðstefna i London a þessu ári. leiðtogar Verkamannaflokks- ins, sem lita ungan og litið reyndan stjórnmálamann horn- auga. Callaghan hefur aftur á móti undirstrikað þaö að hann liti á utanrikisráðherrann sem einn mikilvægasta ráðherrann i stjórn sinni. Búast má viö þvi, að Owen veröi mikilsmetin i Washington, þarsem tiltölulega ungir menn fara með völdin, þeir Jimmy Carter, forseti, og Walter Mondale varaforseti. Það mun hjálpa breska ráð- herranum vestra að hann er kvæntur bandariskri konu. Laus við þorskastrið Owen er fyrsti breski utan- rikisráöherrann á undanförnum árum, sem þarf ekki að skipta sér af þorskastriði og fiskveiöi- deiium breta og islendinga. Sir Alec Douglas Home, utanrikis- ráðh. i stjórn Edwards Heath, glimdi við islendinga vegna 50 milna fiskveiðilögsögunnar. James Callaghan var manna grimmastur i 200 milna deilunni og Anthony Crosland var maðurinn sem samdi um viður- kenningu breta á núv. fisk- veiðimörkum við Einar Agústs- son, sjávarútvegsráðherra, i Osló i fyrravor. Crosland stóð sig vel á þeim fundi, þótt hann heföi aðeins verið utanrikisráð- herra i skamman tima, en á þeim fundi tryggði núverandi stjórn Islands okkur sigur i mál- inu. Owen mun aftur á móti ef- laust skipta sér af fiskveiðimál- um Efnahagsbandalagsinsog er ekki ósennilegt að hann reyni að nota núverandi embætti sitt inn- an EBE til þess að fá bandalag- iö til að leggja aukna áherslu á það við islendinga, að þeir veiti bretum veiðiheimild á ný innan 200milna markanna. Það er vit- að að breska stjórnin hefur itrekað við bandalagið i Brussel að þaö reyni enn á ný aö draga islensku stjórnina að samninga- borðinu. ' Ný kynslóð Óliklegt er að hinn ungi utan- rikisráðherra geri miklar eða byltingakenndar breytingar á utanrikisstefnu breta. Hann mun aftur á móti setja svip sinn á stjórnina, vegna þess hve ung- ur hann er og áhugasamur um mörg helstu málefni Vestur- Evrópu á alþjóðlegum vett- vangi. David Owen markar raunar upphaf nýrrar kynslóöar i evrópskum stjórnmálum um leiö og hann tryggir sér þann möguleika að stjórna bresku þjóðarskútunni i náinni framtið. Efnahagsbandalagsmað- ur Þar má fyrst nefna tvær mikilvægar ráðstefnur æðstu’ manna EBE og fund þjóöarleiö- toga breska samveldisins. A siðastnefnda fundinum veröur Idi Amin, einvaldur Uganda, meðal þátttakenda. Amin hefur boðaö komu sina til Bretlands, þótt svo að breska stjórnin hafi látið i það skina að hann sé óvel- kominn á fundinn. Vel metinn í Washington Breskir fréttaskýrendur segja, að erfitt verði fyrir Owen að fóta sig innan bresku stjórnarinnar, þar sem fyrir eru margir elstu og klókustu Andlát Anthony Croslands, utanrikisráðherra breta, kom flestum óvænt, enda var hann tiltölulega ungur maður miðað við vestur-evrópska ráðamenn á stjórnmálasviðinu. Það kom einnig flestum óvart er James Callaghan, forsætisráðherra út- nefndi 38 ára gamlan fyrrum sjúkrahúsiækni i þetta vciga- mikla embætti bresku stjórnar- innar. David Owen er sennilega fyrsti núverandi breski ráðherr- ann sem upplifði seinni heims- styrjöldina sem barn og má þvi segja að embættistaka hans brjóti blað I sögu breskra stjórnmála, en flestir hinna tóku þátt i striðinu á einn eða annan hátt. Utanrikisráðherraembættið I Bretlandi, er eins og viða ann- ars staðar á Vesturlöndum, ein valdamesta staðan i hverju ráðuneyti og þess vegna bjugg- ust flestir viö þvi að Callaghan veidi gamlan og reyndan sam- herja i embættið. Forsætisráö- herrann var aftur á móti fram- sýnn i þessari vandasömu ákvörðun sinni og teygði sig út fyrir kynslóð núverandi frammámanna og valdi aðstoö- arutanrikisráðherrann og þing- mann Verkamannaflokksins, David Owen, i embættið. Owen er sagður duglegur og snjall stjórnmálamaður, sem af tilviljun hætti læknisstörfum fyrir ellefu árum og sneri sér að áhugamáli sínu, pólitikinni. Hann hefur mikinn áhuga á málefnum Efnahagsbandalags Evrópu og meðan hann gegndi hlutverki aðstoðarmanns Cros- lands, sem var einn hæfasti ráð- herra Verkamannaflokksins, fór hann að mestu með málefni EBE. Það kemur sér vel, vegna þess að i ár eru bretar i forsæti ráðherranefndar bandalagsins, sem er mjög mikilvægt hlutverk og vandasamt. Owen hefur notið handleiðslu Roy Jenkins i þeim efnum, en sá siðarnefndi kom sterklega til greina sem utan- rikisráðherra þegar Callaghan lét af embættinu til að taka við forsætisráðherraembættinu eft- ir afsögn Harolds Wilsons. Jenkins er nú i framkvæmda- ráöi EBE i Brussel, en hann var á sinum tima einn harðasti stuðningsmaður aðildar breta að EBE innan Verkamanna- flokksins. Sund er mikilvœg líkamsþjálfun göngu bringusund og hver æfing stóð yfir i 30—45 min. Niðurstöður. Breytingar á þoli. Þjálfunin miðaðist við þaö að bæta þolið. Mælingar á þolhljóöi sýndu, að við álag undir hámarki (900 kpm/min.) lækkáði hjartslátt- urirni að meðaltali úr 154 I 140 slög á minútu, sem þýöir 14 slaga lækkun. Breytingarnar á hópnum voru frá 0—33 slög á minútu. Mælingar á hámarksgetu til súrefnistöku leiddu i ljós, að a 11- ir þátttakendurnir bættu sig. Meðaltaliö jókst úr 3,01 1/min, eða 38,3 ml/kg. min. i 3,42 1/min. eða 44,0 ml/kg x min. Það er 14,8% aukning á þoli. Mismunandi þjálfunaraðferðir. Með rannsókninni var einnig ætlunin að kanna hvort mis- munandi þjálfunaraðferöir hefðu áhrif á þjálfunina. Eins og áður sagöi, var hópnum skipt 1 tvenntaf handahófi, áfangahóp og langþjálfunarhóp, Niðurstöðurbenda til að þess- ar aðferðir séu svo að segja jafngóðar fyrir almenning. Það verðurað álita það, aö langsund örvi loftháða (aerobe) orku- mundun likamans það mikið að þjálfáhrifum veröur náð. (Til samanburðar má benda á, aö setur í heitum pottum ná ekki aö hafa áhrif á loftháöa orkumynd- un Ekamans og þvi er ekki um að ræða þolbætandi áhrif af slikri heilsurækt). Þessar niðurstööur eru alveg samhljóöa svipuöum athugun- um á áhrifum hlaups. Saitin og samstarfsmenn sýndu fram á með rannsókn á sænskum hermönnum að 20—30 min. stöðugt og nokkuö hratt hlaup veitir sömu þjálfun og ef sömu vegalengd er skipt i 4 minútna áfanga og hann hlaupinn hratt. Hvað viövlkur sundþjálfun hefur verið áhugi fyrir að vita hvaða áhrif léleg sundtækni gæti haft á þjálfunina. Þaö á sér oft staö að ein- staklingar, sem kunna litiö i sundi ná ekki sambærilegri súrefnistöku i sundi og þegar þeir hlaupa eða eru mældir á þolhjóli. Þetta á «nkum við um fólk, sem hefur gott þol og þá ekki vegna sundþjálfunar. Þörf frekari rannsókna 1 þessari rannsókn kom fyrir aö einstaklingar náðu aðeins 60—80% af þeirri hámarkssúr- efnistöku, er náðist með öðrum hætti. Vegna þess aö út frá þjálffræðilegu sjónarmiði er leitast viö að hafa ákeföina (intensitetið) það mikla aö álagiö á loftháða orkumyndandi ' starfsemi sé sem næst hámarki, var nauösynlegt aö vita hvort þessi hópur óþjálfaðs fólks gæti náð svo miklu álagi. Tilaðkanna þetta voru 3 úr hópnum rannsakaðir i sérstakri rannsóknarsundlaug eða sund- tanki á iþróttaháskólanum i Stokkhólmi. i þessari sundlaug er unnt aö mæla súrefnistökuna við sund. Þessi rannsókn sýndi, að óþjálfaðir sundmenn ná súr- efnistöku, sem er 90—100% af þvi, sem þeir ná á þolhjóli. Þetta er sambærilegt við niöur- stöður á rannsóknum á afreks- sundmönnum. Niðurstaðan af þessu er þá sú, aö einstaklingar, sem hafa gott eöa mikið þol, en lélega sund- kunnáttu, eiga erfitt með að ná mikilli ákefð i þjálfun og þá um leið álagi á loftháða starfsemi likamans. Óþjálfaðir einstak- lingar með tiltölulega lélegt þol geta alveg örugglega náö hámarks-álagi meö sundi. Þetta er þó viðfangsefni, sem rannsaka þarf betur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.