Vísir - 03.04.1977, Blaðsíða 15
2 Sunnudagur 3. aprfl 1977.
15
í seinni ferðinni voru 3 sjúkra-
liðar, 1 flokksstjóri, 3 hjúkrunar-
fræöingar og einn læknir. Val
þátttakenda i þá ferö var fjöl-
breyttara. 1 meiri hluta voru
langlegusjúklingar, nokkrir
skammtima og enn aðrir sem
voru i tengslum við göngudeild
Kleppsspitalans. Fjöldi sjúklinga
var 29manns,eða samtals 30 með
konu einni, sem bjó ein I ibúð, en
fékk stuðning frá hópnum. Greiða
þurfti allan ferðakostnað fyrir 5
manns. Nokkrir greiddu fyrir sig
að hluta, enaðrir fengu aðstoð frá
ættingjum, en flestir kostuöu sig
sjálfir.
I báðum ferðunum var far-
gjald, hótelkostnaður og flugvall-
arskattur greitt fyrir starfsliðiö.
Eftirvænting og kviði
Er hópur fólks lagöi af stað að
morgni 10. mai 1975 frá Klepps-
spítalanum var ferðinni heitið til
Costa del Sol á Spáni. Gist skyldi
á Hótel Las Esterellas I 6 manna
ibúðum með sjónvarpi og sima;
hafði hópurinn 6 ibúðir til um-
ráða. Læknirinn og hans fjöl-
skylda bjó I einni, en i hverri
hinna var 1 starfsmaður meö 3-4
sjúklinga og i einni af þessum 5
ibúðum voru sjúklingaraf báðum
kynjum, annars samkynja. Búið
var að raða sjúklingum og starfs-
liði niður I Ibúðir áður en lagt var
af stað.
Mikil eftirvænting og kviði var
rikjandi i hópnum, bæði hjá sjúk-
lingum og starfsliði, þvi enginn
vissi hvaö framundan var. Sumir
sjúklinganna höfðu aldrei stigið
upp I flugvél og voru þar af leið-
andi kviðnir og einn ætlaði að
hætta viö að fara á siöustu
stundu, vegna þess að hann hafði
aldrei flogið áður, en það tókst að
tala hann til.
Ferðin út á flugvöll, gegnum
tollinn og flugið út gekk mjög vel,
engir teljandi erfiöleikar. Hópur-
inn hélt fast saman frá þvi að lagt
var af stað frá Kleppsspitalanum,
þar til komið var heim á hótelið.
Hlutverk og starfssvið starfs-
liðsins i þessari ferö var marg-
þætt og fjölbreytt. Reynt var að
hafa allt eins eðlilegt og frjálst og
hægt var. Akveðið var aö stofna
matarsjóð i hverri ibúð til að
drjýgja gjaldeyrinn. Var ibúum
ibúðarinnar frjálst hvernig mat-
arinnkaupum skyldi háttað. 1
sumum ibúðunum var eldaö að
jafnaði einu sinni á dag, i öðru
tvisvar eða jafnvel oftar. Ekki
voru allir sjúklingarnir jafn
hrifnir af þessari ráðstöfun. Þeir
vildu gjarnan fá mat, en þeir voru
óvanir þvi aö þurfa aö greiða
hann i beinhörðum peningum, svo
að ýmis vandamál sköpuöust i
kringum matarsjóð I sumum
ibúðunum.
Svefn var góður hjá öllum sjúk-
lingunum að undanteknum ein-
um, sem tók upp á þvi aö sofna
aldrei fyrr en klukkan 4 eða 5 á
næturnar en hann olli engum
erfiðleikum. Var honum gefið
aukasvefnlyf, en ekkert dugði.
Aðeins 1 sjúklingur veiktist, og
var með 40 gr. C hita i einn sólar-
sjálfstraust. Tungumálaerfiðleik-
ar komu i veg fyrir rabb viö aöra
gesti, en sumir þjónanna töluðu
hrafl I Islensku, og viö þá var al-
veg hægt aö spjalla.
Og þar kom að hún fór ein Ut, i
könnunarleiðangurangur.
„Mér fannst það allt i lagi, og
var ekkert óstyrk, enda vissi ég
að ég myndi auðveldlega rata
heim aftur. Fyrir mig var þetta
ekkert stórmál, en fararstjórarn-
ir frá spitalanum voru ákaflega
ánægöir”.
„Myndiröu treysta þér til að
fara ein, eða með einhverri vin-
konu þinni, i aðra svona ferö?”
„Já, þvi ekki það? Ef við hefð-
um sömu fararstjórana, sérstak-
lega ef Ingólfur væri þar (Guðna-
son), held ég aö þaö yrði allt i
lagi. En ég vildi þó helst læra eitt-
hvað i ensku eöa spönsku áður, til
að geta bjargað mér sjálf”.
Hefurðu fundið einhverja
breytingu á þé siöan þú komst
heim úr þessari ferð?”
„Já, ég er nú miklu öruggari
með mig, hef meira sjálfstraust
en áður. Og ég geri hluti sem ég
hefði ekki gert fyrir þessa ferð. A
laugardaginn fór ég til dæmis i
kynnisferð með Ferðafélaginu,
um Reykjanesskaga, að vitanum
og viðar. Og mér fannst ekkert ó-
þægilegt að vera innan um fólkið,
þótt ég þekkti þaö ekki. Ég fer
lika I laugarnar og geri hitt og
þetta sem ég hefði ekki gert áö-
ur”.
„Og þú ætlar kannske I aðra
sólarlandaferð?”
„Ja, ég er allavega byrjuö að
safna, hvað sem verður. Ég
eignaðist góða vinkonu i þessari
ferð og viö höfum verið mikið
saman siðan. Viö rifjum oft upp
minningar úr ferðinni og tölum
um aö fara aftur. Og þvi skyldum
viö ekki gera þaö?”.
—ÓT
Það er fallegt og snyrtilegt á Mallorca.
hring og rúmliggjandi I tvo daga.
Allir voru sjúklingarnir á ein-
hverri tegund geölyfja, en eftir
nokkurra daga dvöl þar syöra
voru lyfin minnkuö á nokkrum
þeirra og virtist þaö hafa góð á-
hrif á þá. Illa gekk að fá suma
sjúklingana til að ganga létt-
klædda fyrstu dagana, en er þeir
höfðu aðlagast aðstæöum breytt-
ist viðhorf flestra þeirra.
A milli þess sem farið var i
skoöunarferðir var farið i bæjar-
ferðir, innkaupaferðir, niöur á
strönd og á kvöldin fór stundum
sumtaf starfsliöinu og sjúklingar
á næturklúbba og skemmtu sér
vel.
í skoðunarferðum
Þærskoðunarferðir, sem meðal
annars voru farnar á Costa del
Sol, voru þessar;
Farið var i hálfs dags ferð til
Malaga. Heimsótt var stórborgin
Malaga og litiö þar aðeins við i
verslunum og skoðaðar helstu
breiðgötur og útsýnisstaðir I
kring, og nokkrir úr hópnum
skoðuðu dómkirkjuna.
N okkrum d ögum s Iða r v ar f arið
i hellaferð. Lagt var af stað eftir
hádegi, keyrt i gegnum stærstu
borg viö Torremolinos og heim-
sóttir hinir fallegu dropasteins-
hellar. Var feröin niður í hellana
einna likust atriði úr ævintýrinu
Þúsund og ein nóttog hafði geysi-
mikil áhrif á marga. Ekki var
laust viö aö sumir fengju snert af
innilokunarkennd og væru þrátt
fyrir hrifningu fegnir þvi að kom-
ast út i góöa veðrið aftur.
Þar næst var fariö i Kon-Tiki--
ferð. Lagt var af stað snemma
morguns frá Torremolinos og
keyrt upp i fjallgarðinn i norö-
vesturátt. Aö klukkutima keyrslu
lokinni var stansaö á Kon-Tiki--
barnum, en þar tók á móti hópn-
um norskur leiðangursstjóri, sem
bauö öllum upp á morgunmat,
sjá nœstu síðu
Fyrsta Irlandsferöin
tókst meÓ ágætum
„Hún [DyfliniJ hefur ekki mfsst and/itió
og drukknaö í blikkandi, litskrúðugum
Ijó'saskiltum, eins og svo margar borgir
Evrópu“ sagði blaðamaður sem var með í
fyrstu ferðinni til Dvflinar (Vísir).
,yAðbúnaður var allur hinn ágœtasti“
sagði annar fulltrúi pressunnar (Þjóðvilj-
inn).
„Gestrisni þessa
elskulega fólks er
einstök“ sagði sá
þriðji (Tíminn).
Nú er fyrirhuguó
8 daga írlandsferÓ
1-14. maí
Þar er líka Abbey Tavern með Guinness
og írskri tónlist.
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
Flogið verður til Dyflinar og ferðast þaðan
til hinna fögru héraða í suð-vestur hluta
landsins. Dvalið verður í Kilkenny og Cork,
auk Dyflinar. Ferðamönnum verður gefinn
kostur á laxveiði og golfiðkun.
Verðið er mjög hagstætt eða frá kr. 46.200.-
og er þá gistikostnaður (með morgunmat)
og ferðalög innifalið.