Tíminn - 23.08.1968, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 23. ágúst 1968.
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
'iií ' íi'r}
:
Á laugardaginn fer fram á
Melavellinum, leikur milli neðstu
liðanna í 2. deild, þ.e. Víkings
og ísafjarðar, og verður það leik
ur, sem sker úr um það, hvort
liðið heldur sæti sínu í 2. deild.
Hefst leikurinn kl. 5.
Liðið, sem tapar, tekur þátt í
fjögurra liða keppni um 2 sæti,
sem losna í 2. deild. 3. deildar
liðin þrjú, sem taka þátt i þess-
ari keppni, auk annað hvort Vík-
ings eða ísafjarðar, eru sigurveg-
arar í hinum þremur riðlum 3.
deildar, HSH, Völsungar og annað
hvort Þróttur eða Leiknir úr Aust
fjarða-riðlinum. Kí
Hvernig verður QL-klæBnaðurinn?
\
Að mörgu þarf að hyggja í
sambandi við þátttöku í Olym
píuleikum. Til að raynda lætur
hver þátttökuþjóð útbúa sér-
stakan klæðnað handa keppend
um sínum, sem notaður er við
setningu leikanna og utan vall
ar. — Á myndunum að ofan
sjáum við OL-klæðnað Ber-
muda-manna og Finna. Athygli
vekur, að Bermuda-maðurinn,
sem við sjáum á myndinni til
vinstri, er í stuttbuxum, gulum
að lit, en jakkinn er Ijósblár.
Finnska „parið" á myndinni
til hægri er í tvíhnepptum
jakka, bláum að Iit. með hvít-
um röndum. Buxurnar og pils-
ið eru úr Ijósu efni.
Ekki höfum við haft spurn-
ir af því, hvernig ísl. blæðn-
aðurinn verður, en ef að líkum
Iætur, verður um bláan jakka
að ræða við Ijósgráar buxur
eða pBs.
ÓSKAR LYFTI 430 KG
í KEPPNI I NOREGI
ISÍ hefur beðið Olympíunefnd að tilkynna þátttöku íslands í lyftingum.
Atf.—Reykjavík. — Eins
og skýrt hefur verið frá hélt
Óskar Sigurpálsson, lyftinga-
maður úr Ármanni, utan til
keppni. Nú hafa borizt fregn
ir frá Noregi, þar sem Óskar
tók þátt í æfingamóti, sem
Palmer Stangeland, aðaldóm-
ari og lyftingaþjálfari Norð-
manna, hafði umsjón með. í
skeyti, sem Palmer sendi
Gunnari Eggertssyni, form.
Ármanns, segir, að Óskar hafi
lyft samtals 430 kg., sem er
mjög góður árangur, og að-
eins 7,5 kg. minna en OL-
lágmark Alþjóða Olympíu-
nefndarinnar.
Reykjavíkurféiögin
sldptu mótunum bróð-
á milli sín
urlega
— KR vann í 5. flokki og Valur í 3. flokki
Alf-Reykjavík, — Nú er öllum
landsmótum yngri flokkanna í
knattspymu lokið. Síðustu úrslita
leikirnir fóru fram í gærkvöldi á
Melavdlinuni. Þá sigraði KR Vest
mannaeyjar i endurteknum leik,
4:1, og í 3. fiokki sigraði Valur
KR með 3:1.
Yfirfaurðir KR í 5. flokki voru)
meiii en hægt var að ímynda sér
eftir að hafa séð leik þessara sömui
liða í fýrrakvöld, en honum lauk
með jafntefli, 0:0. KR-ingar voru
miklu ákveðnari í þessum leik og)
höfðu yfir í hálfleik 2:0.
Þeir bættu tveimur mörk-
um við í síðari hálfleik og var
staðan um tíma 4:0. Fyrir leiks
lok skoruðu Eyjamenn eitt mark.
Úrslitaleikuripn í 3. flokki milli
Vals og KR var að mörgu leyti
skemmtilegur. Valsmenn voru
mun betri í fyrri hálfleik og
skoruðu þá tvö mörk. Voru
verki þeir Jón Geirsson og
Tryggvi Tryggvason. f siðari hálf
leik skoruðu KR-ingar sitt eina
mark úr vitaspyrnu. Árni Steins
son framkvæmdi hana af miklu
öryggi. Valsmenn innsigluðu sig
urinn með glæsilegu marki, sem
Sigurður Jónsson skoraði, þegar
5 mínútur voru til leiksloka.
Reyfejavíkurfélögin hafa skipt
landsmótum ýngri flokkanna bróð
urlega á milli sín. Þannig vann
KR 5. flokk, Víkingur 4. flokk,
Valur 3. flokk og Fram 2. flokk.
Ólíklegt er, að norski þjálf-
arinn hafi látið Óskar taka veru-
lega á, því að hann tekur bráðl.
þátt í erfiðri keppni í Finnlandi,
svoikallaðri Baltic-keppni, en í
henni verða keppendur frá Norð-
urlöndunum og nokkrum austan-
tjalds-löndum. Fer sú keppni fram
um helgina.
Þess má geta, að ÍSÍ hefur ósk-
að eftir því við Olympíunefnd fs-
lands að hún tilkynni þátttöku
ísilands í lyftingakeppni Olympíu
leikanna í Mexíkó. Að sjálfsögðu
þýðir það ekki, að endanlega sé
ákveðið, að Ós'kar keppi í Mexíkó.
Hér er verið að tilkynna þátttöku
með fyrirvara. í sambandi við
þetta hefur ÍSÍ sent út eftirfar-
andi fréttatilkynningu:
„Á síðasta fundi framkvæmda-
stjóniar ÍSÍ, sem haldinn var
mánudaginn 19. ágúst 1968, var
rætt um hinn ágæta árangur
Óskars Sigurpálssonar í lyfting-
um.
Framkvæmdastjórn íþróttasam
bands fslands, er virkar sem sér-
samband fyrir lyftingaíþróttina,
fórþeim Stefáni Kristjánssyni og
Höskuldi Goða, að athuga nánar
um árangur Óskars og það hvað
íþróttasambandið gæti gert bezt
í málinu.
Samkomulag varð um það, milli
Glímufélagsins Ármanns og
íþróttasambands fslands, að Óskar
færi utan til keppni á viðurkennd
lyftingamót, þar sem þar ætti þá
að koma í ljós geta hans við
viðurkenndar aðstæður á alþjóða
vettvangi.
íþróttasamband íslands hefur
óskað eftir því að Olympíunefnd
íslands að hún tilkynni þátttöku
íslands í lyftingum."
Þau óvæntu úrslit urðu á Eng-
landi í fyrrakvöld, að Leicester
sigraði ensku meistarana, Manch.
City, með yfirburðum, 3:0, og
skoraði A. Clarke öll mörkin. Ann
ars urðu úrslit þessi:
Óskar lyfti 430
Noregi.
1. deild.
Leicester — Manch. C. 3—0
Manch. Utd. — Coventry 1—0;
Newcastle — Chelsea 3—2
Tottenham — West Brom. 1—1.
Wolves — Arsenal 0—0
2. deild.
Bury — Cardiff 3—3,
Fulham — Hull City 0—0;
Oxford Utd. — Blackpool 0—0.
Portsmouth — Blackburn 0—1
í 1. deild hefur Leeds forystu,’
hefur hlotið 8 stig. Arsenal er í
öðru sæti með 6 stig. í 2. deild
eru Middlesbro og Crystal Palace
efst.
I
2. deild
ieika saman
f: v/cíV.:;