Tíminn - 23.08.1968, Side 16
Yfirlitsmynd frá sýningunni Húsgögn '68, sem haldin er í viðbyggingu Iðnskólans,
(TTímamynd Gonnar)
177. tW. — Postwíagur 23. ágúst 1968. — 52. árg.
Síldaraflinn með
minnsta móti
OÓ-Reykjavík, fimmtudag.
73 íslenzk sfldveiðiskip hafa
fengið einhvern afla í sirmar, og
eru 63 þeirra með 100 lestir eða
meira. Flest skipin Hafa verið að
veiðum á miðunum við Bjarnarey,
en nokkur í Norðursjó og þrjú
skip shinda nú veiðar við suður
ströndina, en þau hafa undanþágu
frá veiðibanni, og veiða þau síld
til niðursuðu og beitu. Heildar-
síldaraflinn í sumar er 36.767 lest
iir. Á sama tíma í fyrra var afl
inn orðinn 138.739 lestir.
Síðastliðna viku var bræla á
‘miðunum og lítil veiði. Frá miðun
,um við Bjarnarey bárust aðeins
2.126 lestir á Iand. 2,200 tunnur
saltsíldar og 1,804 lestir bræðslu
síldar. Norðursjávarafli sem land
, að var eriendis nam 242 lestum.
Nú er búið að salta 1.456 lestir,
eða 9.970 uppsaltaðar tunnur.
Bræddar hafa verið 31.631 lest
og erlendis hefur 3.677 lestum
verið landað. Skipin se,m veiða
sild við Suðurland hafa fengið
samtals 753 lestir frá 1. júní.
í gær og í nótt tilkynntu sjö
skip um afla, samtals 500 tunnur.
Mun sá afli að mestu hafa verið
saltaður um borð í veiðiskipunum.
í gær lygndi raokkuð á miðunum,
en nú er farið að bræla aítur og
veiðihorfur slæmar.
í sumar hefur mestur sildar
afli komið á land á Siglufirði, 15,
762 lestir. í Reykjavík hefur verið
landað 7386 lestum og á Seyðis-
firði 5.242 lestum. Á öðrum iönd
unarhöfnum hefur verið landað
minna magni. f Þýzkalandi hafa
íslenzk sfldveiðiskip landað 1.878
lestum, 660 lestum í Færeyjum,
301 á Hjaltlandi og 838 lestum
í Skotlandi.
Niu skip hafa fengið yfir 1000
Framhaio á ols 15
Norræn ráSstefna
um húsnæðismál
ÍSL HÚSGA GNAARKITEKTAR
SÝNA NÝJUSTU HÚSGÖGNIN
Saméiginlégur fundur norrænna
, húsnæðismálayfirvalda hófst í
Reykjavik í gær, ■ fimmtudöginn
22. ágúst og mun standa til laug
ardags. Fund þennan sækja fufl
trúar þeirra stjórnarstofnana, er
fara með húsnæðismál á Norður
löndum, þ. e. ráðuneyta, húsnæð
ismálastofnana, banka o.sirv. Ráð
stefna þessi er hin fjórtánda i
röðinni og hefur verið haldin hér
á landi einu sinni áður.
Á ráðstefnunni munu fulltrúar
Norðurlandanna flytja skýrslur
um þróun húsnæðismálanna á síð
asta ári og auk þess verða tekin
til umræðu ýmis öranur mál. Með
Héraðsmót að
Bifröst í
Borgarfirði
al þeirra er erindi, um nýjar leið
ir í fjáröflun til íbúðabygginga,
skipulag og starfsemi norrænna
byggingarfyrirtækja, fjármál og
fjármögnun fjölframleiddra íbúða
bygginga, starf húsnæðismáld-
nefndar Sameinuðu þjóðanna fyr
ir Evrópu og stuðning hins opin
bera í húsnæðismálum, við hinar
ýmsu fjölskyldutegundir.
Eins og áður segir, stendur ráð
stefnan tiil laugardags. Hana sitja
31 fufltrúi, þar af 11 fslendingar.
Formaður húsnæðismálastjórnar
Óskar Hallgrímsson, borgarfull-
tnii, stjórnar ráðstefnunni.
Kj-Reykjavík, fimmtudng.
Á morgun, föstudag, opnar fé-
lag húsgagnaarkitekta, húsgagna-
sýninguna Húsgögn ’68, í nýbygg-
ingu Iðnskólans, og er þetta í
þriðja sinn sem félagið efnir til
slíkrar sýningar. Ritið Iceland
Review mun vcita höfundi athygl
isverðasta sýningargripsins sér-
staka viðurkenningu.
Á sýningunni gefur að líta það
nýjasta frá íslenzkum húsgagna-
arkitektum, og má þar m.a. nefna
húsgögn úr áli, stóla úr eik og
íslenzku nautaskinni, létt furuhús
gögn, margar tegundir samstæðra
húsgagna og fleira.
Sýningartíminn nú he.fur einlk-
um verið valinn með tilliti til þess
að þessa daga stendur yfir í
Reykjavík „Norræni byggingardag
urinn" og fjölmargir forustumenn
um byggingarmála á Norðurlönd
um dvelja hér. Gefst þá tækifæri
til' að vekja athygli á því að hér
sé, eiras og annars staðar á Norð-
urlöndum, hreyfing á sviði hús-
gagnagerðar og sköpun húsgagna.
Vonar félagið að með sýningunni
gefist bæði fslendingum og er-
lendum gestum kostur á að sjá
hvar íslendingar eru staddir á
þessu sviði.
Sýniiigu sem þessarl er einkum
ætlað að vekja atJhfygTi á góðri
formsköpun og þýð&jga heaMfflr í,
hútsgagnagerð. Sé flsaraSð fafa-
gagnagerðar á íslaudi faöSð-í fanga,
einkum með tffílti til breyttra j/gf [
hortfa larada í máfli am
Framhald áí-bte. M.
SUF GEFUR ÚT RITffi
STJÓRNARSKRÁRMÁL
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
Samband ungra Framsóknar-
manna hefur gefið út nýtt fræðs'u
rit, er nefnist „Stjórnarskrármál
ið“, og verður það til sölu í
bókaverzlunum. Rit þetta er rúm
ar 70 blaðsíður að stærð, eru þar
birtar greinar eftir fimm menn
um hina ýmsu þætti þessa máls.
Hlér eru um að ræða erkidi, sem
flutt voru á náðstefnu SUF í as>rfl I
1968 um stjórnarskrá lýðveldis-
ins.
Efni fræðsluritsnis er eftirfar.
andi.
Ávarp, eftir Ólaf Jóhannesson,
formann Framsóknarflokksins, og
Framhald á bls. 15
Ólafur
DavíS
Héraðsmót Framsóiknarmanna
í Mýrasýslu, verður haldið að Bif
röst í Borgarfirði sunnudaginn 1-
september og hefst kl. 9 síðdegis.
Ræðu og ávarp flytja Ólafur Jó-
hannesson, formaður Framsóknar
flokksins, og Davíð Aðailsteinsson
Arnbjarnarlæk.
Skemmtiatriði annast Sigurveig
Hjaltested og Guðm. Guðjónsson
sem syngja einsöng og tvísöng við
undirleik Skúla Halldórssonar,
tónskálds. Hilmar Jóhannesson
fer með gamamþátt. Hljómsveit
Magnúsar Ingimarssonar leikur
og syngur milli dagskráratriða og
fyrir dansi.
Fraimsóíkwarféd. Mýrasýslu.
Þing Sambands ungra Framsóknar-
manna hefst aö Laugarvatni í kvöld
íeykjavík, fimmtudag. — 20. Gert er ráð fyrir að flestir dagsmorgun, en eftir hádegið tvær ungar hljómlista
Reykjavík, fimmtudag. —
Annað kvöld kl. 20 hefst 12.
þing Sambands ungra Fram-
sóknarmanna í Héraðsskólan-
um á Laugarvatni. Gert er ráð
fyrir að fjöldi kjörinna full-
trúa hvaðanæva að af landinu
muni koma til Laugarvatns síð
degis á morgun, auk allmargra
áheymarfulltrúa, en þetta er
fyrsta þing stjórnmálasamtaka
hérlendis, sem háð verður fyr
ír opnum tjöldum, eins og
kunnugt er. — Þinginu lýkur
með sérstakri hátíðardagskrá
kl. 16 á sunnudag í tilefni af
30 ára afmæli SUF.
Undirbúningi undir 12. þing
Samlbands ungra Framsóknar
manna er nú að ljúka. Þingið
verður haldið í húsakynnum
Héraðsskólans að Laugarvatni
og hefst á föstudagskvöld kl.
20. Gert er ráð fyrir að flestir
fulltrúanna búi í skólanum.
Ferð úr Reykjavík.
Sérstök fcrð verður frá Um-
ferðamiðstöðinni í Reykjavík
kl. 17,30 fyrir þingfOlflrúa.
Þingið hefst á þingsetningu og
kosningu starfsmanna þings-
ins, en síðan verða skýrslur
formanns SUF, Baldurs Óskars
sonar, og gjaldkera, Bjarna
Bender, um störf og fjárhag
samtakanna, lagðar fram. Síð
ar um kvöldið er gert ráð fyr
ir almennum umræðum og
mun þá vafalaust ýmislegt
bera á góma.
Á laugardag mun-u nefndir
starfa, en síðdegis verða nefnd
arálit tekin til umræðu. Gert
er ráð fyrir að síðustu ályktaa
irnar verði afgreiddar á sunnu
dagsmorgun, en eftir hádegið
á að fara fram kosning fram
kvæmdastjórnar og miðstjórn
ar SUF.
Hátíðafundurinn.
Þinginu lýkur á sunnudag
kl. 16 með sérstökum hátíðar
fundi í tilefni af 30 ára afmæli
SUF. Þar munu flytja ávörp
og ræður Ólafur Jóhannesson,
form. Framsóknarflokksins,
Jóhaiines Elíasson, bankastjóri
Sigurður Guðmundsson, for-
maður Sambands ungra Jafn
aðarmanna, og nýkjörinn for
maður SUF. Kristján Ingólfs
son, skólastjóri, flytur minni
Jónasar frá Hriflu. Ennfremur
mun Indriði G. Þorsteinsson
rithöfundur lesa tipp úr eigin
verkum, og Baldvin Halldórs
son, leikari mun lesa upp og
tvær ungar hljómlistarkontrr
Guðný Guðmundsdóttir og
Lára Rafnsdóttir, leika á fiðlu
og píanó.
Fyrir opnum tjöldum.
Þetta 12. þing SUF verður
haldið fyrir opnum tjöldum,
eins og þegar hefur komið
fram í blaðafregnum. Hafa
allmargir áheyrnarfulltrúar boð
að komu sína tfl þingsins, enda
er hér um algjört nýmæli áð
ræða af hálfu hérlendra stjórn
málasamtaka, þótt ekki þyki
tiltökumál víða erlendis. Vitja
ungir Frarrisóknarmenn þannig
gefa stjórnmá'laflokkunum til
kýnna, að þeir telji heppilegt,
að þeir haldi þing sín eftirleið
is meira fyrir opnum tjöldum
en tíðkazt hefur/