Tíminn - 10.09.1968, Qupperneq 12

Tíminn - 10.09.1968, Qupperneq 12
12 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 10. september 1968. Knöttur í stað höfuðs? Ekki er hægt aS sjá betur! Þarna skorar Ástráður fyrlr Keflavík í vitaspyrnukeppn inni, án þess, að Páll Pálmason komi vörnum við. (Tímamynd Gunnar) Taugarnar hjá þeim yngsta biluðu ekki Ólafur Sigurvinsson skoraði sigurmark ÍBV úr síðustu vítaspyrnunni. Tottenham skoraði 7 mörk gegn Burnley! Arsenal lék í Southampton og sigraði 2:1. Þar með heldur liðið áfram forustu í 1. deild. Leeds fylgir fast á eftir og sigraði Úlf- ana á heimavelli með sömu tölu. Hefur Leeds einu stigi færra, en hefur einnig leikið einum leik , færra. Mesta athygli í leikjunum s. ' 1. laugardag vekja úrslitin í leik , Tottenham og Bumley. Jimmy Greaves skoraði 3 mörk, þar af 1 úr vítaspyrnu. Jones skoraði 2, en Robertson og Chivers 1 hvor. Stór sigur þetta. Mest var aðsóknin á Old Traff ord í Manchester, þar sem heima- iiðið, Manchester Utd. lék gegn West Ham, en West Ham hefur ■ ins og urðu vitni að jöfnum og skemmtilegum leik, en samkvæmt brezka útvarpinu var Manchester i þó betra liðið. Dennis Law, sem ! virðist hafa náð sér að fullu skor | aði mark Utd., en Geoff Hurst ■ jafnaði 1:1. Svo virtist, sem West Ham gerði sig ánægt með jafntefli, • því að eftir jöfnunarmarkið lék ! liðið varnarleik. Ekki gekk vel hjá ensku meist- urunum, Manchester City, sem léku á útivelli gegn Stoke og tap- ’ aði 1:0. Er Manchester City nú í næstneðsta sæti í deildinni með aðeins 5 stig! Lítum á úrslitin á laugardaginn: 1. deild: Chelsea — Everton 1:1 Coventry — Newcastle 2:1 Leeds — Wolves 2:1 Liverpool — QPR 2:0 Manch. Utd. — West Ham 1:1 Sheff. . — Ipswich 2:1 Southampt. — Arsenal 1:2 Stoke — Manch. C. 1:0 Sunderland — Leicester 2:0 Tottenham — Burnley 7:0 WBA — Notth. F. 2:5 2. deild: Birmingham — Huddersf. 5:1 Blackburn — Millwall 2:4 Blackpool — Bolton 1:0 Bury — Preston 0:1 Cardiff — Middlesbro 2:0 Charlton — Portsmouth 2:1 C. Palace — Carlisle 5:0 Derby — A. Villa 3:1 Hull — Bristol C. 1:1 Framhald á bls. t5. Dennis Law — í fuilu fjörl. Við getum deilt um það, hvort við höfum fcngið að sjá góða knattspyrnu í bikarleik Keflvík- inga og Vestmannaeyinga. En hitt fer ekki milli mála, að lcikurinn var spennandi, og úrslitin ráðin í vítaspyrnukeppni. Og síðasta víta spyrnan réði úrslitum. Karli Her mannssyni hafði mistekizt síðasta vítaspyrna Keflvíkinga, og þá var komið að yngsta leikmanni Vest- mannaeyinga, Ólafi Sigurvinssyni, 18 ára, að framkvæma síðustu spyrnu Eyjamanua. Hann fór sér að engu óðslega, stillti knettinum á vítapunkt. Gekk hægt aftur á bak. Og síðan skyndilega brunaði hann fram. „Púff“! Knötturinn söng í netinu. Og allt í einu byrj uðu Eyjamenn að stíga stríðsdans á vellinum. Sigur í höfn, 6 mörk gegn 5. Eftir leikinn hittum við Ólaf í búnmgsklefanum og spurðum hann, hvernig honum hafi verið innan brjósts, þegar komið var að hon- um að taka hina þýðingarmiklu vítaspyrnu. „Ég var alls ekki tauagóstyrkur. Eina hugsun mín var, að ég yrði að skora.“ BRIDGE Vetrarstarfsemi Bridgefélags Reykjavíkur hefst annað kvöld — miðvikudagskvöld — i Lækna húsinu við Egilsgötu. Þetta kvöld verður spiluð tvímenningskeppni og er nóg að tilkynna þátttöku a staðnum. Hinn 18. sept. hefst ein menningskeppni félagsins, sem verð ur þrjú kvöld. Vegna leiks Ben- fica og Vals 18. sept hefst fyrsta umferðin kl. 8.30 — eða nokkru eftir að knattspyrnuleiknum er lokið. Nánar verður skýrt frá starfsemi félagsins í vetur síðar hér í blaðinu. En Vestmannaeyingar! Þrátt fyrir, að þið séuð nú í fyrsta sinn í sögunni komnir í undanúrslit, þá gleymið því ekki, að þið voruð heppnir að vinna í Keflavík. Kefl- víkingar börðust feiknarlega í þessum leik, og þrátt fyrir, að þeir væru einum færri, % hluta leiksins, sóttu þeir mun meira, Dómari leiksins, Ragnar Magnús- son frá Hafnarfirði, vísaði Ein- ari Gunnarssyni út af um miðjan fyrri hálfleik fyrir gróft brot. En sjaldan veldur einn, er tveir deila. í þessu tilviki braut Vest- mannaeyingurinn einnig gróflega, en óheppni Einars fólst í því, að dómarinn sá aðeins hvað hann gerði. Hvorugu liðinu hafði tekizt að klp-Reykjavík. — Það fór ekki milli mála, að það var leikur í Bikarkeppni KSÍ, sem leikinn var á Melvellinum á sunnudaginn. Það fór lítið fyrir knattspyrnu í þess- um leik, sem var á milli b-liðs KR og nýliðanna í 1. deild frá Akra nesi. B-lið KR vann óvænt 1:0 og mætir a-liði KR í næstu umferð. Leikurinn var harður, án þess að vera mjög grófur, sannkallaður bikarleikur, eins og þeir eru leiknir hér í Reykjavík á gamla Melavcllinum, en ungu leikmönn unum gengut alltaf illa að finna sig á honum. Annars var leikurinn jafn og fór að mestu fram á miðjunni, þar sem knötturinn gekk mótherja skora eftir venjulegan leiktíma, en í framlengingu skoraði hvort liðið eitt mark. Jón Ólafur fyrir Keflavík í fyrri hluta framleng- ingu, en Geir Ólafsson jafnaði í síðari hlUtanum, þegar nokkrar mínútur voru eftir. Og þá var tekið til við víta spyrnukeppni. Sigurður Albertsson skoraði 2:1 fyrir Keflavík. Har- aldur „gullskalli" jafnaði 2:2 fyr ir Vestm. Guðni Kjartansson skor aði 3:2 fyrir Keflavík. Sigmar Páls son jafnaði 3:3. Ástráður Gunnars son skoraði 4:3 fyrir Keflavík, en Páll Pálmas., markvörður Vestm. jafnaði 4:4 úr einhverri fallegustu spyrnunni. Þá skoraði Einar Magn. 5:4 fyrir Keflavík, en Friðfinnur Framhald á bls. 15. á milli og mátti þá tíðum sjá „hárnákvæmar“ sendingar. KR- ingar voru mun ákveðnari í byrj un og áttu leikinn til að byrja með. Og eftir hálftíma leik vökn uðu Skagamenn við vondan draum er Baldvin Baldvinsson lék upp allan völlinn og gaf fyrir markið, þar sem Jóhann Reynisson kom aðvífandi og skallaði í netið. Akranes átti nokkur hættuleg tækifæri, öllu fleiri en KR en hin annars marksækna fram- lína liðsins hafði greinilega gleymt skotskónum heima. Hreini Ell iðasyni var haldið kyrfilega niðri af Einari ísfeld, sem var beztur KR-inga í þessum leik, fyrir utan Magnús markvörð, sem bjargaði lið inu frá tapi í þetta sinn. Víkingur vann Þrótt 2 vísað klp-Reykjavík. — Harkan sat f fyrirrúmi í leik Víkings og Þrótt ar í bikarkeppninni, sem fram fór á sunnudaginn. Ljót brögð, grófar hrindingar og fantaskapur var að- all þessa leiks, sem Víkingar unnu 2:0. Víkingar voru fljótir að finna leiðina að marki, því að eftir 15 sekúndur höfðu þeir skorað sitt fyrra mark. Þróttarar voni ná- lægt því að jafna, en þeir áttu hörkuskot í stöng nokkru siðar. Hins vegar áttu Víkingar mun meira í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik var um jafn- ari baráttu að ræða. Leikurinn fór fram á miðjunni, sem var að- alvígvöllurinn. Þar fóru slagsmál in fram og gengu Þróttarar feti framar í þeim darraðardansi. Er 5 mínútur voru til leiksloka skoraði Kári Kaaber síðara mark Víkings, og við það sauð upp úr hjá Þrótturum. Ólafi Brynjólfs syni og Kjartani Kjartanssyni var vikið af leikvelli fyrir óvenju gróf an leik og mótmæli við dómar ann, sem þá tók rögg á sig og rak út af, en ef vel hefði átt að vera, hefðu fleiri átt að fá „reisu passann", svo grófur var leikur- inn. Víkingar voru betri aðilinn að þessu sinni og var sigur þeirra Framhald á bls. ^5. 20. og 22. september Nú hefur verið ákveðið, að KR leiki gegn gríska liðinu Ol ympiakos föstudaginn 20. sept. og sunnudaginn 22. sept. Eins og íþróttasíða Tímans hefur áður skýrt frá ,fara báðir leik- irnir fram í Grikklandi og greiða Grikkirnir allan ferða- og uppihaldskostnað KR-inga. KR vann á Selfossi 5-3 Leik KR-inga og Selfyssinga, sem fram fór á Selfossi á sunnu- daginn lauk með sigri KR, 5:3, þrátt fyrir, að nokkrir af sterk- ustu leikmönum KR sætu heima. Þegar sóknarmönnum Akraness tókst ekki að skora fljótlega, var eins og þeir misstu móðinn. Fýldir á svip léku þeir áfram, en án ár angurs. Hins vegar kom vörnin nú vel frá leiknum og er það gleði legt, því að hún hefur löngum verið höfuðverkur Skagamanna. Beztu menn liðsins voru Bene- dikt, Jón Alfreðsson og Helgi Hannesson í vörninni. B-lið KR, sem skipað var leik- mönnum, sem leikið hafa með meistaraflokki eða verið viðloð andi hann, var ákveðið og keppn isskapið í góðu lagi. Og það var það, sem dugði í þetta sinn. Róbert Jónsson dæmdi sæmi- lega. Skagamenn gleymdu skotskónum heima — og voru slegnir út af b-liði KR. — KR a og KR b mætast næst.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.