Tíminn - 24.09.1968, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 24. sept. 1968.
TIMINN
Fylliraftar
vaöa uppi
OÓ-Rcykjavik, mánudag.
Fylliraftar höfðu sig mjög
í frammi_ í Reykjavík um
helgina. Óðu þeir að vegfar
endum og gerðu sig líklega
til að misþyrma þeim, hlupu
fyrir bíla og slógust hver
við annan.
Mest voru lætin aðfara-
nótt föstudags. Var þá mik
ið um slagsmál úti fyrir
danshúsum borgarinnar, eft
ir að þeim var lokað. Urðu
lögreglumenn að grípa í
taumana og tóku þeir óláta
seggi úr umferð á nokkrum
stöðum.
Nokkrar tennur voru
lamdar úr einum utan við
skemmtistað og annar var
rotaður í Lækjargötu. í
Bankastræti létu þrír
drukknir dónar öllum ill-
um látum. Réðust þeir að
gangandi vegfarendum og
hótuðu þeim meiðingum. >á
gerðu þessir þokkapiltar sér
leik að því að hlaupa í veg
fyrir bíla og hlógu og öskr
uðu hátt þegar bílstjórarnir
björguðu þeim frá stórslys
um með snarræði. Sunr.udag
og mánudagsnótt var friðui
inn heldur skárri, hefur þá
líklega verið farið að draga
af slagsmálahundum og ösk
uröpum, en nokkuð höfðu
þeir sig þó í frammi. Það
var ekki aðeins í miðbænum
sem ölóðir menn voru til ó-
þæginda heldur einnig í
íbúðarhverfum. Voru margir
þessara manma Settir i
fangageymslu lögreglunnar,
þar héldu þeir aðeins vöku
hver fyrir öðrum.
HEILDARSAFN ÍSLFNDINGA-
SAGNA KOMIÐ ÚTAÐ NÝJU
42 bindi — Hagstæðir greiðsluskilmálar.
EKH-Reykjavík, mánudag.
Heildarútgáfa íslendingasagna hefur að nýju verið gefin út
eftir tíu ára hlé, en í henni eru 42 bindi. Þetta er langstærsta
bókmenntaverk sem komið hefur út hérlendis. Heildarútgáf-
an kostar 16 þús. krónur en íslendingasagnaútgáfan býður
hana með hagstæðum afborgunarskilmálum. Þannig er hægt
að greiða 4.000 kr. við undirskrift kaupsamnings, og síðan
kr. 1.000 á mánuði þar til verðið er að fullu greitt. Gegn
staðgreiðslu er gefinn 10% afsláttur og kostar heildarút-
gáfan þá 14.400 kr. íslendingasögurnar hafa um langt árabil
ekki verið fáanlegar og er það mikið fagnaðarefni að þær
skuli nú loksins vera komnar á bókamarkaðinn aftur. íslend-
ingasögurnar ættu að vera stolt hvers íslenzks heimils og
þungamiðjan í hverju heimilisbókasafni, enda hefur íslend-
ingasagnaútgáfan ákveðið að selja heildarútgáfuna undir
kjörorðinu: „Handritin inn á hvert íslenzkt heimili."
í nóvemtoer í fyrra tilkynntu for
ráðamenn íslendingasagnaútgáf-
unnar að undirbúningur væri haf
inn að endurútgáfu bóka hennar,
og nú eru allar þær 42 bækur
sem voru í heildarútgáfunni er
uppseld heifur verið til margra
ára komnar út. Bækurnar eru í
vönduðu skinnbandi og allur frá
gangur sá sami og var á eldri út
gáfum. Heildarútgáfan er samtals
18212 blaðsíður og er hún öll með
samræmdri stafsetningu nema
riddarasögurnar sem eru með
nútíma stafsetningu, þær eru mis-
gamlar og þar sem svo erfitt er
að greina tímaskeið það sem þær
voru ritaðar á.
Hlægt er áð kaupa bækurnar,
hvort heldur sem heildarsafn eða
í stökum flokkum. Heildarsafnið
skiptist í átta eftirtalda flokka og
er verð þeirra hvers fyrir sig til-
greint í sviga: 1. íslendingasögur
með nafnaskrá 13 bækur. (Kr.
5.460) 2. Biskupasögur og Sturl
unga með annálum og nafnaskrá
7 bækur (2.940) 3. Eddukvæði
Snorra Edda og Eddulyk'lar 4 bæk
ur (kr. 1680) 4 Fornaldarsögur
Norðurlanda 4 bækur (Kr. 1.680)
5. Þiðrekssaga af Bern 2 bækur
(kr. 840) 6. Riddarasögur 6 bæk
ur (2.520) 7 Karlamagnúsarsaga 3
bækur (kr. 1.260) 8. Konungasög
ur 3 bækur (1.260).
Ef kaupandi óskar, getur hann
innan tíðar fengið keyptan bóka
skáp, sem sérstaklega hefur verið
smíðaður fyrir heildarútgáfuna..
Innan ekki langs tíma verður
einnig á boðstólum hjá íslendinga
sagnaútgáfunni heildarsafn ís-
lendingasagna með nútímastaf-
setningu og eiga.þá kaupendur
kost á því að velja á milli sam
ræmdrar stafsetningar og nútíma
stafsetningu á íslendingasögunum.
Þar sem nú er lokið endurút-
gáfu á því sem áður hefur komið
út hjá íslendingasagnaútgáfunni
mun útgáfufyrirtækið nú snúa sér
að því að gefa út áframhald af
þeim fornritum sem skrifuð hafa
verið á íslandi. Ekki hefur enn
verið ákveðið hvaða fornrit verð
ur fyrst búið til prentunar af fyr
irhuguðum verkefnum en líklega
mun fyrsta bókin sjá dagsins ljós
í haust.
Heildarsafnið verður á næst-
unni á boðstólum í öllum bóka
verzlunum en íslendingaútgáfan er
til húsa í Kjörgarði, Reykjavík,
pósthólf 73 —sími 14510.
RÉTTIR
GO-SauSárkróki, mánudag.
Skarðarétt var í gær og
einnig Bakkarétt. í dag var
svo rétað fé sem smalað var
í Staðarafrétt, en mikil
þoka var á afréttinum, og
smalaðist því illa.
......................................... •"
Fjölnir Stefánsson
Nýr skólastj. við
Tónlistarskóla
Kópavogs
Tónlistarfélag Kópavogs var
stofnað fyrir fimm árum. Aðal-
verkefni þess hefur verið að
starfrækja tónlistarskóla, og
nú um mánaðamótin hefst 6.
starfár hans. Ráðinn hefur
verið nýr skólastjóri, Fjölnir
Stefánson tónskáld.
Skólinn hefur átt við hús-
næðisörðugleika að etja, en úr
því mun þó rætast nokkuð á
vetri komanda. Fyrirhugað er
að auka mjög á fjölbreytni í
starfi skólans og endurskipu-
leggja kennsluna í heild. Kenn
arar verða fleiri nú en áður og
nýjar námsgreinar bætast við.
Nemendum er gefinn kostur á
námi í blásturshljóðfæraleik og
sellóleik, auk kennslu á þau
hljóðfæri, er fyrir voru, þ.e.
píanó, fiðlu og gítar. Þá hefur
og verið ákveðið að hefja
Framhald á bls. 14
Bókamarkaður
Menningarsjóðs
í gær hófst að Hverfisgötu
21 í Reykjavík bókamarkaður
Bókaútgáfu Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélagsins. Fyrirkomu
lagið er á þá leið, að til þes
að njóta kostakjara á markaðn
um þurfa menn að kaupa bæk
ur fyrir 1000 kr. samtals. Verð
flokkar markaðsbókanna eru
þrír, 50 kr., 70 kr. og 100 kr
bókin. Flestar eru bækurnar i
bandi Afgreiðslu er þannig
hagað, að menn útfylla pönt-
unarlista og senda þá til Bóka-
útgáfu Menningarsjóðs á Hverf
isgötu 21. Verða pantanir síð
an afgreiddar í þeirri röð, sem
þær berast. Pantanir munu
senda gegn póstkröfu hvert á
land sem er
Ýmsar góðar bækur eru á
markaði þessum.
Á markaði þessum verða án
efa síðustu forvöð að eignast
ýmsar þær bækur, sem þar má
fá á hagstæðu verði. Pöntunar-
eyðublöð fást á Hverfisgötu 21
Tónlistarskóli Hafnarfjarð-
ar flytur í nýtt húsnæði
Skólinn hefur frá upphafi
verið til húsa í Flensborgar-
skóla, en um 10 ára skeið
hefur hann auk þess verið með
kennslustofur úti í bæ, fyrst
í gömlu símstöðinni við Aust-
urgötu og síðar í Suðurgötu
35. Nú bætir skólinn við sig
húsnæði að Vesturgöitu 4,.
Þar verða 2 kennslustofur og
skrifstofa skólans. Nemenda-
fjöldinn hefui vaxið nokkuð
hin síðari ár, og var 131 nem-
andi í skólanum s.l. vetur.
Erfiðar aðstæður hafa haml-
að starfseminni á undanförn-
um árum, en batna nú
til muna við tilkomu hins nýja
húsnæðis, ekki sízt fyrir fönd-
urdeildina, þar sem kennt verð
ur á tveim stöður í bænum og
því ekki eins langt að fara fyr-
ir 6—8 ára börn. Nýr kennari
tekur við þeirri deild nú
í haust. frú Dertha Rail, en
hún hefur kynnt sér Carl Orff-
kennslu í Bandaríkjunum. Einn
ig verður nú fyrsta sinn veitt
kennsla á slátthljóðfæri, ef
næg þátttaka fæst.
Að öðru leyti verður kennsl-
an svipuð og áður, og kennt á
öll helztu hljóðfæri, svo sem
píanó, strokhljóðfæri, orgel. gít
ar og blásturshljóðfæri, auk
tónfræði og tónlistarsögu.
1. október hefst kennslan og
19. starfsár skólans. Kennarar
verða 5 auk skólastjórans Páls
Kr. Pálssonar.
Bókamarkaður AB
FB-Reykjavík, mánudag.
Almenna bókafélagið hefur
haft bókamarkað í Eymunds-
sonarkjallaranum að undan-
förnu. f ráði var að mark-
aðurinn hætti á laugardagin,
en sökum aðsóknar hefur verið
ákveðið að markaðurinn skuli
standa alla þessa viku.
Brezkur togari með vír
í skrúfu
GS-ísfirði, mánudag.
Brezki togarijn Kingston
Beryl kom hingað með annan
brezkan togara frá sama félagi
Loch Inver í togi, en Loch
Inver hafði fengið bæði vír og
hlera í skrúfuna. í dag var
kafað við togarann og hreins-
að úr skrúfunni.
Guðrún Jónsdóttir var fyr-
ir nokkru send á síldarmiðin
til þess að ná þar 1 beitusíld.
Kom hún með 70 lestir af ís-
aðri síld til íshúsanna hér á
staðnum en mikil beituvand-
ræði hafa verið hér í sumar
Guðbjartur Kristján hefur
verið á togveiðum í sumar, og
hefur hann aflað 50 lesta af
þprski. Á laugardaginn fór
skipið á síldveiðar, og er ætl-
unin. að það flytji ísaða síld
til ísafjarðar til frystingar þar
Síld til Ólafsfjarðar
BS-Ólfsfirði, mánudag.
Sigurbjörg ÓF kom í nótt
með 190 lestir af síld, sem
lagðar voru upp í frystingu og
salt. Saitaðar voru 615 tunnur
á tveimur stöðvum, Jökli og
Auðbjörgu. Á föstudaginn kom
Súlan hingað með 150 lestir,
og var þá saltað á öllum sölt-
unarstöðvunum í samtals 710
tunnur. Hafa nú verið saltað-
ar 1825 tunnur hér í sumar.
Septemberblað Faxa
komið út
EJ-Reykjavík, mánudag.
Septemberblað „Faxa“ er
komið út, og er forsíða þess
skreytt myndum af nýju for-
setahjónunum ásamt greininni
„Þjóðkjörinn forseti."
Af öðru efni í blaðinu má
nefna greinar um Jónas Jóns-
son frá Hriflu íátinn. Magnús
Þ. Helgason fimmtugan, og
Hallgrím Th. Björnsson sex-
tugan.
Þá er greinin „Firmakeppni
og kappreiðar" og frásögn um
prentsmiðjuna Grágás í Kefla-
vík, auk margs annars efnis.
Fimm slasast
Alvarlegt umferðarslys var
austur í Holtum s.l laugardag.
Fimm manns slösuðust þegar
sendiferðabíll af Fíat gerð ók
út af veginum við Hárlaugs-
staði. Bíllinn er gjörónýtur
Bíllinn virðist hafa verið á
mikilli ferð þegar bílstjórinn
missti vald á honum og þeytt-
ist sendiferðabíllinn út af veg-
inum ofan í skurð og upp úr
skurðinum hinu megin og hékk
á skurðbarminum. sem fjær er
veginum þegar hann stöðvaðis*
Fólkið sem í bílnum var slas-
aðist talsvert. Var það flutt á
til aðgerðar, en enginn sem í
Slysavarðstofuna í Reykjavík
bílnum var er lífshættulega
meiddur.
Geðverndarfélaginu berzt
gjöf
Geðverndarfélagi íslands hef
ur borizt myndarleg dánargjöf
að upphæð tæplega 140 þús.
krónur.
Guðbjörg Guðjónsdóttir, ljós
móðir. síðast til heimilis að
Strandgötu 83 í Hafnarfirði, á-
nafnaði félaginu hluta eigna
sinna, en Hrafnkell Ásgeirs-
son hdl., Hafnarfirði. afhenti
félaginu þessa veglegu gjöf.
Um íeið og Geðverndarfélag-
ið leyfir sér að minnast hinn-
ar göfugu konu, þakkar það
lögmanninum vinsemd og fyrir
greiðslu.
Fyrsta söltun á VopnafirSi
KJ-Reykjavík. mánudag
f nótt er von á síldarbátn-
um Kristjáni Valgeir og Brett-
ingi til heimahafnar —- Vopna-
fjarðar — oe er sá fyrri með
130 tonn og sá síðarnefndi
með 80 tonn. Ei betta fyrsta
síldin. sem söltuð verður á
Vopnafirði eins og víðast ann-
ars staðai vantar tilfinnanlega
ís fyrir bátana, en þeir munu
þurf um 20 tonn af ís. miðað
við 100 tonna afla. Á Vopna-
firði er lítil ísframleiðsluvél
og von er á annarri til við
þótar innan skamms. Verður
þá ísframleiðslan um 11 ton á
sólarhring.