Tíminn - 05.10.1968, Blaðsíða 16

Tíminn - 05.10.1968, Blaðsíða 16
 214. fbl. — Laugardagur 5. okt. 1968. — 52. árg. Neyttu stolinna eit- urlyfja Birgð ir ófundnar Frá vígslunni I gær. (Tímamynd:—Gunnar) DRA ttarbra utin vigð ED-Akureyri, föstudag f mnrgun sigldi m.s. Helgafell að dráttarbrautinni nýju á Akur- eyri og um svipað leyti kom all- margt góðra gesta a<5 sunnan þ. á.m. sjávarútvegsmálaráfflierra, Eggert G. Þorsteinsson ráffuneytis stjórar, forstöffumenn skipafélaga, þingmenn kjördæmisins ýmsir ! opinberir starfsmenn o.fl. Margir bæjarbúar lögffu ennfremur leiff sína aff dráttarbrautinni. Skipinu var nú rennt í sleffa 1 dráttarbrautarinnar, en forseti bæjarstjó-nar Bragi Sigurjónsson bauð gesti velkomna með stuttu ávarpi ,en að þvi búnu setti Egg l ert G. Þorsteinsson vélar þær í gang sem drógu sleðann með skip inu, á þurrt land. Þetta var hin verklega vdgsiuathöfn. Upptaka hins góða skips var sú prófraun sem talin er fullnaegj andi um hæf-ni hennar. Hafnar- stjórn bæjarins bauð síðan til hádegisvet'ðar og fóru þar ræðu- Framhald á bls 14. OÓ-Reykjavík, föstudag. Fjórir eiturlyfjaneytendur voru handteknir í Reykjavik ir að éta mikið magn af Valí- ir að eta mikið magn af Valí- umtöflum og höfðu enn meira af þeim í fórum sínum. Er hér um að ræða hluta af þeim birgðum sem stolið yar úr Ingólfs Apóteki aðfaranótt sl. þriðjudags. Þjófurinn var þó ekki meðal þessara manna. Hefur hann setið í fangelsi í síðan á þriðjudag. En hann var handtekinn fyrir að stela 50 kílóum af dynamiti úr birgðageymslu í Kópavogi fyr ir helgina. Var ekki vitað fyrr en í dag að hann hafði einnig stolið Valíumtöflunum. Bnn vantar mikið á að allar birgðimar sem stolið var séu komn ar í leitirnar og veit sá sem stal þeim upphaflega ekki hvar þær eru niður komnar. Rannsókn máls ins er gnn á frumstigi þar sem mennirnir fjórir, sem handteknir voru í gærkvöldi eru enn „á loft- púðurn" og erfitt fyrir þá að gefa lögreglunni greinargóð svör. Eiturlyfjaneytendurnir fjórir hafa legið í rúsi í húsi nokkru í Smáibúðahverfi síðan á þriðju- dag. Er þar illræmt hreysi, sem grunur hefur leikið á í lengri tíma að allt væri ekki með felldu í. í gærkvöldi fór þangað maður nokkur til að sækja ungan venzla mann sinn sem ekki hefur komið heim í nokkra daga. Maðurinn fann piltinn í tilteku húsi. Var hann þá stjarfur af pilluáti og þegar betur var að gáð var pilt- urinn með stauk i vasanum, sem í voru 500 Valiumtöflur, sem eru róandi lyf, en virka eins og hvert annað eiturlyf sé þess neytt í óhófi. Maðurinn sem að kom sá strax að hér var sama lyfjategund á ferðinni og stolið var úr Ingólfs Apóteki. Gerði hann lögreglunni þegar viðvart. Fóru strax fjórir lögreglumenn á staðinn. í einu herbergi hússins var ófögur aðkoma. Þrír menn lágu i . Framhald s bls 14 RAFMAGm FOR íMIDRIFÆDIN6U RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS AFÞAKKA RAFORKU FRÁ DIESELSTÖÐINNI Á PATREKSFIRÐI SJ-Patreksfirði, föstudag Um klukkan 6.30 í morgun varð rafmagnlaust hér á Pat- reksfirffi og allri Vestfjarffa- veitu. Orsök þess var ístruflun (grunnstingull) í Mjólkárvirkj un. Fæðing stóð yfir hér á sjúkrahúsinu og kom þessi rafmagnstruflun því mjög á ó- heppilegum tíma. A undanförnum 10 árum eða frá því að Mjólkárvirkjun tók til starfa eru ýmsar bilanir og truflanir á Mjólkárvirkjun og Vestfjarðakerfinu ekki sjald- gæft fyrirbæri. Hafa þá kornið að góðum notum dieselstöðv- ar þær, sem áður önnuðust raf- orkuvinnslu fyrir hin ýmsu byggðarlög hér á Vestfjörðum. en þessar stöðvar hafa verið notaðar sem vara- og topp- stöðvar fyrir Mjóikárvirkjun og Vestfjarðakerfið, síðan starf ræksla þess hófst 1958 og ann að því hlutverki með ágætum. Nú brá svo við, að í gær barst bréf frá Rafmagnsveitum ríkisins til Rafvéitu Patreks- hrepps þar sem tilkynnt er, aff rafmagnsveiturnar óski ekki eftir orkuflutningi frá diesel- stöðinni á Patreksfirði inn á kerfi sitt. Ákvörðun þessi brýt ur í bága við orkulög frá 1967, að því er rafveitustjórinn á Patreksfirði telur. Rafmagnsveitur ríkisins hafa á þessu ári sett upp tvær dieselvélar hér á Vestfjörðum til viðbótar þeim, sem fyrir voru og telja sig þvi ekki lengur þurfa á raforku frá dieselrafstöðinni á Patreksfirði að halda. Pínu-pínu pils „bæta keppnis- andann” NTB-Mexico City, föstudag. Alltaf styttast pilsin, áður stjitn stúlkurnar sig þannig að þær gengu í „mini-pilsum“ en nú þyk ir hvaff fínast aff klæðast „mini- mini-pilsum“ effa pínu-pínu pils- um. Innan Ólympíubæjarins í Mexikóborg hefur nú gripiff um sig pínu-pínu pilsa faraldur og segja góffar heimildir, aff i gær- kvöldi hafi iþróttakonur verið önnum kafnar við aff stytta pilsin sín. Frægar íþróttastjömur sátu Framhald á bls. 14. Djúpfrystar kartöfíur smakkast sem nýjar EJ-Reykjavík, föstudag. A sýningu sem nú stendur yfir í Hróarskeldu í Danmörku, eru djúpfrystar danskar kartöflur til sýnis. Er þaff danskur grænmetis- sali, sem hefur fundiff upp sér- staka aðferð við aff geyma kart- öflur, sem nýjar í langan tíma, og hefur hann fengiff einkaleyfi j á uppfinningu sinni. Tilraunir með hina nýju aðferð hafa sýnt, að hægara er að geyma kartöflur djúpfrystar um langan tírna, og eru þær sem nýjar á bragöið eftir þá raeðferð, Er bæði hægt að djúpfrysta I kartöflurnar með hýðinu, eða af-| hýðaðar og tilbúnar ril notkunar. Þegar sýningunni í Hróars-! keldu lýkur munu kartöflufram- loiðendur á Norður-Sjálandi taka djúpfrystinguna í notkun. Mega Danir því búast við því að fá djúpfrystar kartöflur í verzlunum eftir nokkra mánuði. Verða þær í hálfs kílós plastpokum. Standa vonir til, að brátt verði hægt að fara eins með ýmis kon ar grænmeti. Þýðir það, að dansk ir neytendur geta fengið „nýtt" grænmeli árið um kring. Félagsmála- námskeið Fram sóknarkvenna Kvenféiögin Freyja í Kópa- vogi, Harpa í Hafnarfirði og Fé- iag Framsóknarkvenna í Reykja- vík efna sameiginlega til félags málanámskeiðs. Veitt verður tilsögn i fundar stjórn og framsögn, flutt erindi um skipulag Framsóknarflokksins og fleira. Námskeiðiff verffur tvisv ar í viku, þriffjudagskvöld ki. 8.30 — 9.30 og iaugardaga kl. 3—5, og hefst laugardaginn 19. október aff Hringbraut 30. Nám skciffiff stendur í fjórar vikur. Þær konur, sem óska að taka þátt í námskeiðinu, eru nnsam- lega bcffnar að tilkynna þaff flokks skrifstofunni, sími 24480, fyrir 14. október. Undirhiiniiigsnefiidin. EITURLYFJABÆLI AFHJÚPAÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.