Tíminn - 23.10.1968, Blaðsíða 3

Tíminn - 23.10.1968, Blaðsíða 3
MEÐVIKUDAGUR 23. okt. 1968. TIMINN Nefnd skipui m hagnýtingu á fiskveiiilandhelginni Á síðasta þingi S.jómannasam- bandsins var samþykkt að fela stjórn sambandsins, að boða til ráðstefnu um hagnýtingu fiskveiði landhelginnar, bætta meðferð fisk aflans o.fl. Ráðstefna þessi var haldin í Iðnó mánudaginn 21. okt. Á ráðstefnuna hafði mörgum aðilum verið boðið að senda full- trúa og var hún vel sótt. Auk margra fulltrúa frá hinum al- mennu sjómannafélögum víðsveg ar um land voru einnig mættir fulltrúar frá Farmanna- og fiski- mannasambandi íslands, Alþýðu- sambandi ísl., Landssambandi ísl. útvegsmanna, Fél. ísl. botnvörpu- sksipeigenda, Sölumiðstöð hrað- frysti'húsanna og sjávarafurða- deildar SÍS. Einnig voru mættir á ráðstefnunni Jón Jónsson fiski fræðingur, forstöðumaður Haf- rannsóknarstofnunarinnar, Már Elíasson fiskimálastjóri og full- trúi frá Landhelgisgæzlunni. í byrjun ráðstefnunnar hélt Jón Jónsson fiskifræðingur fróð- legt erindi var'ðandi þessi mál og urðu miklar umræður að erindi hans loknu. Fundurinn stóð í 5 klst. og að umræðum loknm var einróma samþykkt það, sem hér fer á eftir: „Ráðstefna Sjómannasambands íslands, haldin 21. okt. 1968, um betri hagnýtingu fiskveiðiland- helginnar samþykkir, að óska eft- ir því við viðkomandi aðila, að skipuð verði nefnd með þátttöku flestra þeirra, er hagsmuna hafa að gæta, varðandi fiskveiðar og fiskverkun. Nefndin vinni að því, að semja reglur varðandi hagnýtingu fisk- veiðilandhelginnar og skiptingu hennar í veiðisvæði miðáð við árs- tíma og veiðitæki. Þegar nefnd- Framhald a bls ið Hunangsilmur stjórn þekkts Á myndinni sést Brian Murphy virSa fyrir sér myndir af *vi8s myndinni (Tímamynd Gunnar) aftur undir Brian Murphys EKH-Reykjavík, mánudag. í maímánuði 1967 var enska leikritið Hunangsilmur eftir Shelagh Delaney í þýðingu Ásgeirs Hjartarsonar sýnt fjórum sinnum í Lindarbæ við frábærar viðtökur leikhúsgesta og gagnrýnenda. Vegna veikinda Helgu Valtýsdóttur var ekki hægt að halda sýningum áfram en áhugi á þessari sýningu var svo mikill að Þjóðleik- húsið hefur ákveðið að taka Hunangsilm upp að nýju nú á aðalsviði leikhússins. Sýningar hefjast n.k. laugar- dag og verður þar um að ræða nýja og umskapaða leiksýningu. i Kevin Palmer setti Hunaogs ið átti hins vegar því láni að ilm á svið í Lindarbæ, en vegna anna gat hainn ekki komið því við að setja leik- fagna, að krækja í kunnan Heikhús- og sjónvarpsmann í London, Brian Murphy, og inn upp að nýju. Þjóðleikhús- kom hann hingað til starfa s.l. þriðjudag. Murphy dvelst hér aðeins 12 daga og hyggst á þeim tíma koma sköpulagi á Hunangsilm, en þess má geta, að Gísli Álfreðsson, aðstoð- leikstjóri, hefur undirbúið komu Murphys með æfingum á leikritinu. Brian Murphy var í mörg ár einn af aðalsamstarfsmönn um og leikstjóri hjá Joan Littlewood í Theatre Work- shop í London. Þar lék Murp- hy m.a. nokkur helztu hlutverk in í „O, What a Lovely War“. Murphy hefur einnig sett á svið og tekið þátt í leiksýn- ingum víða utan Englands, t.d. í Moskvu, Vestur- og Austur- Framhald á bls. i4. Skúli Guðmundsson og Stefán Valgeirsson hafa lagt fram frum- varp um breyting á lögum um 'álagningu aðstöðugjalda. Segja flutningsmenn í greinargerð með frumvarpinu, að aðstöðugjöld in komi mjög misjafnlega þungt á gjaldendur eftir því, hvar þeir eru búsettir á landinu. Valdi þetta óþolandi ranglæti og sé frumvarpinu ætlað að bæta þar úr. íbúar Reykjavíkur greiði nú aðstöðugjald, sem nemi 0,5% af matvörun í smásöluverzlunum, en á mörgum öðrum stöðum sé gjaldið af þessum vörum 1 — 1,5 % og dæmi megi finna um að það sé ^% eða 300% hærra en í Reykjawk. Einar Ágústsson hefur endur- flutt frumvarp sitt um ungmenna hús í Reykjavik, þ.e. að reist verði samkomuhús í Reykjavík fyrir skemmtanir æskufólks, holl- ar og þroskavænlegar, þar sem áfengisneyzla verði bönnuð. Stofn kostnað og rekstrarhalla ung- mennahúss skuli ríkið greiða að hálfu og Reykjavíkurborg að hálfu. Stjórn ungmennahúss skal falin Æskulýðsráði Reykjavíkur. Eggert G. Þorsteinsson mælti í efri deild í gær fyrir frumvarpi um siglingalög og frumvarpi um tilkynningarskyldu íslenzkra skipa. Jóhann Hafstein mælti fyrir frumvarpi um breyting á lækna- skipunarlögum, sem drepið var á hér í blaðinu í gær. Gísli Guð- mundsson gerði ýmsar athuga- semdir í alllangri og athyglis- verðri raeðu, sem getið verður síð- ar. TAP GEGN BÚLGÖRUM BAKKAKOT BRANN TIL GRUNNA W-Kirkjubæjarklaustri, þriðjud. Stórbruni varð í Meðallandinu í gærkvöldi, þegar Bakkakot II brann til kaldra kola. í Bakka- koti II voru tveir búendur, bræð- urnlr Sigurgeir og Marteinn Jó- hannessynir. Þar bjuggu einnig kona Sigurgeirs og ungt barn, systir þeirra bræðra og uppeldis- sonur Marteins. Sigurgeir og Marteinn voru báð ir við vinnu í sláturhúsinu á Klaustri í gær, kona Sigurgeirs og barn voru heima, en hin tvö í heimsókn á næsta bæ. Um sex- leytið hafði verið kveikt á diesel rafstöð, sem er í Bakkakoti, en um sjöleytið varð húsfreyjan vör við, að eldur var kominn upp á efri hæð hússins, og er talið, að hann hafi komið upp um kl. hálf- sjö. Komst hún út með barn sitt. Var þegar kallað á fólk af næstu bæjum til þess að aðstoða við skökkvistarfið, en engin slökkvitæki eru til þarna um slóð- ir, og varð því að nota vatnsföt- ur við að slökkva eldinn. Bæjar- húsin í Bakkakoti voru að mestu úr timbri, en fyrir alllöngu hafði verið byggt við þau steinhús með timburinnréttingum. Brann allt, sem brunnið gat á bænum og standa nú aðeins steinveggirnir uppi. Framhald á bls. 14. í fjórðu umferð á Ólympíuskák mótinu vann Búlgaría ísland með 3-1. Tringoff vann Inga, Pedewsky vann Gúðmund, Jón og Radulov gerðu jafntefli, svo og Björn og Peev. Önnur úrslit í riðli íslands urðu þau, að Tyrkland vann And orra 4-0, Tékkóslóvakía vann Kúpu 2V2-IV2, en Túnis hafði hlotið V/2 vinning gegn hálfum hjá Singa pore, en tveimur skákum er ólok ið. Skák Guðmundar og Tékkans Filips úr 3. umferð lauk með jafn tefli. Staðan í riðlinum ér þannig eftir 4. umferðir. 1. Búlgaría 13% v. 2. Tékkóslóvakía 12 v. 3. ísland 10 v. 4. Kúba 9% v. 5. Túnis 7 v. og 2 bið 6. Tyrkland 5 v. 7. Singapore AV2 og 2 biðskákir og 8. Andorra 0; Síðustu fréttir Samkvæmt fréttaskeyti, sem blað inu barzt í gærkvöldi, hlaut ís- land tvo vinninga gegn Andorra í fimmtu umferð mótsins, en tvær skákir fóru í bið, og eru þær sagðar „unnar“ fyrir íslendingana, þannig að útlit er fyrir að ísland fái fjóra vinninga gegn Andorra. Ingi vann Giminez og Ingva^r vann Pantebre. Bragi á unna biðskák við De la Casa og Björn unna bið skák við Soler. Önnur úrslit, sem vitað var um í gæróvöldi: Búlgaría-Tékkó slóvakía 1:1. Tyrkland-Túnis 1%: V2 og Kúba-Singapore 1:0. Úrslitin Túnis-Singapore úr fjórðu um ferð urðu 2%:1%. Þá unnu -Ðanir Bandaríkjamenn 2y2:l%, og vann Larsen Reshewsky. MIKILL FRAMIÍSLENZKS VISINDAMANNS DR. HALLDÓR ÞORMAR TEKUR VIÐ FORSTÖÐU VEIRURANNSÓKNARSTÖÐVAR í NEW YORK Dr. Halldór Þormar, lífefnafræð ngur, hefur nýlega tekið við starfi forstöðumanns við veiru- rannsóknardeild Staten Island vanþroskastofnunarinnar í New York. (Staten Island Instititute for Basic rcsarch in Mental Retardetion.) Á næstunni mun Ilalldór cinkum stjórna rannsókn um á „hægfara" smitun, en það var fyrst hér á landi að veirur, er ollu slíkri smitun, voru fundn- ar og einangraðar. Þegar dr. Ilalldór kom til ís- lands að afloknu doktorsprófi í lífefnafræði árið 1957 var honum falið að einangra ,,hægfara“ veiru, en veirur af þessu tagi fundust við rannsókn á orsökum mæði- aða starf, tókst dr. Þormar að einangra „hægfara" veiruna. Upp götvun og einangrun „hægfara“ veira undir stjórn Björns heitins Sigfússonar læknis er talið mik- veiki í búfé að tilraunastöð rík- ilvægt vúsindalegt afrek, sem get- isins á Keldum. Eftir sex mán- Framhald á bls. 14. Borgarstjóri efnir til hverfafunda FB-Reykjavík, þriðjudag. Á fundi, sem borgarstjóri, Geir Hallgrímsson, hélt með blaðamönnum í dag, skýrði hann m.a. frá því, að hann hefði ákveðið að boða til hverfafunda með íbúum Reykjavíkur, og verða þeir hafðir með svipúðu sniði og fundir þeir, sem Geir boðaði til vorið 1966. Fyrsti fundurinn verður haldinn n.k. laugardag, en á þessum fundu(Ti mun borgar- stjóri flytja ræður um borgar- málefni almennt, en einnig fjalla um sérmál hvers hverfis. Þá mun hann svara fyrirspurn um fundargesta, sem leggja má fram bæði skriflega eða munn lega. Fundarhverfi, staður og tími hafa verið ákveðin sem hér segir: Hverfi V-Laugarnes-, Sunda-, Heima- og Vogahverfi, laugardaginn 26. okt. kl. 3 e. h. í Laugarásbíói. Hverfi IV — Smáíbúða, Bústaða-, Háa- leitis- og Fossvogshverfi, sunn daginn 27. okt., kl. 3 e.h. í Dansskóla Hermanns Ragnars í Miðbæ, Háaleitisbraut 58— 60. Hverfi I — Mela- og Vest- urbæjarhverfi, miðvikudaginn 30. okt. kl. 9 e.h. í Súlnasal, Hótel Sögu. Hverfi II — Mið- Framhald á bls. 14 «

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.