Tíminn - 25.10.1968, Síða 2

Tíminn - 25.10.1968, Síða 2
ÍÞRÓTTIR TÍMI NN WESMSM FÖSTUDAGUR 25. október 1968. Fram hefur örugga for- ystu í Reykjavíkurmótinu — eftir sigur gegn KR í fyrrakvöld, 21:16. Alf-Reykjavík. — Fram hefur nú tekið örugga forystu í Reykja víkurmótinu í handknattleik eftir sigur gegn KR í fyrrakvöld, 21:16, f lcjik lélegra varna. Fyrri hálf- leikur var mjög jafn og hafði - Fram aðejns eitt mark yfir í hálf- leik, 9:8, en í síðari hálfleik náði : Fram 8 marka forskoti, 19:12, en , vann leikinn með 5 marka mun að lokum. Fram gekk afar illa að st'öðva hina „gömlu“ kempoi, Karl Jó- 'hannsson í fyrri hálfleik, en þá skoraði Karl 5 af mörkum KR sum mjög glæsjléga. Það er því fjarri sanni, sem sumir vilja halda fram, að Karl sé útbrunn- inn í handknattleik. Bf hans er ekiki gætt vel, er hann ógnvaldur. Fram sýndi skemmtilegar hliða í sóknarleiknum, e.t.v. mest á kostnað lélegrar KR-varnar, og brá fyrir skemmtilegum leikflétt- um og fallegum línusendingum. En vörnin hjá Fram var ekki upp á marga fiska, frekar en KR-vörn- in. Fram hefur bætzt góður liðs- maður, þar sem Axel Axelsson er. Þessi komungi leikmaður, aðeins 17 ára gamall, skoraði með lang- sbotum, oig átti nák.væmar línu- sendingar. Hann er mjög ólíkur þessum kraftapiltum, sem skjóta upp kollinum á hverju ári, því að 'hann virðist hugsa talsvert í leik sínum, en það er meira en hægt er að segja um suma. Ingólfur og Gunnlaugur áttu ágæta leikkafla, en annars skoruðu fyrir Fram: Gylfi J. 4, Gunnlaugur 4, Ingólfur og Axel 3 hvor, Sigurbergur og Arnar 2 hvor, Hinrik, Björgvin og Sigurður 1 hver. KR verður að halda vel á spöð- unum í vetur, ef liðið ætlar að halda sæti sínu í 1. deild. Liðið er alls ekki sannfærandi og ekki líklegt til stórræða. Það ^vantar til finnanlega langskyttur. Ósennilegt er, að Karl fái að leika lausum hala aftur. Annars sýndi Gunnar Hjaltalín — vinstri handar maður — skemmtileg tilfþrif. Mörk KR: Karl 7, Hilmar og Gunnar 3 hvor, Magnús 2 og Árni 1.. Dómarar voru Valur Ben. og Gestur Sigurgeirsson og dæmdu eftir atvikum vel, Leikur kattar- ins að músinni — þegar Víkingur vann ÍR með 20:9. Alf—Reykjavík. — 'V'firburðir Víkings gegn ÍR í Reykjavíkur mótinu í handknattleik voru slík- ir, að mest minnti á leik kattarins að músinni. Lokatölur urðu 20:9 'Víking í vil, en í hálfleik var staðan 8:5. Þessi stóri sigur Víkings er enn Lítill áhugi á námskeiðum f fréttabréfi Knattspyrnusam- bands íslands, sem nýkomið er út, er sagt frá þjálfaranámskeiðum, sem KSÍ gekkst fyrir í sumar. Kemur í ljós, að áhugi hefur ver ið næsta lítill. Um þetta segir í fréttabréfinu: * Tækninefnd KSÍ fékk hinn þekkta danska unglingalandsliðs- þjálfara Poul Petersen _ til að haldi af ferð hans til íslands á halda þjálfaranámskeið í fram- Norðurlandamót unglinga. ‘ Kennsla Poul Petersen var Framhald á 10. síðu KR keppir í stað ÍBA Akureyringar senda ekki sam- einað lið til keppni í 2. deild í handknattleik eins og undanfarin ár, þ.e. KA og Þór sameinuð und ir merki ÍBA, holdur keppir KA. Þjálfari KA er Gísli Blöndal, sem áður lék með KR, og mun hann eininig leika með liðinu í vetur. En það verða fleiri, sem þjálfa KA. Frímann Gunnlaugs- son, fyrrum formaður landsliðs- nefndar og þjálfari ÍR og KR, mun þjálfa liðið með Gísla. Matt- hías Ásgeirsson mun leika með KA í vetur og verður áreiðanlega fróðlegt að fylgjast með iiði norö anmanna. athyglisverðari fyrir það, að helzta stórskytta liðsins, Jón Hjaltalín Magnússon, var utan vall ar allan tímann, nema 5 síðustu mfnúturnar. Hefur Jón ekki náð sér eftir meiðsli, sem hann hlaut nýlega. Það var einkum tvennt, sem or sakaði stórsigur Víkings, framúr- skarandi góður leikur Einars Magnússonar, sem skoraði 7 raörk, og góður varnarleikur liðsins. Hef ur Vikingur ekki leikið betri varn arleik í langan tíma. ÍR-liðið olli hins vegar vonbrigð um. Eftir hina góðu frammistöðu í byrjun mótsins, virðist botninn dottinn úr öllu. Er keppnisskapið nægilegt? ÍR-ingar skulu minnast þess, að erfið keppni í 1. deild er framundan, og þá duga engin vettlingatök. Mörk Víkings skoruðu: Einar 7, Þórarinn 4, Páll, Rósmundur og Jón H. 3 hver. Mörk ÍR: Brynjólf ur og Vilhjálmur 3 hvor, Ásgeir 2 og Jóhann 1. — Dómarar voru Valur Ben. og Gunnlaugur Hjálm arsson og dæmdu vel. BJörgvin fær blessun! Þessa skemmtilegu myud að ofan tók ljósmyndari TÍMANS, Gunnar, frá leik dönsku meistaranna HG og úrvalsliðs HSf. Hinn ungi og efnilegi línumaður, Björgvin Björgvinsson, er kominn í skotfæri á línunni, og er Palle Nielsen heldur seinn til að stöðva hann. En það er engu líkara, en að Palle sé að blessa Björgvin. Ýmsum þótti þessi danski leikmaður spámannlegur í útliti, svo að það er vel viðeigandi. r Hvað dvelur ut- anbæjarfélögin? Þegar þessar línur eru ritað- ar, eru næistum tveir mánuðir liðnir frá því að 1. deildar keppninni í knattspyrnu lauk, en samt er mótauppgj'ör ekki fyrjr hendi. Stafar það af van- skilum nokkurra utanbæjar- aðila, sem hafa trassað að gera skil til mótanefndar Knatt- spyrnusambands íslands. Eru þó skýr ákvæði í reglugerð KSÍ um það, að uppgjör fyrir hvern etastakan leik eigi að hafa borizt til mótanefndar ejgi síðan en 8 dögum eftir leik. Þessi trassaskapur er alvar- legur fyrir þá sök, að peninga- upphæðirnar, sem hér um ræð ir, skipta tuigþúsu'ndum króna. Hafa hinir einstöku utanbæjar aðilar enga heimjld til að ráð- stafa þessu fé til eigin þarfa — þó um tiltölulega stuttan tíma sé að ræða — því að þetta eru fjármunir allra 1. deildar félaganna. Fyrir bragðið dregst móta- uppgjör úr hömlu og sujn félög f'á ekki einn ejnasta eyri á meðan. Því miður er þetta ekki einsdæmi um 1. deild. Sömu sögu er að segja um 2. deild og raunar 3. deild líka. Það s'kal tekið fram, að Reykja vík, Keflavík og Akranes hafa staðið einna bezt í skilum, en hvað dvelur aðra utanbæjar- aðila? Sýnt er, að þetta mál verður að taka föstum tökum á ársþingi KSÍ í næsta mán- uði. — alf. Kveðja frá Dönum Alf-Reykjavík. — Eins og skýrt hefur verið frá á íþróttasiðunni, fótbrotnaði Ágúst Ögmundsson í leikn- um á móti danska ljðinu HG. Dönsku leikmenmimir voru að vonum mjög leiðir yfir þessum atburði, og sem betur fer er það sjald- gæft, að leikmenn fótbrotni í handknattleik. í gær fékk Ágúst skemmtilega kveðju frá Danmörku. Sendu HG-menn 'honum beztu kveðjur um von um skjótan bata og létu góða gjöf fylgja með. Eftjr allt eru Danimir fþrótta- man’nslegir, eða hvað finnst ykkur? Valur í vandræðum með Þrótt - en sigraði þó naumlega_með eins marks mun, 13:12 Alf-Reykjavík. — Valsmenn, | sem nú eru búnir að endurheimta ! Hermann Gunnarsson og Sigurð Dagsson, 'áttu í talsverðum erfið- leikum með Þrótt í Rvíkurmótinn í handknattleik f fyrrakvöld og unnu með aðeins eins marks mun, 13:12. Vals liðið var ekki lakara en oft áður, en hins vegar er greinilegt, að Þróttar-liðið er í, sókn og athyglisverðasti lcikmað- ur liðsins er Þór Ottesen, lítill og' knálcgur leikmaður með gríðar-i föst skot. Valsmenn höfðu yfir í hálfleik 7:5, en Þrótturum tókst þrívegis ' að jafna í síðari há'lfleik. Bergur , Guðmason, helzta skytta Vals, sýndi góðan leik undir lokin og tryggði félagi sínu sigur með því að skora 3 síðustu mörkin, en , lejiknum lauk 13:12, eins og fy-rr, segir. Mörk Vals skoruðu: Bergur 6, Jón K. 3, Ólafur J. og Bjarni 2 ' hvor. Mörk Þróttar: Þór 4, Helgi og Gunnp 2 hvor, Kjantan, Erling ( ur, Haukúr og Sigurður P. 1 hver. ' Dómarar voru t Gestur Sigur-' geirsson og Sigurður Bjarnason. Úrslit í meistaraflokki karla í Reykjavíkurmótinu í handknatt- leik á miðvikudaginn: Vaiur — Þróttur 13:12 Fram — KR 21:16 Víkingur — ÍR 20:9 Staðan er þá þessi: Fram 4 4 0 0 71:52 8 Valur 4 3 0 1 52:46 6 ÍR ' 5 3 0 2 65:69 6 Víkingur 5 2 1 2 70:57 5 KR 4 1 0 3 53:59 2 Þróttur 4 1 0 3 50:69 2 Ármann 4 0 1 3 42:61 1

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.