Tíminn - 26.10.1968, Side 3
LAUGARDAGUR 26. október 1968.
TÍMINN
íslandskort Bowens frá miðri 18. öld.
Mark Watson gefur Landsbóka
safninu merka kortagjöf
Englendingurinn Mark Wat-
son í Lundúnum, sem íslend-
ingum er að góðu kunnur
vegna margra merkra gjafa, er
hann hefur gefið Þjóðminja-
safni íslands á liðnum árum,
hefur nýlega sent Landsbóka-
safni íslands að gjöf þrettán
gömul og fágæt íslandskort,
og átti safnið sum þeirra ekki
fyrir.
í gjöf Watsons eru eftirtal-
in kort: Abraham Ortelius.
íslandskort úr þremur mis-
munandi útgáfum af Theatr-
um orbis terrarum. Tvö úr
latneskum útgáfum frá árun-
um nálægt 1600 og eitt úr
enskri útgáfu frá 1606. Kortin
eru öll handrituð, en á mis-
munandi hátt. Loks er hér fá-
gæt gerð af korti Orteliusar
eftir ókunnan höfund og frá
óvissum tíma, en kynni þó að
vera eftir Ortelius sjálfan og
ætlað til lausasölu. Það er
töluvert frábrugðið hinu venju
lega korti hans.
Gerhard Mercator. íslands-
kort úr frumútgáfu kortasafna
hans, Duisburg 1595. Ennfrem
ur sama kort í minnkaðri gerð,
eins og það birtist í ensku
þjófprenti af kortasafni Mer
cators 1637.
Jodocus Hondius. íslands-
kort úr Atlas Minor frá árun-
um 1620—1630.
Joris Carolus. íslandskort úr
þýzkri útgáfu af kortasafni
Blaeus frá miðri 17. öld. Sama
kort úr the English Atlas,
sem prentaður var í Oxford
1780.
Gerard van Keulen. Sjókort
af íslandi, prentáð í Amster-
dam í byrjun 18. aldar.
Emanuel Bowen. Kort af ís-
landi, Grænlandi og Færeyj-
um, prentað í London nálægt
miðri 18. öld.
Thomas Hans Henrich Knopf.
íslandskort í útgáfu Homanns,
prentaðri í Nurnberg 1761
Kort sama höfundar í franskri
útgáfu, r fylgdi fslandsfrá-
sögnum Horrebows, Paris 1764.
(Frétt frá Landsbóka-
safni íslands.)
Island vann Kúbu
Lugani, föstudag.
í síðustu umferð undankeppn
innar á Olympíuskákmótinu
fóru leikar þannig að ísland
vann Kúbu með 3% vinning
gegn y2. Ingi vann Jienez, Guð
mundur vann Garcia, Björn
gerði jafntefli við Cobo og Ingv
ar vann Ortega. Úrslitin gilda
einnig sem fyrsta umferð í
B-úrslitaflokki.
í síðustu umferð urðu önnur
úrslit þessi: Tyrkland Singa-
pore 2%—1%, Búlgaría Túnis
2V2—IV2. Tékkóslóvakía And-
orra 4—0.
Staðan eftir síðstu umferðina
er þessi:
Búlgaría 22%
Tékkóslóvakía 22
ísland 19%
Kúba 17
Túnis 13
Tyrkland 10%
Singapore 8%
Andorra 0
Halfgrímsmessan
kl. 11 ámorgun
Sú venja hefur gilt í Hallgríms
prestakalli frá stofnun þess, að
minningarguðsþjónusta færi fram
á dánardegi sr. Hallgríms, 27.
okt. í þetta sinn ber daginn upp
á sunnudag, og fer því Hallgríms-
messan fram á venjulegum messu
tíma. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson
þjónar fyrir altari á undan pred-
ikun, dr. Jakob Jónsson predik-
ar og biskupinn, dr. Sigurbjörn
Einarsson, þjónar fyrir altari eft-
ir predikun. Við messuna eru ein
vörðungu sungnir sálmar eftir sr.
Hallgrím, og samkvæmt viðtek-
inni venju er notað hið gamla
messuform, og það tónlag er
gilti, þegar sr. Hallgrímur söng
messur á sinni tíð. Þá er og sung-
inn hinn forni Te deum sálmur,
sem víxlsöngur milli prests og
safnaðar.
Hallgrímsmessan hefur jafnan
verið hátíð í söfnuðinum, eins kon
ar kirkjudagur, meðan hinn eig-
inlegi vígsludagur hinnar stóru
kirkju er ekki upp runninn. Þann
dag eygjum vér enn í hyllingum,
en allir raunsæir menn, sem vilja
að hann renni upp sem fyrst, gera
sitt til að safna til byggingarinn-
ar. Á hverri Hallgrímshátíð er I
I því tekið á móti samskotum við
kirkjudyr að lokinni messu. Kven
félagið hefur merkjasölu, og ýms-
ir nota tækifæri dagsins til þess
að færa kifkjunni gjafir, svo sem
venja var fyrrum á kirkjudögum.
Það er alltaf að koma í ljós bet- ■
ur og betur, að þjóðin vill, að
Hallgrímskirkja verði fullgerð'
sem fyrst og sérhvert skref, sem
stigið er fram á við, þýðir einnig
meiri fjölbreytni í starfi safnaðar
ins, unz Hallgrímskirkja nær því
marki, að hýsa meira af því, sem,
snertir kirkjur landsins í heild.
(Frétt frá Hallgrímsprestakalli.)1''
Félagsmála-
námskeið Fram-
sóknarkvenna
Þriðji námsskeiðs
fundur verður
í dag, laugardag
klukkan 3 e. h.
á Flokksskrifstof
unni Hringbraut
30. Þráinn Valdi
imarsaon flyitur
erindi um skipu
lag Framsóknar-
Þráinn flokksins.
STUTTAR FRÉTTIR
Leigja togbát til
Þórshafnar
ÓH-Þórshöfn, föstudag
Fiskiðjusamlagið hér er að
leigja togbát, sem ætlunin er
að gera út héðan í vetur til
þess að reyna að auka atvinnu
hér á staðnum. Búið mun að
leigja bátinn Glað frá Norð-
firði, sem er 50 tonn að stærð.
Skipstjóri verður Sigurður
Jónsson.
Héðan eru gerðir út nokkrir
bátar, en þeir eru yfirleitt
smáir, 15 til 20 tonn og þykja
of smáir hér á veturna vegna
veðra.
Geðheilbrigðisvikan hefst
á laugardag.
FB-Reykjavík, fimmtudag.
Geðheilbrigðisvikan, sem
haldin er á vegum Tengla, og
nýtur stuðnings Geðverndarfé-
lags íslands og átyrktarfélags
vangefinna, hefst á laugardag
inn með því að opnuð verð
ur sýning á verkum vangefinnna
í Unuhúsi. Sýningin verður opn
uð með ávarpi Geirs Hallgríms
sonar borgarstjóra kl. 14, og
verður síðan opin alla daga
vikunnar frá 14 til 22.
Þá verða haldnir fyrirlestrar
í Háskóla íslands sem hér seg
ir:
Mánudag 28. okt. kl. 20.30
Prófessor Tómas Helgason yfir
læknir: Ávarp.
Alfreð Gíslason geðlæknir, fyrr
verandi alþingismaður: Geðheil
brigðisþjónusta á íslandi í nú-
tíð og framtíð.
Þriðjud. 29. okt. kl. 20.30
Karl Strand yfirlæknir: Ný við
horf í géðlækningum.
Miðvikud. 30. okt. kl. 20.30
Jónatan Þórmundsson, fulltrúi
hjá ríkissaksóknara:
Afbrota- og áfengismál.
Steinar Guðmundsson, forvígis
maður AA-samtakanna: Mál
drykkjusjúklinga á íslandi.
Fimmtud. 31. okt. kl. 20.30.
Björn Gestsson, forstöðumaður
Kópavogshælisins:
Ástand og horfur í málum van
gefinna.
Föstud. 1. nóv. kl. 20.30
Dr. Matthías Jónasson, uppeld
isfræðingur: Skólarnir og geð
heilbrigði nemenda.
Margrét Margeirsdóttir félags
ráðgjafi:
Aðlögunarvandkvæði barna
og unglinga.
Sparisjóður Þórshafnar í
nýju húsnæði
ÓH-Þórshöfn, föstudag
í dag flutti Sparisjóður
Þórshafnar og nágrennis í
nýtt húsnæði. Stærð hússins
er 170 fermetrar, tvær hæðir
Á neðri hæðinni eru tveir
afgreiðslusalir og tvær skrif-
stofur og geymslur, en á efri
hæðinmi er fyrirhugað að
verði íbúð sparisjóðsstjóra, en
henni er ekki lokið. Aðstaða
er til þess að leigja annan af-
greiðslusalinn og skrifstofuna
í framtiðinni, ef vill.
Sparisjóðurinn var stofnað-
ur 17. september 1944 með 105
hlutabréfum, sem hvert var að
upphæð 100 krónur. Stofnend-
ur voru 40. Fyrsti gjaldkeri
sjóðsins var Karl Hjálmarsson,
þáverandi kaupfélagsstjóri á
Þórshöfn og fyrsti formaður
var Jón E. Guðmundsson. Nú-
verandi formaður er Haukur
Kjartansson á Þórshöfn, en
sparisjóðstjóri er Sigurður
Tryggvason.
Innlán í árslok 1967 vor/
17,8 milljónir króna, en útlán
12,6 milljónir.
Góð aðsókn að Nýjatesta-
mentisfræðanámskeiði
FB-Reykjavík, föstudag
Fyrir nokkru var skýrt frá
því hér í blaðimu, að dr. Jakob
Jónsson hefði í hyggju að efna
til námskeiðs í Nýjatestament-
isfræðum. Við höfðum sam-
band við hann í dag og spurð
um um aðsókn að námskeið-
inu, sem hefst á mánudaginn.
— Mtttaka í námskeiðinu
er ágæt, og eiginlega mátu-
lega stór hópur til þess að
hefja slíka starfsemi. Fyrsta
kennslustundin verður á mánu
dagskvöldið, í félagsheimili
kirkjunnar. Það, sem mér þyk-
ir skemmtilegt við þetta, sagði
dr. Jakob, er að fólkið er úr
svo að segja öllum áttum. Það
eru forstjórar og skrifstofu-
fólk, háskólamenntaðir menn
og nemendur í menntaskóla og
kennaraskóla, húsfreyjur, Ijós-
mæður, hjúkrunarnemar, kenn-
arar, sem sagt, þarna er mjög
skemmtilega fjölbreytt lið, og
hugmyndin fyrir mér er sú, að
þarna verði kennsla . í Nýja-
testamentisfræðum, ' og fari
fram með akademísku sniði,
þótt ekki sé krafizt stúdents-
prófs.
Borgarsfjóri
efnir til funda
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri efnir til fundar með
íbúum Laugarnes- Sunda-
Heima- og Vogahverfis í Laug
arásbíói í dag 3 e. h. Á fundin
um mun borgarstjóri halda
ræðu um horgarmálefni al-
mennt og um sérmál hverfis
ins og svara munnlegum og
skriflegum fyrirspurnum fund
argesta. Fundarstjóri verður
Þorsteinn Gíslason, skipstjóri
og fundarritari Sigríður Guð
mundsdóttir, húsmóðir. (Fund
arhverfið nær yfir allt svæð
ið norðan við hluta Laugaveg
ar og Suðurlandsbrautar að
Elliðaám.)
Þá efnir Geir til fundar með
íbúum Smáíbúða- og Bústaða-
Háaleitis- og Fossvogshverfis í
Danssal Hermanns Ragnars i
Miðbæ v. Háaleitisbraut á
morgun sunnudaginn kl. 3 e. h.
Á fundinum mun borgarstjóri
halda ræðu um borgarmálefni
almennt og um sérmál hverfis
ins, og svara munnlegum og
skriflegum fyrirspurnum fund
argesta. Fundarstjóri verður
Hilmar Guðlaugsson, múrari
og fundarritari Arnfinnur Jóns
son, kennari.
(Fundarhverfið nær milli
Kringlumýrarbraular og Elliða
áa, og takmarkast af Suður-
landsbraut í norður- og bæjar
mörkum Kópavogs og Breið
holti í suður).
Brauzt inn og stal áfengi
OÓ-Reykjavík, föstudag.
Brotizt var inn í veitingahús-
ið Klúbbinn við Lækjarteig í
nótt og stolið þaðan 30 flösk-
um af áfengi og nokkru magni
af sígarettum og vindlum.
Ekki alls fyrir löngu var brot
izt inn í Þjóðleikhúskjallarann
að næturlagi og var erindi þess
sem þar var að verki hið sama.
að stela áfengi, og fór sá út
með fangið fullt af flöskum.
Þar áður var brotizt inn í Sig-
tún og sömuleiðis stolið áfengi,
og einnig nokkru magni af mat
vælum.
Það virðist ekki vera ýkja
erfitt fyrir óráðvanda menn að
verða sér úti um brjóstbirtuna
á þennan hátt. Bara að brjót-
ast inn í veitingahúsin og
ganga að áfengisbirgðunum
og labba sér út með eins mikið
af veigunum og hægt er með
góðu móti að halda á, og mun
láta nærri að fullfrískir karl-
maður beri um 30 flöskur í
einu. Enn hefur ekki náðst í
þann sem brauzt inn í Klúbb-
inn.