Tíminn - 26.10.1968, Page 12

Tíminn - 26.10.1968, Page 12
232. tbl. — Laugardagur 26. crfct. 1968. —-*J2. árg. Dæmdir fyrír að bætaSoglOaur- um ákókfíöskuna KJ-Reykjavík, föstudag. Dómar, sem f sumar voru kveðn ir upp yfir fimm kaupmönnum í Reykjavík fyrir verðlagsbrot í sam bandi við gosdrykkjasölu, hafa vak ið umtal mikið meðal kaupmanna, sem finnst, að hér sé verið að elt- ast við heldur ómerkilega hluti, og ekki sé neitt samræmi í verð- lagseftirliti með þessum hlutum. Fimm kaupmenn voru kærðir fyrir að selja gosdrykki á of háu verði, en þessir kaupmenn höfðu í hagræðingarskyni, hækkað gos- drykki, sem voru verðlagðir á yfir 5.50 upp í kr. 6.00 og lækkað gos- drykki, sem kostuðu á milli sex ísleifur sýnlr á Hrafnistu EKH-Reykjavík, föstudag. Á morgun, laugardag, opnar ís leifur Konráðsson, málverkasýn- ingu í setustofu Hrafnistu, Dvalar heimilis aldraðra sjómanna, en Gunnar tók meðfylgjandi mynd af listamanninum í dag. Framhald á 10. síðu krónum og sex og fimmtíu, í sex krónur og sömuleiðis voru gos- drykkir, sem kostuðu rúmlega átta krónur lækkaðir í átta krónur. Þá var það rúsínan í pylsuendanum, þegar einn kaupmaður var dæmd Framhald á bls. 11. Banaslysið við Geitháls enn óupplýst UPPLÝSINGAR VANT- AR ENN UM TVO BÍLA OO-Reykjavík, föstudag. Ekkert lát er að leitinni að öku manni þeim sem varð Gunnari Kristjánssyni að bana á þjóðveg inum rétt neðan við Geitliáls fyrir nær tveim vikum. Hafa fjölmargir bilstjórar og farþegar þeirra, sem Ieið áttu um þarna á svipUðum tíma og ekið var á Gunnar, gefið rannsóknarlögreglunni skýrslu um eigin ferðir og einnig frá ferðum annarra sem voru þarna á ferli um nóttina. Er nú Ieitað tveggja bíla sem vitað er að óku um veginn á svipuðum tíma og slysið varð, og hafa bflstjórar þeirra eða aðrir sem í bílunum voru ekki gefið sig fram við lög- regluna. Er annar bfllinn svartur en hinn tvílitur. Vitni hafa skýrt rannsóknarlög- reglunni frá ferðum þessara bíla og hefur þess verið vænzt að bfl stjórar þeirra gæfu sig fram og gerðu grein fyrir fer'ðum sínum, en þeir hafa ekki gert það ennþá. Ekið var á Gunnar Kristjánsson á veginum vestan veitingastofunn ar að Geithálsi um kl. 2.15 að- faranótt sunnudagsins 13. þessa mánaðar. Sáu fjórir piltar í bíl þegar ekið var á manninn, en greindu ekki nákvæmlega hvaða bíll það var, þar sem hann kom á móti þeim og ók með sterkum ljósum. Lézt Gunnar á sjúkrahúsi 11 klukkustundum síðar. Sá sem olli slysinu ók áfram í átt til Reykjavíkur og hefur ekki hafzt upp á honum enn og virðist einsætt áð slysavaldurinn ætli ekki að gefa sig fram, þrátt fyrir margítrekaðar áskoranir lögregl unnar. Unnið hefur verið sleitulaust að rannsókn málsins og fjölmargir að ilar sem voru á ferðinni nærri slysstaðnum um nóttina verið yf irheyrðir. Flest vitnanna gáfu sig fram af fúsum vilja en öðrum hef ur lögreglan haft upp á. Veitinga Framhald á bls. 10. Aðalfundur FUF í Reykjavík, næsta laugardag Af óviðráðanlegum orsökum verð ur að fresta aðalfundi Félags ungra Framsóknarmanna um eina viku. Fundurinn verður ekki hald inn í dag laugardag eins og auglýst haf'ði verið, heldur iaug ardaginn 2. nóvember næst kom- andi. Fundurinn verður í Glaum bæ, uppi, og hefst kl. 2,30 e. h. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn FUF. oeris synir SJ-Reykjavík, föstudag. Á morgun kl. 2 opnar Jón Engilsberts málverkasýningn f sýningarsalnum HIiðskjáM, Laugavegi 31, 4. hæð. Á sýniag unni eru 23 olíumálverk, máhið á löngum tíma en fullgerð á þessu ári, að því er listamaður inn skýrði frá á fundi með frétta mönnum í dag. Jón Engilberts er óþarfi að kynna, hann hefur haldið f*g tekið þátt í fjölmörgum mdl- verkasýningum bæði hér á landi og erlendis, og mun halda stóra sýnlngu á verkum sínum í vor í Casa Nova, nýhyggingu Menntaskólans. Sýningin í Hlið skjálf verður opin frá 2—10 daglega til 7. nóvember. Myndin er af Jóni Engilberts og einu málverki hans, sem nefnist „í ljósaskiptunum." Hafa fullrannsakað 134 skattamál á einu ári EJ-Reykjavík, föstudag. Frá 1. september á síðasta ári til ágústloka þetta ár hefur rannsóknadeild ríkisskatt- stjóraembættisins — skattalögreglan — tekið 171 mál til rannsóknar, og hafa 134 þessara mála nú þegar verið fullrannsökuð. Stærst þeirra mála, sem í rannsókn hafa verið undanfarið, eru sennilegast Sementsverksmiðjumálið og mál Fiskmjöls- verksmiðjunnar í Vestmannaeyjum, en frá báðurn þeim málum hefur verið skýrt áður hér í blaðinu. Magnús Jónsson, fjármálaráð herra, kom inn á starfsemi skattalögreglunnar í fjárlaga- ræ'ðu sinni í gærkvöldi. Sagði hann, að rannsóknardeildin hafi upplýst ýmsar alvarlegar mis- fellur í skattframtölum á þessu 12 mánaða tímabili Nefndi hann sérstaklega Sementsverksmiðju- málið, og sagði það „sannast sagna ekki að undra, þótt erfitt sé um aðhald í þessum efnum, þegar ekki er einu sinni hægt að treysta opinberri stofnun. Því tel ég nauðsynlegt að taka mjög hart á misferli slíks fyrir tækis.“ Magnús gerði sí'ðan grein fyr ir starfsemi skattalögreglunn- ar, og sagði þá m. a. eftirfar- andi: „Frá 1. sept. 1967—31. ágúst 1968 hefir rannsóknardeildin tekið 171 mál til rannsóknar og hafa þegar 134 þessara mála verið fullrannsökuð, en frá því að deildin tók til starfa fyrir fjórum árum hefir verið lokið rannsókn 393 mála. Ríkisskatta nefnd hefir á sl. 12 mánuðum lokið skattaákvörðun í 98 mál- um. Nema þær hækkanir alls rúmum 14 millj. kr. auk skatt sekta, sem enn hafa ekki verið ákve'ðnar í mörgum þessum mál um. Útsvör hafa á þessu tíma bili verið hækkuð um 4.2 millj kr. hjá 66 aðilum sem rann- sóknadeildin hefir haft til með ferðar. í sambandi við þau 393 mál, sem skattrannsókna- deildin hefir lokið rannsókn í á fjögurra ára starfstíma sín- um hefir rflcisskattanefnd á- kveðið 41.6 millj. kr. skatthækk anir, skattsektanefnd 9.2 millj. kr. skattsektir og framtalsnefnd ir hækkað útsvör um tæpar 12 millj. eða alls nemur heildar hækkun gjalda í sambandi við rannsóknir deildarinnar 62.8 millj. kr. Þótt þessar tölur sýni, að kostnaður við skattrannsókna- deildina hefir margfaldlega skil að sér þá er þó mest vert það mikla aðhald, sem þetta aukna eftirlit með skattskilum hefir tvímælalaust veitt mörgum, skattgreiðendum. Auðvitað veld ur það gremju hjá ýmsum, sem verða fyrir barði skattrannsókn anna, er þeir sjá þá sleppa, sem ef til vill eru sízt minna sekir. en því mi'ður verður ekki náð Fh-amhald á bls 11.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.