Vísir - 04.07.1977, Qupperneq 8
8
VISIR
car rental
Sem einn hlekkur í stærstu bílaleigukeóju Evropu
er okkur unnt aó veita mun betri þjonustu en
aóur
Þegar þú feróast til utlanda, þa er aóeins aó
hafa samband viö okkur, aóur en þu feró og
vió munum sjó um aó bill frd InterRent bíói
eftir þer a hvaóa flugvelli sem er, eóa annars
staóar, ef þu óskar þess
OKKAR BÍLL ER ÞINN BILL HVAR SEM ER OG HVENÆR SEM ER
þetta er þjonustutakmark okkar
GEYSIR
Aó sjdlfsögóu veitum vió allar upplýsingar
þú þarft aóeins aó hringja eóa koma
Eirikur Tómasson, aöstoöarmaöur dómsmálaráöherra gerir grein fyrir staösetningu nýs húsnæöis
rannsóknariögreglunnar aö Auöbrekku 61 I Kópavogi. Vfsismynd E.G.E.
Aðspurður kvaðst Njörður
ekki reikna með, að rannsókn-
arlögreglan flytti i nýja húsnæð-
ið að Auðbrekku 61 i Kópavogi,
fyrr en i fyrsta lagi um næstu
áramót. Enn ætti eftir að vinna
það mikið i húsnæðinu. Sagði
Njörður að innanhússaðstaða
myndi batna mikið þegar þeir
flyttu inn enda væri húsnæðið
innréttað að nokkru leyti eftir
þörfum rannsóknarlögreglunn-
ar. bangað til verður rannsókn-
arlögreglustjóri, Hallvarður
Einvarðsson. ásamt deildar-
stjórum, þeim Erlu Jónsdóttur
og Erni Höskuldssyni, með að-
setur i Lögreglustöðinni við
Hverfisgötu, en flestir aðrir úr
starfsliðinu verða til húsa i
Borgartúni 7.
Starfsskipting umdæma
og rannsóknarlögreglu
Hjá Hallvarði Einvarðssyni,
rannsóknarlögreglustjóra, fékk
Visir þær upplýsingar að verið
væri að ganga endanlega frá
ráðningu starfsfólks. Sam-
kvæmt reglugerð, sem tók gildi
1. júli sl. skal rannsóknarlög-
regla rikisins hafa með höndum
lögreglurannsóknir brotamála i
Reykjavik, Kópavogi, Sel-
tjarnarnesi, Garðabæ, Hafnar-
firði, og Kjósarsýslu, að þvi
leyti, sem þær eru ekki i hönd-
um lögreglustjóra þar sam-
kvæmt réttarreglum.
Við embætti lögreglustjóra i
umdæmum skulu starfa sér-
stakar rannsóknarlögreglu-
deildir undir stjórn viðkomandi
lögreglustjóra. Deildir þessar
skulu annast rannsókn eftirfar-
andi málaflokka: Umferðarslys
og brot á umferöarlögum, brot á
lögreglusamþykktum, brot á
áfengislögum, öðrum en þeim
er varða ólögmætan innflutning
áfengis og brot á lögum um til-
kynningar aðseturskipta.
Deildir þessar skulu ennfrem-
ur annast rannsókn eftir-
greindra málaflokka, að þvi
marki sem lögreglurannsókn
fer fram i þeim: Veiðilaga og
friðunarbrot, brot á skotvopna-
löggjöf, brot á iðnlöggjöf og
byggingalöggjöf, brot á lögum
um öryggisráðstafanir á vinnu-
stöðum, brot á heilbrigðisreglu-
gerð, brot á veitingalöggjöf, og
brot á staðbundnum reglugerð-
um og samþykktum.
Þá skulu þessar deildir annast
rannsókn á brotum varðandi
nytjastuld á ökutækjum, öku-
gjaldssvik, minni háttar
likamsmeiðsl, minni háttar
eignaspjöll, mál til brottnáms
ólögmæts ástands og önnur mál
eða málaflokka þar sem viður-
lög við broti geta eigi farið fram
úr sektum, og rannsóknarlög-
reglustjóri ákveður, að höfðu
samráði við viðkomandi lög-
reglustjóra.
Deildirnar skulu auk þess
hafa umsjón með vörslu óskila-
muna og hafa stjórn á leit að
týndu fólki, ef leitin er ekki þátt-
ur i rannsókn brots, en jafnan
skal rannsóknarlögreglu rikis-
ins tilkynnt um slika leit.
Við uppbyggingu hinnar nýju
stofnunar, Rannsóknarlögreglu
rikisins var meðal annars stuðst
við fyrirmyndir og gögn frá öðr-
um Norðurlöndum. Þá hafa ver-
iö lögð drög að kynnisferðum
starfsmanna rannsóknarlög-
reglunnar til annarra landa og
að undanförnu hafa menn verið
að kynna sér tölvunotkun og
ýmisleg tæknileg atriði, sem
mikil áhersla verður lögð á við
rannsókn sakamála i framtið-
inni.
—SV.G.
Njöröur Snæhólm, yfirlögregluþjónn, við skrifborð sitt á fyrsta degi
i hinu nýja staríi. Visismynd Loitur.
mi
Vísir heimsœkir Rannsóknarlögreglu ríkisins á fyrsta starfsdegi
Sérstakar rannsóknarlögreglu -
deildir starfa enn í umdœmum
„Ég finn ekki fyrir neinni sérstakri breytingu x.
eða að þessi dagur sé frábrugðinn gærdeginum”, ’
sagði Njörður Snæhólm, yfirlögregluþjónn i
Rannsóknarlögreglu rikisins, þegar Visir leit inn
hjá honum á fyrsta degi hans i nýju starfi hjá
nýrri stofnun. „Það hefur heldur engin breyting
orðið á högum okkar hérna ennþá. Við erum enn
á sama stað og með sama starfslið”, sagði Njörð-
ur ennfremur.
BORGARTÚNI 24 - SÍMAR 24460 & 28810
Hallvarður Einvarösson, rannsóknarlögreglustjóri.