Vísir - 04.07.1977, Qupperneq 22
26
c
Mánudagur 4.
júll 1977 VISIR
Stjörnugjöf AÞ og GA
Gamla bíó: Dr. Minx 0
Háskólabíó: Fólskuvélin Y- -¥■ -¥-
Stjörnubíó: Ástralíufarinn
Tónabíó: Hnefafylli af dollurum
Nýja bió: Spæjarinn ★ ★
Laugarásbíó: Ungu ræningjarnir >
LAUQARAS
B I O
Simi 32075
Á mörkum hins
óþekkta
Journey into the bey-
ond
Þessi mynd er engum llk, þvi
aö hún á aö sýna meö mynd-
um og máli, hversu margir
reyni aö finna manninum
nýjan lifsgrundvöil meö til-
liti til þeirra innra krafta,
sem einstaklingurinn býr yf-
ir. Enskt tal, islenzkur texti.
Sýnd kl. 9 og 11,10.
Bönnuö börnum innan 16
ára.
Ungu ræningjarnir
Sýnd kl. 5 og 7.
18936
Ástralíufarinn
Sunstruck
Bráöskemmtileg,
kvikmynd i litum.
ný ensk
Leikstjóri: James Gilbert.
Aöalhlutverk: Harry
Secombe, Maggie Fitz-
gibbon, John Meillon.
6, 8 Og 10.
Siöasta sinn
AljSTURBtJARRÍfl
ISLENSKUR TEXTI
Drekkingarhylurinn
The drowning pool
Hörkuspennandi og vel gerö,
ný bandarisk sakamála-
mynd eftir myndaflokknum
um „Harper” leynilögreglu-
mann. Myndin er i litum og
Panavision.
Aöalhlutverk: Paui New-
man, Joanne Woodward.
Bönnuö börnum
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Mánudagsmyndin
Afsakið/ vér flýjum
Frábær frönsk gamanmynd i
litum og cinemascope.
Aðalhlutverk:
Lois De Funes
Bourvil
Terry-Thomas
Leikstjóri: Gerard Oury
Sýnd kl. 5,7 og 9
Þaö getur lika veriö gaman á
mánudögum.
^ÆJÁRBíP
1 Simi 50184
Kynlífskönnuðurinn
Glettin og mátulega djörf
mynd sem greinir frá stúlku
sem send er frá öörum hnetti
til að rannsaka kynlif jaröar-
búa.
ísl. texti
Sýnd kl. 9
Bönnuð börnum.
16-444
//Rakkarnir"
Magnþrungin og spennandi
bandarisk litmynd, með
Dustin Hoffman — Susan
George.
Isl. texti
Bönnuö innan 16 ára.
Endursýnd kl. 1-3-5-7-9 og
11.15.
NÁTALIE V
MICHÁEL CAINE
Aöalhlutverk: Michael Caine
og Natalie Wood.
Ný létt og gamansöm leyni-
lögreglumynd.
Bönnuö börnum innan 12
ára.
Sýnd kl. 5,7 og 9.
VÍSIR
vegna fjölda áskorana
endursýnum viö þessa mynd
I nokkra daga. Mynd sem
enginn má missa af.
Leikstjóri: John G. Avilds-
sen.
Aöalhlutverk: Peter Boyle,
Susan Saradon, Patrick
McDermott.
Bönnuö börnum innan 16
ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
■
■
I
HEþölII
stimplar,
slífar og
hringir
Ford 4-6-8 strokka
benzín og díesel vélar Opel
Austin Míni Peugout
Bedford Pontiac
B.M.W. Rambler
Buick Range Rover
Chevrolet Renault
4-6-8 strokka Saab
Chrysler Scanla Vabis
Citroen Scout
Datsun benzín Simca
og díesel Sunbeam
Dodge — Plymouth Tékkneskar
Fiat bifreiðar
Lada — Moskvitch Toyota
Landrover Vauxhall
benzín og díesel Volga
Mazda Volkswagen
Mercedes Benz Volvo benzín
benzín og díesel og díesel
I
ÞJÓNSSON&CO
Skeifan 17 s. 845154—84516
w
Umsjón: Arni Þórarinsson og Guðjón Arngrimsson
J
CROSS OFIRON
Það hlaut að koma að þvi.
Meistari ofbeldiskvikmyndanna
Sam Peckinpah, hefur loks snú-
ið ser á stríösmyndunum. Og
þaö var kannski dæmigert fyrir
manninn aö hann hefur valiö
sem sviö fyrir þessa frumraun
sina, ein allra blóöugustu
augnablik siðari heims-
styr jaldarinnar, undanhald
þjóðverja frá Rússlandi áriö
1943.
Myndin heitir Cross of Iron.
Aðalleikararnir heita James
Coburn, Maximilian Schell og
James Mason, sem allir leika
þýska hermenn.
Sam Peckinpah hefur reyndar
sjálfur komið nálægt styrjöld-
um. „Veistu hvernig ég fór að
þessu? sagði hann nýlega i
viötali og benti á annan fót sinn.
Peckinpah gengur haltur. „Það
var i Júgóslavíu i striðinu að ég
rak fótinn heldur óþyrmilega i
stálbita. Þaö gerðist þannig aö
ég var aö stökkva yfir hann, og
þegar ég lenti hinum megin
sneriég mig illilega og féll aftur
á bak. Fóturinn skall á odd-
hvassri brún og ég skarst hroða-
leg.”
Nýja myndin er kannski ekki
ósvipuð og sáriö á fæti Sam
Peckinpah var. Opið, blóðmikiö
og ristir inn aö beini. James
Coburn leikur gamalreyndan
striðsmann sem aðrir i her-
deildinni lita til i von um hand-
leiðslu. Maximilian Schell er i
hlutverki prússnesks
aristókrata i leit aö frægö og
frama á vigvellinu, og James
Mason leikur hálf ruglaöan
hermann af gamla skólanum.
Það er engin hetja i myndinni.
Hún er um venjulega hermenn
að berjast fyrir aö halda lifi.
Allir málstaðir eru fyrir bi og
löngu gleymdir. Allt sem eftir
er, er tilgangslaust ofbeldi og
viljinn til að halda lifi, á ein-
hvern hátt.
„Mig hefur lengi, lengi langað
til aö gera striðsmynd” viður-
kenndi þessi lágraddaöi snill-
ingur og klóraöi sér i örinu á
fætinum. ,,Ég tók tilboðinu um
að gera hana án þess að hugsa
migum. Enda haföi ég svo sem
ekki mikið á takteinum”.
Hann brosti. „Annars vorum
við Don Siegel einu sinni aö
hugsa um að gera „A Bridge
Too Far” saman. Hann mundi
leikstýra þvi sem gerðist öðru
megin við brúna og ég hinum
megin. Við gátum bara ekki
gert upp viö okkur hvor átti aö
vera með þjóöverjana og hvor
með menn Montgomerys.
Framleiðendurnir voru ekki
beint ánægöir með hugmynd-
ina”, og hún náöi ekki lengra”
Hann varð alvarlegur aftur.
„Ég fékk áhuga á að gera Cross
of Iron vegna þess aö ég hef allt-
af átt i erfiðleikum meö að
skilja það timabil i sögunni
þegar þýska þjóðin varð altekin
Sam Beckinpah er maöur um fimmtugt, kominn af indjánum I
móðurætt. Hann hefur enda tekið miklu ástfóstri við Vestrann, og
segistgjarna vilja hafa veriðuppiá þeim timum.
af nazismanum”.
,,Það er hræðilegt til þess að
vita aö nú á dögum er fólk I
Þýskalandi, sérstaklega i
Munchen, sem aðhyllist
skoðanakerfi nazismans.”
„Engin viröist hafa lært neitt
frá siðasta striði. Svoég býst við
að það sé bara mannleg náttúra
að vilja eyðileggja sjálfa sig.
Það er bæði fáránlegt og sorg-
legt.”
Við horfum á striðin okkar og
sjáum fólk deyja svo til daglega
i sjónvarpinu. Þar deyr þaö i
raun og veru, en það virðist
óraunverulegt. Þegar fólk er að
kvarta yfir þvi hvernig ég fer
með ofbeldi, þá er það I rauninni
að segja”. Ekkisýna mér, ég vil
ekki vita af þessu. Réttu mér öl-
flösku úr isskápnum.”
Þegar ég sýni ofbeldi á tjald-
inu þá fellur það inni söguþráð-
inn. Ég sýni aldrei ofbeldi of-
beldisins vegna. Ég vil sýna
fram á að þegar fólk er skotið,
þá blæðir úr þvi, og að þaö sé
nokkuð til sem heitir sársauki.”
íslenskir bióáhugamenn hafa
fengið nokkur tækifæri til að
kynnast verkum Sam
Peckinpah. Þekktustu myndir
hans eru sennilega The Wild
Bunch, Pat Garett and Billy the
Kid og Getaway með Steve
MacQueen og Ali Mc Graw.
Nýjasta mynd hans Cross of
Iron er væntanleg bráðlega i
Hafnarbíói.