Tíminn - 31.10.1968, Síða 2

Tíminn - 31.10.1968, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 31. október 1968. TIMINN Skólarnir eru nú að hefjast í París Ein'hvers staðar las ég eða heyrði, að 14. júlí, þjóðhátíðar dagur Frakka væri enn þann dag í dag „byltingardagur“. Unga kynslóðin notaði hann til að gera uppreisn gegn kreddu bundnum siðakenningum hinna eldri, léti allar hömlur lönd og leið, og faðmaðist og kysst- ist villt og galið á götum úti. Þetta er áreiðanlega falskenn ing. Reyndar hef ég aldrei dval ið hér á þessum merkisdegi, svo að ég er ekki til frásagnar um hvernig hér er ástatt þá, en það er hin mesta firra, að unga fólkið þurfi að nota Bastilludag inn til að gera uppreisn í þess um efnum, því að hversdagslega virðist manni helzt þörf á bylt ingu í þveröfuga átt. Það er ekki aðeins á götum og í skemmtigörðum, sem Amor er á kreiki frá morgni til kvölds. heldur gerir hann sér einnig tíðförult inn í verzlanir og op inberar byggingar, og hann læt ur sig ekki muna um að vera í svo til hverjum lestarvagni. Og það er ekki aðeins unga fólkið, sem gerir sér svona dælt hvert við annað á almannafæri, heldur er, það einnig daglegt brauð að sjá hæruskotinn karl og hrukkótta kerlu í hörkukel- iríi. Þá verður manni nú stund um á að brosa út í annað munn- vikið. Nei, Frakkar þurfa á- reiðanlega engu að bylta áleið- is í þessum málum, og svo er verið að segja, að við Skandi- navar eigum metið. En þrátt fyrir þetta hispurs leysi hef ég fyrir satt, að Frakk ar, bæði karlar og konur hafi mjög illan bifur á stuttu tízk- unni, og finnist hún afskaplega ósiðleg. Það er lika fremur sjaldgæft að sjá mjög stutt- klæddar konur hér í París, enda eru þær mældar út og hundelt ar af alls konar skugganlegum mönnum. Ég hitti fyrir skömmu ameríska stúlku, mjög. siða- vanda, sem sagði mér sínar far ir ekki sléttar. Hún hafði kom ið frá Bandaríkjunum með 14 minipils og 12 minikjóla, allt um 15—20 cm. fyrir ofan hné. Hún gat hvergi fengið vinnu á heimili, og átti í eilífum úti- stöðum við ágenga karlmenn. Er svona hafði gengið í rúma viku, sá hún sér ekki annað fært en að bregða sér í verzlun og kaupa kjól af siðlegri sídd, og þá fór allt að ganga betur. En nú verður hún að ganga í þess um sama kjól á hverjum degi, því að hún hefur ekki efni á að kaupa annan, og það er mjög slæmt fyrir ameríska stúlku sem á 14 pils og 12 kjóla. Aðra ameríska stúlku hitti ég í háskólanum. Hún var pels- klædd, og bar einhver ógrynni af skartgripum úr gulli og eðal, steinum, milljóneradóttir frá Kaliforníu Ég spurði hana, hvers vegna hún hefði komið hingað til Parísar, og þá leit hún á mig stórum barnslegum augum, deplaði gerviaugnahár- unum og sagði: Ó, það var út af haustlaufunum. Ég kom hing að í frí, og sá þessi dásamlegu lauf úti um allt, og þau heilluðu mig svo mikið, að ég varð að koma aftur. — Það má svo sannarlega segja, að fólk komi hingað í misjöfnum tilgangi! En falleg eru haustlaufin, satt er það, og um þessar mund ir þekja þau breiðstræti, götur og garða. Það er farið að kólna dálítið í Paris, og veturinn er á næstu grösum, svo að ekki verður um villzt. Skólar eru að hefjast, einn af öðrum, o’g þótt maður verði ekki mikið var við ókyrrð meðal skólafólks, hefur óánægjuöldurnar áreiðanlega ekki lægt að fullu. Ég heyrði nýlega, að nemendur í einni deild listaháskólans hefðu með háreisti og látum komið í veg fyrir, að próf yrðu leiðrébt dög um saman, og víðar mun andinn vera slíkur. Mikillar óvissu gæt ir meðal stúdentanna, því að enn er ekki vitað,' hvenær skól arnir hefjast, og hverjar þær endurbætur eru, sem kcrna á laggirnar. Allmargir, sem stund að hafa nám við fransks há- skóla, hafa nú leitað á ömiur mið, til að tefjast ekki of lengi frá náminu. Aðrir bíða til að sjá hverju fram vindur. gþe. Norðurá í Borgarfirði Veiðiréttur Veiðifélags Norðurár í Borgarfirði fyrir veiðitímabilið næstu þrjú ár, 1969—1971, er til leigu. Upplýsingar gefa Þórður Kristjánsson, Hreða- vatni og Magnús Þorgeirsson, Pfaff, Reykjavík. Tilboðum sé skilað til formanns Veiðifélags Norðurár, Þórðar Kristjánssonar, Hreðavatni, fyrir 10. desember næstkomandi. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Stjórn Veiðifélags Norðurár. Sprautun - Lökkun • Alsprautum og blettum allar gerðir af bílum • Sprautum einnig heimihstæki. tsskápa. þvotta vélar, frystikistur og fleira i hvaða lit sem er VÖNDUÐ OG ÖDÝR VTNNA. STIRNIR s.f. — Dugguvogi 11. (Inngangur frá Rænuvogi) — Simi 33R95 KLÆÐASKÁPAR í barna og einstaklingsherbergi ELDHÚSINNRÉTTINGAR og heimilistæki 1 miklu úrvali Einnig: Svefnherbergissett Einsmanns rúm Vegghúsgögn (pirasistem) Sófaborð Skrifborð o. fl. o fl. HÚS OG SKIP HF Ármúla 5, simar 84415 og 84416 \ STEFNULJOSABLIKK ARAR í úrvali. Varahlutaverzlun JÓHANN ÓLAFSSON & CO. Brautarholti 2 Sími 11984. TIL SÖLU diesel rafstöð 3 kv 32 volta í toppstandi. Selst ódýrt. Frystipressa fyrir 3ja tonna klefa. Uppl. í síma 52157. Hefi til sölu! VÖRUBÍLA M-Benz 1413 ’65 M-Benz 1418 ’64 Volvo 485 495 N 88 ’65 ’66 Skandia (55) ’60 Skandia (76) ’66 Man ’62 Chevrolet ’61 bensín Ford ’55 bensín til niður- rifs í varahluti Hefi kaupendur að góðum vörubílum. Uppl. í síma 52157. í HLJÓMLEIKASAL ,'v:. MUSICA NOVA OG LISTDA! Bandalag íslenzkra lista- manna, sem um þessar mundir er 40 ára, minntist þeirra tíma móta me'ð tónleikum í Þjóð- leikhúsinu um miðjan þennan mánuð. — Þeir sem að þessum tónleikum stóðu, voru Félag ís lenzkra listdansara og Musica Nova. Flutt voru eingöngu verk íslenzkra höfunda. — Slíkt er ætíð nýlunda, sem ætti að fá fleiri hlustendur og áhorfendur til að rumska, og gefa sig meira að því hvað yngri kyn- slóðin hefur að tjá. — Höf- undar sem komu verkum sín- um á framfæri betta afmælis kvöld eru allir kunnir frá fyrri tímum Musica Nova. Gunnar Rcynir Sveinsson, hefur áður vakið á sér athygli með messu fyrir blandaðan kór sem flutt var hér fyrir nokkr- um árum. Invention hans fyrir píanó var hér flutt af Þofkeli Sigurbjörussyni. Fínleg og smá gerð tónbrigði einkenna verk- ið sem Þorkell flutti mjög snyrtilega Þá .lék Þorke'.l píanóiag eftir sjálfan sig, sem hann nefnir Frum. Það er ó- líkt því sem áður hefur heyrzt frá hans hendi, og var „tremdo'” tækni hans fram- andi. Höfundur flutti betta litla lag þokkalega. Þrj.ú sönglög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jóns Ósk- ars voru athyglisverð og þó sér staklega Draumur heimsins og landið. Það var þessum lögum þó veruleg lyftistöng að Ruth Litt.le Maghússon. flutti þau af miklum skilningi og vai«d- virkni, þótt text.aíramburði hinna fallegu ljóða væri í nokkru ábófavnn't Níu hljóð færaleikarar fy.'gdu ljóðunum, og virtist tilvisx sumra þexrra ekki auka neinu við það sem söngkonan hafði fram að færa. Hringspil No. 2 fyrír <• bií.st- urshljóðfæri eftir Pá’. P. Páls- son er hressilegt Tg <igí-randi verk, sem var prýyXf.gu flutt. Tiibrigði um óar>',.a>.s; icall aði Leifur Þójannsson sitt vcrk. sem þarna vay fiutt. Leif- ur smeigir sér að nokkru aðrar leiðir en hans er vcnja og þarna urðu frío-tilbrigðir. fyrir kiarinetlu. ceiio :>% píano einna hei!stei;>ta?'.ta vmk þ-jss ara tór.íexka bæði í byggingu i og fluthingi. Ballett fyrir 9 dansara rari- inn af Ingibjörgu Björnsdótl ur, við segulbandamúsi’í JÍS;.fn- úsar Bl. Jóhannssonar. bar vott um hugmynuaflug hö.fur.dar. Hinar ske.'nmtiiegu assyjnme trisku" skiptingar darisaranua S á sviðinu, með lit ug iiós brigðum Atla rteiniig Sveins- sonar voru cftin'cktan'erðar Það var íróðlegt a? fvlgjsöi með margs !:o-.:ar o.,eyt:ng,'.m, sem eru í deiglur.tj h i 5 pxörg- um þeim Iistamönn«f:i, i«aæ verk áttu á þessum tóiiieiirum. Efnisskrá sú or þeim fylgd: var í mörgu ónóg ag nvergi nógu ítarleg, 'pc-r sem Öl'i verk in vr.ru fnimíii.'ti. S’ifXt ælti ekk.i að burfa svo, að vera. Unnur Arnúrsdóttlj. BACH TONLEIKAR Bach tónleikar í Laugarneskirkju sunnudaginn 3. nóvember kl. 5 s.d. AðgöngumiSar í Bókaverzlun Sigt'úsar Eymunds- sonar og við innganginn. ------------------------- )

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.