Vísir - 18.07.1977, Síða 3
VISIR Mánudagur 18. júli 1977
-
3
Þannig leit Gunnar Hansen út I myndinni vinsæiu The Texas Chain
Saw Massacre
1 kvikmyndadálki Visis á
fimmtudag var fjailaö um eina
vinsælustu myndina vestan hafs
um þessar mundir, The Texas
Chain Saw Massacre. Þaö vakti
athygli okkar aö einn aöal-
leikaranna i myndinni heitir
Gunnar liansen, sem teljast
\ eröur heldur óvenjúlegt nafn á
viandariskum kvikmyndaleik-
ara.
Nú hefur komið i ljós að
Gunnar þessi Hansen er islensk-
ur i báðar ættir og fæddur hér i
Reykjavik.
Myndin „The Texas Chain
Saw Massacre” var fyrst sýnd
árið 1974 i Bandarikjunum. Vin-
sældir hennar hafa verið miklar
og ein af aitekjuhæstu myndum
þar vestra. Þetta er hryllings-
mynd af hörðustu gerö og ekki
fyrir nema harðsviraöasta fólk.
Og Gunnar Hansen leikur ein-
mitt þann alhryllilegasta i
myndinni, Leatherface, mann
íslensk hroll-
vekjustjarna í
Bandaríkjunum
sem eltir fólk með vélsög i hönd-
umogmorðogmisþyrmingar i
huga. Nafn sitt Leatherface, eða
Leðurandlit fær hann af óhugn-
anlegri grimu, sem ætti aö sjást
á myndum hér á siðunni.
Ekki er þó Gunnar Hansen
leikari að atvinnu. Hann er um
þessar mundir aðstoðarritstjóri
viö timaritið Maine, sem gefiö
er út i bandariska fylkinu með
sama nafni.
Þegar kvikmyndadeliusar
Visis komust að þvi að maður-
inn væri islenskur, var rokið
upp til handa og fóta og öllum
blöðum og skruddum um kvik-
myndir flett, i þeirri von aö eitt-
hvað fyndist um manninn. Og
það tókst. 1 nyjasta hefti tima-
ritsins Cinefantastique er getiö
um mynd sem heitir The Dem-
ons Lover (Elskhugi skrattans)
og þar leikur Gunnar aðalhlut-
verk. Fær hann þokkalega
dóma, en myndin annars talin
af lélegra taginu.
Gunnar Hansen er fæddur i
Reykjavik.sonur Skúla Hansen,
fyrrverandi tannlæknis og Sig-
riöar Hansen. Hann var hér til 7
ára aldurs en fluttist þá til
Bandarikjanna með móður
sinni og bróður. A sumrin dvaldi
hann hér á landi hjá föður sinum
og kom hingað seinast árið 1966.
Gunnar stundaði nám i Bang-
or i Maine fylki, þar sem móðir
hans bjó, og seinna i háskólan-
um i San Antonio i Texas og var
siðar viöframhaldsnám i Austin
i Texas. Til gamans má geta
þess að prófverkefni hans, BA
ritgeröin, var um ljóð Daviðs
Stefánssonar.
A háskóiaárunum kynntist
hann kvikmyndagerð og var
meö i að gera nokkrar tiirauna-
myndir með öðrum stúdentum.
Hann hefur fengist nokkuð við
ljóðlist, en eftir að námi lauk,
kenndi hann um stund við há-
skólann i Austin, og er nú að-
stoðarritstjóri Maine Magazine.
Leiklistina stundar hann i
hjáverkum, en með sama á-
framhaldi verður erfitt fyrir
hann aö neita hlutverkum, þvi
að hvergi er eins miklir pening-
ar að veltast og i kvikmynda-
heiminum bandariska.
Gunnar heldur enn sambandi
við tsland og lslendinga, og
skrifast á við stjúpmóður sina
Kristinu Snæhólm Hansen.
—GA
En svona er hanu i raunveru-
leikanuiu. Mynd þessi er úr
timaritinu Maine Magazine, en
Gunnar er aöstoðarrilstjrtri þcss
blaðs. llann skrifar einnig
reglulega i blaöiö greinar uin
umhverfismál og viöskipti.
Landsvirkjun
greiðir Energo-
projekt 156
milljónir auk
vaxta
Eins og Visir hefur áður skýrt
frá hafa nú tekist samningar milli
Landsvirkjunar og júgóslavneska
fyrirtækisins Energoprojekt,
vegna uppgjörs á framkvæmdun-
um viö Sigöldu.
Greiðir Landsvirkjun Energo-
projekt samtals upphæð sem
nemur átta hundruð þúsund
ban.darikjadollurum, eða hundr-
að fimmtiu og sex milljónir is-
lenskra króna. Við þá upphæð
bætast svo átta og hálft prósent
vextir.
Með þessu samkomulagi hefur
gerðardómsbeiðni vegna málsins
verið felld niður. —ah
Athugasemd
Vegna viðtals sem
birtist i Visi i gær við
þau Hrein Guðmundsson
og Ingibjörgu Andrés-
dóttur, hafði Birgir Ás
Guðmundsson hjá
Heyrnardeild samband
við blaðið.
Sagði hann að það væri ekki i
verkahring þeirra að annast upp-
setningu á hjálpartækjum til
handa heyrnarlausum, heldur
væri það verk rafvirkja. Hefði
Heyrnardeildin ekki fengið leyfi
til að annast uppsetningu slfkra
tækja.
Væri þvi ekki við þá að sakast,
og ekki ætti að þurfa að biða eftir
að fá sjálf tækin afhent.
Benti Birgir á, að vafalaust
væri besta lausnin i þessu máli
sú, að samtök heyrnarlausra
tækju þetta fyrir og réðu bót á
vandanum. —AH
VOLKSWAGEN og Audi bílarnir
eru vestur-þýsk gœðaframleiðsla
Au<^i 80 LS
Auói ÍOO LS
Audi-bílarnir eru fróbœrir að gœðum og með
fullkominn tœknibúnað. — Sjón er sögu ríkari. -
V.W. 1200
hefir aldrei verið betri
og hagkvœmari í rekstri.
Golf
fallegur nútímabíll með
fullkomnum búnaði.
LT sendibíll
hagkvœmur og fúanlegur
af mörgum gerðum.
Komið — skoðið og kynnist Volkswagen og Audi
______— Londskunn viðgerða- og varahlutaþjónusta.__
@)Volkswagen OOOOAuði HEKLA HR
t__: i no cr_: 01
Laugavegi 170—172 — Sfmi 21240