Vísir - 18.07.1977, Page 4

Vísir - 18.07.1977, Page 4
Rœningjar flýðu sjóleiðina með 100 milljónir Þrír ræningjar flýðu á hraðskreiðri snekkju inn í landhelgi Albaníu eftir að hafa myrt gjaldkera í grískum næturklúbbi sært tvo þjóna og rænt sem svarar hundraö milljónum islenskra króna. Ræningjarnir þrir réöust, vopnaðir byssum. inn i klúbbinn „Club Mediterranee” á eynni Korfu og heimtuðu þar allt lausa- fé og vegabréf fimmtiu franskra gesta. Eitthvað kom til átaka og var þá gjaldkeri klúbbsins skot- inn til bana og tveir þjónar særð- ir. Ræningjarnir flýðu svo á bif- reiö niður að höfn þar sem þeir tóku hraðskreiða snekkju traustataki. Þyrlur og hrað- skreiðir eftirlitsbátar hófu leit að þeim skömmu siðar, en án árangurs. Talsmaður lögreglunnar sagöi fréttamönnum að ræningjarnir hefðu flúið inn i landhelgi Al- baniu. Snekkjan sem þeir notuðu er i eigu þekkts italsks blaða- manns sem var i heimsókn á Korfu ásamt vinkonu sinni. Lög- reglan vissi ekki hvort þau voru um borð en taldi vist að þau væru gislar, ef svo væri. Þegar menn eru krónprinsar verða þeir að gera ýmsa skrýtna hluti. Mörgæsin Fridolin þarf að fá auka vatns- skammt þessa dag- ana. h'ridolin býr i Vestur-Þýskalandi og þa r er nú 30 stiga hiti. Kannske Frido ætti að flytja til islands. , HVAR RTU JAMES BOND? Tveir af þingmönnum Verkamannaf lokksins hafa lagt til að James Callaghan, forsætisráð- herra Bretlands, skipi nefnd til að rannsaka ásakanir um klaufaskap bresku gagnnjósnaþjón- ustunnar MI5. Blaðið ,,The Observer” segir frá þvi i frett i gær að Harold Wilson, fyrrverandi forsætis- ráðherra hafi misst traust á MI5 eftir tvenn hlægileg mistök, meðan hann gegndi embætti. Observer segir að njósnaþjón- ustan hafi tekið tvo breska þing- menn til rannsóknar vegna nafnaruglings. Annar þeirra var. dr. David Owen, sem nú er utanrikisráðherra. MI5 grunaði hann um að hafa selt hernaðar- leyndarmál til Tékkóslóvakiu. Rannsókn leiddi i ljós að leyniþjónustan var að ruglast á. honum og Will Owen, sem var sýknaður af ákæru um þetta atriði árið 1970. Hinn þingmaðurinn var frú Jedith Hart, sem MI5 hélt að hefði setið fund kommúnista- leiðtoga i ónefndu Austur- Evrópuriki. Það kom i ljós að hinir visu spæjarar höfðu tekið feil á henni og einhverri frú Tu- dor Hart, sem aldrei hefur ná- lægt þinginu komið. Annar þingmannanna sem fer fram á rannsókn, sagði: „Hversu margir alsaklausir þingmenn eru með einhverja skuggalega náunga á hælum sér vegna þess að leyniþjónustan kemst ekki skammlaust i gegn- um simaskrána?” Herferð gegn glœpasamtök- um ó Ítalíu Morð, rán og flótti úr fangelsum er orðinn dag- legt brauð á ítalíu og rikis- stjórninni finnst nú timi til kominn að taka i taumana. Siðastliðinn föstudag var lagt fram sex f lokka frum- varp sem miðar að þvi að koma á lögum og reglu í landinu. f frumvarpinu er meðal annars gert rað fyrir auknum völdum lögreglunnar, betri útbúnaði handa henni og byggingu nýrra fangelsa. Harðlinumenn lengst til vinstri hafa fordæmt frumvarpið sem þeir segja að mun gera ttaliu að lögregluriki. Rauða hersveitin heitir einhver illræmdasta glæpaklika sem starfar á ltaliu i dag og félagar i henni eru vinstri sinnaðir öfga- menn. Undanfarna mánuði hafa þeir gert sig seka um fjölmörg morð, mannrán og likamsárásir, sem þeir segja að gerðar séu til að refsa „verkfærum heims- valdasinna og kapitalista”. fór þurrkuðust út tölvuskýrslur lögreglunnar sem hafa að geyma fyrri afbrot margra þeirra sem nú koma fyrir réttinn. Lögreglan áætlar að það kunni að taka þrjá daga i viðbót að yfir- heyra og dæma alla þá sem hand- teknir voru. 011 fangelsi borgarinnar eru yfirfull og hinum handteknu hefur verið holað niður i biðstofum og jafnvel geymslum. Astandið er Örþreyttir dómarar í New York leggja nú nótt við dag við að fjalla um mál þeirra þrjú þúsund og fimmhundruð manna og kvenna sem handtekin voru fyrir rán og grip- deildir í raf magnsleysinu í siðustu viku. Þetta voru mestu f jöldahandtökur í sögu borgarinnar. allt annað en gott þvi mikil hita- bylgja gengur nú yfir borgina og i gær fór hitinn til dæmis upp i 37 stig á Celsius, en það er mesti hiti sem mælst hefur i New York i 98 ár. Það veldur yfirvöldum miklum erfiðleikum að þegarrafmagnið A flótta Lögreglan i Sydney i Ástraliu leitar nú að fimm föngum sem hafði verið leyft út úr fengelsinu til að taka þátt i tiu milna viða- vangshlaupi. Þeir héldu áfram að hlaupa eftir að þeir komu i mark. DÓMSTÓLAR í NíW YORK YFIRHLAÐNIR EFTIR RAFMAGNSLEYSIÐ

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.