Vísir - 18.07.1977, Blaðsíða 13

Vísir - 18.07.1977, Blaðsíða 13
'mm Eim? Salerniseyðir Ný Toyota Cressida 57215-8 Póstsendum Spudvíg Síorr j, Gq SPEGLABÚÐIN Laugavegi 15 Simi: 91-19635 91-13333 Fyrir sumar- bústaðinn, hjólhýsið og útivinnustaði Toyota-verksmiðjurnar i Japan eru einar stærstu bilaverksmiðj- ur heims, og njóta Toyotabilar mikils álits hvarvetna. Siðustu árin hafa það aðallega verið Toyota-bilar af Corolla-gerð, sem selst hafa hér á landi af minni gerðum v'erksmiðjanna, en gerð- in Corona Mark II hefur notið mestra vinsælda af stærri gerð- unum. Hins vegar hefur stærsta gerðin, Crown, þokað fyrir keppi- nautnum frá Datsun, Datsun 220. Nú hafa Toyota-verksmiðjurnar komið fram með bil, sem er að stærð til mitt á milli Mark II og Crown, og liklegt er að hljóti miklar vinsældir, ef verðið verður hagstætt. Léttur bill. Toyota hefur gefið nýja bilnum nafn úr griskri fornsögu, og nefn- ist hann Cressida. Sýnist það nokkuð vel valið nafn, þvi að hug- myndin að baki bilnum er sú, að hann þræði gullinn meðalveg, sé „venjulegur” bill, án tæknilegra bragða, sem uppfyllir frumþarfir eigandans, án kúnsta eða tilþrifa, rétt eins og Cressida grisku sagn- anna á sinum tima. Helstu kostir bilsins, að sögn erlendra bilatimarita, eru léttleiki, sparneytni, góður frágangur og búnaður. Cressida er 14 sentimetrum lengri og fimm sentimetrum breiðari en Corona Mark II, og fimm sentimetrum lengri á milli hjóla. Engu að siður erCressiaá80 kilóum léttari en Mark II, og hvorki meira né minna en 300 kilóum léttari en Crown, þótt að- eins muni örfáum sentimetrum á innanbreiddinni. Vélin er 2ja litra vélin, sem knýr Mark II, en sjö hestöflum aflmeiri, 89 DIN i stað 82 DIN hjá Tyota Cressida: Sterkur nýliði I Cortina-stærðarflokknum. Mark II, og Cressidan er sekúndu fljótari upp i 100 kilómetra hraða, eða innan við 13 sekúndur, enda léttari, eins og áður sagði. Breska blaðið Autocar telur bilinn sparneytinn, með aðeins 10 litra meðaleyðslu á 100 kilómetra, og er það einkum á meðalhraða og i bæjarakstri, sem eyðslan er til- tölulega litil, en hins vegar eykst hún mjög i hröðum akstri og á móti roki, enda er lag biisins þannig, að loftmótstaða er nokk- uð mikil Hemlarnir fá mjög góða um- sögn, og mikið hefur verið gért til þess að gera bilinn auðveldan i akstri. Heila fimm snúninga þarf til þess að snúa stýrinu, borð í borð, og léttleiki hefur þar verið látinn sitja i fyrirrúmi á kostnað nákvæmni og næmi. Toyota Cressida er léttur bill, miðað við stærð, og þykir það hafa leitt af sér lakari fjöðrun. Þýkir hún, ásamt stýrinu, einn lakasti eiginleiki bilsins, en auð- veld stjórn hans, afl miðað við eyðslu og þægindi ökumanns fá góða einkunn og virðist Cressida likleg til vinsælda hjá þeim, sem vilja bil, sem þjónar af trúmennsku og þræðir dyggilega gullinn meðalveg, er góð fjárfest- ing og gefur rými og notagildi fyrir peningana. ÚJÓSPREHTIIM Frá Bifreiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur: ÆFINGARALLÝ I LOK JULI Fyrirhugað Æfinga-Rallý kliíbbsins verður haldið mið- vikudaginn 20. júlí. Keppnin hefst og henni lýkur við gömlu Esjubiiðina i Kollafirði. Ekin verðurum 120 km leið, Esjuleið- in svo kallaða, austur Þing- vallaveg, niður Grafning, yfir Sogið við virkjanirnar og norður fyrir Þingvallavatn um Gjá- bakkaveg. Esjuleiðin verður svo ekin aftur i bakaleiðinni. Væntanlegir keppendur mæti á rásstað ki. 18,30 og hafi jafn- framt samband við skrifstofu F.l.B. til að fá frekari upplýs- ingar. Keppni þessi er undir- búningur fyrir Haust-Rallý, sem haldið verður dagana 16. — 18. september, og verður heiid- ar-vegalengd þess um 2000 km. Fréttir og annað frá kiúbbnum veröur framvegis I VIsi á mánu- dögum. 1011 af skjölum, bókum o.s.frv. GLIERUR fyrir myndvarpa SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33 símí 20560 Nýkomnir tjakkar fyrir fólks- off vörubBa frá 1-20 tonna MJÖG HAGSTÆTT VERÐ Bílavörubúðin Fjöðrin h.f. Skeifan 2, simi 82944. b, .

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.