Vísir - 18.07.1977, Qupperneq 17

Vísir - 18.07.1977, Qupperneq 17
VISIR Mánudagur 18. júli 1977 l”l TA Gengi og gjaldmiðlar Bandaríkjadalur enn á niðurleið Gjaldeyrismarkaðurinn ein- kenndist i lok siðustu viku af vaxtalækkuninni i Vestur- Þýskalandi og Sviss. Banda- ríkjadalur hafði fallið verulega i eina viku, en sterku gjald- miðlarnir hækkað I verði, en vaxtalækkunin breytt mynd- innni nokkuð. En siðla á föstu- dag benti allt til þess, að dalur- inn f æri aftur að lækka gagnvart vestur-þýska markinu, þannig að vikan endaði á sama hátt og hún hdfst. Danska krónan stóð sig vel I vikunni og hækkaði gagnvart flestum öðrum gjaldmiðlum en markinu. Innan gjaldmiðla- slöngunnar var markið efst en skandinavisku krónurnar þrjár voru á botninum, og sú sænska neðst. Bilið á milli efsta og neðsta gjaldmiðilsins var á föstudag um 2%, ogþar með var farið það sigrúm, sem leyfilegt er innan gjaldmiðlaslöngunnar. Ef vestur-þýska markið heldur áfram að hækka næstu vikur verða veiku gjaldmiðlarnir ann- að hvort að fylgja með eða þá að gengisbrey tingar verða að koma til. óvisst ástand i Bret- landi Þróun enska pundsins mun fara mjög eftir þvi hvað gerist I breskum stjórnmálum næstu vikurnar. Verkalýðshreyfingin sýnir sffellt meiri andstöðu við launamálastefnu rfkisstjórnar- innar, en Frjálslyndi flokkurinn leggur hins vegar mikla áherslu á að rikisstjórnin framfylgi sem ákveðnastri launamálastefnu. Sennilega er ekki hætta á að pundið verði fyrir barðinu á spákaupmennsku, þar sem breski seðlabankinn hefur hlað- ið upp gifurlegum varasjóöi. En til lengri tima litiö mun gengi pundsins fara mjög eftir þvi hvort hægt verður að hafa hemil á launahækkunum. Hallinn á vöruskiptajöfnuði Breta varð i júni 287 milljónir sterlingspund, sem er hækkun frá þvi i mai þegar hallinn var 251 milljón pund. Góð staða V-Þjóðverja gagnvar OPEC Vestur-Þýskaland hefur skýrt frá greiðslujöfnuði sinum gagn- vart OPEC-rikjunum. í ljós kemur að V-Þýskaland hefur náð greiðslujöfnuði gagnvart OPEC-rikjunum. Þegar ollu- kreppan hófst 1974 var hállinn gifurlegur, eða 10.7 milljarðar marka. Arið 1975 minnkaði hall- inn i 0.3 milljarða marka, og ár- ið 1976 var um 0.9 milljarða að ræða. Þannig varð umtalsverð- ur halli einungis eitt ár, þ.e. 1974. Jafnframt hefur verið reiknað út, að Vestur-Þýskaland hafi þessi þrjú ár fengið samtals 12 milljarða marka halla til baka i formi fjármagnstilfærslu. Helmut Schmidt, kanslari, spáði þvi á föstudaginn, að hag- vöxtur yrði 4.5% i V-Þýskalandi i ár. Samtimis voru birtar tölur um atvinnulausa. 1 júni voru 930.000 atvinnulausir, en þeir voru 947.000 I mai. Miðað við árstið er talið að um svolitala aukningu atvinnuleysis hafi verið aö ræða. Peter Brixtofte (ESJþýddi). Vel klippt og krullað hár er sumartískan í ár Hárgreiðslustofan VALHÖLL Óðinsgötu 2 - sími 22138 0DYRT 0G G0TT: Höfum fengið nokkurt magn af púströrsklemmum, pústbörkum, AVGAS-upphengjarar púströrsuppihengjum, rafmagnsþráð og hosuklemmum. 9030 9040 Látum þetta á lægsta heildsöguverði ef tals- vert magn er keypt. AWAB- slönguklemmur 14 10—14 mm 50 38—50 17 11—17 56 44—56 20 13—20 65 50—65 24 15—24 75 58—75 28 19—28 85 68—85 32 22—32 95 77—95 38 56—38 112 87 — 112 44 32—44 138 104—138 165 130—165 Bílavörubúöin Fjöörin h.f., Skeifan 2 sími 82944 Nauðungoruppboð semauglýst var i 34. 38 og 40. tölublaði Lögbirtingablaðs- ins 1977 á eigninni Lágholti 10, Mosfellshreppi, þingl. eign Alberts Finnbogasonar, fer fram eftir kröfu Ara ísberg, hdl., á eigninni sjálfri fimmtudaginn 21. júli 1977 kl. 4.30 e.h. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu I ---------------------------------------------------- I Nauðungaruppboð ! sem auglýst var i 34. 38. og 40. tölublaöi Lögbirtingablaðs- ins 1977 á eigninni Stekkjarflöt 15 Garðakaupstað. þingl. eign Gunnars Kristjánssonar, fer fram eftir kröfu Garða- , kaupstaðar, Inga R. llelgasonar, hrl. og Hafsteins Sigurðssonar, hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 21. júlí, , 1977 kl. 1.30. e.h. Bæjaríógetinn i Garöakaupstaö VISIR visar FELAGSSTARF OG FUNDIR Frá Ferðafélagi íslands. Næstkomandi sunnu- dag 17. júli efnir Ferða- félag Islands til ferðar austur að Stokkseyri þar sem ætlunn er að týna söl og annan fjörugróður, sem forfeður okkar hag- nýttu sér áður fyrr til matar. 1 bókinni tslenskir þjóðhættir eftir Jónas Jónaáson segir, að þessar fjörujurtir hafi verið mjög hafðar til matar og heilu lestirnar hafi verið flutt af þeim til sveita, bæði frá Eyrarbakka og viðar. Menn hagnýttu sér þær til matar á ýmsun hátt. Voru þær ýmist etn- ar hráar, eða soðnar i vatni og etnar þannig með harðfiski og smjöri eða með flautum á vetr- um. Heldra fólk sauð þær i hlaup með mjólk og mjölákastiog hafði r jóma út á, en allur almenning- urhafði þau i graut ásamt mjöli. Mjög oft voru þau afvötnuð, þurrkuð og pressuð i ilát. A sumrum voru þau mikið borðuð saman við skyr. Farið verður frá Reykjavik kl. 10 á sunnu- dagsmorgum, þvi um hádegisbilið er stórstraumsfjara undan Stokkseyri. Þeir, sem ætla að koma i þessa ferð þurfa að vera i vatnsheld- um skófatnaði og hafa með sér plastpoka, eða annað ilát, til að geyma grösin i. Leiðbeinandi verður Anna Guðmunds- dóttir húsmæðrakennari. í þessari ferð ferður einnig komið við í Baug- staðabúinu, en þar eru til synis þau tæki og. annar búnaður, er voru notuð til smjörgerðar, á árunum eftir sfðustu aldamót. Asgrimssafnið, Berg- stæðastræti 74, er opið alla daga nema laugar-, daga frá klukkan 1.30-4. Fundir AA-samtak- anna í Reykjavík og Hafnarfirði Tjarnargata 3c: Fundir eru á hverju kvöldi kl. 21. Einnig eru fundir sunnudaga kl. 11 f.h., laugardaga kl. 11 f.h. (kvennafundir), laugar- daga kl. 16 e.h. (spor- fundir). — Svarað er i sima samtakanna, 16373, eina klukkustund fyrir hvern fund til upplýsinga- miðlunar. Austurgata 10, Hafnar- firði: mánudaga kl. 21. Tónabær: Mánudaga kl. 21. — Fundir fyrir ungt fólk (13- 30 ára). Bústaðakirkja: Þriðjudaga kl. 21. Laugarneskirkja: Fimmtudaga kl. 21. — Fyrsti fundur hvers mánaðar er opinn fundur. Langholtskirkja: Laugardaga kl. 14. Ath. að fundir AA-sam- takanna eru lokaðir fundir, þ.e. ætlaðir alkó- hólistum eingöngu, nema annað sé tekið fram, aö- standendum og öðrum velunnurum er bent á fundi Al-Anon eða Ala- • teen. AL-ANON, fundir fyrir aðstandendur alkóhó- lista: Safnaöarheimili Grensáskirkju: Þriðjudaga kl. 21. — Byrjendafundur kl. 20. Langholtskirkja: Laugardaga kl. 14. ALATEEN, fundir fyrir börn (12-20 ára) alkó- hólista: Langholtskirkja: Fimmtudaga kl. 20. Sundmeistaramót Is- lands 1977 fer fram i sundlauginni i Laugardal dagana 20. júli og 23. og 24. júli n.k. Dagskrá: 1. dagur: Miðvikudagur- inn 20. júli kl. 19.00: 1. grein 1500 metra skrið- sund karla. 2. grein 800 metra skrið- sund kvenna 3. grein 400 metra bringu- sund karla 2. dagur: Laugardagur- inn 23. júli kl. 15.00: 4. grein 100 metra flug- sund kvenna 5. grein 200 metra bak- sund karla 6. grein 400 metra skriðsund kvenna 7. grein 200 metra bringu- sund karla 8. grein 100 metra bringu- sund kvenna 9. grein 100 metra skrið- sund karla 10. grein 100 metra bak- sund kvenna 11. grein 200 metra flug- sund karla 12. grein 200 metra fjór- sund kvenna Hlé i 10 minútur. 13. grein 4x100 metra • fjórsund karla 14. grein 4x100 metra skriðsund kvenna 3. dagur: Sunnudagurinn 24. júli kl. 15.00: 15. grein 100 metra flug- sund karla 16. grein 200 metra bak- sund kvenna 17. grein 400 metra skriðsund karla 18. grein 200 metra bringusund kvenna 19. grein 100 metra bringusund karla 20. grein 100 metra skrið- sund kvenna 21. grein 100 metra bák- sund karla 22. grein 200 metra flug- sund kvenna 23. grein 200 metra fjór- sund karla illé i 10 minútur 24. grein 4x100 metra fjórsund kvenna 25. grein 4x200 metra skriðsund karla Þátttökutilkynningar þurfa að vera skriflegar á timavarðarkortum og berast stjórn SSl, fyrir mánudaginn 18. júli. A timavarðarkortunum sé getið besta löglega tima á árinu i 50 m. braut, (ef löglegur timi er ekki til, má skrifa tima i 25 m. Raðað verður i riðla eftir löglegum timum i 50 m. braut. siðan verður tekið tillit til tima i 25 m. braut og að lokum dregið um brautir fyrir þá sem enga tima eiga. Niðurröðun i riðla fer fram á skrifstofu SSI, Laugardal, mánudaginn 18. júli kl. 18.00 og er óskað eftir að fulltrúar félaganna verði viðstadd- ir. Þátttökugjald er kr. 100 fýrir hverja skráningu og skal greiðsla fylgja þátt- tökutilkynningum. Stjórn SSI.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.