Vísir - 18.07.1977, Síða 23
I
VISIR
i Mánudagur 18. júli 1977
Hörmuleg framkvœmd ó
fótboltaleik
Ég skrapp á fótboltaleik á
föstudagskvöldið og kom „inspir-
eraður” tilbaka heim til mín. Ég
hef stundað völlinn nokkuð reglu-
lega i sumar og oft hefur mér
blöskrað framkvæmdin á leikjum
sem fara þar fram. (á Laugar-
dalsvellinum).
Byrjum á vallarstæðinú. Það er
þeim ágætu kostum búið að vera
mun stærra en venjulegur fót-
boltavöllur. Þess vegna er hægt
að „færa” völlinn til á svæðinu.
Og það hefur svo sannarlega ver-
ið gert. A föstudagskvöldið i leik
Vals og ÍBV mátti t.d. greina að
minnsta kosti þrjá velli á svæð-
inu. Þeir voru hver ofan i öðrum,
og grasið satt að segja eintóm
strik og merkingar, sem enginn
botnaði i, allra sist leikmennirnir
sjálfir.
Þetta var nú bara smáatriði.
Verra er að völlurinn virðist gjör-
samlega gæslulaus, nema rétt i
hliðinu. Dauðadrukknir menn
hlaupa þarna hver um annan og
oft inn á sjálfan völlinn. Leik-
menn hafa þurft að hætta leik
meðan fyllibytturnar komu sér
burt aftur. Krakkar hlaupa þarna
þvers og kruss með hávaða og
látum.
Leikmenn sem keppa á þessum
velli klæða sig í búningana i bún-
ingsherbergjum á „gamla”
Laugardalsvellinum. Þangað eru
um 700 metrar. Nú stendur i lög-
um knattspyrnunnar að leikhlé
eigi að vera tiu minútna langt. A
föstudagskvöldið liðu 25 minútur
frá því að dómarinn stöövaöi leik-
inn og þangað til hann hófst aftur.
Leikmennirnir sjálfir fengu ekk-
ert of langt hlé, það tekur slikan
tima fyrir þá að koma sér i hús.
En áhorfendur mega gjöra svo
vel og göna úti loftið. En þetta er
varla öðrum að kenna en dómur-
unum sem dæma leikina.
Fyrst maðurer kominn að leik-
hléunum er sennilega rétt að
minnast á annað atriði. Það er
veitingasalan á vellinum. Þá er
rétt að geta þess að hún er ekki
til, heldur er selt i einum skúr
niðri á gamla vellinum. Þar kom-
ast kannski rúmlega hundrað
manns að i hléinu, og allir meö
þvi að troðast og hamast.
Þetta er alveg furðulegt. 1 Eng-
landieru tugþúsundir á völlunum
og svo til allir fara og fá sér te i
hálfleik. Þar er reiknað með
þessu og vellirnir byggðir með
það fyrir augum að geta tekið á
móti fjöldanum. Hér mæta nokk-
ur hundruð og ekki helmingurinn
kemst að.
Ég geri það hér með að til-
lögu minni að reistir verði tveir
eöa þrir skúrar á nýja Laugar-
dalsvellinum, hlið við hlið. Siðan
verði þeim liðum sem þar keppa
gefinn kostur á að reka þar veit-
ingasölu. Slikt gæti drýgt tekjur
félaganna til muna, en þar sem
slik þjónusta virðist ekki skipta
vallaryfirvöld miklu, tapa þau
svo til engu.
Það eina sem maður hafði
ánægju af þetta kvöld voru nokk-
ur spörk hjá strákunum I fótbolt-
anum, annað var allt til að gera
manni gramt i geði.
Þórarinn llafsteinsson
RAUÐl
iTTA
UTIHÁTÍÐ
að úlfljótsvatni um verslunarmannahelgi
Föstudaginn 29. júli — mónudags 1. ágústs.
4. daga dagskrá
M.a.:
• Póker
• Eik
• Ríó
•Tívolí
•Randver
• Alfa Beta •Halli og Laddi
•Cobra og margir fleiri
• Jasskvartet •Bátaleiga
• Söngtríóið •Hestaleiga
Bónus •Tívolí
• íþróttir
• Fyrsta
svifdreka
keppnin
á íslandi
Stórkostlegasta útihátið ársins
— HÁTÍÐ FYRIR ALLA —
Hðfum fyrirliggjandi hina
viðurkenndu Lydex hljóðkúta
í eftirtaldar bifreiðar:
Audi 100S-LS.................. hljóökútar aftan og framan
Austin Mini.........................hljóðkútar og púströr
Bedford vörubfla....................hljóökútarog púströr
Bronco 6 og 8 cyl...................hljóökútar og púströr
Chevrolct fótksbila og vörubila.....hljóökútar og púströr
Datsun disel — 100A — 120A — 1200—
1600— 140— 180 .....................hljóökútar og púströr
Chrysler franskur....................htjóökútar og púströr
Citroen GS.........................Hljóökútar og púströr
Dodge fólksbila.....................hljóökútar og púströr
D.K.W. fólksbila....................hljóökútar og púströr
Kiat 1100 — 1500 — 124 —
125—128—132 — 127— 131 ............ hljóökútar og púströr
Ford, ameriska fótksbita............htjóökútár og púströr
Ford Concut Cortina 1300 — 1600......hljóöínitar og púströr
Ford Escort.........................hljóðkútar og púströr
Ford Taunus 12M — 15M — 17M — 20M.. hljóökútar og púströr
Hiltman og Commer fólksb. og sendib... itljóökútar og púströr
Austin Gipsy jeppi..................hljóökútar og púströr
International Scout jeppi............ hljóökútar ogpúströr
Kússajeppi GAZ 69...................hljóökútar og púströr
Willys jeppi og Wagoner.............. hljóökútar og púströr
Jccpster V6.........................hljóökútár og púströr
Lada................................hljóökútar og púströr
Landrover bensin og dlsel...........hljóökútar og púströr
Mazda 616 og 818....................hljóökútar og púströr
Mazda 1300........................... hljóökútar og pústror
Mazda 929 .....................hljóökútar fraiúan og aftan
Mercedes Benz fólksbila 180 — 190
200 — 220 — 250 — 280...............bIjóökútar og púströr
Mercedes Benz vörubila..............hljóökútar og púströr
Moskwitch 403 — 408 — 412 ..........hijóökútar og púströr
Morris Marina 1,3 og 1,8............hljóðkútar og púströr
Opel ltckord og Caravan.............hljóökútar og púströr
Opcl Kadett og Kapitan..............hljóökútar og púströr
Passat ........................ hljóökútar framan og aftan
Peugeot 204 — 404 — 505.............hljóökútar og púströr
Rambler American og Classic .........hljóökútar og púströr
RangeRover...........Hljóökútar framan og aftan og púströr
Renault R4 — R6 — R8 —
R10 — R12 — R16......................hljóökútar og púströr
Saab 96 og 99........................hljóökútar og púströr
Scania Vabis L80 — 1.85 — LB85 —
Ll 10 — LBl 10 — LB140........................hljóökútar
Simca fólksbila.....................hljóökútar og púströr
Skoda fólksbila og station..........hljóökútar og púströr
Sunbcam 1250 — 1500.................hljóökútar og púströr
Taunus Transit bensín og disel......hljóökútar og púströr
Toyota fólksbila og station.........hljóökútar og púströr
Vauxhall fóiksbila..................hljóökútar og púströr
Volga fólksbila.....................hljóökútar og púströr
Volkswagcn 1200 — K70 —
1300— 1500 .........................hljóðkútar og púströr
Volkswagcn sendiferöabila.....................hljóökútar
Volvó fólksbila.....................hljóðkútar og púströr
Volvo vörubila F84 — 85TD —
N88 — F88 — N86 — F86 —
N86TD — F86TD og F89TD........................hljóökútar
Púströraupphengjusett í flestar gerðir
bifreiða.
Pústbarkar flestar stærðir.
Púströr i beinum lengdum 1 1/4" til 3 1/2"
Setjum pústkerfi undir bila, simi 83466.
Sendum i póstkröfu um land alit.
Bifreiðaeigendur athugið að þetta er
allt á mjög hagstœðu verði og sumt
á mjög gömlu verði.
GERID VERÐSAMANBURÐ AÐUR EN PÉR
FESTIÐ KAUP ANNARS STAÐAR.
Bílavörubúðin Fjöðrín h.f.
Skeifan 2, simi 82944.