Vísir - 18.07.1977, Síða 24

Vísir - 18.07.1977, Síða 24
VÍSIR P. STEFÁNSSON HF. a^) SÍOUMÚLA 33 SlMI 83104 83105(| m ~m AVELING BARFORD ” ÞUNGAVINNUVÉLAR ÉL •• ffi' ÖU OKUTAKI jn SMÁOG STÓR P. STEFÁNSSON HF. - — ® ji HVERFISGÖTU103 SÍMI 26911 (^j Tvœr stúlkur fórust í bíl- slysi í Döium Tvær ungar stúlkur biðu bana i hörmulegu bilslysi sem varö vestur í Dölum i nótt. Slysið átti sér staö við Jónsvað I Svinadal. Yfir vaðið er þröng brú mcð erfiðri aðkeyrslu. StUlkurnar munu hafa komið akandi aö vestan, og bill þeirra lent fram af hjá brúnni. Þarna er um fimmtán metra hátt fall niður i hyl undir brúnni. Stúlkurnar munu hafa látist samstundis. — GA Slys vegna ölvunar við akstur Tvö óhöpp urðu á Vestur- landsvcginum aðfaranótt sunnudagsins i umdæmi Hafnarfjaröarlögreglunnar. Um klukkan fjögur um nótt- ina var ekið á stúlku á móts við Eyrarhvamm i Mosfclls- sveit. Hlaut hún opiö fótbrot. Grunur leikur á, aö um ölvun liafi verið aö ræða. Lögregluna grunar, að einn- ig hafi verið uin ölvun að ræða i hinu tilvikinu, scm var útaf- akslur. Þar slasaðist cnginn alvarlega. Að sögn lögregl- unnar i Hafnarfirði var mikiö um ölvun um helgina og margir teknir undir áhrifuin við akstur. —GA Stnl bíl úr bíl- skúrnum Bil var stolið i Þorlákshöfn nú um hclgina. llafði hann staöiö i bilskúr við heimahús. Þjófurinn hefur bakkað biln- um útúrskúrnumogútá götu, og síðan haldið áfram að bakka alveg þar til hann lenti uppá steyptrigirðingu nokkru neðar í götunni. Þaðan hljóp svo þjófurinn i burtu. Ekki hefur enn hafst upp á honum. Billinn, sem er mjög nýlegur Audi, skemmd- ist litillega. — GA Róðist ó þrjó lögreglumenn Ráðist var á þrjá lögreglu- menn að störfum aöfaranótt laugardagsins. Ilöfðu þeir kom- ið auga á mikil slagsmál, sem áttu sér stað i porti viö miöjan Laugarveginn. Þegar lögreglu- mennirnir ætluöu aö skakka leikinn og skilja slagsmála- hundana, saineinuðust þeir gegn lögreglumönnunum. Upphófust nokkur átök i port- inu, en enginn mun þó hafa hlot- ið alvarleg meiðsl. Leiknum endaöi incð þvi, að nokkrir sökudólgarnir voru settir 1 fangegeymslur lögreglunnar. — GA Trillan á strandstaö. A minni myndinni eru björgunarsveitarmenn komnir um borð f trilluna. Visismyndir Jóhann Zoega SIGLDI TRILLUNNI BEINTI KLETTANA Litlu munaði, að dauðaslys yrði undir svokallaðri Norð- fjarðarnipu við Nes- kaupsstað siðastliðinn laugardag. Það var um fimmleytið sið- degis, að björgunarsveitin á Neskaupstað fékk tilkynningu gegnum Nesradió frá bát, sem sá strandaða trillu undir svo- nefndri Noröfjarðarnipu, 5-6 km frá Neskaupstað. Aðstæður á þessum stað eru þannig, að undir 400 metra.nær þverhniptu bjargi er miki: tór- grýti. Þegar björgunarsveitin kom á staðinn var trillan komin upp i klettana, en svo heppiljga vilditil,aðveöur vargottog hún skorðaðist milli tveggja steina, óbrotin. Trillan var i gangi, og þegar betur var að gáð var eigandi hennar um borð, og undir áfengisáhrifum. Um miðnætti aðfaranótt sunnudags átti aö reyna að ná trillunni út á flóði, en þá tókst ekki betur til en svo, að hún rakst utan i klettana, brotnaði og sökk. —H.L. FORSÆTISRÁÐHERRA UM SAMNINGA VIÐ EFNAHAGSBANDALAGIÐ: Semjum oðeins um verndun Ekki er ástæða til að búast við meiru en samkomulagi. um verndun fiskistofna viö island eftir að fiskveiöisamningurinn viö Vestur-Þjóðverja rennur út i lok nóvember, að þvi er Geir Hallgrimsson forsætisráðherra sagði á fundi, sem hann hélt ásamt Helmut Schmidt, kanslara Vestur-Þýskalands, með íslenskum og þýskum fréttamönnum. Schmidt sagði, að Efnahags- bandalag Evrópu annaðist héðan i frá samninga um veiðar þýskra togara við Island, og væru þeir þvi alveg komnir úr höndum Þjóðverja. Hann sagðist vona, að samkomulag næðist, enda heföi ha'nn sann- lærst um að róttækar aðgerðir til verndunar fiskistofna viö Is- land væru bráðnauðsynlegar, eftir viðræður við Matthias Bjarnason sjávarútvegsráð- herra. Viðræður Schmidt og Geirs snerust að þeirra sögn talsvert um NATO, eins og viðræður Schmidt við Jimmy Carter Bandarikjaforseta og Pierre Trudeau, forsætisráðherra Kanada. Einnig sagðist Schmidt hafa rætt við Geir, Carter og Trudeau um leiðir til þess að stuðla að þvi, að mannréttinda- ákvæðum Helsinkisáttmálans verði betur framfylgt hér eftir en hingað til. Vilja auka útflutning frá islandi til Þýska- lands Þá ræddu þeir Geir og Scmidt um þróun efnahagsmála i Evrópu og Norður-Ameriku og sagði Schmidt á fundinum, að Island hefði það fram yfir önnur lönd i Evrópu að hér væri ekkert atvinnuleysi, en hins vegur ættu Islendingar greini- lega i talverðum vandræðum með verðbólguna. Bankastjóri Seðlabankans, Davið Ólafsson, talaði við Scmidt, hvernig unnt væri að auka útflutning frá ts- landi til Þýskalands og fjár- hagslega samvinnu milli land- anna. Helmut Schmidt sagðist vera mjög ánægður meö heimsókn- ina til tslands og þær vinsam- legu og hreinskilnu viðræður, sem hann hafi átt við islenska ráðamenn. Hann lét vel af ferð- inni til Vestmannaeyja, kvaöst hafa séð þúsundir sjófugla og lét i ljós aðdáun sina á þeim dugnaði og hugrekki sem Vest- mannaeyingar hefðu sýnt eftir eldgosið i Heimaey. ,,Eg bauð forsætisráðherra i opinbera heimsókn til Þýska- lands og hann þáði boðið, en aö sjálfsögðu er ekkert hægt að segja um það enn, hvenær úr þeirri heimsókn verður”, sagði Helmut Schmidt aö lokum. —AHO

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.