Tíminn - 03.11.1968, Síða 3
SUNAUDAGUR 3. nóvember 1968.
TÍMINN
3
í SPEGLITÍMANS
Hans Peter Matthias og vin
kona hans, Bertil Hildegard,
voru handtekin fyrir skömmu
sökuð um að smygla gullstöng
um til Tokyo. Þau báru á sér
sextíu og fjórar stengur a'ð
verðgildi sextíu og tveggja
þúsund bandarískra dala. Þau
földu gullið í sérstökum þar
til gerðum vestum sem þau
báru innan klæða. Parið játaði
á sig glæpinn þegar í stað, en
á myndinni hér að ofan sjáum
við þau í höndum lögreglunn-
ar.
Meðan unnið er að því að
fullgera fyrsta kjarnorkuknúna
kaupfarið, sem Þjóðverjar
smíða, „Otto Hahn“, starfar
verkfræðingur einn í Hamborg
að nýrri gerð seglskipa.
Verkfræðingur þessi, W.
Prölss, er jafnvel svo bjartsýnn
á notagildi uppfinningar sinnar,
að hann telur, að hún geti
keppt við vélknúin skip. Hefir
hann teiknað sexsiglt skip og
gert af því líkan, sem prófað
hefir verið í vindgöngum skipa
smiðastofnunar háskólans í
Hamborg og þóttu tilraunirnar
með líkanið bera góðan árang
ur.
Eitt af þv£, sem vekur at-
hygli í sambandi við skip
þetta, er að um engan venju
legan reiða eða kaðlabúnað er
að ræða. Sex siglur, sem unnt
er að snúa, standa án nokkurr
ar stoðar stafna á milli á skip
inu. Rárnar eru festar við sigl
una án nokkurrar stoðar
stafna á milli á skipinu. Rárn
ar eru festar við siglurnar og
að auki bogamyndaðar. Seglin
mynda hvelfdan safn- eða drátt
arflöt með góðum loftkraft
fræðilegum eiginleikum. Eru
fimm segl á hverri siglu og
er þeim ekið með því, að
sjálfri siglunni er snúið eftir
þörfum, og er það gert með
vélaafli.
Rannsóknir á líkaninu benda
til þess, að dráttarafl seglanna
á skipi þessu muni tvöfa't meiri
en á venjulegu, fjórsigldu bark
skipi, eins og Pamir gamla,
sem liggur í höfninni í Ham
borg. Ef seglflötur bessa nýja
skips yrði gerður hálfu stærri
en reiknað hefir verið með,
yrði dráttaraflið tveim þriðju
hlutum meiri en á seglskipi
með gamla laginu.
Þegar á allt þetta er litið.
telur uppfinningamaðurinn, að
17,000 lesta seglskip af þessari
gerð eeti með áraneri keppt
við vélknúin skip við flutning
á stykkjavöru.
★
Hver fann upp á bví fyrst
ur manna að reykja síld?
Því var nýlega skotið að okk
ur hér á Tímanum, að hað hafi
verið hollenskur maður að
nafni Biickel. svo greinilegt er
að það er ekki aðeins ostux’ og
túlípanar sem þeir framleiða
í Hollandi. Biickler varð einn
ig svo frægur meðal landa
sinna fyrir uppfinninguna, þ. e.
að hengja smáfisk unn í riáfur
hjá sér og beina reyknum að
þeim, að keisarinn Karl
fimmti sem uppi var á sex-
tándu öld, gerði sér ferð að
gröf Bucklers til þess að sína
í verki þakklæti sitt. Þá vit
um við það.
Julie Christie, leikkonan
brezka, sem fslendingum er
kunn fyrir leik sinn í Sívagó
lækni, er nú ástfangin orðin
í kollega sínum John Hurst.
Hurst er tuttugu og átta ára
gamall leikari, sem reyndar hef
ur ekki heimsfrægð á borð við
Christie, en hann er mjög vel
metinn í heimalandi sínu, Eng
landi, sem leikari, en hann hef
ur þegið margar viðurkenning
ar fyrir frábæran leik á sviði.
Þau Hurst og Christie hafa að
undanfömu leikið saman í
kvikmynd sem verið er að
gera í Sviss og Frakklandi. Það
mun hafa tekið Hurst sex ár
að ná frama á leiksviðinu, en
hann hefur leikið í mörgum
góðum leikritum, svo sem eftir
þá Osbome, Pinter og Wesker.
En þessir höfundar eru frægir
innan leikhúsheimsins og verk
þeirra eru stöðugt flutt víða
um heim, en Hurst hefur tekið
þátt í sýningum á verkum þess
ara höfunda í West End í
London. Hurst er prestssonur
og einn bróðir hans er munk
ur. Á myndinni sjáum við hið
hamingjusama par í bátsferð
á Genfarvatni í Sviss.
Enn þá einu sinni hefur
frægt leiklistarpar ákveðið að
skilja. Og orsökin er of mikil
frægð, of mikill frami. Það er
hinn þekkti franski rithöfund
ur, leikari og fyrrverandi
stjórnarerindreki Romain Gary,
sem hefur krafizt skilnaðar frá
konu sinni, leikkonunni Jean
Seberg. Hann kveðst ekki þola
það lengur að sjá konu sína
hvergi nærri mestan hluta árs
ins. Jean Seberg hefur notið
mikilla vinsælda nokkur und
anfarin ár, sem leikkona, en þó
hefur það verið hald manna að
allt væri í lagi með hjónaband
þeirra Garys. Á meðan hún hef
ur verið önnum kafin við
kvikmyndaleik, hefur hann tek
ið á móti Consourt bókmennta
verðlaununum frönsku fyrir
skáldsöguna „Les Racines du
Ciel“, auk þess sem hann hef-
ur sjálfur aflað sér frægðar
í heimi kvikmyndanna sem
framleiðandi og leikari.
Þau hjón eiga eitt barn sam
an, sem fæddist nokkru eftir
að þau gerðu brúðkaup sitt á
eyjunni Korsíku fyrir fjórum
árum.