Tíminn - 03.11.1968, Page 5
SUNNUDAGUR 3. nóvember 1968.
>
TIMINN
5
FLOWERS KOMNIR
ÚR LUNDÚNAFERÐINNI
Karl Sighvatsson
ÞacS voru fimm hressir ung-
ir menn, sem stigu út úr Rolls
Roys flugfél Loftleiða á Kefla-
víkurflugvelli. Klukkan var
hálf fjögur aðfaranótt mið-
vikudagsins 23. október. „Ó,
je minn, Flowers eru komn-
ir,“ hrópuðu nokkrar stúlkur
upp yfir sig og steingleymdu
um leið, að þær voru komnar
til að taka á móti alvörugefn-
um föður.
Já, það fór ekki á milli mála,
Flowers voru komnir heim,
eftir hálfsmánaðar dvöl í Lund
únum, þar sem hljóðrituð voru
með þeim fjögur lög fyrir
Tónaútgáfuna. Ákveðið var, að
við skildum hittast á föstu-
dagskvöldið, hlusta á upptök-
una og spjalla um ferðina.
— Haldið þið ekki, að
Hljómaplatan sé betri, sagði
ég stríðnislega, er við vorum
seztir inn í bílinn.
— Það er nú að mörgu leyti
ólíku saman að jafna, þótt
hvoru tveggja sé þetta pop-
músik.
Það var Jónas, sem varð fyr-
ir svörum.
— Þeir nota býsnin öll af
aðstoðarhljóðfæraleikurum og
Gunnar Jökull
hafa vel efni á því, enda er
þetta önnur L.P. platan, sem
er tekin upp með þeim i Lon-
don. Hins vegar vorum við
mjög ákveðnir í því að láta
Flowers koma fram „óstyrkta"
á þessari fyrstu hljómplötu
okkar og við erum svo sann-
arlega ánægðir með árangur-
inn í hei'ld, þótt alltaf finnist
manni, að hægt sé að gera
betur.
Við vorum komnir á áfanga-
stað og hröðuðum okkur upp
í íbúð þeirra félaga, og þar
héldum við áfram spjallinu.
—- Hvernig leið fyrsti dagur
inn ykkar í London?
Karl: Við fórum að litast
um í verzlunum, og ég var svo
heppinn, að koma á tvo staði,
þar sem sýnd voru beztu hamm
ondorgel, sem framleidd eru,
og auðvitað reyndi maður nokk
ur. Það dýrasta kostaði 5600
pund og auðvitað varð endir-
inn sá, að ég pantaði einn
mjög svo vandaðan grip.
— Þið hafið væntanlega
gert ykkur heimakomna í hin-
um ýmsu klúbbum borgarinn-
ar
Sigurjón: Já, heldur betur.
Sigurjón Sighvatsson
fyrsta kvöldið heyrðum við í
Blue Cheirs og það var örugg-
lega hávaðasamasta hljómsveit
in, sem við höfðum tækifæri
til að sjá og heyra.
Arnar: Persónulega er ég
hrifinn af síðu hári, en þessir
piltar fóru út fyrir öll tak-
mörk, þar að auki var þetta
illa hirt, en þeir voru allir góð-
ir músíkantar, það vantaði
ekki.
Jónas: Það má segja, að það
hafi verið undantekning, ef
einhver í hljómsveitunum var
ekki undir áhrifum eiturlyfja.
Þetta virtist vera ríkjandi
tízkufyrirbrigði hjá blues-
hljómsveitum — mjög svo
hvimleitt, að því að okkur
fannst.
Gunnar: WIio voru með sína
gömlu stælana, brutu gítarana
og stilltu allt á fullan kraft,
þannig að við lá, að okkur
þætti nóg um og er þá mikið
sagt. Annars var ég hrifnast-
ur af hljómsveit, sem nefnir
sig „Yeas“.
Karl: Arthur Brown var stór
kostlegur og orgelleikarinn
hreinn snillingur.
Arnar: Mothers of Invention
Jónas Jónsson
og Alan Brown — þetta voru
nöfnin, sem vöktu mesta hrifn
ingu hjá mér.
Sigurjón: Blue Oheirs og
Scott Walker voru líka stor-
kostlegir, en það sem vakti sér
staka athygli hjá okkur, var
hvað allar hljómsveitaskipting
ar á sviðinu gengu fljótt og
vel fyrir sig.
Jónas: Ég vil endilega koma
þvi fram, að ég komst á kon-
sert hjá Tom Jones, en það
er meira en hinir strákarnir
geta sagt. Hann og Shadows
vöktu hvað mesta hrifningu
hjá mér, að ógleymdum Alan
Bown.
— Síðan hefur röðin komið
að plötuupptökunni?
Gunnar: Við vorum eitt
kvöld fram á nótt að spila
þessi lög og okkur líkaði mjög
vel við tæknimennina og all-
ur útbúnaður var fyrsta flokks,
eins og allir vita, er þekkja
til De Lane Le stúdíó.
— Hvað heita lögin?
Sigurjón: í laginu eftir
Kalla, „BIómið“, fær Jónas frí,
hvað söng sneríir, en leikur
í þess stað á flautu. Andvaka"
er eftir Kalla og Arnar þá
Arnar Sigurbjörnsson
vorum við svo heppnir að fá
lag hjé Rúnari Gunnarssyni,
„Glugginn“ nefnist það. Fjórða
lagið er erlent, en hjá okkur
heitir það „Slappaðu af“, Þor-
steinn Eggertsson samdi alla
textana.
— Spiluðuð þið í einhverj-
um af þessum klúbbum?
Gunnar: Já við vorum svo
heppnir, að fá boð um að
spila í Marquee, en það er
einn þekktasti og viðurkennd-
asti táningaklúbburinn í Lond
on. Móttökurnar voru betri en
við bjuggumst við
Kalli: Þetta var í alla staði
mjög ánægjuleg ferð, sem verð
ur okkur alltaf ógleymanleg.
Sérstaklega ber að þakka Tóna
útgáfunni fyrir þeirra hlut. Þá
var aðstoðarmaðurinn okkar,
Ágúst Ágústsson, ómissandi í
ferðinni.
Þannig lýkur þessu viðtali.
Mér gafst kostur á að hlýða
á upptökuna og er bjartsýnn
á móttökuraar, er þessi fyrsta
hljómplata Flowers kemur á
markaðinn.
Benedikt Viggósson.
MÁLEFNI ALÐRAÐRA VERDA
TEKIN FYRIR Á UMRÆÐUFUNDI
í dag, sunnudag, efna ungir
Framsóknarmenn til almenns um-
ræðufundar um málefni aldraðra
undir heitinu: Hvað er hægt að
gera fyrir gamla fólkið- Fundur-
inn verður haldinn í Tjarnarbúð
í Keykjavík og hefst kl. 14.
Allir, og ekki sízt aldrað fólk er
velkomið á fundinn. En framsögu
menn á fundinum verða:
Guðmundur J. Guðmundsson
varaformaður Dagsbrúnar, sem
ræðir um „þátt aldraðra í atvinnu
lífinu".
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri:
Ellin og framtíðin.
Páll Sigurðsson, trygginga-
læknir: Opinber hjá'lp við aldraða
Ingvar Gíslason, alþingismaður:
Lífeyrissjóður fyrir alla lands-
rnenn.
Ungir Framsóknarmenn munu
aðstoða gamalt fólk, sem þess
óskar, með því að aka því til
og frá fundarstað endurgjalds-
laust. Þeir sem vilja færa sér
það í nyt hafi samband við skrif-
stofu Sambands ungra Framsókn-
armanna í síma 24484 fyrir lok
vikunnar.
Jón Grétar Sigurðsson
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 6
Simi 18783.
FRAMNESVEGl 17
Framsóknarvist á Hótel Sögu fimmutd
Næstf? Framsóknarvist
Framsóknarfélags Reykja-
víkur verður fimmtudag
inn 7. nóv. á Hótel Sögu.
Kvöldverðlaun verða veitt
og ennfremur er spilað um
flugför til útlanda sem
heildarverðlaun í þessari
3ja kvölda keppni.
Steingrímur Hermanns-
son, framkvæmdastjóri,
7. nóv.
flytur ávarp, og að lokum
verður dansað. — Viss-
ast er að panta miða
sem fyrst í síma 24480, þar
sem þegar eru farnar að
berast pantanir.
SÍMI: 122«
Framkvæmir handunnið
bókband, fyrir bóksöfn,
einstaklinga og fyrirtæki.
Gylli nöfn á servíetttxr,
sálmabækur, biblíur o. fl.
Vönduð vinna og efni.
Reynið viðskiptin.