Tíminn - 03.11.1968, Side 8

Tíminn - 03.11.1968, Side 8
8 TIMINN SUNNUDAGUR 3. nóvember 1968. Gjaldeyristekjur hækk- uðu 122% frá 1958-'66 Sigurður Þórðarson Með Sigurði Þórðarsyni, tón- skáldi og söngstjóra, er failinn í val mikilhæfur forystumaður í íslenzku tónlistarlífi á síðustu áratugum. Hann auðgaði þjóð- ina að góðum sönglögum og jafnvel söngleikjum og var for ystumaður í söngstarfi, sem mátti heita kórskóli í landinu og hafði mikil og víðtæk áhrif. Sigurður Þórðarsonar verður jafnan minnzt sem eins braut- ryðjendanna í íslenzku tón- menntalífi eftir að snerting við umheiminn fór að hafa veruleg áhrif á það, og hann kunni að meta íslenzkan arf í þessari grein til jafns við aðdregin föng. Tenglar Að undanförnu hefur staðið yfir svonefnd geðheilbrigðis- vika, þar sem reynt er að fræða fólk um eðli og meðferð geðlægra sjúkdóma og vekja menn til mats á því, hvernig sú heiibrigðisþjónusta er á vegi stödd hér á landi. Viðhorf al- mennings til þessara mála hef- ur verið með annmörkum, sem nauðsynlegt er að víkja úr vegi, og mikil breyting til batnaðar hefur orðið á því síðustu ár. Það er deginum ljósara, að sjúkrarými fyrir geðsjúka menn er allt of lítið, sérfræði- þjónusta hvergi nærri nóg og aimenn hjálparstarfsemi hverf- andi. Geðverndarfélög hafa þeg ar þokað mönnum til betri skiln i ings á málinu, og starfsemii ungs fólks í samtökum, sem| Tenglar nefnast er eitthvert hið ánægjulegasta framlag til hjálp ar, sem gert hefur verið hér á landi. Það starf er unnið af skilningi, bróðurhug og fórn-| fýsi og mun áreiðanlega verðaj fleira fólki að liði en nokkurn grunar. Þetta unga fólk á skild- ar þakkir í ríkum mæli, skiln- ing við störf sín og alla fyrir- greiðslu. lingir og aldnir Það er mjög um það rætt um þessar mundir, að unga fólkinu þyki hinir eldri sitja allmjög yfir í hlut þess, einkum í stjórn málum, og mætti virðast, sem æskan vildi víkja hinum eldri alveg frá öllum ráðum og um svifum lífsins, þegar þeir eru komnir á áttræðisaldurinn. >etta er auðvitað misskilningur og mjög ánægjulegt er að sjá pess glögg dæmi, að ungt fólk er ekki skilningslaust á mál- efni og vanda aldraðs fólks og vill kynna sér mál þess og stuðla að lausn vandamála, sem þar er um að ræða. Fundur sá, sem Samband ungra Framsókn- armanna gengst fyrir um þess- ar mundir til umræðna um mál efni aldraðs fólks. er alger ný- lunda af hálfu æskulýðssam- taka og verðux vonandi vísir að betri tengslum milli kynslóða sem tíminn hefur skilið að með nokkrum hætti. Hvað er framundan? Síðustu áratugina mun sjald- an eða aldrei hafa gætt eins mikils ótta og óvissu meðal al- mennings um það, sem fram- undan er í stjórnmálum. og efna hagsmálum landsins. Þjóðinni er smátt og smátt að verða ljóst hve ástandið er orðið geigvæn- legt, hvernig þjóðin rambar nú á barmi efnahagshruns og hver sú byrði er, sem hún verður að leggja sér á herðar í allra næstu framtíð. Þetta fall er hátt ofan úr loftköstulum „viðreisnar”- 'stjórnarinnar, sem sagði þjóð- inni það síðast í marz á þessu ári, að „tekizt hefði að leysa all an vanda betur en nokkur hefði þorað að vona“. Sú blekkinga- iðja ríkisstjórnarinnar að mála allt rósrautt og þykjast ekki sjá neinn vanda, meðan allt var að hrynja, verkar nú þannig, að menn vita varla, hvaðan á þá stendur veðrið, þegar staðreynd irnar blasa við, og eiga bágt með að trúa því, að ástandið sé svo alvarlegt sem naun ber vitni. Ríkisstjórnin hefur gefizt upp í verki og beðið minni- hlutaflokkana ásjár, en hins veg ar er henni blekkingaiðjan svo töm, að hún vill ekki gera 'það í orði og segja af sér. Sé henni fullkomin alvara með að leita eftir samstjórn allra flokka um lausn brýnasta vand- ans, á hún að segja af sér til þess að sýna einlægni sína og gegna lýðræðislegri skyldu. Þannig á hún að hafa manndóm til þes-s að játa einnig í orði mistök stefnu sinnar og getu- leysis til þess að ráða við vand- ann. Þjóðin lítur þetta áreiðan- lega sömu augum og ungi sjálf stæðismaðurinn, sem sagði: Telji hún sig ekki færa um að leysa vandann, á hún að segja af sér. Þessi tvískinnungur rík- isstjórnarinnar veldur nú meiri ringulreið en flest annað og veldur því, að menn vita ekki, við hverju þeir mega búast. Hann torveldar áreiðanlega samstöðu allra flokka um lausn vandans og getur hæglega svo farið, að hann komi í veg fyrir hana. því einu að kenna, að útflutn- ingsverðmæti eða gjaldeyris- tekjur þjóðarinnar verði um 40% minni árið 1968 en árið 1966, og komu þó um 30% af þeirri lækkun fram á árinu 1967. Hins vegar er þess ekki látið getið um leið, þótt talandi tölur sýni það, að gjaldeyris tekjurnar höfðu áður hækkað frá árinu 1958 til 1966 um hvorki meira né minna en 122% reiknað á sama gengi, þannig að árið 1966 er svo al- gert metaflaár og hátindur nokkurra samfelldra stórafla- ára og hávirðis, að 40% lækk- un frá því er ekki nema helm- ingsmissir þeirrar aukningar sem orðið hafði á næstu árum áður. Það er því fullkomin lítils virðing við heilbrigða skynsemi manna að halda þvi fram, að vandinn stafi allur af þessari rýrnun en ekki að miklu meira leyti af rangri og hættulegri stjórnarstefnu og lélegum stjórnartökum. Þótt þetta sé eina haldreipi ríkisstjórnarinn- ar til sjálfbjargar, mun það ekki duga henni lengi til þess að bjarga andliti „viðreisnar- innar“. Þjóðinni er smátt og smátt að verða ljóst hið rétta eðli málsins á sama hátt og mynd hins geigvænlega hættu ástands skýrist með degi hverj- um. Enn 60% hærri en 1958 Samkvæmt síðustu upplýsing um í skýrslum Seðlabank- ans voru gjaldeyristekjur þjóð- arinnar af vöruútflutningi og þjónustu árið 1966, miðað við gengi 24. nóv. 1967, samtals 9.090,4 milljónir króna. Sé mið að við þá áætlun stjórnarinnar nú, að þessar gjaldeyristekjur verði 40% lægri árið 1968 en var 1966, þá ættu þær að verða 6.493,1 milljón. Útflutningstekjur af vörum og þjónustu árið 1958 voru sam kv. sömu skýrslum 4.056,5 milljónir kr. Hækkunin frá þeirri upphæð til 1966 er um 122%, allt reiknað á núverandi gengi. Þrátt fyrir 40% lækk- unina til 1968 eru þessar tekj- ur samt enn um 60% hærri en þær voru 1958 fyrir tíu árum. Nú er eðlilegt að útflutnings- tekjur hækki um nokkur pró- sent á ári í samræmi við fólks- fjölgun o.fl. þótt ekki sé tekið tillit til sveiflna, en samt er enn þá eftir töluverður skerfur af hækkuninni miklu á góðær- um fyrir 1966, og árið í ár er meira en meðalár áratugsins að verðlagi og aflafeng og getur því í sjálfu sér ekki kallazt meira „hallæri“ en svo, að vit- urlegt stjórnarstefna ætti að geta bjargað málunum. Skuldabagginn er verstur Þegar málin eru skoðuð bet- ur kemur einnig í ljós, að það er alls ekki þessi rýrnun út- flutningstekna, sem er alvarleg asta efnahagsmálið, því að þótt við hefðum þar enn verið í hámarkinu frá 1966, væri allt komið undir kvið á viðreisnar- dróginni eigi að síður. Eðlilegt hefði mátt telja, að erlendar skuldir hefðu verið lækkaðar nokkuð á góðu árunum, en því fór svo fjarri, að þeim hefur ekki einu sinni dugað að hækka og 60% eins og útflutningstekj unum, heldur hafa þær hækkað um rúm 200% og eru nú, bæði fastar og lausar, um 10 millj- arða króna, þar af lausaskuldir um milljarður. Nú er talið, að vextir og afborganir þessara skulda verði á næsta ári 15— 20% af gjaldeyristekjum þjóð- arinnar, og er það hærra en þjóðin er fær um að bera. Dularfulla blómið Dularfulla blómið — og raun ar eina skrautblómið, sem „við- reisnin hefur veifað, er svo- nefndur „gjaldeyrisvarasjóð- ur“, sem þjóðin „eignaðist“ á góðu árunum og ráðherramir segja er nú horfið með jafndul arfullum hætti og það varð tiL Stefán Jónsson, framkvæmda- stjóri, hefur í glöggri grein hér í blaðinu nýlega sýnt skilmerki lega og óhre-kjanlega fram á, hvert þetta eignarhald þjóðar- innar á þessum fræga sjóði var. Menn hafa hingað til haldið, að „varasjóð“ væri aðeins unnt að mynda af ágóða og arði, en töl- ur Seðlabankans sýna, að hann er ekiki annað en dálítiil hluti af skuldahækkuninni er- lendis. Hann var aldrei til, og þess vegna víðs fjarri allri heilbrigðri skynsemi að hann mætti nota til eyðslu, þeg ar harðnaði í ári, fremur en það er skynsamlegt að taka lán til þess. En þetta er ekki öll sagan. Viðreisnarstjórnin hafði klærn- ar úti sem hún mátti á innlend- um lánamarkaði. Á þessum fcíu árum hefur hún tekið að láni hjá sparifjáreigendum með því að yfirbjóða bankana nær þrjá' milljarða til eyðslu og fram- kvæmda, sem áður var lagt til fé á fjárlögum ríkisins, sem þó. hafa margfaldazt að upphæð á áratugum. Atvinnulíf í rústum En allt þetta væri bærilegt og afsakanlegt, ef skynsamlegir stjórnendur hefðu notað þetta spariifé og stórlán til þess að byggja upp og styrkja íslenzkt atvinnulíf, því að það er sá eini varasjóður, sem nokkurs er um vert. En hvaða mynd blasir þar við? Atvinnuvegir í rústum. Venjulega stofnlánasjóði at- Framh'ald á bls. 13 Sjálfsbjörg Ríkisstjórnin virðist um þess- ar mundir varla eiga nema eitt baráttu- og áhugamál, en það er að freista þess að bjarga sjálfri sér undan fordæmingu staðreyndanna á „viðreisninni" Morgunblaðið er að vísu hætt því síðustu vikurnar að taka svo til orða, að viðreisnin hafi tek- izt eins og kvað við hvern dag fram eftir öllu sumri. En Mál- gögn stjórnarinnar hamra á þvi linnulaust, að allur vandinn sé SuSureyrl vi3 Súgandafiör8 er myndarlegt kauptún, sem oft hefur skilað miklum hlut I þjó6arbúið. Nú standa þar öll hjól kyrr og naer aigert atvinnuleysi ríkir.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.