Vísir - 03.08.1977, Blaðsíða 5
Castro margfaldar
vopnasendingar til
svartra í Rhodesíu
Fidel Castro hefur lof-
að að láta þjóðernis-
sinnuðum blökkumönn-
um i Rhodesiu i té öll
þau hergögn sem hann
mögulega má. Hinsveg-
ar er ekki til umræðu á
þessu stigi að kúbanskir
Indira Gandhi.
hermenn verði sendir til
að berjast i Rhodesiu.
Það var Jhosua Nkomo, einn af
leiðtogum frelsissamtaka blökku-
manna i Rhodesiu, sem skýrði frá
þessu á fundi með fréttamönnum.
Nkomo sagði að fram aö þessu
hefðu samtökin fengið vopn frá
Kúbu, Sovétrikjunum og öðrum
kommúnistarikjum, en nú yrði sú
breyting á samskiptum við Kúbu
Indira Gandhi hefur verið sök-
uð um grófleg brot á lögum um
fjölmiðlafrelsi á því timabili sem
neyðarlög hennar voru I gildi. I
skýrslu sem rikisstjórnin hefur
sent frá sér segir að hún hafi látið
handtaka og reka blaðamenn úr
landi í stórum stfl.
Alls voru 253 blaðamenn hand-
teknir. Fimmtiu og einn blaða-
maður og ljósmyndarar voru
sviptir atvinnuleyfum, sjö er-
lendir fréttamenn voru reknir úr
að vopnasendingar þaðan mundu
margfaldast.
„Fidel Castro lofaði að senda
okkur öll þau vopn sem hann gæti
mögulega látið af hendi”, sagði
Nkomo. Blökkumannaleiðtoginn
sagði að vopnasendingar frá
Kúbu gætu þvi fimmfaldast á
næstunni.
Aðspurður um kúbanska her-
menn, svaraði Nkomo:
„Við heyjum sjálfir okkar
strið”.
landi og 29 i viðbót fengu ekki að
koma þangað.
Þá segir i skýrslunni að fjöl-
miðlar hafi verið til þess neyddir
með öllum tiltækum ráðum að
fylgja stefnu rikisstjórnarinnar
og gagnrýna hana ekki.
Þetta var meðal annars gert
með beinni ritskoðun og með þvi
að rikisstjórnin tók að sér að út-
hluta prentsvertu. Ef menn voru
óhlýðnir, fengu þeir enga prent-
svertu og blöðin hættu einfaldlega
að koma út.
íf -
Indira lagði blöðin
undir járnhœl sinn
Það var hörku beitt á báða bóga þegar franskir
lögreglumenn og mótmælendur kjarnorkuvera
tókust á um helgina. Hér er einn mótmælenda i
höndum hjúkrunarliðs og virðist sárþjáður.
*
Hrmgferð um golfvelhna. Rætt viö þá sem þar starfa.
Dwight Stones. Sagt frá heimsmethafanum í hástökki sem er
þekktur fyrir að segja skoðun sina umbúðalaust.
*
utillf. Viðtöl viö forsvarsmenn Otilffs, Ferðafélag tslands og
feröaskrifstofu rfkisins um útilif og ferðalög. Rætt um sjóstanga-
veiði og bátasport. Tryggvi Gunnarsson ritar um hestamennsku.
Enska knattspyrnan. Rætt um ensku knattspyrnuna og Kevin
Keegan sem nú gengur i raðir Hamburger SV.
íþróttabiaðið. málgagn iþróttasambands íslands og vettvangur
57 þúsund meðlima iþrótta-og ungmennafélaganna um alit land.
*
Til iþróttablaðsins Armula 18 pósthóli 1193, Rvfk.
Óska eftir áskrift.
Nafn:
lieunilisfang:
Simi:
er komið út
Meðal efnis:
Viðtal við Inga Björn Albertsson, einn fremsta knattspyrnu-
mann landsins. Kjallað cr um Val, landsliðið og samskiptin við
Tony Knapp, en þeir Ingi Björn og Tony eru ekki einkavinir.
Vcrða afburðamenn framtfðarinnar búnir til I tölvum? Rætt um
þjálfun Iþróttafólks sem er nánast oröin vfsindagrein.
Utanfarir iþróttafóiks. Jóhannes Sæmundsson fræðslufulltrúí ISt
gerir grein fyrir því helsta sem Iþróttafólk þarf aö hyggja að í
keppnisferðalögum.
*
*
*