Vísir - 03.08.1977, Blaðsíða 23
Sukk á Rauðhettu
Rósa hringdi:
Mikil hörmung var að fylgjast
meö þessu svokallaða Rauðhettu-
móti, sem haldiö var aö Olfljóts-
vatni um verslunarmannahelg-
ina. Fylleriið og sukkið á ungling-
unum var svo gifurlegt að maður
hefur aldrei séð annaö eins og
kallar þó ekki allt ömmu sina i
þeim efnum. Þau veltust þarna
um fatalaus, matarlaus en ekki
brennivinslaus.
Það var ekki hægt að sjá að
þarna værinein gæsla, og ef spurt
var um hana, þá sögðust skátarn-
ir ekkert mega gera, það væri
lögreglunnar. Málið var hinsveg-
ar ekki svo einfalt þvi varla sást
lögregluþjónn á svæðinu.
Ég á bágt með að trúa þvi á
skátana að þeir haldi svona mót
til að græða peninga, en eftir að
hafa verið þarna er ég hér um bil
viss um að þetta var gert i þeim
tilgangi einum. Til dæmis var
mér og manninum minum ekki
leyftað hjálpa tveim 12 ára strák-
um sem viö ókum á mótið, að
tjalda á föstudagskvöldið nema
að kaupa okkur inn á hátfðina fyr-
ir 5 þúsund krónur.
Það hjálpar náttúrulega til við
að setja ljótan svip á svona hátið
að veðrið var ekki eins og best
verður á kosið. En svæðið var
hryllilega sóðalegt og það var ó-
skemmtilegt að horfa á 12 ára
krakka veltast fram og aftur
dauðadrukkna. Við spurðum einn
skátann af hverju hann tæki ekki
vinið af krökkunum. Hann svar-
aði þvi til að þeir mættu ekki að-
hafast neitt i þá átt og bæru enga
ábyrgð . Þritugur maðurinn mátti
ekki taka vin af 12 ára gömlum
krakka! Hvað á maður að halda?
Við sjáum einn lögregluþjón á
svæðinu þann tima sem viö dvöld-
umst þar. Enda var þaö svo að
það var heilmiklu stolið frá strák-
unum sem við fórum meö þarna
uppeftir, m.a. fatatösku, mat og
fleira. Við fórum til skátana og
báðum þá að taka niður nafn og
heimilisfang ef eitthvað kæmi i
ljós þegarfarið væri að hreinsa til
á eftir. En þeir sögðu þá aö þeir
tækju enga ábyrgð á þvi þó ein-
hver ju væri stolið og vildu ekkert
skipta sér af málinu.
Ég man ekki hvort þetta var
auglýst sem bindindismót, enda
skiptir þaö kannski ekki öllu máli.
Eitt er vist að þarna var ekkert
gert til aö koma i veg fyrir aö
unglingarnir væru að drekka. Og
þaö sárnaði mér á móti sem skát-
arnir halda. Það var vond pen-
ingalykt af þessu öllu.
Kossasamkeppnin
algjört hneyksli!
Kona úr Kópavogi hringdi:
Mikið er ég hneyksluð á þess-
ari kossasamkeppni sem var
haldin á einni af útiskemmtun-
unum um siðustu helgi. Ég er
ekki ein af þeim sem finnst það
ljótt eða óeðlilegt að ungt fólk
kyssist ef það er ástfangið. Mér
er líka alveg sama þó það sé
gertþarsem aðrir sjá til, það er
ungu, ástföngnu. fólki bara eðli-
legt og heilbrigt. En að vera að
standa uppá sviði og kyssast
timunum saman fyrir peninga,
það er einum of mikið, og mér
finnst furðulegt að skátar skuli
standa fyrir jafn ósiðsamlegu
athæfi. Unga fólkið stóð þarna i
rigningunni uppá sviöi og kysst-
ist i von um að fá einhver verð-
laun. A meöan voru áhorfendur
að hlæja og hrópa og benda. Þaö
er eitthvaö sjúkt við svona lag-
að.
Maður biður bara eftir þvi að
fólk fari að eðla sig uppá sviöi.
Það er ekki annaö eftir.
Þjóðminjasafnið opnað...
...og svo lokað strax aftur!
Magnús Guðmundsson hringdi:
Ég fékk nokkra erlenda kunn-
ingja mina i heimsókn i siðustu
viku og sýndi þeim það mark-
verðasta sem tök voru á að
skoða á stuttum tima. Þetta er
ekki frásögur færandi og ekki
heldur það að ég fór með þá vítt
og breitt um suöurland i vik-
unni sem leið. Hitt er svo annað
mál að á sunnudaginn ákvað ég
að fara með þá i Þjóðminjasafn-
ið.
Við vorum komin þangaö um
klukkan þrjú á sunnudag. Þegar
við vorum rétt að byrja að skoða
safnið heyrðust miklar
hringingar, ljós var kveikt og
slökkt, og hópur af fólki, aðal-
lega gömlum konum spratt upp
og rak alla sem i safninu voru
út. Beina leið út. Rétt þegar ver-
ið var að ýta mér útum aöal-
dyrnar náði ég að spyrja eina
konuna um ástæðuna. Jú, Þjóð-
minjasafnið er ekki opiö nema
frá klukkan tvö til fjögur.
Ég ætla ekki að fara að ásaka
starfsfólk safnsins fyrir að reka
okkur út, það var sjálfsagt að-
eins að vinna sitt verk. En að
þjóðminjasafnið skuli ekki vera
opið nema i tvær klukkustundir
á dag, er beinlinis fáránlegt.
Safnið er það viðamikið og stórt
að maður kemst hreinlega ekki
yfir að skoða það á tveim tim-
um. Maður hleypur bara i gegn
og svo koma bjöllurnar og
slökkt ljós.
Ég hef heldur ekki vitað til
þess að fólk sé beinlinis rekið út
úr svona söfnum, án þess það
hafi tima til að anda. Erlendis
koma safnverðir til manns og
láta góðfúslega vita að það sé
búið að loka. Siðan er þeim sem
inni eru gefin um kiukkustund
til aö koma sér út.
I þjóöminjasafninu var ný-
kominn inn stór hópur af erlend-
um ferðamönnum, með leið-
sögumann og tilheyrandi. Fólk-
ið stóö i anddyrinu og var að
taka af sér yfirhafnir, þegar þvi
var umsvifalaust snúið til baka
og smalað útfyrir.
Það er alveg lágmark að safn-
ið sé opið i 6-8 tima á dag og að
þeir sem á annað borð eru
komnir inn geti litið aðeins i
kringum sig áður en þeim er ýtt
út.
Munið
alþjóðieyt
hjálpar.starí
Rauóa
krossins
RAUÐI KROSS tSLANDS
Vörumarkaðurinnhf.
r*
iiim
Vinsamlegast sendið mér litmyndabækling með verðum
yfir ELECTROLUX heimilistæki.
Nafn:
Sýsla
Armúia la, Simi 86117