Tíminn - 23.11.1968, Blaðsíða 5
Föstudaginn 29. nóv. kl. 21.15 flytur sjónvarpið þáttinn VIRGINÍUMAÐURINN.
James Drury og Sara Lane.
[hafi þáttarins er spjallað við þá
báða. Munu sjónvarpsáihorfendur
væntanlega hafa mikinn áhuga á
þessum þætti, þar sem íslendingar
hafa mikið dálæti á Askenazy, jafn
vel enn meira en nágrannaþjóðirn
ar.
Að þessum þætti loknum hefst
nýtt firamhaldsleikrit fyrir sjón
varp, og nefnist „Afglapinn“, en
þættirnir eru fimm. Eru þættir
þeasir byggðir á hinni heimsfrægu
sögu Fyodor Dostójevskýs.
Dostójevský var sem kunnugt
er einn af mestu skáldjöfrum
Rússlands á siðustu öld. Hann
fæddist í fátækt árið 1821, lifði
sórlega stoirmasömu lífi bæði í
Rússlandi, og um langan tíma í
eins'kionar útlegð í Frakklandi, ítal
íu og Þýzkalandi. Hann tók mikinn
þátt í stjórnmálum samtíðarinnar
og skiáldsögur hans, sem eru fjöl-
margar og misjafnar, eru alltaf
öðrum þræði innlegg 1 pólitíska
baráttu og mótsetningar samtíma
skáldsins, sem andaðist 1872.
Skáldsagan „Afglapinn“ kom
út árið 1868, og er atburðarik auk
þess sem hún lýsir mótsetningun
um, sem felast annars vegar í
mannleigum ástríðum og hins veg
ar í hinni fullkomnu góðvild. Höf
uðpersóna sögunnar er Myshkin
prins, sem kallaður er afglapinn,
og dregur sagan nafn sitt þar af.
En persónur sögunnar eru fjöl
margar, eins og títt er um rússn
esk s'kiáldverk, og örlög þeirra
mismunandi en yfirleitt dramatísk.
Munu margir vissulega bíða þessa
framhaldsleik'rits með eftirvænt-
ingu, og það með réttu.
Eftir fréttiir á mánudaginn er
25 mínútna skemmtiþáttur
„Hljóma“, hljómsveitarinnar frá
Keflavík, og söngkonunnar Shadie
Owens. Siðan er Saga Forsyteætt
arinnar, en að henni lokinni er
mynd um innrásina í Tékkóslóva
kíu. Þessi mynd fjallar um atburði
innrásardaginn í Slóvakíu, og var
henni smyglað út úr landinu. Verð
ur fróðlegt að sjá þessa að því er
virðist athygli’sverðu heimildar
mynd.
Með aðalhlutverkin fara Lee Cubb,
Er sýndur hefur verið an-nar þátt
urinn um „Leitina að Ha-rry á
þriðjudagskvöldið, er rúmlega
klukkustundar þáttur um geimferð
ir Rússa, en þeir hafa verið að
skjóta upp hve-rju geimfarinu á
fætur öðru undanfarna daga. Þar
sem lítið hefur verið um fréttir
af geimferðum Rússa, er tímabært
að við fáum að kynnast nánar
geimrannsóknum fyrir austan
járntjaldi og þeim mönnum, sem
þar standa á bak við.
Á miðvikudagskvöldið kl. 20.
55 verður sýnd bandarisk kvik
mynd með Ritu Hayworth og Glenn
Ford í aðalhlutverkum, en það ætti
að tryggja skemmtilega mynd.
Á föstudagskvöldið mun Lúðra
sveit Reykjavíkur leika nokkur
lög, meðal annars úr kvikmyndinni
„Tónaflóð“, sem náð hefur mikl-
um vinsældum víða um lönd. Síð
an er kvikmynd um listamanninn
Victor Pasmore, og verk hans.
Er rakin þróun listamannsins frá
natúralisma til abstraktlistar.
— A.K.B.