Tíminn - 26.11.1968, Síða 12
12
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 26. nóvember 1968.
Ársþmg Knattspyrnusambands íslands:
Albert formaður KSÍ
Árið 1968 var að mörgu leyti merkilegt og viðburðaríkt knattspyrnuár.
Alf-Reykjavík. — Albert Guð-
mundsson var kjörinn formaður
Knattspymusambands íslands á
ársþingi sambandsins á sunnudag-
inn í stað Björgvins Schram, sem
baðst undan endurkosningu, en
Björgvin hefur verið formaður KSÍ
s.l. 14 ár. Auk Alberts var Ingvar
N. Pálsson, varaformaður KSÍ, í
framboði við formannskjör. Illaut
Ingvar 30 atkvæði, en Albert 72.
Ávarpaði Albert þingheim í lok
þingsins og þakkaði það traust,
sem sér hefði verið sýnt.
Hann sagði enn fremur, að tíminn
myndi leiða í ljós, hvort fulltrú-
ar hefðu valið rétt. Einnig þakk-
aði Albert Björgvini Schram fyrir
giftudrjúg störf í þágu KSÍ.
Ragnar Lárusson, Helgi V. Jóns
son og Sveinn Zöega voru allir
endurkjömir í stjómina, en fyrir
í stjórninni voru Ingvar N. Páls-
son Jóh;^Wagúússón .pg Hafsteinn
Guðmunusspn, en.þc\r vprú, k|öm
ir til tveggja árá á síðasta árs-
þingi.
Skýrsla stjórnarinnar bar tneð
sér, að vel íhefur verið unnið að
málefnum knattspyrnunnar á
þessu ári. Er áxið 1968 að mörgu
leyti merkilegt knattspyrnuár, sér
staklega vegna unglingastarfsins,
en á árinu var haMið vel'heppnað
Norðurlandamót unglinga í knatt
spyrnu, þar sem ísland náði 2.
sæti. Einnig má minna á prýðilega
frammistöðu í Evrópubikarkeppn
inni. Jafntefli Vals við Benfioa og
ágæt frammistaða KR-inga gegn
grísku meisturunum.
Starfsemi KSÍ v/tr margháttuð
og er þetta eitt athafnasamasta ár
í langan tíma, þótt auðvitað megi
að mörgu finna. Meðal nýjunga,
sem stjórn KSÍ beytti sér fyrir á
árinu var útgáfa fréttablaðs, sem
mæltist mjög vel fyrir. Stj'órnin
hefur unnið að undirbúningi
fyrsta íslandsmóts í knattspyrnu
innanhúss og eru allar horfur á
því, að það mót fari fram í vetur.
Talsverðar umræður voru á
þinginu. Samþykkt var tillaga frá
mffliþinganefnd um skipulags-
breytingar á starfsemi KSÍ. í till
ögum er gert náð fyrir nánara
samstarfi milli stjórnar KSÍ og
hinna ýmsu nefnda, sem starfa á
vegum hennar. M.a. munu for-
menn nefnda sitja annan hvern
stjórnarfund og hafa þá tillögu-
rétt. Aliar nefndar eiga að gera
starfsiáætlun í byrjun starfsárs.
Hver nefnd verður skipuð 3 mönn
um nema landsliðsnefnd _ eftir,
nánari ákvörðún stjórnar KSI. Get |
ur stjórnin því alveg eins falið j
einum manni að annast um mál-
efni landsliðsins.
Talsverðar umræður voru á
þinginu um tillögu, sem gerði ráð
fyrir því, að frekari^ fjölgun liða
í 1. deild yrði frestað. Sýndist
mönnum sitt hvað um það efni, en
að lokum var tillagan felid og verð
ur því stigið til fulls það skref að
fjölga liðunum í 8. í þessu sam-
bandi er rétt að geta þess, að sam j
þykkt var tfflaga um breytt fyrir- j
komulag á fjölguninni. Á þessu
ári voru tvö efstu liðin í 2. deild
og neðsta liðið í 1. deild látin
leika í 3ja liða keppni um þap tvö
sæti, er losnuðu í deiMinni. Þessu
var breytt á þinginu þannig, að
að neðsta liðið í 1. deild verður
látið leika gegn því liði, sem bíð-
ur lægri hlut í úrslitaleik 2. deiM
ar. Fer liðið, sem sigrar í þeirri
viðureign upp í 1. deiM ásamt lið
Framhald á bls. 14 i
Ragnar Lárusson, gjaldkeri KSI, færir Björgvin Scjiram hina veglegu styttu, si
og stjórnarmenn KSÍ; gáfu saméiginlega. Til nægri. sést hinn hýkjörni form. KSÍ,
vel tiimin störf
Fáir eða engir hafa þjónað
knattspyrnuíþróttinni hér á
landi af meiri samvizkusemi
og dugnaði en Björgvin
Schram, fráfarandi formaður
KSÍ, en hann gaf ekki kost á
sér til endurkjörs vegna anna
á öðrum vettvangi félagsmála.
Björgvxn hefur verið í eldlín-
unni í áratugi, stjórnarmaður
KSÍ frá upphafi og formaður
sambandsins s.l. 14 ár. En enda
þótt hann láti af störfum sem
formaður nú, þá á knattspyrnan
ávallt hauk í horni, þar sem
Björgvin er.
Sem formaður hefur Björg-
vin unnið merkilegt starf, sér-
staklega í samskiptum.Mð aðr-
ar knattspyi-nuþjóðir. Að sjálf-
sögðu hlýtur ávallt að standa
nokkur styr um mann, sem
gegnir jafn vandasömu og erf-
iðu starfi sem formannsstaða
KSÍ er, en það duldist aldrei
neinum, að mikilhæfur knatt-
spyrnulciðtogi var við stjórn-
völinn. Fyrir hin miklu störf í
þágu knattspyrnuíþróttai’innar
var Björgvin ákaft hylltur á árs
þinginu um helgina. Knatt-
spyrnuráð Reykjavíkur sæmdi
hann gullmerki sínu og knatt-
spyrnufélög i Reykjavík og
víðs vegar að af landinu, svö og
stjórnarmenn KSÍ, færðu hon-
um forkunnarfagra styttu að
gjöf í þakklætisskyni. fsfirð-
ingar færðu honum og sérstaka
gjöf.
Sá, sem þessar línur skrifar,
vill við þetta tækifæri, færa
Björgvin Schram þakkir fyrir
ánægjulegt samstarf á liðnum
árum. Störf hans í þágu ís-
lenzkra knattspyrnumála verða
seint fullþökkuð.
— alf.
KR reyndi að svæfa Hauka -
Fram gekk illa með ÍR í byrjun
í 2. deild sigraoi Þróttur Keflavík og Víkingur sigraði Ármann.
KLP-Reykjavík, — íslandsmót-
inu í handknattleik var haldið
áfram s.l. sunnudag. í 1. deild
sigraði Fram ÍR með 25:18 og
Haukar sigruðu KR með 15:13. í
2. deild sigraði Þróttur Keflavík
auðveldlega 27:15 og Víkingur
sigraði Ármann 26:17.
KR reyndi svæfingaraðferðina
gegn Haukum.
KR-ingar reyndu að svæfa
Haukana með rólegu spili og ekki
er ólíklegt, að þessi leikaðferð
hefði fært KR sigur, hefði ekki
vantað tvo þýðingarmikla leik-
menn, Hilmar Björnsson (lands-
liðsþjálfarann) og Karl Jóhanns-
son, en báðir þessir leikmenn voru
settir út úr liðinu vegna lélegrar
æfingasóknar. Hilmar hefur verið
uptekinn við að þjálfa landsliðjð
og Víking. Þá þykir stjórnendum
KR sem Karl hafi einleikið helzt
til of mikið í síðustu leikjum liðs
ins á kostnað heildarinnar.
Framan af var um jafna bar-
áttu að ræða, en annars var leik-
um miðjan síðari hálfleik vökn-
uðu Haukar af værum blundi og
juku forskotið í 15:9. KR-ingar
söxuðu á þetta forskot undir lokin
og lauk leiknum 15:13.
Hauka-liðið var ekki sannfær-
andi í þessum ^leik, leiddist sýni
lega biðin eftir knettinum óg
skaut í trána og ótíma. Markvarð-
arleysi háir liðinu, en það er ekki
svipur hjá sjón án Loga Kristjáns
sonar. Beztu menn liðsins voru
Ólafur, Sturla, Gunnar og Stefán
Jónsson.
KR-ingar verða að gera betur,
ef þeir ætla að halda sæti sínu í
deildinni. Það dugir ekki að leika
rólega og yfirvegað, ef ekki fylgja
skot, þegar vörn mótherjanna opn
ast greinilega. Eini ljósi pun'ktur-
inn í liðinu var markvörðurinn,
Emil 'Karlsson, sem varði m.a. 3
vítaköst.
Góður endasprettur færði
Fram sigur.
Það var harla lítill munur á liði
íslandsmeistara Fram og nýlið-
anna ÍR a.m.k. framan af. Fram.
urinn mjög leiðinlegur. f hálfleik sem lék án landsþðsmannanna
stóðu leikar' 7:6 Haukum í vil, en 1 Ingólfs og Björgvins lék án nokk-
urs meistarasvips. Gylfi Jóhannes-
son og Guðjón Jónsson gerðu
mörg ljót mistök í byrjun og
máttu Framarar þakka fyrir, að
ÍR-ingar skyldu ekki skjóta þá í
bólakaf í fyrri hálfleik. Staðan
í hálfleik yar 10:9 ÍR í vil.
f byrjun síðari hálfleiks hélzt
leikurinn jafn, en þegar líða tók
á hálfleikinn tóku Framarar loks
ins við sér og sýndu frábæran
sóknarleik, auk þess, sem vörnin
þéttist og markvarzlan var góð.
Urðu lokatölur 25:18.
Fram teflýli einum nýliða fram,
Ingvari Bjarnasyni, kornungum
leikmanni, enn einn sólargeislinn
í handknattleiknum, góður og hug
myndaríkur sóknarieikmaður og
traustur í vörn. Arnar Guðlaugss.
átti nú einn sinn bezta leik ásamt
Sigurði E. og Sigurbergi.
Maður freistast til að álíta, að
úthaldið _sé ekki nógu gott hjá ÍR
ingum. Ásgeir Elíasson og Þórar-
inn Tyrfingsson voru einna at
kvæðamestir, en illa var farið með
góðan kraft þar sem Ágúst Svav-
arsson er, en þessi örvhenti risi
var allt of lítið inn á.
Isl. ungl-
sem knattspyrnufélögin
Albert Guðmundsson.
inu stendur
Ameríkuferð
ti! boða
Alf.—Reykjavík. — ís-
lenzka unglingalandsliðinu í
knattspyrnu, hinu sama og
hlaut 2. sæti í Norðurlanda-
mótinu s.l. sumar, stendur
til boða að fara til Banda-
ríkjanna á næsta ári og
leika þar nokkra leiki. Fékk
íþróttasíðan upplýsingar um
þetta hjá Árna Ágústssyni,
formanni Unglinganefndar
KSÍ, sem hefur haft með
þetta mál að gera.
Barst bréf í gær frá
bandarísku atvinnuknatt-
spyrnufélagi, þar sem það
býðst til að taka á móti ís-
lenzka unglingalandsliðinu
og sjá um alla fyrirgreiðslu
í Bandaríkjunum. Er ráð-
gert, að liðið verði rúma
viku ytra, eða frá 23. sept.
til 2. október 1969, og búi
íslenzku piltarnir í skólum
eða á einkaheimilum.
Þá upplýsti Árni, að þetta
bandaríska félag myndi
senda lið til keppni í Ey-
rópu næsta sumar og er
áætlað, að það komi við hér
Framhald á bls. 14
Orn Fiðsson
örn Eiðs-
son for- ^
maður FRÍ
Fjármálin voru mikið rædd á
ársþingi Frjálsíþróttasamfoands fs
lands, en sambandið á við no'kkra
fjárhagsörðugleika að etja. Björn
Vilmundarson, formaður FRÍ und
anfarin ár, gaf ekki kost á sér til
endurkjörs og var Örn Eiðsson
einróma kjörinn formaður í hans
stað, Voru Birni þökkuð vel unn-
in störf í þágu sambandsins.
Stj órn FRÍ eri nú þannig skip-
uð: Örn EiðssOn, formaður. Með-
stjórncndur: Svavar Markússon,
Finnbjörn Þorvaldsson, Snæbjöm
Jónsson, Tómas Jónsson, Sigurður
Helgason, form. útbreiðslunefnd-
ar og Sigurður Björnsson, form.
laganefndar. Nánar síðar.
rrrtWBíamTfltti