Tíminn - 28.11.1968, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 28. nóvember 1968.
TIMINN
Tékkóslóvakía —
Júgóslavía — Island.
.JJ'ávís kona“ s'krifar:
„Mikið hefur verið rætt og
ritað um Tékkóslóvakíu og inn.
rásina þar undanfarið, og hef
ur þjóð vor sýnt mikinn ein-
hug otg skilning á þeim mál-
um. Má með sanni segja, að
við séum nokkru fróðari um
þróunina í suðurhlut^ álfunnar
eftir en áður. Ég las í>&5 í
Morgunblaðinu 23. okt. s.l., að
Tékkóslóvakía hefði ætlað að
feta í fótspor Júgóslavíu með
uppbygigingu efnahagskerfis
lands síns í sumar, en í Júgó-
slavíu ráikti heppileg blanda
kommúnisma og kapitalisma
og hefði hagvöxtur aukizt þar
jafnt og stöðugt um 5% á ári
undanfarið. Ég hef alltaf haft
mikla trú á Júgóslövum, allt
frá því að ég á æsfcuárum fylgd
ist af áhuga með baráttu
skæruiiðanna þar gegn hersveit
um Hitlers og mér þótti trú-
legt að þeir væru manna Uk-
legastir til að skapa fyrirmynd
arþj óðfélag í landi sínu.
Vonbrigði.
Kvikmynd, sem sýnd var hér
í sjónvarpinu olli mér því mik-
illa vonbrigða. Þar var sagt,
að Júgóslóvakía hefði hætt við
þjóðnýtingu af því hún hefði
etoki toæft þjóðinni. Mig minn
ir að það væri af því að gull-
forði landsins var á striðsárun-
um geymdur í Bandaríkjunum
og það stoilyrði fylgdi heim-
fl-utningi hans að hætt yrði við
þjóðnýtingu í bráð. Þá kom
ftam í sjónvarpsþættinum að
verksmiðjur eru reknar með
hlutafélagsfyrirkomuilagi, þar
sem verkafólk er að vísu hlut-
hafar, en hið sama tíðkast í
Vestur-Þýzkalandi án þess að
það sé á nokkurn toátt bendlað
við sósíalisma. Enn fremur,
Júgóslavía felildi gengið fyrir
þi-emur árum. Síðan er dýrtíð
og nokkurt atvinnuleysi í land
inu. Landbúnaðarhéruðin eru
fátæk og landibúnaðurinn er að
mestu leyti rekinn af smábænd
um. f suðurhéruðum Júgó-
slavíu er 14 hluti íbúanna
hvorki læs né skrifandi. Að
iokum er talsvert um erlenda
fjárfestingu í landinu þó að
vísu séu þau ákvæði, að slífc
fyrirtæki skuli jafnan vera að
meira en helming í eign inn-
lendra aðila, það gildir þó
ekki um gistihús.
Þetta finnst mér nú kapital-
ismi, og toann vondur. Til þess
að finna þjóðfélag þar sem %
hl. íbúa er hvorki læs né storif
andi þarf áreiðanlega að leita
a.m.k. til Spánar og Suður-
Amerítou, svo mér finnst Téfck
ar hafi verið seinheppnir í val-
inu ef þeir hafa valið þetta
land sem fyrirmynd að hag-
kerfi sínu í framtíðinni. Það
afsakar þó á engan hátt innrás
Rússa í sumar, því að ef Tékk
ar vildu breyta vondum sósíal
isma í vondan kapitalisma þá
átti það að vera þeirra mái og
þeirra einna.
Uppbvgging íslands.
En væiri nú efcki tímabært,
einmitt núna, þegar allir hafa
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur almenn-
an félagsfund laugardaginn 30. nóvember n.k.
kl. 14 í TjarnarbúS (niðri).
Dagskrá:
1. Uppsögn samninga
2. Kaup á félagsheimili.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
BAZAR
Kvennadeildar Styrktarfélags fatlaðra og lamaðra
verður haldinn laugardaginn 30. nóvember kl. 14,
að Háaleitisbraut 13.
Margir eigulegir munir.
Fatnaður: Kjólar, kápur, slár á börn og fullorðna.
Skór í úrvali. Jólavarningur: kökur o.m.fl. Lukku-
pokar. Skyndihappdrætti. Allt ódýrt.
Ath. Safamýrarstrætisvagninn stoppar við húsið.
Stjórnin.
srtúið baki við Rússum og öll-
um þeirra fylgifiskum (og þeir
mest, sem mest dáðu þá áður
fyrr) að fara að gera sér grein
fyrir uppbyggingu fslands.
Væri ekki tiilvalið að sú upp-
bygging yrði á grundvelli sam
vinnuihreyfingarinnar, þar sem
reynt yrði að byggja upp ís-
lenzka atvinnuvegi í formi ein-
hvers konar samvinnufélags-
sfcapar og öllu erlendu fjár-
magni yrði hafnað. Gætum við
ekki margt lært af ísrael í
þeim efnum. Við híðum eftir
einhverju frumfcvæði stjórn-
málaflokkanna og helzt þess
floikks sem er up-pbyggður á
samvinnuhreyfingunni.
Andlegt skolp.
Þá er bréf frá „Norðurbúa":
„Nú er nokkuð rætt um klám
myndir og hvort þær eigi rétt
á sér. Tilefnið eru þær bersöglu
myndir, sem sýndar hafa verið
undanfarið, oig svo stuttur fcafli
í hernámsmyndinni.
List er þáttur menningar og
hlýtur að vera eðlilegt, að hún
dafni og þróist, þar sem menn
ing ryður sér til rúms og lifir.
En þegar listin fer að grafa
undan menningunni, er hætta
á ferðum. Menning er af sama
stofni og maður. Menning, sé
hún sönn, eflir manninn, styrfc
ir hann, gerir hann hæfari til
lífsins. Það þyfcir sjálfsagt að
byrgja skolpleiðslur, af því að
þær skapa hættu fyrir heiisu
manna. Gilti einu, þótt Skolp-
leiðslurnar vær-u úr gulli eða
silfri. Klámmyndirnar eru eins
og skolp í andiegu tilliti. Menn
eru misjafnlega sterkir gagn-
vart raunverulegum bakterí-
um, og þannig er auðvitað líka
í andlegu tilliti. Samt eru menn
yfirleitt á einu móli um, að
við því, sem gerir menn óhæf-
ari tii lífsins, beri að setja
skorður. Klámið er kiám, þótt
það sé klætt í „Iist“.
Áhrif á unglinga.
Ungling-urinn, sem fær hálf-
gert sjofck, þegar djarfar mynd
ir birtast á tjaldinu, er e-kki
sami maður á eftir. Stundum
„grær“ seint eða aldrei u-m
heilt. Hann viil m-eira, og hann
vill helzt prófa sjálfur. — Við
höfum trú á æskunni. En þó
nokk-ur hl-uti hennar er rót-
laus. Ein orsök þess er sú, að
hún leyfir sér of mikið, hún
lætur undan tilíhneigingum,
sem hún veit innst inni, að hún
á að hemja og temja, en um-
hverfið egnir og æsir, svo að
illt er að standa í gegn. Klám
myndirnar eru áfcaflega stór
þáttur í þess-u. Svo hefst innri
barátta hjá mörgum: Það er
efcki rétt, en ég geri það samt.
Enginn má vita það, enginn má
sjá það, allt í pukri, ekfci í
dagsbirtu-nni. Æskan e-r tími
sj-álfstjórnar og undirbúnings,
en hún verður fyrir ni/irgum
tími undanlátssemi og nautna;
já, sumir eiga enga æsfcu af
þessu-m sök-u-m. Samt eiga þeir
að taka á sig ábyrgð í þjóðfé-
laginu, en þeir eru illa undir
það búnir, af því að það sem
átti að b-yggja upp, var veikl-
að og skaddað.
Styifcjum það, se-m eflir mann
inn. Hjiáipum æskunni. Reyn-
um að stöðva skolp-strauminn,
sem látinn er heita „list“, en
g-erir óendanlegan skaða."
Nauðungaruppboð
Húseignin Stuðlaberg, Kolbeinsgata 18, í Vopna-
fjarðarkauptúni, verður seld á nauðungaruppboði,
sem fram fer á eigninni sjálfri miðvikudaginn 4.
des. 1968, kl. 10,30.
Uppboð þetta var áður auglýst í Lögbirtingablaði,
sjá 53. tölublað 1968.
Sýslumaður Norður-Múlasýslu,
Seyðisfirði, 19. nóv. 1968
Erlendur Björnsson.
SANDVIK
SNJÓNAGLAR
r L_
Á hjólbörSum negldum með
SANDVIK snjónöglum getið
þér ekið með öryggi á hál-
um vegum.
SANDVIK pípusnjónaglar
fyrir jeppa, vörubíla og lang-
ferðabíla taka öðrum snjó-
nöglum fram.
Gúmmivinnusfofan h/f
Skipholti 35 — Sími 31055 — Reykjavík.
A VlDAVANGI
Tvískinningur
umskiptingsins
Aldrei hefur >a2 verið
greinilegra en nú, hvers Ron-
ar skrípi og umskiptingur Al-
þýðuflokurinn er orðinn í ís-
lenzkum stjórnmálum. Það
kom meðal annars glögglega
í Ijós í útvarpsumræðunum
frá Alþingi um vantraust á
ríkisstjórnina. Ræða formanns
flokksins, Gylfa Þ. Gíslasonár,
viðskiptamálaráðherra, var
með slíkum endemum, hvað
boðskáp, málflutning og rök-
vísi snerti, að hún hefur valdið
almennri hneykslan manna.
Enda mun nú vera svo komið,
að enginn maður tekur lengur
mark á orði, sem þessi maður
segir, ekki einu siuni hans
nánustu í Alþýðuflokknum.
Alþýðuflokkurinn hefur ver
ið að reyna að leika það hlut-
verk í stjórnarsamvinnunni við
íhaldið að hann væri góði
flokkurinn í ríkisstjórninni en
Sjálfstæðisflokurinn hinn illi.
ÖU góðu málin, sem fram
kæmust væru Alþýðuflokksins,
en það illa væri frá íhaldinu
komið. Það skal játað, að
þessi áróður Alþýðuflokksins,
sem er allra flokka heilastur í
stjórnarsamstarfi að eigin
sögn, hefur tekizt furðu vel,
þrátt fyrir þá staðreynd, að
hvergi standa málin verr í
þjóðfélaginu en á þeim svið-
um, þar sem ráðherrar Alþýðu
flokksins eiga um að sýsla og
hafa forystu. Með þessum
áróðri hefur Alþýðuflokknum
líka tekizt að fá æði marga af
óánægðum Sjálfstæðismönnum
'til að mótmæla gerðum ríkis-
stjórnarinnar með því að kjósa
Alþýðuflokinn og ganga í
hann. En mennirnir móta flokk
ana og Alþýðuflokuiinn ber
nú ljótar menjar þessarai þró
unar og mönnum er farið að
vera tamt að kalla Alþýðu-
flokkinn litla íhaldið. Það
hefði þótt saga til næsta bæj-
ar, þegar aðalvígorð Alþýðu
floklcsins var: Allt er betra
en íhaldið.
Fyrst samþykkt -v
síðan mótmælt
Enn heldur þó þrátt fyrir
allt, nokkur hópur, sem reynd
ar fer stöðugt minnk-
andi, tryggð við „flokk alþýð-
unnar“ í verkalýðshreyfing-
unni. Hvergi er þó tvískinning
ur þessa stjórnmálaumskipt-
ings meiri en í verkalýðshreyf
ingunni. Þar eru menn í mörg
um reifum. Greiða atkvæði
með gengisfellingu og kjara
skerðingu í flokksráði Alþýðu
flokksins, en svo mótmæla
þeir hinir sömu því sama í
verkalýðshreyfingunni. Þar eru
menn í mörgum reifum. Greiða
atkvæði með gengisfellingu í
flokksráði Alþýðuflokksins, en
svo mótmæla þeir hinir sömu
því sama í verkalýðshreyfing-
unni og á mannamótum og fá
lof í lófa fyrir. Þessi tvískinn-
ungur kom greinilega fram í út
varpsumræðunum, þegar einn
af þingmönnum flokksins
reyndi að bera kápuna á háð-
um öxlum með því að segja,
að eiginlega hefðu þingmenn
Alþýðuflokksins verið á móti
þeim aðgerðum, sem gerðar
voru, þeir hefðu viljað fara
aðrar leiðir og betri leiðir, en
þeir hefðu bara efcki fengið að
ráða. Þar ætlaði þingmaðurinn
Franuhald á 1S. sfðu.