Tíminn - 28.11.1968, Page 7
FIMMTUDAGUR 28. nóvember 1968.
TIMINN
7
Volkswagen 411.
arra fyrirtækja hafa komizt
að raun rnn að kaupendur bif-
reiða í álíka háum verðflokki
og VW 411 er krefjast eins
margra hestafla og mögulegt
er, og að bifreið sú sem þeir
kaupa, minni á sportbíl. Það
nægir að nefna Opel Commo-
dore og svipaðar gerðir af
Ford. Var það ekki skyssa að
hafa VW 411 með aðeins 68
hestafla vél?
Lotz: Þið megið ekki að-
greina VW 411 frá öðrum
Volkswagen-bílum. Þeir kostir,
sem við leggjum áherzlu á að
bifreiðar okkar séu gæddir, eru
að þær endist lengi, séu traust
ar og góðar í endursölu. Og
á þessu ári sem fyrr höfum
við sífellt verið að vinna á
í samkeppninni við hliðstæða
bíla einmitt vegna þessara meg
inreglna.
Sp.: Okkur virðist vafasamt,
að þessar meginreglur ykkar
reynist haldgóðar hvað snertir
þá kaupendur sem þið erum nú
að reyna að laða að. Kraftmikl
ar vélar eru nú ekki lengur
í öllum tilfellum endingarlitlar.
Væntanlegir kaupendur þessar
ar bifreiðar geta einnig vaiið
úr bflum, sem eru greinilega
kraftmeiri, eins og t.d. Fiat 125
(90 hestöfl) og NSU (90 hest-
öfl).
Lotz: Kaupendurnir munu
skera úr um þetta eins og
ávallt fyrr. Verksmiðjur okkar
verða að framleiða 7400 bif-
reiðir á dag. Við erum þemrar
skoðunar að kaupendurnir muni
einnig kunna að meta 411 gerð
ina.
★
Sp.: Hyggið þér á brevtingar
innan fyrirtækisins?
Lotz: Nei, við munum halda
áfram að vinna að umbótum
á hinum algengasta Volkswag-
en. Auk þess munum við vinna
skipulegt að því að finna hvaða
nýjungar eiga sér framtíð á
bifreiðamarkaðinum.
★
Sp.: Hinar mörgu þýzku bif-
reiðaeigendur eiga með hverj-
um deginum í harðari sam-
keppni við erlenda keppinauta
á innanlandsmarkaðinum. Og
á utanlandsmarkaði berjast
þær einnig hver um sig æ erfið
ari baráttu við sömu keppi-
nauta. Ef haft er í huga að
á þessu eina ári munu Volks-
wagen-verksmiðjurnar selja
500.000 bfla í Bandaríkjunum,
sem er miklu meira magn bíla
en þær selja í Þýzkalandi, gef-
ur auga leið, að þeim stendur
sérstök ógn af samkeppni er-
lendra bifreiðaverksmiðja.
Lotz: Auðvitað er töluverð
áhætta samfara eins roikilli út
flutningsverzlun og þeirri sem
verksmiðjur okkar eiga við
Bandaríkin. En Volkswagen-bif
reiðar hafa áunnið sér óvenju
fastan sess í Bandaríkjunum.
Sp.: Það mun koma í ljós,
hve fastur sá sess er þegar
keppinautar ykkar í Detrait
koma með Ford Delta á mark-
aðinn, en sá bíll hefur ver-
ið ytfirlýstur keppinautur
Volkswagen. Óttist þér þá sam
keppni?
Lotz: Bandarísk bifreiðafyi'ir
tæki hafa gert svipaða tilraun
áður en hún misheppnaðist. En
samt sem áður horfumst við
í augu við hugsanlega hættu.
Sp.: Og hvernig ætlið þið að
bregðast við?
Lotz: Þessum aðgerðum Banda
ríkjamanna er stefnt gegn öll-
um þeim innflutningsfyrirtækj
um, sem á þessu ári flytja sam
tals milljón bíla til Bandaríkj-
anna.
Sp.: Þið flytjið helming þessa
bifreiðafjölda til Bandaríkj-
anna og ykkur stafaði aúk þess
sérstök hætta af því ef keppi-
nautur Volkswagenbílanna,
Ford Delta yrði vinsæll.
Lotz: Við getum einungis
brugðizt þannig við, að halda
áfram að betrumbæta bifreiðir
okkar frá tæknilegu sjónar-
miði. Þær eru í mjög miklu
áliti hjá Bandaríkjamönnum,
sem traustir og seljanlegir bíl-
ar og því viljum við halda. Þá
er verðið einnig mjög hagstætt
á okkar bílum. Við erum eigin-
lega vongóðir um að geta hald
ið markaðinum.
Sp.: Óttizt þið etoki sam-
keppni Japana með sínar Toy-
ota og Datsun-bifreiðir á Banda
ríkjamarkaði? (Bifreiðaútflutn
ingur Japana til Bandaríkjanna
nemur um 2000 bifreiðum á
dag).
Lotz: Við verðum vissulega
Volkswagenbifreiðum skipað upp fyrir Bandaríkjamarkað.
að taka samkeppni þeirra mjög
alvarlega.
Sp.: Vegna þess að bifreiðir
beirra eru svo ódýrar?
Lotz: Já, af því að þær eru
seldar á lágu verði, en það or-
sakast af efnahagsmálastefnu
japönsku ríkisstjórnarinnar. —
Japanir hafa verndað innan-
landsmarkaðinn með tollum og
sköttum og geta því selt bif-
reiðar sínar þar ó tiltölulega
lágu verði. Inufluttir bílar tu
aðeins um 2% allrar bifreiða-
sölu í Japan. Af þessum sökum
geta Japanir síðan selt þá bfla
sem þeir flytja út, aðeins 15%
heildarframleiðslunnar við
mjög vægu verði.
Sp.: Á síðasta ári framleiddu
Japanir 3,1 milljón bifreiðir,
og tóku þar með sæti Þjóð-
verja sem önnur hæsta þjóð
heims hvað bifreiðaframleiðslu
viðvíkur ....
Lotz: . ... og þeir munu enn
auka framleiðsluna.
★
Sp.: .Þið hafið lýst því yfir,
að ykkur væri ljóst að kaup-
endur vilja fá bifreiðar með
kraftmeiri vélum nú en þeir
hafa viljað fram að þessu, og
að æskan hefði æ meiri áhrif
á þær kröfur, sem gerðar eru
til nýrra bílategunda. Munu
Volkswagen- verksmiðjurnar
framleiða sportbifreið eða
breyta bifreiðum sínum í þá
átt?
Lotz: Þróunin mun verða í
þá átt.
Sp.: Fyrirrennari yðar, Nord-
hoff, fyrrv. aðalforstjóri Volks
wagen-verksmiðjanna, vann það
kraftaverk að gera elztu bif-
reiðategund í Þýzkalandi, gerða
eftir 32 ára gamalli hugmynd,
að mest selda bíl í heimi. Nú
kemur það í yðar hlut að sjá
um að þetta aldraða „skrið-
dýr“ haldi vinsældum sínum rg
hlaupi og hlaupi áfram á bíl
vegum um allan heim. Finnst
yður það ekki erfitt hlutskipti?
Lotz: Ekki svo skelfilega. Og
af eftirfarandi ástæðu. Það sem
þér nefnið „aldrað skriðdýr'1
er nýtízku bifreið, sem við end
urbætum stöðugt í öllum tækni
legum atriðum og er betri í
endursölu en aðrar bifreiðir,
sem viðskiptavinum okkar bjóð
ast.
Sp.: Þið framleiðið 5000
„bjöllur" á dag ....
Lotz: . . . . já, ég hef þá
ánægju að staðfesta það . . . .
Sp.: . . . . og „bjallan“ er
grundvöllur fyrirtækisins. Þann
ig eruð þið í svipaðri aðstöðu
og Henry Ford I. fyrir nokkr-
um áratugum, en hann var ekki
ánægður að lokum.
Lotz: Já, ég þekki söguna af
módel T.
Sp.: Við viljum samt gjarnan
rifja hana upp, til þess að
skíra málin betur: í átján ár
framleiddi Henry Ford I. ein-
göngu hið óforgengilega farar-
tæki, sem hann nefndi módel T
og einnig var kallað Pjátur Lísa
(Tin Lizzy). En 1927, eftir að
15 milljónir slíkra bíla höfðu
verið framleiddar, fann Lisa
litla ekki lengur náð fyrir aug-
um almennings, þótt hún væri
orðin mjög fullkomin og betr-
umbætt á allan hátt. Ford varð
að loka i 9 mánuði. Þéi herra
Lotz stjórnið fyrirtæki, sem
hefur nú á 20 árum framleitt
11 milljónir „bjöllur"
Lotz: Rétt er það, þetta er
eitt af þeim vandamálum sem
við verður að horfast í augu
við, önnur eru hugsanleg geng
isbreyting þýzka marksins,
Bandaríkjamarkaðurinn, hinir
ódýru bílar Japana. En herrar
mínir, þér gleymið einu, þegar
þér berið saman þessa dapur-
Framnald a 12 síðu
••••••••••••••••••••••
Kjarnfóður
unnáð
hér á
landi
Mjólkur
Laugavegi 164
Sími 1 11 25
Símnefni: Mjólk
félag
Reykjavfkur
Yflr 50 ára reynsla
okkar í fóðurblöndun og fóðurverzlun
tryggir góða vöru á samkeppnisfæru
verði.
★
Valin hráefni. Ávallt nýmalað maísmjöl
og annað fyrst flokks korn, flutt inn
laust, malað í myllu okkar.
★
Prótíngjafi: Islenzkt fiskimjöl.
Öllnauðsynleg bætiefni og snefilefni í
réttum hlutföllum samkvæmt nýjustu
þekkingu.
★
Mjöl eða kögglar að vild. Allt unnið í ný-
tízku blöndunar- og kögglunarvélum.
★
í fóðurblöndum Mjólkurfélags Reykjavík-
ur er um 30% kostnaðarverðs innlent
efni og vinna.