Tíminn - 18.12.1968, Page 4
EMMESS IS
ÞETTA
ALLRAR
EMMESS IS
við öllk tækifæri
MJOLKURSAMSALAN
f\ y/l/^fr^ ir^n
SKARTGRIPIR
LIWU^^L^ISS
Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist. —
■ SIGMAR OG PÁLMI -
Hverfisgötn 16 a. Simi 21355 og Laugaveg 70. Simi 24910.
TÍMINN
ALLTMEÐ EIMSKIP
JÓLABÓKIN
í ÞÝÐINGU DR. EIRÍKS ALBERTSSONAR
ER KOMIN í BÓKAVERZLANIR
Maupassant er talinn af bókmenntasérfræSingum
lærimeistari allra smásagnahöfunda.
íslenzkir sjónvarpsáhorfendur hafa fengið að
kynnast nokkrum sögum hans í leikritsformi á
sunnudagskvöldum nú í haust og hafa fáir viljað
af þeim missa.
i
Verð í bandi kr. 275.00
Verð í kápu kr. 200.00
BÓKAÚTGÁFAN GLÓÐAFEYKIR
Reykjavík — sími 16059 og 37831
VIÐTAL VIÐ FRÚ VIVAN
Framhald aí' bls. 9.
fvrstu árum bygginarinnar gengu
kvenfélagskonur í flest hús í sókn
inni me3 bók, sem í voru skráð
nöfn húsráðenda og barna þeirra
með fæðingardögum hvers og e;cis
og þeim, sem vildu. gefinn kost-
ur að leggja sinn skerf til kirkju-
byggingarinnar. Liggur þessi bók
frammi í fordyri kirkjunnar.
Fjáröflunarleiðirnar eru
annars basar, kaffisala á kvenfé-
lagsfundum, sérstakur kaffisölu-
dagur á uppstigningardag, saia
minningarspjalda og merkjasala.
Stundum hefur ágóða merkjasöl-
unnar verið varið til einhvers sér
staks verkefnis. Einu sinni var
hann látinn i-enna til Hifsdals-
söfnunarinnar ag á síðasta ári til
að styrkja Foreidra- og styrktar-
félag heyrnardaufra barna
— Við höfum keypt ýmsa gripi
til kirkjunnar, nú á síðastliðnu
ári t.d. stóla í kór.
— Fyrstu árin var starfsemi fé-
lagsins í Laugarnesskólanum, og
nú síðustu árin er orðið of þröngt
um okkur í félagheimilinu í kjall
ara kirkjunnar bæði fyrir basar
og stærri samkomur. svo við höf-
um orðið að leita þangað á nýj-
an leik. Hefur skólastjórinn af
sinni velvild greitt götu okkar á
svo margan nátt.
— Gerið þið éitthvað fyrir aldi'4
að fólk í sókninniV
— Við höldum samkomu einu
sinni á ári, <em við nefnum Dag
gamla fólksins Þá aldrað fólk
einnig kost á fótaaðgerð í kjallara
Laugarneskirkju einu sinni í viku
við mjög vægu verði. Gísli Sigur-
björnsson forstjór’ kom þessari
starfsemi af stað og hefur greitt
snyrtidömunni kaup. En konur
úr félaginu aðstoða hana og gefa
fólkinu kaffisopa. Gísli hefur sýnt
okkur sérstaka veMld, sem við
kunnum mjög vel að meta. Fyr-
ir jólin kemur hann með bækur,
sem hann gefur út, og gefur okk-
ur til að selja til ágóða fyrir starf-
semi okkar. Einnig hefur hann
gefið okkur hárþuirrku, en við
höfum reynt að hjálpa gömlu
fólki um hárgreiðslu, þótt okkur
skorti raunar hentugt húsnæði
til þess.
Þá höfum við mikið hugsað um
að færa út kvíarnar í sambandi
við starfsemina í þágu gamla fólks
ins.
Það er mikil þörf á að gera
eitthvað fyrir aldrað fólk, sem
býr einsamalt, og á jafnvel enga
nána aðstandendur. Slíkir ein-
stæðingar geta orðið veikir eða
átt í öðrum erfiðleikum og eru
þá einir og hjálparlausir. Við höf-
um áhuga á að koma á tengslum
milli þeirra og annarra. Þáð væri
mikils virði, að einhver heim-
sækti þá daglega, eða aðeins
hringdi og spjallaði við þá og
grennslaðist um, hvort allt væri
í lagi. Okkur hefur dottið í hug
að fá unglinga í lið með okkur
við þetta starf. Ellimálafulltrúi
borgarinnar hefur útvegað okkur
spjaldskrá yfir aldrað fólk í söfn-
uðinum, en eftir er að ókveða,
hvað og hvernig á að starfa, svo
að það komi að sem mestum not-
um, og síðan að skipuleggja þessa
starfsemi.
— Konurnar í félaginu eru af-
skaplega duglegar og góður fé-
lagsandi meðal þeirra. Samstarfið
hefur verið mjög ánægjulegt, og
það hefur verið eins og einn hug-
ur og ein sál hafi ríbt í öllum
okkar störfum.
VIÐTAL VIÐ FRÚ LAUFEY
Framhald af 8. síðui
Þá ræðum við verkefni félagsins,
en reynum einnig alltaf að hafa
eitthvað til fræðslu og skemmtun-
ar. Einnig eru sérstakir skemmti-
fundir tvisvar á ári. Fyrir meira
en áratug tókum við upp þann
sið að bjóða öldruðum konum til
okkar á fund einu sinni á ári, og
seinni árin höfum við haft sam-
komu fyrir aldrað fólk, bæði karla
og konur í samkomuhúsinu Lido
árlega. Er alltaf fjölmennt á þess-
um samkomum.
— Er fleira af starfsemi ykkar
að segja?
— Ekki annað en það, að sam-
starfið í félaginu hefur verið ákaf
lega ánægjulegt. Konurnar hafa
unnið mjög fórnfúst starf og fé-
lagsandinn, sem ætíð ríkir meðal
þeirra, er alveg einstæður. Ég vil
nota tækifærið að senda þeim öll-
um jóla- og nýársóskir og einnig
öllum þeim mörgu. sem sýnt hafa
starfi okkar skilning og greitt
fyrir okkur á ýmsa lund.