Tíminn - 03.01.1969, Blaðsíða 5
FÖSTUDÆGUR 3. janúar 1969.
TIMINN
5
I SPEGLITIMANS
Fyrir nokkrum dögum birt-
um við 'hér mynd af Maj-Britt
Patterson frá Lynköping í Sví-
þjóð, en hún fæddi barn, og
lækaar lýstu því þá yfir, að
hún myndi fæða annað barn,
tvíburaibróður eða systur hins
fyrra, fimmtíu dögum síðar. ■
Það bam er nú fætt, og sést
á meðfylgjandi mynd. Barnið
sem fyrr fæddist var stúlka og
vóg við fæðingu 970 grömm,
en aúna 1360 grömm. Bróðir
hennar vóg 2150 grömm þegar
hann fæddist. Það mun ekki
hafa gerzt áður, að tviburar
sem fæðast méð svo löngu
millibili hafi lifað fæðinguna
af.
Varaforsetinn í Suður-Viet
nam, Nguyen Cao Ky sést hér
ásamt konu sinni og þriggja
ára gamalli dóttur þeirra. Fjöl
skyldan dvelur nú öll í París
i tilefni af friðarviðræðunum.
Nýlega tók nýtt leikhús til
starfa í París. Leikhús þetta
þykir einstaklega merkilega
byggt, það sameinar bæði
gamla og nýja tízku í bygg-
ingarlist. Að utan er það byggt
í stíl Napóleons III. ea að inn-
an nýtur nútíma byggingalist
sín fullkomlega. Litirnir eru
einkar þægilegir, og þau eitt-
þúsund sæti sem í sjálfum sýn
ingarsalnum eru, þykja með
þeim allra þægilegustu sem
þekkjast. Sviðið er mjög opið
fyrir áhorfendum, hvorki eia
angrað með hljómsveitargryfju
né hinum venjulegu „þrem
veggjum".
Myndin var cekin um miðjan
desember og þau munu hafa
verið á skemmtigöngu í Bois
de Boulogne snemma morg-
uns áður en Ky settist við hið
marg umrædda samningaborð.
Sviðið er sjötíu fet á breidd,
og þvx er skipt niður í fjöru-
tíu og fimm palla, og hvern
pall er hægt að reisa upp um
sex fet, með því að þrýsta á
hnapp. Þá er einnig hægt að
breyta sviðsmyndinni fyrir á-
horfeadum, þannig að hún sýn
ir þrjár víddir. Öllum ljósabún
aði stjórnar rafmagnsheili sem
hefur rafmagns minni, hann
ræður yfir tvö þúsund ljósgeisl
um, sem hann getur beint á
tvö hundi-uð bletti á sviðiau.
Þá fylgir leikhúsinu einnig
æfingasalur, sem einnig - hefur
svið jafnstóii; áðalsviðinu. f
leibhúsinu er einnig fata-
geymsla, sem er útbúin með
einhverjum sjálfvirkni útbún-
aði, þannig að allur kápuslag-
ur ætti að vera úr sögunni. Og
að sjálfsögðu er þarna einnig
veitingasalur.
Við opnun leikhússins var
sýnt verkið „Sex persónur
leita höfundar" eftir Piran-
dello og fljótlega verður Shake
speare-leikrit frumsýnt. Á
hverju síðdegi kl. hálf sjö,
gefst leikhúsgestum kostur á
áð hlýða á söng Juliettu Greco
í eina klst.
Þá gefst leikhúsgestum einn
ig kostur á að panta sér veit-
ingar í sæti sín i salnum,
Frökkum til mikillar ánægju,
þá eru frammistöðu stúlkur all
ar ungar og glæsilegar, en ekki
gamlar og geðvondar, eias og
mjög hefur að undanförnu ver
ið kvartað yfir í frönskum leik
húsum.
★
Fx'éttir frá París herma, að
glæpir, framdir með ofbeldi
hafi aukizt mjög á síðastliðn-
um árum. Árið 1967 hafði tala
glæpa hækkað um sjötíu og
átta af hundraði miðað við ár-
ið 1966. Og árið 1968 hafi
þessi tala eun vaxið um sextíu
af hundraði.
Lögreglustióri Parísar-
borgar telur ástæðurnar fyrir
þessu vera vaxandi fjölda af
glæpaflokkum unglinga, og
einnig, að lögreglulið borgar-
innar hefur ekki vaxið eða
eflzt í réttu nlutfalli við íbúa-
tölu stórborgai'innar.
Franska kvennablaðið |
„Elle“ hefur náð miklum vin- i
sældum í Vestur-Evrópu. Það
er gefið út á frönsku í Brussel
það er’ þýtt og gefið út á
þýzku og einnig spænsku. Bráð
lega mun blaðið einnig hefja
göngu sína í Austur-Evrópu. í
mai'z næstkomaadi mun verða
hafin útgáfa þess í Júgóslavíu.
Blaðið mun verða þýtt á serbn
esku og króatísku, og bæði
prentað með serbnesku letri
og latnesku letri fyrir Slóv-
ena.
★
Fáir pop-listamenn njóta
jafnmikillar virðingar og mót-
mælasöngvarinn frægi Bob Dyl
an .Bob hefur tekizt á hendur
að vera eins konar syngjandi
samvizka þúsunda manna urn
allan heim. Hann tréður upp
með gítarinn sinn um öxl og
syngur lög sem hann hefur að
öllu leyti samið sjálfur. Haan
gerir ekkert til þess að aug-
lýsa sjálfan sig, t.d. hefur ekki
verið haft við hann blaðavið-
tal í fjögur ár, enda ku mað-
urinn vera einkar þögull. Sam- |
tals hafa verið höfð við hann
tvö viðtöl, annað við tímai'itið
Playboy og hitt við lítið tíma-
rit, sem fáir lesa, en það nefn-
ist Sing Out. Bob Dylan hefur
sagt að það valdi sér ekki telj-
andi erfiðleikum að semja lög
og texta og syngja síðan fyrir
ókunnugt fólk: „Maður gerir
allt, ef það er atvinna". Hann
segir að mestu máli skipti að
vera ánægður með aðra, þá sé
maður einnig ánægður með
sjálfan sig. Dylan var eitt sinn
spurður um sfstöðu sína til
stúdentapólitíkurinnar, svo
nefadu, og hann sagði, að vissu
lega héldi hann með stúdent-
unum, þeir væru menn fram-
tíðarinnar og í framtíðinni
myndu þeir ráða veröldinui,
en hann sagði að þeir þyrftu
ekki að berjast eða beita of-
beldi, því þeir gætu látið sér
nægja að bíða eftir framtíð-
inni.
A VlÐAVANGI
Skúli Guðmundsson, alþingls
maður, sendir eftirfarandi ára-
mótauppgjör:
„Á fyrstu stjóraarárum sín-
um létu Sjálfstæðisflokkurinn
og Alþýðuflokkurinn þinglið
sitt samþykkja lög um að leggja
sérstakan skatt á bændur, og
skyldi liann renna til stofnlána
deildar í Búnaðai'bankanum.
Skatturinn var fyrst lagður á
árið 1963. Um nýliðin áramóí
var hann orðinn samtals 76 mill
jónir 956 þús. kr.
Ef reiknaðir hefðu verið 9%
vextir af þessu fé, en þeir vextir
era nú gi-eiddir af bankainnstæð
um, sem standa óhreyfðar a.m.k.
í eitt ár, væri heildarupphæð
skattsins með vöxtum orðin yf-
ir 92 millj. kro.ia.
Það er illt fyrir bændur, eins
og fleiri að búa við óhæfa rík
isstjórn.“
Hestur úti í á.
f áramótaávarpi forsætisráð
herra til þjóðarinnar réttlætti
hann þrásetu ríkisstjóraar simi
ar gegnum þykkt og þunnt, og
þótt yfir skylli hvað eftir amiað
með þeirri röksemd, að enginn
maður skipti um hest úti \ miðri
á. Líklega mundi ýmsum vatna
mönnum þykja þetta skrítin rök
semd, og ærin munu þess dæm
in, að menn hafi einmitt skipt
um hest úti í miði-i á og fyrii
það náð landi. Að streitast við
að sitja eins og ríkisstjórain ger
ir, þótt færleikurinn sé löngu
þi-otinn að kröftum, er voðimi
sjálfur. Að skipta um hest —
jafnvel úti í miðri á — er fanga
ráð.
Að sitja og sitja meðan hest
inum förlast sund eða fótaburð
ur er uppgjöf, sem hætt er við
að endi á sama veg og segir í
viðiagi spænsks öndvegiskvæðis:
„Mannlaus stendur hestur úti
í á“.
Svo getxxr farið fyrir úrræða
litlum fei'ðamönnum í stjórn
málum, þótt ekki sé í bókstafleg
um skilningi orðanna.
Slík uppgjafarstefna er dap
urlegur nýársboðskapur til þjóð
arinnar, því að hún spáir ekki
giftu um för stjórnvizkunnar yf
ir þá á, sem framundan er —
árið 1969.
Hverf bendir
reynslan?
f áramótaleiðara Morgunblaðs
ins segir m. a. .
„Árið 1968 hefur verið ár
mikilla áfalla efnahagslega, en
þjóðin hefur snúizt gegn þeim
vanda, sem vlð hefur verið að
etja og gert ráðstafanir, sem
nægja til að rétta skjótt við
þjóðarhag, ef hyggilega verður
á málum haldið á komandi
árl.“
Þetta er hughreysting, en
skynsamlegt af Mbl. að hafa
fyrirvarann um hyggindin með.
Fyrir rúmu ár: voru einnig
„gerðar ráðstafanlr“ sams kon
ar og nú, og fullyrti Mbl. þá
einnig, að þær mundu „rétta
skjótt við þjóðarhag". Nú hefur
reynslan talað f stað þess að
rétta við, urðu bær ráðstafanir
Iíkastar skriðu, sem hleypt var
á efnahagslífið, og það hran
hélt áifram með sívaxandi hraða
allt árið, bar til gera vaið nýja
gengisfellingu og enn stærri
í'úrnum ellefu mánuðum síðar.
Og nú er aftur fullyrt í Mbl. að
þær „nægi til að rétta
SKJÓTT við þjóðarhag".
inn þarf víst að efast um að
„hyggindin“ eru með í för. En
þau voru líka talin með í
fyrra, og þó fó sem fór.
„Fljótt, flýótt, sagði fuglinn"
heitir nýútkomin bók.