Vísir - 04.09.1977, Qupperneq 2
2
Sunnudagur 4. september 1977 VISIR
Á horninu býr villingurinn i breskri kvikmyndagerð
Ken Russell/ leikstjóri mynda eins og Women in Love,
The Devils, Tommy, Lisztomania. I næsta húsi býr
gamalkunnur breskur leikari, maður með allt aðra í-
mynd en meistari Russell, mildilegur séntilmaður
sem islendingar muna f lestir eftir í hlutverki Jolyons
yngra í Forsytefjölskyldunni, — Kenneth More.
,,Við búum hérna öll stórmennin i kvikmyndaheim-
inum!" segir viðmælandi Helgarblaðsins hlægjandi.
Ladbroke Square er kyrrlát, falleg gata i snyrtilegu
hverfi skammt frá Notting Hill Gate-neðanjarðar-
stööinni i London. Við þessa götu býr ungur islending-
ur, einn fárra sem hefur kviteviyndagerð að atvinnu
sinni, og líklegast sá eini sem starfar alfarið við þá
grein kvikmynda sem teiknimyndir nefnast.
Helga Egilson er 26 ára. Hún hefur dvalið í stór-
borginni í átta ár— fyrst við nám og síðar við starf.
Og það hefur vafalaust kraf ist þolinmæöi að fá starfa
i jafn eftirsóttri grein og kvikmyndagerð er, og vera
þar fyrir utan útlendingur. Helga vinnur nú sjálfstætt
(„freelance" ) en áður var hún hjá Film Fair-teikni-
myndafyrirtækinu. Og fyrir það fyrirtæki vann húrK
við myndir sem að minnsta kosti flest íslensk börn
þekkja og hafa í hávegum, — Bangsann Paddington og
Símon og kritarmyndirnar. Fyrrnefndu þættina sýndi
islenska sjónvarpiö við miklar vinsældir s.l. vor og þá
siðarnefndu er einmitt verið að sýna núna á swnnu-
dögum.
Helga og eiginmaður hennar Einar Jóhannesson
(Arasonar, útvarpsþuls) leigja kjallaraíbúð, firna
langa og skemmtilega, við Ladbroke Square og búa
þar ásamt fimm ára syni, Ólafi Daða. Einar er
klarinettleikari, og lærði upphaflega hjá föður Helgu
heima á Islandi, Gunnari Egilsyni. Einar gerir það
reyndar ekki endasleppt heldur, því hann var nýlega
valinn úr stórum hópi ásamt nokkrum fleirum ungum
tónlistarmönnum, til að halda einleikstónleika nú í
vetur í einum þekktasta tónleikasalnum í London,
Wygmore Hall. Meðal dómara í þeirri keppai var
Yehudi Menuhin.
Helgarblaðið var á ferð i London fyrir skömmu og
leit við hjá Helgu. Einar var ekki heima.
ÁHRIF GÚSTA
„Ég hef alltaf haft áhuga á
teiknimyndum”, segir Helga,
„alveg frá þvi ég var krakki.
Það voru ekki sist ýmsar teikni-
myndir sem maöur sá i sjón-
varpinu heima sem ýttu undir
mann og kveiktu löngun til aö
læra þetta. Einkanlega hafði
Gústi hinn ungverski mikil áhrif
á mig i þá átt. Hann hafði svo
sérstakan húmor, sem stilaður
var frekar fyrir iullorðna en
krakka”.
Hún segist hafa verið teikn-
andi siðan á barnsaldri, en hún
fór ekki i myndlistarskólann
heima. Segir að hann hafi ekki
veriö orðinn jafn eftirsóknar-
veröur þá og hann er núna. i
staðinn fór hún i þann ágæta
skóla Kvennaskólann, og þar
kom sér reyndar ekki illa aö
geta tjáð sig listrænt að ein-
hverju marki.
„Jú, það er lika óneitanlega
margt listafólk i ættinni. Ég
man aö þegar ég kom fyrst
hingað til Englands þá var ég
ekki með nógu mikla pappira úti
„Gaman
að vitma við
otkSngton
— Helgarblaðið heimsœkir Helgu Egilson
sem starfar við teiknimyndagerð í Londan
á flugvelli. Ég stóð i heil miklu
stimabrakiá flugstöðinni og var
i yfirheyrslu i tvær klukku-
stundir. Ég sagðist ætía að
læra teiknimyndagerð, en þeir
trúðu þvi mátulega. Héldu vist
aö ég ætlaöi að reyna a6 smygla
mér inn i l^ndið, en þeir eru
mjög á verði gagnvart sliku.
Svo var ég loks spurð hvað
pabbi minn gerði, og ég sagði:
Hann er hljóðfæraleikari. Og þá
sagði vegabréfaskoðarinn: Nú,
þetta er þá i ættiAni, og hleypti
mér þar með inn i landið!”
Og meðal teiknaríá sem ná-
komnir eru Helgi;, eru Muggur
sem var ömmubróðir hennar,
og Halldór heitinn Pétursson
var frændi hennar. Sonur Hall-
dórs, Pétur var einmitt við nám
i auglýsingateiknun, á sama
tima og Helga i London.
TILVILJANIR
Fyrst stundaöi Helga nám við
almennan listaskóla i London,
en þótti litiö til hans koma. Og
þá kom London Film School til
sögunnar. Skemmtileg tilviljun
varð þess valdandi að hún hóf
nám þar.
„Það var eins og einhver væri
að hjálpa mér til að finna þenn-
an skóla”, segir Helga. „A með-
an ég var i listaskólanum hafði
ég verið að reyna að finna skóla
sem kenndi teiknimyndagerð
sérstakJega, en enginn virtist
vita um neinn slikan. Hins veg-
ar voru nokkrir sem kenndu
hana sem aukagrein. Þetta var
á mánudegi og skólanum var
rétt að ljúka. A fimmtudag átti
ég að fara aftur heim til tslands.
Ég hafði gert enn eina tilraun-
ina til að hafa upp á skóla sem
kenndi teiknimyndagerð, en án
árangurs. Ég fór heim i ótta-
legri fýlu. Tók neðanjarðarlest-
ina og þurfti að skipta um lest. A
meðan ég beið á stöðinni fór ég
að skoða auglýsingaplakötin á
veggjunum, og lagði frá mér
töskuna mina með málaraá-
höldunum á meðan. Þá sá ég að
einhver maöur var farinn að
virða fyrir sér töskuna. Hann
spurði svo hvað ég geröi, og ég
sagði honum það. Upp úr þess-
um samræöum við bláókunnug-
an manninn fæ ég siðan nafn á
skóla sem kenndi teiknimynda-
gerð — London Film School. Ég
hringi i skólastjórann og hann
segir að nýir nemendur eigi að
koma til viðtals vikuna á eftir.
En þá hírföi ég verið komin heim
til íslands. Mér verður það til
happs að kennarinn i teikni-
myndagerð er viö. Hann biður
um aö fá að sjá eitthvaö af þvi
sem ég hef gert, og samþykkir
mig loks inn i skólann rétt áður
en ég held heimleiðis. Mér þykir
þetta skringileg röö af tilviljun-
um, og alla vega mátti ekki tæp-
ara standa”.
NÁMIÐ
Námið við London Film
School tók Helgu tvö ár, — eitt i
almennri kvikmyndagerð, ann-
að i teiknimyndadeildinni. Hún
fékk aö sleppa einu ári til við-
bótar i almennu deildinni. I
hennar bekk voru um 60 manns
en aðeins 2-3 fóru þaðan i teikni-
myndadeildina.
„Maður var látinn ráða sér
sjálfur i þessu námi að verulegu
leyti. Ekki hvað sist var lagt
mikið upp úr þvi að nemendur
horfðu á myndir, sundurgreindu
þær og ynrru siðan út frá þvi. Ég
lærði vissulega heilmikið, þótt
það kæitii ekki allt að gagni þeg-
ar maður fór að leita sér aö
vinnu. Mörgu kynntist maður
ekki fyrr en maður fór að vinna i
þessu. Það er svo mikiö af smá-
atriðum sem maður þarf að
læra og einn kennari kemst
Viðtal og myndir:
r
Arni Þórarinsson
VÍSIR
l tHfíandi: Hrxkjaprrnthf
Kramkvæmdastjóri: havlft (iubmundsson
Kilsljorar: l'orstoinn l’alsson ahm
olafur Haunarsson.
Hitst jornarfullt rui: Bragi Guftmundsson Fréttastjóri erlondra frétta : (iuftmundur G Pétursson
l ntsjón meft llelgarhlafti: Arm Þórartnsson Blaftamenn: Anders Hansen. Anna Heiftur Oddsdóttir
Edda Andresdottir, Kinar K Guftfinnsson. Elias Snæland Jónsson. Finnbogi Hermannsson Guftjón
Arngrimsson. Hallgrimur H Helgason. Kjartan L Pálsson. Oli Tynes. Sigurveig Jónsdóttir. Sveinn
(íuftjonsson. Sæmundur Guftvinsson Iþrottir: Björn Blöndal. Gylfi Kristjánsson i llitsteiknun: Jón
Oskar Halsteinsson. NTagnus Olatsson l.jósntyndir: Einar Gunnar Einarsson. Jens Alexandersson.
I.oflur Asgeirsson
Solustjori: Pall Stefánsson \ugl\singastjóri: Þorsteinn Fr Sigurftsson
Dreifingarsijóri: Sigurftur K Petursson
\ugl\singai : Siftumula h. Simar H22BO. KKfill. \skriftargjald kr. LHHi a ntanufti innanlands.
\fgreiftsla Stakkholti 2-1 simi KKKII Verft i lausasölo kr 70 eintakift
Hitstjórn: Síftumiila II. Sfmi KKKII. 7 línur. I'rentuii: Hlaftaprent hf
Askriftarsími Vísis er 86611
Hringið strax og tryggið ykkur eintak
af Vísi til lesturs hvern dag vikunncr
fyrir aðeins 1300 krónur ó mónuði