Vísir - 04.09.1977, Qupperneq 3

Vísir - 04.09.1977, Qupperneq 3
Sunnudagur 4. september 1977 3 Nú sýnir islenska sjónvarpið Simon og kritarmynd- irnar sem var fyrsta verkefni Helgu að námi loknu hreinlega ekki yfir að kenna. Ég gerði 2-3 minútna teiknimynd sem þátt i náminu, en þegar ég fór seinna að vinna við þetta sá ég að allt öðru visi er staðið að þessu. 011 undirbúningsvinna er ekki sist mun flóknari en hjá okkur i skólanum. Námið var vissulega ganglegt engu að sið- ur og mér fannst þetta afar skemmtilegur timi”. „Rétt eftir að ég hætti fór skólinn á hausinn, þótt ég geri ekki ráð fyrir að þar séu bein tengsl á milli! Upp úr honum var stofnaður London International Film School. t þessum skóla eru margir útlendingar, þ.á.m. nokkrir Islendingar. Sigurður Sverrir Pálsson var þarna til dæmis, og nú eru þar tveir tslendingar, — Jón Björgvinsson og Guðmund- ur Bjartmarsson.” ATVINNULEIT Þegar Helga útskrifaðist úr skólanum stóð yfir kolaverkfall- ið mikla iEnglandi. Vinnuvikan varð þrir dagar i viku, raf- magnið var tekið af margar klukkustundir á dag og svo framvegis. Fyrirtæki stórtöp- uðu og mikill fjöldi þeirra fór á hausinn. Þeirra á meðal voru auðvitað kvikmyndastúdió. Þetta takmarkaði að sjálfsögðu mjög alla atvinnumöguleika. En Helga var heppin. „Eftir tveggja mánaða at- vinnuleit fékk ég vinnu hjá FilmFair teiknimyndastúdióinu við gerð barnaþáttanna Simon in the Land of Chalk Drawings (Simon og kritarmyndirnar) sem Thames Television keypti til sýningar hér i Bretlandi og seldir hafa verið út um allan heim (nú sýndir hérlendis). Vinnan viö Simon stóð i eitt ár, og þá tókEaddington við i annað ár hjá sama fyrirtæki. Gerð myndanna um Paddington lauk snemma árs 1976. Siðan hef ég verið free-lance”. um og hann varð að gefa grænt ljós á allt þvi Paddington átti frá hans hendi að hafa alveg á- kveöinn karakter. Fyrir utan mann sem sá um gerð leikmuna vorum við sem sagt tvö i þessu til að byrja meö. En til þess að fylgja eftir sýningum þáttanna urðum við að afkasta einum fimm minútna þætti á viku og þar kom^að við vorum orðin svo langt á eftir aö fjölga varð starfsmönnum um tvo. Þótt þetta væri þannig erfitt og mikil vinna var alveg ægilega gaman að þessu og ég lærði heilmikiö á þessum tima sem ég vona að geti komið mér að notum i framtiðinni”. WATERSHIP DOWN Þegar Helgarblaðið kom i heimsókn var Helga að vinna við að mála fígúrur i nýja teiknimynd sem er verið að gera um þessar mundir i Bret- landi og er byggð á frægri met- sölubók RicharciAdams Water- ship Down. Þetta er ævintýri fyrir börn og fullorðna um kaninuveröld sem likist æði mikið okkar eigin. Helga segir að þetta sé einvörðungu máln- ingarverkefni og ekki áérlega skemmtilegt, en myndin verður litmynd i fullri lengd og áætlað er að frumsýna hana á næsta ári. Stjórnandi Watership Down heitir Martin Rosen. Helga vinnur heima hjá sér, fær bunfca af figúrum sem teiknaöar eru á glærar þynnur og hún á siðan að mála eftir litaforskrift og skila af sér sem fyrst.Þetta er mikiönákvæmnis- verk. Hún segist vinna oft á kvöldin til að ná upp þvi sem tapast yfir daginn;dagvinnan er átta stundir, en eftir þvi sem liö- ur á verkefnið fer yfirvinnan að aukast og peningaleg uppskera batnar. Hún gerir ráð fyrir að vinna við Watership Down til jóla. En hvað þá tekur við er ekki gott að segja. Þegar maður er „free-lance” er fyrir öllu aö hafa augu og eyru opin, og fylgj- ast með þvi sem er að gerast i teiknimyndaheiminum. AÐ FAVERKEFNI En hvernig gengur að halda sér á floti „free-lance” i teikni- myndum? Helga og Ivor Woods leikstjóri Paddingtonþáttanna færa til leikmuni og figúrur milli skota. „Þetta hefur gengið bara vel. A siðustu stundu og þegar mað- ur þarf mest á þvi að halda kemur alltaf eitthvað til að halda manni gangandi. Þegar maður er smám saman búinn aö koma sér fyrir og fólk hjá stúdióunum er farið að muna eftir manni verður æ auðveld- araaðfá verkefni. Þessi teikni- myndaheimur i Englandi er lika svo litill að hér vita allir af öll- um. Ætli teiknimyndastúdióin séu ekki 10-15 talsins, þar með talin þau sem gera auglýsinga- myndir. Og það er við auglýsinga- myndir sem mest er að gera. Langar teiknimyndir eru ekki algengar, en afturámóti er tals- RYimiViTOX FANNST I OXFORDSTRÆTI .>■ i Michael Bond var kvik- myndatökumaður við sjónvarpsstöð þegar hann á hráslagalegu kvöldi árið 1958 álpaðist til að leita skjóls frá rigning- unni inni I Selfridges- stórversluninni i Oxford- stræti i London, sem margir islenskir túristar kannast viö. Þar rak hann augun i heldur vesældar- legan bangsimon sem stóð einmana upp á hillu og keypti hann aö gamni sinu handa konunni sinni. Þessi bangsi varð kveikj an að sögunum uin Paddington. „Við áttum þá heima nálægt Paddington-brautarstöð- inni, svo ég skirði hann eftir henni”, segir Bond, „og ég var i loöúlpu og með gamlan hermanna- hattkúf á höfðinu, svo ég klæddi hann i þetta”. Nitján árum og sautján Paddington-bókum síðar er þessi skem mtilegi bangsi og hrakfallabálk- ur orðinn vinur barna á öllum aidri og foreldra þeirra um heim allan. í Bretlandi hafa meir en fjórar milljónir eintaka af bókunum selst og þær hafa verið þýddar á ann- an tug tungumála. Með sjónvarpsþáttunum komst Paddington þó fyrst virkilega i sviðsljós- ið. Margir höfðu komið að máli við föður hans, Michacl Bond, sem var orðinn vellauðugur maður vegna bangsans, til þess aö fá kvikmynda- réttinn að sögunum. En aðlokum valdihann Film Fair. Vandinn við að gæða Paddington lifi á sjón- varpsskermifólst iþviað gera mannfólkið hvers- dagslegt til að stjarnan sjálf fengi að blakta. Ivor Wood, leikstjóri valdi þann kostinn að gera pappafigúrur af mann- fólkinu sem eru hreyföar mynd fyrir leynd á sama hátt og brúðan af Paddington, (sem brúða fær Paddington um leið sérstöðu) er hrcyfð milli- mctcr fyrir millimeter á milli þess sem tökuvél- inni er smellt af. Þetta þýöir að allt sem Paddington snertir i þátt- unum verður að vera litill leikmunur, cn um leið og sami hlutur fer yfir á um- ráðasvæöi pappafigur- anna verður hann sam- stundis partur af flatri pappaleikmyndinni. Þetta er allumfangs- mikil og flókin kvikmynd- un ogþrjátiu Paddington- þættir kostuðu um 50.000 sterlingspund i fram- leiðslu. Trúlega hafa að- standendur þeirra þó fengið bærilega fyrir sinn snúð.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.