Vísir - 04.09.1977, Qupperneq 8
ER ÞA€ EKKI
SKRfTIÐ?
4
Hin nýja
öreigastétt
Fyrir ári siðan hafði land-
helgismálið algeran forgang.
Siðastliðinn vetur, meðan þjóð-
félagið var á uppboði á vinnu-
markaðinum, voru það lág-
launastéttirnar, sem höfðu al-
geran forgang. En forgang um-
fram hverja, annars? Nú, há-
launastéttirnar, auðvitað. Það
eina, sem vantaði i hina há-
spenntu fjölmiðlakappræðu,
var þetta sama og venjulega:
að skilgreina hugtök. Að gefa
orðum merkingu.
Ég á góöan kunningja úti i Þýzkalandi.
Hann fer senn aö nálgast þritugsaldurinn.
Hann var dúx i menntasktíla á sinni tiö.
Einn af þeim fáu útvöldu. Hann fór i eölis-
fræöi viö einn af fremstu háskólum Þýzka-
iands. Hann er nú um þaö bil aö ljúka
doktorsprófi, vafalaust á þröngu sérsviöi
innan sinnar fræðigreinar. Ég ber litiö
skynbragöá þaö. En ég veit.aö námiöhans
hefur ekki veriö tekiö út meö sitjandi sæld-
inni. Hans vinnudagur er ekki 8 stundir á
dag; ekki 37 stundir á viku. Þaö hefur veriö
botnlaust strit. Námi sem þessu skilar eng-
inn annar en sá, sem er gæddur miklum
hæfileikum, skapstyrk, viljafestu, sjálfs-
aga, og ég held ég megi segja, sjálfsafneit-
un.
Hann á ekki rika aö. Fjárhagslega heföi
hann aldrei klofið þetta nema vegna þess
að þýzkir skattborgarar hafa niöurgreitt
menntun hans. Þýzkir skattborgarar —
ekki islenzkir — takiö eftir. Ef þýzkir há-
skólar innheimtu skólagjöld, sem samsvör-
uöu kostnaöi viö menntun hvers náms-
manns (eins og t.d. beztu háskólar Banda-
rikjanna gera), næmi sú upphæö a.m.k. 10
milljtínum islenzkra króna yfir náms-
timann. Og þeir fá góöa menntun, sem er
fyllilega peninganna viröi.
Islenzkir skattborgarar (islenzka ríkiö)
veitti þessum úrvalsmanni sina mestu
viðurkenningu: dúxastyrk. Hann var þann-
ig hugsaður i upphafi, aö hann átti að end-
ast til uppihalds við háskólanám i 5 ár.
Rausnarlegt. Seinast þegar þessum verö-
launum var úthlutaö námu þau kr. 120 þús-
undum áári. Þaö dugar fyrir flugfari fram
og til baka og tveimur máltiðum á dag
fyrsta mánuöinn. Svo höföu Islenzkir skatt-
borgarar ekki lengur efni á þessari rausn.
Dúxastyrkurinn var afnuminn i fyrra. Um
það er bezt að hafa sem fæst orö. Hins veg-
arsakar ekki aögeta þess, aö einn dúxinn
frá Menntaskóianum á Isafiröi fékk
heiðursstyrk frá bandariskum skattborg-
urum til náms istæröfræöi. Þeim þótti leitt,
aö hann hrökk ekki fyrir öllum útgjöldum,
en hann nam hálfri annarri milljón
islenzkra króna. Um þaö mætti hafa mörg
orð. En vikjum aftur aö doktorsefninu i
Þýzkalandi. Hann ersenn á heimleiö. Hann
fékk námslán frá islenzka rikinu, nú sein-
ustu árin visitölubundin aö hluta. Skuldir
hans munu nema á fjóröu milljón. Vafa-
laust er þaö rétt, aö þær ættu að vera hærri,
ef hann ætti aö endurgreiða lánin aö fullu i
jafnverömætum krónum. Spurningin er
bara: Ætlumst viö til þess af veröbólgu-
bröskurum bankanna? Eigum viö ekki aö
láta jafnt yfir alla ganga?
Hvað kostar sönn þjóðrækni
Og hvaö svo? Nú kemur þessi ungi maöur
heim. Vonandifærhann vinnu. Hugsanlegir
vinnuveitendur eru ekki margir. Háskól-
inn, raunvisindastofnunin og e.t.v.
einhverjar fleiri rannstíknarstofnanir.
M.ö.o. hann gerist visindamaöur i þjónustu
islenzka rikisins — islenzkra skattborgara.
Og þar með er hann kominn inn i okkar há-
spenntu þjóömálaumræöu: hann er oröinn
hátekjumaöur. Máttarstólpi þjóöfélagsins.
Einn af þessum meö breiöu bökin.
Þótt viö vitum ekki nákvæmlega fyrir-
fram, hvar hinum unga visindamanni
verður skipaö á bás, skulum við ætla, aö
hann taki ekki lægri laun en sem svarar
lektorsnafnbót. Þá veröa mánaöarlaunin
samkvæmt nýjustu launatöflu kr.
172.916.00. Ef þaö er ekki pláss i háskólan-
um eöa á rannsóknarstofnunum, má vera,
að hann veröi fyrst um sinn aö sætta sig við
menntaskólakennslu. (Þaö hefur margur
maöur meö doktorsnafnbót gert á undan
honum). Þá væru mánaðar-
launin hans kr. 138.138.00 af þvi aö
hann hann er doktor. Annars væru þau kr.
130.241.00, ef hann væri réttur og sléttur
magister. (Þaö er aldeilis munur aö vera
doktor). Sumsé hátekjumaöur.
Þaö þarf vart aö taka þaö fram, aö nú á
maðurinn eftir aö koma sér fyrir i „verð-
bólguþjóöfélaginu” okkar, hann á eftir aö
koma sér upp þaki yfir höfuöiö og endur-
greiöa skattborgurum námslánin. Svo má
skjtíta þvf aö, að hefði maðurinn þegið
lektorstöðu viö sinn þýzka háskóla, sem
honum stóö til boöa, má margfalda Islenzku
lektorslaunin meö 4. Þá vitum viö, hvaö
sönn þjóörækni kostar. Hún kostar kr.
519.000 á mánuöi i verðlausum islenzkum
peningum.
Iiátekjur og láglaun.
Þá vitum við sem sagt, hvað hátekju-
maöur er. En hverjir eru þá iáglaunamenn-
irnir? Er þaö strákurinn, nemandi minn,
sem eftir þrjá og hálfan mánuð til sjós (viö-
vaningur) dró aö landi árslaun skólameist-
ara? (Meö botnlausum þrældómi, já. En
hversu margir skyldu vilja skipta við
skólastjóra heimavistarskóla?) Er þaö
menntaskólastelpan, reyndar dóttir min!
sem vann fyrirsér i frystihúsi i sumar frá
kl. 0700 til 1800 og haföi 50.000 kr meira á
mánuöi en eðlisfræöidoktorinn? Varla eru
þaö strákarnir, lika nemendur minir, sem
eru aö byggja blokkina (rausnarlega yfir-
borgaöir að eigin sögn) með 300. þúsund á
mánuði, fritt fæöi og friar feröir til Reykja-
vikur aöra hverja helgi? Og ekki sölumaö-
urinn, sem kom hér um daginn og sagðist
hafa 250 þúsund á mánuöi plús bilastyrk?
Ég er ekki aö tala um skipstjórann, sem
kom meö 140 þúsund tonn um daginn eftir 3
sólarhringa með 120 þúsund kr á dag. Ekki
um tannlækninn, sem lagöi inn reikning hjá
sveitarfélagi fyrir börn, sem hann haföi
aldrei augum litiö. Ekki um lögfræöinginn,
sem lagöi fram reikning upp á kr. 120 þús-
und fyrir klukkustundarráðgjöf viö samn-
ing, sem hann reyndar ekki geröi. Ekki um
arkitektinn, sem teiknaöi fyrir rikiö fyrir
430 milljónir eitt áriö og tók bara 7 prósent
fyrir sinn snúö.
Ég var bara aö tala um venjulegt, ófag-
lært láglaunafólk til sjós, I frystihúsi, I
byggingarvinnu og viö verzlunarstörf.
Nú veit ég ósköp vel aö þessi dæmi skipta
engu máli. Þau eru visindalega séö ger-
samlega ómarktæk. Þótt ekki væri nema
vegna þess aö afkoma fólks i okkar þjóö-
félagi (þ.e. raunveruieg lifskjör) fer ekki
eftir upphæö kaups i krónutölu. Hún fer
eftir aöstööu til skattsvika. Löggiltur
endurskoðandi, sem ég þekki, staöhæfir, að
fast aö helmingur allra skattborgara sé
skattsvikarar. Aö visu segir hann, aö þaö
séu ekki allir skattsvikarar i fullu starfi.
Margir hafi starf og þiggi fyrir venjuleg
laun, en hafi svo rekstur eða þjónustu meö,,
sem skapi aöstööu til skattsvika. Hann seg
ir, aö akademiskir skattsvikarar (sérfræö-
ingar meö eigin rekstur) séu litill minni-
hluti. Flestir skattsvikarar séu þrátt fyrir
allt félagsbundnir i verkaiýöshreyfingunni
— þar af margir sem, samkvæmt opinberri
skilgreiningu flokkist undir láglaunafólk.
Jæja. A haustin er þaö kennaraskort-
urinn, sem hefur forgang. Enn óráöiö i um
200 kennarastööur. Barnakennari sem
gegnirábyrgöarmesta starfi, sem unniðer,
i þessu mömmu- og pabbalausa þjóöfélagi,
færkr. 106.265.00 i mánaðarlaun. Og svikur
ekki undan skatti.
P.s. Velkominn heim í riki þitt, ungi eölis-
fræöingur. Þú hefur verk aö vinna. — Þótt
þaö sé kannski ekki á þröngu sérsviöi eölis-
fræðinnar.
Sunnudagur 4. september 1977 VISIR
VISIR
Sunnudagur 4. september 1977
Úrgaröi Rutar Kristjáns-
dóttur og óskars Hjartar-
sonar aö Sæviðarsundi
100. T.h. Begonía, t.v. rós
Grand' 'merse Jenny.
Heiðursverðlaunagarður Róberts
Arnfinnssonar og Stellu Guðmunds-
dóttur að Hófgerði 8 í Kópavogi.
Sigurður Steinsson og Guðný Árna-
dóttir, Hrauntungu 38 fengu verð-
laun fyrir listaverk í garði.
•'Pr.
Dalia Terpo í garði Hrefnu Júlíusdóttur og Kristjáns Jóhannessonar, Grenilundi 7 t.v. og t.h. rós Queen Elisabeth
úr sama garði.
Sumarið er sá timi sem
menn á islandi nota öðr-
um tímum f remur til þess
að vera úti undir beru
lofti. Menn verja þeim
útivistartima á ýmsan
máta sem kunnugt er.
Einn máti er að dunda sér
við hús sin, og þeir sem
lengst eru komnir dedúa
við að r®kta garðinn.
Flestir eru þeir sjálf-
sagt sem rækta garðinn
sinn að gamni sinu eða
skyldurækni fremur en
ástriðu. En þeir menn eru
til sem iðka garðyrkju út
frá heimspekilegri af-
stöðu og taka þar mið af
frægu spakmæli Volt-
aires (II faut cultiver
notre jardin). Og þeir
menn eru líka til sem iðka
garðyrkju sem list— sem
viðleitni í þá átt að breyta
hversdagslegu náttúru-
legu umhverfi manns i
list.
Hvað sem svoddan
bollaleggingum líður er
garðyrkja mikil og góð
dægradvöl yfir sumar-
timann og hér birtum við
lesendum til augnayndis
nokkur sýnishorn af
garðyrkju hér á höfuð-
- - : .. ......... .
borgarsvæðinu sem Ijós-
myndarar Vísis hafa
smellt af i sumar.
Annars vegar eru
myndir sem Þórir Guö-
mundsson tók á svoköll-
uðum „opnum degi“
Garðyrkjufélags Islands i
júlimánuði s.l. en þá voru
garðar nokkurra félags-
manna opnir fyrir al-
menning. Hins vegar eru
svo myndir Einars
Gunnars Einarssonar úr
tveimur görðum sem
hlutu viðurkenningu
fegrunarnefndar Kópa-
vogs i ágúst.
HBfuEB B 11 wh HBilH HV
Ný framköllunarvél, nýi Pro-matt pappírinn, og nýja INTERCOLOR II
filman, gerir okkur kleift að bjóða betri myndgæði og aukin afköst
í framköllun - Enn betri litmyndir á lágu verði.
Reynið viðskiptin og fáið fallegar litmyndir ásamt
nýrri litfilmu og myndaalbumi innifalið í verðinu.
Þar sem þjónustan og kjönn eru best
myndiðjan
ESÁSTÞÓRP
Suðurlandsbraut 20, Hafnarstræti 17, Reykjavík Simi 82733
ex