Tíminn - 07.03.1969, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 7. marz 1969.
TÍMINN
3
Einu sinni kvaðst Abraham íjin-
coln hafa lesið sögu um konung
nokkurn, sem langaði á veiðar, og
spurði ráðgjafa sinn hvort það
myndi rigna. Ráðgjafinn sagði
honum að veðrið myndi verða
gott. Þegar konungurinn og fylgd
arlið hans var á leið á veiðarnar,
mætti hann bónda, sem reið asna.
Hann sagði konunginum, að bráð
lega myndi byrja að rigna. Kon-
ungur hló og hélt áfram ferð
sinni, en jafnskjótt og hann byrj-
aði veiðarnar, kom hellirigning,
svo að hann og fylgdarlið hans
varð gegndrepa. Hann flýtti sér
heim, rak ráðgjafann burt og kall
aði á bóndann.
— Segðu mér hvernig þú viss-
ir að það myndi rigna.
— Ég vissi það ekki, yðar há-
tign. Það var asninn minn. Hann
sperrir eyrun, þegar von er á rign
ingu.
Konungur lét bóndann fara, en
lét sækja asnanna og veitti hon-
um embætti ráðgjafans.
— Og þar hljóp konungur al-
varlega á sig, sagði Abraham Lin-
coln.
— Hvers vegna? spurði einhver
áheyrendanna.
— Vegna þess, að jafnan síðan
heimtar hver asni embætti. Herr-
ar mínir, skiljið umsóknir yðar
eftir hérna hjá mér og þegar stríð
inu er lokið mun ég láta yður
vita hvað þeim líður.
Mynd þessi sýnir átta blinda
Afríkumenn sem nýlega hafa
klifið hæsta fjall í Afríku,
Kilimanjaro. Hinir átta blindu
menn, sem fjailið kiifu, stóðu
á tindi þess hinn tuttugasta
febrúar síðastliðinn, en mynd
þessi er tekin af þeim eftir
að þeir komu til bækistöðvar
sinnar við rætur fjalisins. Með
blindu mönnunum var einn sjá
andi leiðsögumaður, og er
hann einnig á myndinni. í bak
sýn er fjallið Kilimanjaro.
Olsen var ekið á sjúkrahús i
slæmu ástandi. Hann var spurður
venjulegra spurninga, þ. á. m.
hvort hann væri giftur.
— Já, svaraði Olsen, en það
var nú bíll í þetta skipti.
Hérna eru stígvélin yðar, sagði
skósmiðurinn við pólfarann, voruð
þér ánægður með þau, sem ég bjó
til fyrir síðustu pólförina?
— Já, ég hefi satt að segja
aldrei smakkað betri stígvél.
Tónskáldið Niels Gade var
lengi orgelleikari í kirkju. Dag
nokkurn kom prestur til hans
og spurði hvort hann gæti ekki
haft orgelforleikina sína svo
lítið styttri, þeir væru óneitan-
lega dálítið langdregnir.
— Þetta er skrýtið, svaraði
Gade, ég hef líka oft hugsað
um það, hvort ræðurnar yðar
gætu ekki verið styttri, en
svo hef ég alltaf hugsað: Vertu
ekkert að skipta þér af þessu
gamli minn, þessu hefur þú
ekki vit á.
Það fór illa fyrir skrifstofu
manni nokkrum hér í borginni
kvöld eitt, enda mætti hann
með glóðarauga í vinnuna dag-
inn eftir.
Þegar samstarfsmaður hans
spurði, hvernig á þessum á-
verka stæði, svaraði maðurinn
— Konan mín var ekki
heima, þegar ég ætlaði út í
gærkvöldi. Þegar ég hafði
buxnaskipti, losnaði tala af
buxnaklaufinni minni, og af
því að ég hef tíu þumalfingur
þegar um saumaskap er að
ræða, skrapp ég yfir í næstu
íbúð og bað nágrannakonu
mína um áð festa töluna. Hún
settist óðara á hækjur sínar
fyrir framan mig með nál og
enda, meðan ég stóð fyrir fram
an hana, Hún var einmitt að
ljúka við að festa töluna og
var að bíta sundur tvinnann,
þegar maðurinn hennar kom
inn.
Stína litla (við föður sinn,
sem er að leggja af stað í flug
vél): — Mundu það nú pabbi
minn, að koma niður með fá-
einar stjörnur handa mér, þeg
ar þú kemur aftur, — ég ætla
að leika mér áð þeim.
Margar sænskar leikkonur
hafa á undanförnum árum lagt
leið sína út í víða veröld og
freistað gæfunnar á hvíta
tjaldinu, en einna frægust
þeirra leikkvenna, sem erlendis
starfa er eflaust Anita Ekberg
sú brjóstamikla blondína sem
sést á meðfylgjandi mynd.
Annað slagið verða Svíar
heima fyrir forvitnir um hag
þessara stúlkna sinna sem út
í heiminn hafa lagt, og vilja
þá gjarnan frótta nánar af
þeirra högum. Ekki alls fyrir
löngu reyndi sænskt vikublað
að hafa uppi á Anitu Ekberg,
en sú varð einna frægust fyrir
leik sinn í „Hið ljúfa líf“,
ítalskri, kvikmynd sem sýnd
var í Nýjabíói fyrir nokkrum
árum. Sænska vikublaðið
hringdi í alla hugsanlega að-
ila í Evrópu sem bent gætu
því á dvalarstað Anitu. í Róm
var sagt að hún dveldist í
Sviss. í Sviss sögðu þeir að
hún væri flutt til Cannes á
frönsku Riveríunni, en allt
þetta reyndist vitlaust, því
Anita Ekberg dvaldist ásamt
manni sínum í leyfi á Spáni.
Og þegar Svíarnir loksins náðu
tali af henni á Spáni sagði hún
ekki margt utan hvað hún
tjáði þessum löndum sínum
að nú orðið væri það fátt sem
tengdi sig við Svíþjóð, því nú
væri mamma sín dáin, hún
yndi sér í staðinn vel á Spáni
og hefði alls ekki í hyggju að
fara heim til gamla landsins
Margir hafa verið forvitnir
um' hvernig Maríu Callas vegni
í heiminum eftir að hún hætti
nánum samskiptum við skipa
kónginn gríska, Aristóteles On
assis, en tíðum berast fregnir
af henni í tigjum við hina og
þessa glaumgosa. Nýjustu frétt
ir herma að Callas muni leika
í nýrri kvikmynd sem á að fara
að gera, en framleiðandi er
Franco Rossellini. Á þessari
myind sjáum við þau Callas og
Rossellini'koma saman af frum
sýningu myndarinnar Funny
Girl, en hún var nýlega frum
sýnd í París, eins og frá hefur
verið skýrt hér á síðunni.
Þau Callas og Rossellini láta
annars vel af sýnum högum,
láta mjög vel hvort af öðru,
og kunnugir segja að þau sjáist
mjög oft saman á skemmtistöð
um í París, eins og frá hefur
verið skýrt hér á síðunni.
Þau Callas og Rossellini láta
annars vel af sínum högum, láta
mjög rel hvort af öðru og kunn
ugir segja að þau sjáist mjög
oft saman á skemmtistöðum í
París. Kvikmyndin sem Rosse
lliini hyggst gera og Callas
mun leika aðalhlutverkið í mun
héita „Medea“.