Tíminn - 07.03.1969, Qupperneq 11
TÖSTUDAGUR 7. marz 1969.
TIMINN
u
DENNI
DÆMALAUSI
„Pabbi, láttu á þig gleraugun
og vittu hvort þér sýnist seppi
laslegur!"
Lárétt: 1 Nes 6 Stuldur 8 Kann
vel við mig 10 Fiskur 12 Kusk
13 Spil 14 Farða 16 Mann 17
Stefna 19 Undin.
Krossgáta
Nr. 258
Lóðrétt: 2 Maður 3 Kom-
ast 4 Veðurþyt 5 Málms 7
At 9 Maður 11 Und 15
Málmur 16 Álpist 18 Strax.
Ráðning á gátu nr. 257
Lárétt: 1 Sviss 6 Ana 8
Bál 10 Lík 12 Um 13 LI
14 Rak 16 Lap 17 Öró 19
Blámi.
Lóðrétt: 2 Val 3 In 4 Sal
5 Áburð 7 Skips 9 Áma 11
íla 15 Kól 16 Lóm 18 Rá.
ÓDÝRIR
KLÆÐASKÁPAR
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
HÚS OG SKIP HF.
Ármúla 5 • Símar 84415 og 84416.
VEUUMISLENZKT (M) ISLENZKANIÐNAÐ
J.O. Curwóod
einnar
29
að hún mundi þegar fara á eftir
honum.
Dónald var ur.drafljótur að
verki sínu. Það var ekki liðin
nema hálf klukkustund frá brott-
för hans, en Aldous heyrði iágt
blístur inni í skóginum. Þar stóð
gamli maðurinn í leyni með
nokkra smáhluti í höndum. Ald-
ous gekk til hans, en leit þó áður
til tjaldsins til þess að ganga úr
skugga um, að Jó'hanna veitti
brottför hans ekki athygli. Hann
sá, að andlit Dónalda var ösku-
grátt og augun hvöss. Hann ætl-
aði að segja eitthvað þegar í
stað, en Aldous kom á vettvang,
en honum vafðdst tunga um tönn.
Hann hélt á rauða vasaklútnum
sínum í hendinni og rétti hann
að Aldous.
— Hún var ekki djúp þessi
gröf, Johnny, sagði hann loks
skjálfandi röddu. — Það var að-
eins lítil hola undir steinaröðinni.
í vasaklútnum var eitthvað
þungt, og Aldous gat ekki stillt
sig um að reka upp stutt undr-
unaróp, er hann sá, hvað það var.
Það var aðeins úr og hringur.
hvort tveggja úr gulli, og letur
það, sem grafið var á úrið, var
svo máð, að það mátti heita ólæsi-
legt. Hringurinn var nærri því
óhugnanlegur skartgripur. Hann
var í líki slöngu og nógu stór og
giidur til þess að hylja efsta kögg-
ul löngutangar. Mennirnir horfð-
ust þegjandi í augu, og undrun
Aldous beindist brátt að starandi
augnaráði Dónalda og óhugnaði
þeim, sem í svip hans bjó. Hann
sagði þó ekkert en gekk að tjald-
inu með munina. Dónaldi fylgdi
honum eftir starandi sem fyrr, og
hendur hans héngu aflvana við
hiiðar hans.
Jóhan.na heyrði þá nálgast og
kom út úr tjaidinu. Hún tak upp
skelfingaróp, er hún sá framan í
Dónalda og varS að styðja sig við
tjaldsúluna. En Aldous gekk hægt
tii móts við hana með úrið og
hringinn í lófa sér. Hún sá þá
brátt og starði á þá stjörf og stór-
eyg. Þanníg leið löng stund. Loks
lyfti hún hendi. eins og hún vildi
frá sér. — Farið — farið burt
með það, stamaði hún.
Síðan reikaði hún eins og ölv-
uð inn í tjaldið, hné þar niður
á ábreiðuna og fól andlitið í hönd
um sér. Aldous rétti Dónaldi hlut
ina aftur og gekk inn í tjaldið.
Þar stóð hann þögull um stund
og horfði á Jóhönnu. Á þeirri
stundu, er Jóhanna sá úrið og
hringinn, hafði Aldous séð bregða
fyrir í augnaráði hennar glampa,
sem vitnaði um gleði en
ekki sorg, og þetta tillit hafði vak-
ið óstjórnlega gleði í brjósti hans
sjálfs. Meðan það reis og hneig á
öldum þessarar gleði, gekk Dón-
aldi aftur út að gröfinni með úrið
og hringinn. Hann tautaði í skegg
sitt: — Guð fyrirgefi mér. Eg
gerði þetta aðeins vegna Jó-
hönnu, ég geri það af því að hún
líkist Jane.
Sextándi kafli.
Þetta snögga leiftur í augum
Jóhönnu, sem Aldous hafði séð. áð-
ur en hún þaut inn í tjaldið,
sagði meira en orð. Hún hafði
ekki orðið fyrir vonbrigðum um
það. sem í gröfinni var, því að
hún hafði þekkt bæði úrið og
hringinn. og þessir munir höfðu
birt henni fortíðina á nýjan leik
með sama óhugnaði og slangan
í hringnum hefði verið lifandi og
spúð á hana eitri.
Hann hafði einnig séð það, að
andúð hennar á þessum hlutum
var annað og meira en ótti. Hún
var hatur og viðbjóður. Hann
undraðist ekki gleði hennar af því
að vita, að fortíðin var um garð
gengin. Sú staðreynd, að Mortim-
er Fitz Hugh lá undir þessari
steinaþyrpingu. var henni fyrir-
heit um nýtt líf. Nú reis sól
þeirra beggja. Hann hafði beðið
og vonað, að þessi stund rynni
upp, og nú komst aðeins ein
hugsun að — Jóhanna var frjáls.
Gröfin hafði verið lyikillinn að
fangaklefa hennar.
Allt í einu fann hann að undar
leg rósemi færðist yfir hann. Frá
þessari stundu var réttur hans til
þess að berjast fyrir Jóhönnu,
vernda hana og verja, óskoraður.
Vissan um þetta veitti honum nýj
an styrk og áræði. Hann forðaðist
, að trufla hana á þessari stundu.
iHún varð að fá "áðrúm til bess
að jafna sig. Aldous ákvað að
láta, sem atburðir þessa morguns
væru honum fjarri huga
Hann blístraði glaðlega og
fór að taka saman farangurinn
og koma honum í klyfjar þær,
sem Pinto skyldi bera Hann sá
þá, að Dónaldi hafði verið svo nær
gætinn að taka með sér í nesti
ríkulegan miðdegisverð. Þann
málsverð mundu þau snæða neðar
í dalnum, þegar bessi rauði múli
væri í hæfileeri fjarlægð Hann
var að Ijúika við klyfjabúnaðinn og
blístraði enn glaðlega, þegar
Dónaldi kom aftur frá gröfinni.
Aldous leit á hann, þagnaði sið-
an skyndilega og spurði lágt:
— Hvað er að, Dónaldi? Þú ert
náfölur eins og þú sért sjúkur.
— Þetta var leiðindaverk, Joh-
nny.
Aldous kinkaði kolli og hvísl-
aði: — Já, ég veit það, en við
megum ekki láta hana verða vara
við andúð okkai Vertu nú glað-
legur í bragði, og síðan skulum
við búast til ferðar héðan sem
skjótast. Við snæðum síðan mið-
degisverð neðar í dalnum.
Þeir höfðu nú hraðar hendur,
unz allt var til ferðar búið, nema
tjaldið, sem fella burfti og leggja
saman ofan í milli klyfja á Pin-
to. Aldous blístraði glaðlega, með-
an hann lagði á hestana, en stund
arfjórðungur leið. án þess að Jó-
hanna kæmi út úr tjaldinu, og
þeir vildu ekki trufla hana.
— Ég vil ekki ónáða bana, Dón-
aldi. Hvað eigurn við að gera?
Við verðum að taka eitthvað til
bragðs. Nú slekk ég eldinn.
Enn liðu tíu mínútur, og þeim
varð tíðlitið til tjaldsins, en Jó-
hanna birtist ekki.
— Eigum við að höggva nokk-
ur tré?
I — Eða fara í kött og mús.
Allt í einu brakaði í grein að
baki þeim, og þeir litu snöggt við.
Þar stóð Jóhanna í tíu skrefa fjar-
lægð.
I —Hamingjan góða, Jóhanna.
Ég hélt, að þú værir inni í tjald-
inu. sagði Aldous ráðvilltur. Hann
fagnaði bví að sjá rósaman og
glaðlegan svip hennar og gleymdi
nú öllum fyrri ásetnungi um að
vera ekki nærgöngull við hana.
— Ég smeygði mér undir tjald-
ckörina, sagði bún. — Og fór í
stutta gönguferð en nógu langa
tii þess að verða vot * fæturna.
— Og nú er eldurinn dauður.
— Hverju skipta votir fætur
núna. sagði bún.
Dónaldi var þegar byrjaður að
kippa upp tjaldhælunum, og J6-
hanna gekk hægt til Aldousar.
Hann horfði í augu hennar og
reyndi að lesa hug hennar, og nú
vissi hann, að það var til-
ætlun hennar, að honum tækist
það. Orð þau, sem hann hafði á-
kveðið að láta ósögð, brutust nú
yfir varir hans.
— Þú ert ekki lengur hrædd,
Ladygray? Það, sem þú óttaðist,
er . . dáið, lauk hún setningu
hans. — En þú, Aldous, hver er
hugur þinn til min? Virðist þér,
að ég sé siðblind kona?
— Það mundi mér aldrei koma
í hug, sagði hann með þunga.
Hún lagði hör.dina á hand-
legg hans. — Viltu ganga með
mér spölkorn — út i sólskinið.
Við skulum ganga fram á gruud-
ina og horfa út á vatnið. Þar
ætla ég að segja þér ofurlítið um
sjáifa mig, ofurlítið, sem ég hef
aldrei sagt neinum — allt um
mig — og hann.
Hann svaraði engu, en þau
gengu hljóð brott án þess að
segja Dónalda frá því. Þegar þau
komu þangað, sem vatnið blasti
við, tók Jóhanna loks til máls:
— Þú heldur ef til vill, að
þetta þarna inni í gilinu veki
skefingu mína, en það er öðru
nær. Ég mun ætíð bugsa um
þennan stað, einkum vatnið
hérna, á svipaðan hátt og Dón-
aldi um hellinn sinn. Það er þó
HLJÓÐVARP
Föstudagur 7. marz
?.00 Morgunútvarp
Veðurfregnii Tónleikar 7.
30 Fréttir Tónleikar 7.55
Bæn 8.00 Morgunleikfimi.
12.00 Hádegisutvarp
Dagskráin Tónleikar 12.15
Tilkynningar 1225 Fréttir
og veðurfregnir Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
13.30 Við vinnuna Tónleikar.
14.40 Við, sen» heima sitjum
15.00 Miðdegisútvarp
Fréttir t'iikynningar. Létt
lög:
16.15 Veðurfregnir.
Tónverb eftir Schubert
17.00 Fréttir
ísienzk tonlist.
17.40 ÚtvarpssiKi. oarnanna:
„Palli og Trvggur" eftir
Emanuei íienningsen
18.00 Tonjeikai rilkynntngar.
18.45 Veðurfregnir
Dagskrá Kvöldstns.
19.00 Fréttii
Tilkvnningar
19.30 Etsi á naugi
Tómat tvarlsson og Björn
Jóhannssoi' fjalla um erlend
málefni
20.00 Korsöngur- Ottenberg karla
kórinn svngur svissnesk lög
Söngstjórí v-aui Poster.
20.30 I s.iónht-.idingu
Sveinn sæmundsson ræðir
við Gei> (iislaeoti flugstjóra
um flug ti» Bíafra.
21.00 Carneva, op 9 eftir Robert
Schumann.
21.30 Útvarpssagan: „Albin“ eftir
Jean Giono.
22 00 Fréttir
22.15 VeAurÞcjnu
Lestui P<ti»siusálma (27)
22.25 Konungai Moregs og bænda
höfðingjai
Gunnai oenediktsson rithöf
undur flytur tíunda frásögn
þátt únn og hinn síðasta.
22.45 KvölihHótnleikar: Frá tón-
teikum sj,ni- - ”l'iiómsveitar
íslanrf* 4áskó>abíój kvöld
ið áðui
23.35 F'étii stuttu málL
Dagskrárlok.